DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lucky Clover Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með útaukningu á öxlum fyrir axlarsæti og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-9
DROPS Design: Mynstur bm-079
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-350-400-450-500-550 g litur 38, ólífa

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff/kant.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 110 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 24) = 4,58.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR Í LYKKJUR MEÐ 1. OG 3. PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Prjónið 5 lykkjur í brugðnu lykkjuna og færið prjónamerkið þannig: * Prjónið lykkjuna brugðið, en bíðið með að sleppa lykkjunni af prjóni sem prjónað var í, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* 2 sinnum og prjónið 1 lykkju brugðið í sömu lykkju, færið prjónamerkið að síðustu lykkju sem var prjónuð í lykkjuna (= 5 lykkjur prjónaðar í sömu lykkju.
AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR Í LYKKJUR MEÐ 2. OG 4. PRJÓNAMERKI ÞANNIG:
Prjónið 5 lykkjur í brugðnu lykkjuna og færið prjónamerkið þannig: Prjónið lykkjuna brugðið og færið prjónamerkið að lykkjunni sem var prjónuð, * en bíðið með að sleppa lykkjunni sem prjónað var í af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju brugðið í sömu lykkju *, prjóni frá *-* 2 sinnum (= 5 lykkjur prjónaðar í sömu lykkju).
Prjónamerkið situr í fyrstu lykkjunni sem var prjónuð.
Í næstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar inn í mynstrið, þ.e.a.s. lykkjan með prjónamerki er prjónuð brugðið og þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar inn í mynstur með 2 lykkjur sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón.
Næsta útaukning er gerð í brugðnu lykkjuna (þ.e.a.s. lykkjuna með prjónamerki).
Aukið út lykkjur fyrir framstykki/bakstykki. Fjöldi axlalykkja verðu sá sami.

ÚTAUKNING-3 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráður situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 110-116-122-126-134-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino.
Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm, aukið út um 26-24-18-22-26-24 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 136-140-140-148-160-168 lykkjur.
Prjónið 1 umferð sléttprjón.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Nú er prjónað áfram í mynstri og 4 prjónamerki sett í lykkjur og 4 merkiþræðir á milli lykkja eru settir í stykkið þannig:
HÁLFT BAKSTYKKI:
Prjónið * 2 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* yfir 16-16-16-16-20-20 lykkjur, 1 lykkja brugðið (setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, það á að auka út síðar í þessa lykkju).
HÆGRI ÖXL/ERMI:
Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1 merkiþráð (þ.e.a.s. setjið 1 merkiþráð á milli 2 lykkja slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, * 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* yfir 28-28-28-32-32-36 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, setjið 1 merkiþráð (þ.e.a.s. það er settur 1 merkiþráður á milli 2 lykkja slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón.
FRAMSTYKKI:
Prjónið 1 lykkju brugðið (setji 2. prjónamerki í þessa lykkju, það á að auka síðar út í þessa lykkju), * 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* yfir 28-32-32-32-36-36 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja brugðið (setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju, það á að auka síðar út í þessa lykkju).
VINSTRI ÖXL/ ERMI:
Prjónið 1 lykkju sléttprjón, setjið 1 merkiþráð (þ.e.a.s. það er settur 1 merkiþráður á milli 2 lykkja slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón, * 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* yfir 28-28-28-32-32-36 lykkjur, 2 lykkjur garðaprjón, 1 lykkja sléttprjón, setjið 1 merkiþráð (þ.e.a.s. það er settur 1 merkiþráður á milli 2 lykkja slétt), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón.
HÁLFT BAKSTYKKI:
Prjónið 1 lykkju brugðið (setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju, það á að auka síðar út í þessa lykkju) og prjónið * 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón *, prjónið frá *-* yfir 16-16-16-16-20-20 lykkjur og endið með 2 lykkjur garðaprjón.
Í næstu umferð er uppslátturinn látinn falla laust niður við hvern merkiþráð.
Þetta er gert til að lykkjurnar á undan/eftir útaukningu fyrir axlarsæti komi ekki til með að herða á stykkinu.
Sláið 1 sinni uppá prjóninn við hvern merkiþráð (þ.e.a.s. á milli 2 lykkjur slétt) í annarri hverri umferð og sleppið uppslættinum laust af prjóni í umferðinni á eftir (þ.e.a.s. lykkjum er ekki aukið út).
Þetta er gert þangað til berustykkið hefur verið prjónað til loka.
Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón.
Í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki (þ.e.a.s. brugðnar lykkjur) – sjá ÚTAUKNING-2 (= alls 16 lykkjur fleiri).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 0-0-3-3-4-5 sinnum, í 4. hverri umferð alls 6-9-9-10-11-12 sinnum, í 6. hverri umferð alls 4-3-3-3-3-3 sinnum og í 8. hverri umferð alls 1 sinni (þ.e.a.s. það hefur verið aukið út alls 11-13-16-17-19-21 sinnum) = 312-348-396-420-464-504 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 20-22-24-25-26-28 cm.
Prjónið eina umferð sléttprjón JAFNFRAMT sem fækkað er um 2-0-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig:
Prjónið 44-50-57-59-67-75 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið 86-100-114-118-132-148 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 nýjar lykkjur undir ermi og prjónið 44-50-57-59-67-75 lykkjur slétt (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 190-216-244-252-282-314 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt á milli 8 lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi.
Nú eru 94-108-122-126-140-156 lykkjur á milli merkiþráða á bakstykki.
Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu, það á að nota þá síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvern merkiþráð – sjá ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 2½-3-5-2-2½-3 cm millibili alls 7-6-4-8-7-6 sinnum = 218-240-260-284-310-338 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 25 cm frá skiptingu, aukið út um 2-0-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-284-312-340 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur garðaprjón/2 lykkjur slétt) yfir allar lykkjur.
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 54-56-58-60-61-64 cm, mælt frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 68-74-84-92-98-102 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt á milli 8 lykkja undir ermi. Það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þennan merkiþráð.
Haldið áfram hringinn í mynstri, þ.e.a.s. það er prjónað garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttprjón yfir sléttprjón, nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar inn í mynstur (þ.e.a.s. 2 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur garðaprjón). Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstur mitt undir ermi, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 5 cm frá skiptingu.
Nú er stykkið prjónað áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur.
Í fyrstu umferð í sléttprjóni er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona með 1 cm millibili alls 5-5-5-6-6-7 sinnum, síðan með 4-3½-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 7-8-12-14-16-16 sinnum = 52-56-58-60-62-64 lykkjur.
Þegar ermin mælist 41-40-38-38-38-37 cm, aukið út um 0-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 52-56-60-60-64-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón) hringinn.
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2020
Leiðrétting: Fjöldi lykkja fyrir hálsmáli og berustykki í stærð S, XXL og XXXL hefur verið uppfærður.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Gith Finnsson wrote:

