DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Branching Out Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóni og tvöföldum kanti í hálsi. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-14
DROPS Design: Mynstur mb-061
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-650-700-750-800-900 g litur 19, beige

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
13 lykkjur á breidd og 36 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5,5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón/klukkuprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 6-6-6-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10164.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 99 lykkjur) mínus kanta að framan (= 18 lykkjur) og deilið þeim 81 lykkju sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 8,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um stærð S-M-L-XL):
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu!
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við öll 4 prjónamerkin (= alls 8 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Herðið aðeins á þræði þegar prjónað er yfir kantlykkjur að framan til að kantur að framan verði ekki of laus.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjur eins og áður. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1 cm eftir prjónamerki í hálsi (þ.e.a.s. ekki fella af fyrir hnappagati í kanti í hálsmáli). Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8-8½-9 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram- og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur og saumaður saman í lokin.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 99-103-107-111-115-121 lykkjur (meðtaldar 9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Big Merino.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og endið með 1 lykkju garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff í 6 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Þær 9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki halda áfram í stroffi og garðaprjóni eins og kantur í hálsmáli til loka. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni.
Í 1. umferð á eftir kanti í hálsmáli er aukið út um 10-18-26-10-18-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 109-121-133-121-133-145 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið 2 umferðir til viðbótar í sléttprjóni og stroffi yfir kantlykkjur að framan eins og áður. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður – sjá LEIÐBEININGAR, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið og prjónið stroff yfir 9 kantlykkjur að framan eins og áður = 79-87-95-87-95-103 lykkjur.
Prjónið nú mynstur þannig (1. umferð = rétta):
Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður, * A.1 yfir næstu 6 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til 14 lykkjur eru eftir í umferð (= alls 7-8-9-8-9-10 sinnum), A.1 yfir næstu 5 lykkjur (þ.e.a.s. A.1 er prjónað 2 sinnum á breiddina, síðan er fyrsta lykkjan prjónuð í A.1) og endið með 9 kantlykkjur að framan eins og áður.
Haldið áfram svona fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðirnar.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 135-151-167-183-203-223 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 7-7-7-9-9-9 cm frá prjónamerki eftir stroff. Ef stykkið mælist minna en þetta, endurtakið síðustu 2 umferðir í mynsturteikningu til loka.
Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig:
Prjóni eins og áður yfir 9 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið yfir lykkjur á berustykki jafnframt því sem uppslátturinn er prjónaður brugðið saman með lykkjunni sem hann tilheyrir, prjónið eins og áður yfir 9 kantlykkjur að framan.
Prjónið 1 umferð sléttprjón með 9 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður.
Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig:
Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 10 lykkjur eru eftir í umferð, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið og prjónið stroff yfir 9 kantlykkjur að framan eins og áður.
Prjónið mynstur þannig (1. umferð = rétta): 9 kantlykkjur að framan eins og áður, * A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, A.1 yfir næstu 12-12-12-16-16-16 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til 14 lykkjur eru eftir í umferð (= 7-8-9-8-9-10 sinnum), A.1 yfir næstu 2 lykkjur, A.2 yfir næstu 2 lykkjur, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 og endið með 9 kantlykkjur að framan eins og áður.
Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið síðustu 2 umferðir. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 199-223-247-291-323-355 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 14-14-14-18-18-18 cm. Ef stykkið mælist minna en þetta, endurtakið síðustu 2 umferðir af mynsturteikningu að réttu máli.
Í næstu umferð frá röngu er prjónað þannig:
Prjónið eins og áður yfir 9 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið yfir lykkjur á berustykki jafnframt því sem uppslátturinn er prjónaður brugðið saman með lykkjunni sem hann tilheyrir, prjónið eins og áður yfir 9 kantlykkjur að framan.
Prjónið nú stykkið í sléttprjóni með 9 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 13 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kantlykkjur að framan) = 212-236-260-304-336-368 lykkjur.
Í stærð XXL-XXXL er útaukningu lokið. Aðrar stærðir eru prjónaðar áfram þannig:

