DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mayan Moon Shine

Prjónuð peysa úr DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-33
DROPS Design: Mynstur pu-049
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-400-450-450-500-550 g litur 07, ljós grár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 fyrir áferðamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Mocha NR 623: 6-6 6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6776.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð – á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 241 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 9,6.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-8-8-8½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 135-141-147-153-159-165 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Puna. Prjónið 1 umferð brugðið (ranga).
Prjónið síðan stroff þannig:

UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.

UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 og prjónið þar til stroffið mælist 8 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt frá réttu. JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn = 136-142-148-154-160-166 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðar í garðaprjóni eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 4.

BERUSTYKKI:
Prjónið mynstur þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * A.1 yfir næstu 3 lykkjur, A.2 (= 3 lykkjur í fyrstu umferð) *, prjónið frá *-* 21-22-23-24-25-26 sinnum, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 241-252-286-322-335-348 lykkjur í umferð.
Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður (án útaukningar í A.2) þar til berustykkið mælist 17-19-20-22-24-26 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að endað sé eftir umferð sem er eins og síðasta umferð í A.2.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 25-31-26-26-31-41 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 266-283-312-348-366-389 lykkjur. Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm, aukið út um 24-31-26-26-32-41 lykkjur jafnt yfir = 290-314-338-374-398-430 lykkjur.
Haldið áfram þar til berustykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðið yfir næstu 41-45-48-53-58-64 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið brugðið yfir næstu 82-90-96-106-116-128 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-78-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið brugðið yfir næstu 41-45-48-53-58-64 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjóna hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 194-210-226-246-270-294 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá skiptingu, aukið út um 37-41-43-47-53-57 lykkjur jafnt yfir = 231-251-269-293-323-351 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið nú stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Endurtakið umferð 1 og 2 og prjónið þar til stroffið mælist 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 58-62-68-76-78-82 lykkjur frá þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-14 nýjum lykkjum undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 5-5-6-6-7-7 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónamerkið fylgir með í stykkinu og er notað þegar úrtaka er gerð undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-4-3 cm frá skiptingu, fækkið lykkjum undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-1½-1½-1 cm millibili alls 11-12-15-18-19-20 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Þegar ermin mælist 40-39-38-37-36-34 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), aukið út um 6-6-8-8-10-10 lykkjur jafnt yfir = 52-54-58-60-64-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist alls 45-44-43-42-41-39 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.09.2020
Leiðrétting: Lykkjufjöldi undir KANTUR Í HÁLSI.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið – það eiga að myndast göt
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Eva Larsen wrote:

Fejl i opskrift. Jeg strikker str. L Der er mønster A. 2, som skal strikkes 23 gange, men der er masker til 25 gange, så der bliver for mange masker, når bærestykket er færdigt

13.03.2024 - 06:58

country flag Marie Engström wrote:

Mönsterstickningen på oket blir inte lika på båda sidor. Man börjar med A.1 och slutar varvet med A.2. Det innebär att hålmönstret hamnar en bit in på ena sidan. Inte snyggt. Borde man inte sluta med A.1?

10.08.2023 - 10:31

DROPS Design answered:

Hej Marie, jo det bör man. Vi skall göra en rättelse. Tack för info!

16.08.2023 - 10:38

country flag Mary wrote:

Hi, I am knitting Mayan Moon Shine. I am up to the yoke but do not understand the instruction after the 5 plain stitches for the band ie 'A.1 over the next 3 stitches. A.2 (=3 stitches on the first row). Can you explain it to me in a different way. I just don't get it. Thankyou

22.07.2023 - 11:51

DROPS Design answered:

Dear Mary, it means that you need to work row 1 of the charts A.1 and A.2 (remember that A.2 is different for each size). So you work 5 stitches for the band, the 3 stitches of A.1 and the 3 stitches of A.2 and continue working the row alternating between both charts. Here you can find more information on how to read knitting charts: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=19. Happy knitting!

23.07.2023 - 19:31

country flag Hanneke Geervliet wrote:

Klopt het dat het patroon aan de rechter- en linkerkant naast de voorbies niet symmetrisch is? De rechterkant is A2, de linkerkant A1. Ik brei het vest in maat S.