Hur lägger jag upp 8 maskor under armen när maskorna sitter på tråden?

31.03.2024 - 17:59

DROPS Design answered:

Hej Gith, vi forstår ikke helt hvad du mener, men prøv at se på videoen: Hur man stickar en tröja uppifrån och ner - du finder den ved at klikke på video øverst i mönsteret :)

05.04.2024 - 10:55

country flag Elisabeth DULAC wrote:

Je fais ce modèle en XXL - Je me retrouve bien avec les 160 m prévues. Mais lorsque je commence l'empiècement je me retrouve avec un total de 158 m (21 + 38 + 40 + 38 + 21 m) Il me reste donc 2 m. Où est ce que je me trompe ? je ne trouve pas de maille lisière dans les explications. Merci pour votre réponse.

13.03.2024 - 10:31

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dulac, votre question a bien été transmise à nos stylistes, je vous remercie d'avance pour votre patience.

13.03.2024 - 13:20

country flag Elisabeth DULAC wrote:

Bonsoir. Je fais ce modèle en XXL - Je me retrouve bien avec les 160 m prévues. Mais lorsque je commence l'empiècement je me retrouve avec un total de 158 m (21 + 38 + 40 + 38 + 21 m) Il me reste donc 2 m. Où est ce que je me trompe ? je ne trouve pas de maille lisière dans les explications. Merci pour votre réponse.

02.03.2024 - 19:17

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dulac, il faut en fait tricoter les côtes sur 20 mailles en taille XXL, ainsi vous aurez 23 mailles pour le 2ème demi-dos, à la fin du tour. Merci pour votre retour, bon tricot!

15.03.2024 - 12:28

country flag Brigitte wrote:

Vielen Dank für die Erläuterung. Jetzt komme ich weiter.