STÆRÐ S-M-L-XL:
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið í næstu umferð þannig:
Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður, 29-32-36-42 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, 38-44-48-58 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, 59-65-73-85 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, 38-44-48-58 lykkjur sléttprjón, setjið 1 prjónamerki, 30-33-37-43 lykkjur sléttprjón og endið með 9 kantlykkjur að framan eins og áður.
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2! Aukið svona út í hverri umferð frá réttu alls 4-3-2-1 sinnum = 244-260-276-312 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
= 244-260-276-312-336-368 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 9 kantlykkjur að framan eins og áður.
Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-26 cm frá prjónamerki í hálsmáli, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig:
Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður, 33-35-38-43-48-54 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-50-52-60-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 67-71-77-87-98-110 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 46-50-52-60-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 34-36-39-44-48-54 lykkjur sléttprjón og endið með 9 kantlykkjur að framan eins og áður (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 168-176-188-208-228-252 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 9 kantlykkjum að framan eins og áður þar til stykkið mælist 26-26-27-27-27-29 cm frá skiptingu.
Í næstu umferð er aukið út um 27 lykkjur jafnt yfir = 195-203-215-235-255-279 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið síðan stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið og 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með garðaprjón yfir garðaprjón, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur þar til stroffið mælist ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur - sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 46-50-52-60-62-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 nýjum lykkjum undir ermi = 54-58-60-68-70-74 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 3-3-3-2-2-1½ cm millibili alls 9-10-10-13-13-15 sinnum = 36-38-40-42-44-44 lykkjur.
Þegar ermin mælist 38-37-37-35-33-34 cm, aukið út um 6 lykkjur jafnt yfir = 42-44-46-48-50-50 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm.
Ermin mælist 45-43-43-41-39-40 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfalt uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op við miðju að framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið
symbols = prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman
symbols = prjónið 5 lykkjur í lykkju í garðaprjóni og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, * sláið 1 sinni um hægri prjón og prjónið sléttu lykkjuna og uppsláttinn aftur slétt saman án þess að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 5 lykkjur.
symbols = slétt lykkja frá röngu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Elly wrote:

Goedemorgen, fijn dat ik al zo snel antwoord heb gekregen op mijn vraag van gidteren over het vest patroon 216.14. Ik begrijp dat het de - steek volgens het telpatroon op de verkeerde kant rechts gebreid moet worden. Op het filmpje is te zien ( paars met aubergine kleuren, rond de 2 minuten speeltijd) dat alle steken op de verkeerde kant averecht gebreid worden. Is dit misschien niet het goede filmpje bij het patroon? Vriendelijke groet elly

27.10.2022 - 10:38

country flag Johanna wrote:

Leider ist diese Naleitung unnötig kompliziert geraten. Selbst für erfahrene Strickerinnen ist es sehr schwierig, bei all den Diagrammen den Überblick zu behalten UND noch zusätzlich Blende und Knopflöcher korrekt zu stricken. Ich bin sicher, dass man das auch anders hätte beschreiben können. So macht es jedenfalls keinen Spaß. Für Anfängerinnen absolut ungeeignet. Schade! Bin von garnstudio besseres gewohnt.

26.03.2022 - 17:02

country flag Fernanda Valerio wrote:

Is this really colour beige? It doesn’t seem to match the colour palette of big merino

17.02.2022 - 20:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Valerio, yes colour is the right one, but maybe light was different as pictures where taken. Should you need any help choosing the colour, please contact your DROPS store, they will help you, even per mail or telephone. Happy knitting!

18.02.2022 - 08:00

country flag Mayvor Fransson wrote:

Skall sticka en väst Drops Big Merino. Vad hittar jag mönster?

06.04.2021 - 07:29

DROPS Design answered:

Hej Mayvor, Här hittar du Västar Du ser stickfastheten under varje bild, de med 17 m kan du använda till DROPS Big Merino :)

06.04.2021 - 12:12

country flag Katrien Willaert wrote:

Kan het Branching Out Jacket, 216-14 ook op rechte naalden worden gebreid? Ik heb ook problemen om het telpatroon te starten.

24.11.2020 - 12:04

DROPS Design answered:

Dag Katrien,

De ronde pas moet in één keer gebreid worden. Op dat moment heb je heel veel steken op de naald, vandaar dat hij met een rondbreinaald gebreid wordt. Het telpatroon begint onderaan en je leest het van rechts naar links en van onder naar boven. Bij veel gestelde vragen kun je ook antwoorden vinden op hoe je telpatronen leest.

24.11.2020 - 13:20

country flag Sussi Petersen wrote:

Når jeg skal tage ud i diagrammet ved at strikke flere gange i samme maske skal jeg ende op med 5 masker. Skal omslag tælles med i dette tilfælde? På videoen er det vist som om jeg skal tælle omslaget med. =3r og 2 omslag Mvh Sussi

24.09.2020 - 12:40

DROPS Design answered:

Hej Sussi, ja du tager ud ifølge diagramteksten og omslagene skal tælles med her :)

24.09.2020 - 16:00

country flag Sussi Petersen wrote:

I afsnittet Bærestykke Første afsnit, 11. linje citat start "...som før = 79-87- 95-..." citat slut. Hvorfor står der disse maskeantal? I str. M starter jeg bærestykket med 121 m, der står intet i Første afsnits 1. til 11. linje om, at der nu skulle være færre m. Jeg mener at jeg bør have 121 m efter første afsnit. Er det korrekt og i så fald hvad skal jeg med de 87 m. Mvh. Sussi

23.09.2020 - 15:51

DROPS Design answered:

Hej Sussi. I de "79-87-95-87-95-103 masker" är inte omslagen inräknade. Fortsätt bara enligt oppskriften så blir det riktigt. Mvh DROPS Design

24.09.2020 - 11:28

country flag Alessia wrote:

Buongiorno, credo che la spiegazione del diagramma non sia corretta. Riuscite a verificare ed in caso correggere? Grazie!

16.09.2020 - 13:51

DROPS Design answered:

Buongiorno Alessia. Abbiamo segnalato l'errore al settore design. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

16.09.2020 - 14:14