21.03.2023 - 22:30

DROPS Design answered:

Dag Hanneke,

Het klopt inderdaad dat het patroon niet symmetrisch is; je begint met A.1 en eindigt met A.2

22.03.2023 - 20:19

country flag Pia wrote:

Strikker str M\r\nHar strikket 2 p mønster\r\nSkal nu til 3. p …. Passer med maskes tal og i venstre side vil hulmønsteret ligge fint op af ret kanten …..\r\nMen i venstre side ender mønsteret med 4 ret, så her vil hulmønstret ende et lille stykke før tet kanten …. Skal det ikke være ens i begge sider?\r\nForstår ikke hvad jeg gør forkert😌

01.06.2022 - 17:12

country flag Hanneke Broekman wrote:

Hallo, Graag zou ik de stekenverhouding op naald 4 en 3 ook weten. Mijn proeflapjes kloppen nl niet altijd. Klopt het dat naald 4 21 steken op 10 cm heeft en naald 3 23 steken? Ik kom nl uit op 24 steken op naald 3... Wel 21 steken op naald 4.

14.12.2021 - 17:14

DROPS Design answered:

Dag Hanneke,

De stekenverhouding is per persoon anders, dus ik kan voor jou niet zeggen wat de stekenverhouding op naald 4 en 3 zal zijn. Dit is gewoon een kwestie van ook op die naalden een proeflapje maken. Zelf heb ik ook altijd dunnere naalden nodig om de stekenverhouding van het patroon te krijgen.

15.12.2021 - 17:18

country flag Elke wrote:

Hallo liebes Drops Team Leider erschließt sich auch mir die Maschenprobe nicht. Mit welcher Nadelstärke haben sie die Maschenprobe gestrickt? Es sind 3 Nadelstärken angegeben jedoch fehlt mir die Angabe mit welcher von den Nadelstärken IHRE Maschenprobe gestrickt wurde. Lg Elke

30.11.2021 - 07:33

DROPS Design answered:

Liebe Elke, die Maschenprobe (= 20 M x 26 Reihen) werden hier mit den grösseren Nadeln = 4,5 gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

30.11.2021 - 08:38

country flag Jeg Forstår Ikke A1 Og A2 wrote:

Jeg forstår ikke A1 og A2? Strikkes det først A1 over 3 også resten A2?

16.05.2021 - 07:29

DROPS Design answered:

Hej, Efter de 5 kantmasker, strikker du skiftevis A.1 og A.2 hele vejen rundt og afslutter med 5 kantmasker i den anden side. Allerede på første pind i A.2 tager du 1 masker ud mellem 2. og 3. maske også hele pinden rundt. God fornøjelse!

17.05.2021 - 13:18

country flag Isabelle Lettre wrote:

Bonjour, je ne comprend pas cette portion du patron. (A1 au-dessus des 3 mailles suivantes, A.2 (= 3 mailles au 1er rang) Est-ce que je dois tricoter les 5 maille de la boutonnière après tricoter 3 mailles et commencer A.1? Je ne comprend pas le terme au-dessus des 3 maille suivante. Merci de me répondre

06.03.2021 - 23:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lettre, vous commencez par tricoter les 5 mailles de la bordure du devant, puis répétez les diagrammes ainsi: *A.1 = 3 mailles, puis A.2 = 3 mailles au 1er rang (vous allez augmenter dans A.2 5, 6 ou 7 mailles (cf taille) comme le montre le diagramme*, répétez ainsi ces 5 mailles au 1er rang (= au 1er rang de A.2 vous augmentez ainsi: 2 m end, 1 jeté, 1 m end). Terminez le rang par les 5 m de bordure devant. Bon tricot!

08.03.2021 - 08:27

country flag Lespinasse wrote:

Bonjour, j'ai commencé ce gilet, la patte de boutonnage au point mousse resserre le tricot, est-ce qu'à la fin ça ira ? D'habitude je fais les pattes à la fin en relevant les mailles, je n'ai jamais fait la patte au point mousse en même temps que le devant Merci pour vos conseils, très bonne journée

08.02.2021 - 12:16

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lespinasse, si vous vous rendez compte que la bordure devant a tendance a resserrer l'ouvrage en hauteur, vous pouvez faire des rangs raccourcis à intervalles réguliers sur les mailles de bordure des devants de chaque côté. Un blocage peut également suffire. N'hésitez pas à essayer sur un échantillon avant de vous décider. Bon tricot!

08.02.2021 - 15:01