08.12.2023 - 17:40

country flag Brigitte wrote:

Hallo, bei Größe S sind nach der Zunahme 136 Maschen auf der Nadel. Bei der Aufteilung der Passe 1/2 Rückenteil = 17 Maschen, rechte Schulter = 34 Maschen, Vorderteil= 32? Maschen, linke Schulter = 34 Maschen, 1/2 Rückenteil = 17 Maschen. Summe = 134 Maschen. Das Muster endet so auch in der Mitte nicht mit 2 Kraus Maschen. Was mache ich hier falsch? Herzliche Grüße Brigitte

07.12.2023 - 17:20

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, es sind 19 Maschen für das 2. 1/2 Rückenteil am Ende der Runde: 1 Masche links, 16 Maschen (2 Maschen kraus rechts, 2 Maschen glatt rechts) und dann 2 Maschen kraus rechts. Viel Spaß beim stricken!

08.12.2023 - 08:32

country flag Andrea wrote:

Hallo, Ihr habt CP am 31.7. geantwortet, dass bei Größe M 9x in jeder 2. Runde und 3x in jeder 4. Runde zugenommen wird. In der Anleitung steht aber 0x jede 2. Runde, 9x jede 4. und 3xjede 6. Runde. Ich bin verwirrt :-)

06.09.2023 - 14:33

DROPS Design answered:

Liebe Andrea, irgendwas ist hier schief gegangen, in M werden Sie genauso wie bei der Anleitung zunehmen: in jeder 4. Runde 9 x + in jeder 6. Runde 3 Mal + in jeder 8. Runde 1 x (= 9+3+1= 13 Mal insgesamt). Viel Spaß beim stricken!

07.09.2023 - 09:31

country flag CP wrote:

Hallo, laut meiner Rechnung sind es bei Größe M nach der letzten Zunahme bei der Passe 364 M statt nur 348. Kann es sein, dass da die 16 M die am Anfang zugenommen wurden vergessen wurden beim zählen? Falls die Zahl in der Anleitung nicht stimmt, hätte das ja auch Folgen für die folgenden Zahlen, z.B. für das Verhältnis der Aufteilung für Ärmel, Vorder- und Rückteil. Freue mich über eine Antwort. Ich kann keinen Feher in meiner Rechnung finden. Danke. LG CP

30.07.2023 - 09:24

DROPS Design answered:

Liebe CP, es waren 140 Maschen am Anfang der Passe, dann nehmen Sie 16 Maschen insgesamt 13 Mal (9 Mal in jeder 2. Runde + 3 Mal in jeder 4. Runde + 1 Mal in jeder 8. Runde), so sind es: 140 + (13x16)=348. Viel Spaß beim stricken!

31.07.2023 - 10:47

country flag Annette wrote:

Pattern has 1 row stocking stitch BEFORE dividing body and sleeves. Body then begins and continues in Stocking Stitch. The sleeves begin in pattern- garter over garter, stocking over stocking and purl over purl for 5 cm. However the stitches picked up and on the waste yarn is the row or stocking stitch. I now have a line on the sleeves. Where did I go wrong?

18.02.2023 - 22:35

DROPS Design answered:

Dear Annette, in the first row of the sleeves you work the sts from the waste yarn + knit up in the 8 stitches cast-on for the sleeve. Now, work over all stitches in the sleeve with the following pattern: 2 sts in garter stitch, 2 sts in stocking stitch. Now work 5cm with garter st over garter st and stocking st over stocking st. Happy knitting!

19.02.2023 - 19:59

country flag Kirsten Madsen wrote:

Hej. Hvordan undgår jeg, at der bliver et stort hul, når jeg tager 4 masker ud i en vrangmaske? På billedet ser det ikke ud som om der bliver huller. Vh Kirsten

12.02.2023 - 15:31

DROPS Design answered:

Hei Kristen. Det vil nok bli et lite hull, men vil jevne seg ut ved bruk/vask. Om du ser på videoen: Hvordan tages der ud til sadelskulder ved at strikke 5 masker i samme maske, vil du se at det blir hull (store hull ved bruk at tykt garn). mvh DROPS Design

13.02.2023 - 13:30

country flag Celeste wrote:

Grazie della risposta, mi riferisco all'inizio dello sprone, quando si inseriscono i segnapunti, ma credo che la risposta che mi avete fornito sia comunque sufficiente, dato che anche alla fine dello sprone ci sono meno maglie sul davanti rispetto al dietro. Scusate la banalità della domanda ma è la prima volta che mi cimento in un lavoro un po' più complesso con i ferri circolari. Grazie!

05.10.2022 - 09:02

DROPS Design answered:

Buonasera Celeste, è corretto. può procedere seguendo il modello. Buon lavoro!

05.10.2022 - 23:18