DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mustard Seeds Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað með áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-17
DROPS Design: Mynstur me-214
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-700-750-850-950 g litur 41, ólífa

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 43,5 lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble nr 629: 6-6-6-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 111 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 17) = 6,4.
Í þessu dæmi eru prjónaðar til skiptis ca 5. og 6. hver lykkja og 6. og 7. hver lykkja slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 6 lykkjur eins og áður (prjónamerkið situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan inn í mynstur.

HNAPPAGAT (á við um hægri kant að framan og kant í hálsmáli þegar flíkin er mátuð):
Fellið af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum í hægri kanti að framan og 1 hnappagat í kanti í hálsi.
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Neðsta hnappagatið á að vera ca 3 cm frá neðri kanti og næst efsta hnappagatið ca 7 cm frá hálsmáli. Staðsetjið 3-3-3-4-4-4 hnappagöt sem eftir eru jafnt yfir með ca 9 cm millibili. Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki og framstykki eru prjónuð fram og til baka á hringprjóna og saumað saman í lokin. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður upp kantur að framan og kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 111-121-129-141-155-171 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 17-19-19-21-23-27 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 94-102-110-120-132-144 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið mynsturteikningu á hæðina. Haldið áfram þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm. Fellið nú lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 0-0-2-3-5-7 sinnum = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, setjið miðju 30-32-34-34-36-36 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 26-27-28-30-31-33 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg). Fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 58-62-68-74-80-88 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjóna 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 9-10-12-13-13-15 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 49-52-56-61-67-73 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú mynstur A.1 með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið mynsturteikningu á hæðina.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm. Fellið nú lykkjur af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 0-0-2-3-5-7 sinnum = 44-45-47-49-51-53 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 14-14-15-15-16-16 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir hálsmáli, prjónið út umferðina. Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið lykkjur af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 26-27-28-30-31-33 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm (= 21-22-23-24-25-26 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg) – stillið af eftir bakstykki. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 58-62-68-74-80-88 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið síðan eins og hægra framstykki, en fellið af fyrir handveg í byrjun á umferð frá réttu og fyrir hálsmáli í byrjun á umferð frá röngu.

ERMI:
Fitjið upp 60-62-64-66-68-70 lykkjur á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 4 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 8 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5.
Prjónið 1 umferð til viðbótar með sléttum lykkjum. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið A.1 hringinn. Þegar stykkið mælist 8 cm frá uppfitjunarkanti, byrjar útaukning mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-2½-2-2-1½-1 cm millibili alls 11-12-13-14-17-22 sinnum = 74-78-82-86-94-106 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-44-43-43-42-41 cm, fellið af miðju 6 lykkjur undir ermi fyrir handveg. Prjónið síðan ermakúpu fram og til baka þannig:
Haldið áfram með mynstur fram og til baka og fellið lykkjur af fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 3-3-4-4-4-4 sinnum og 1 lykkja 1-1-1-1-2-3 sinnum. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 51-51-51-51-51-51 cm.
Fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 52-52-52-52-52-52 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við miðju á fram- og bakstykki. Saumið hliðarsauma.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Hægri kantur að framan:
Byrjið frá réttu neðst á fram- og bakstykki með hringprjón 3,5 og Merino Extra Fine. Prjónið upp 109 til 135 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 ) innan við 1 kantlykkju garðaprjón.
Prjónið stroff þannig (1. umferð = frá röngu): 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stykkið mælist 1 ½ cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Vinstri kantur að framan:
Byrjið frá réttu efst við hálsmál með hringprjón 3,5 og Merino Extra Fine. Prjónið upp 109 til 135 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1 ) innan við 1 kantlykkju garðaprjón.
Prjónið stroff þannig (1. umferð = frá röngu): 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu með hringprjón 3,5 og prjónið upp ca 115 til 129 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar ca 8 lykkjur yfir hvorn kant að framan og lykkjur af þráðum, lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 + 1). Prjónið stroff þannig (1. umferð = frá röngu): 1 kantlykkja garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja brugðið, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar kantur í hálsi mælist 1 ½ cm, fellið af fyrir hnappagötum þannig – frá réttu: Prjónið 4 lykkjur eins og áður, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat. Haldið áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR-2:
Saumið tölur í vinstri kant að framan/kant í hálsmáli.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.09.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning A.1 hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Lena R wrote:

Hur får jag till mönstret efter ökning av ärm?

03.01.2023 - 08:21

DROPS Design answered:

Hei Lena. Les Øketips for ermene i oppskriften. De økte maskene strikkes inn i mønsteret, men før du har økt med 4 masker, vil ikke mønstret stemme 100%. mvh DROPS Design

06.01.2023 - 09:23

country flag Gill Hayden-Woods wrote:

I have got to the sleeve and it asks for double pointed needles. Is this two or four needles or can it be done on a small circular needle. Or better still can I use conventional needles.

15.11.2022 - 09:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hayden-Woods, when working with double pointed needles on sleeve, you use usually 4 needles working with the 5th one (see video; you can also work on a circular needle with magic loop or adpat for straight needles - see this lesson. Happy knitting!

15.11.2022 - 09:52

country flag Shanthi wrote:

Hi. Thanks for your reply. Came across this lovely pattern. Can this be done for men ? Awaiting your reply. Thank you. Have a good day.

29.04.2022 - 10:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Shanthi, probably, this should help you to adapt it into a men's size. Happy knitting!

29.04.2022 - 13:09

country flag Gerd Brodén wrote:

Varför stickas inte fram och bakstycket ihop upp till ärmen? Jag antar att man kan göra det men finns det någon anledning till att ni har valt att sticka var stycke för sig?

22.07.2021 - 13:08

DROPS Design answered:

Hej Gerd, nej, det är bara att sticka ihop fram och bakstycke :)

05.08.2021 - 14:13

country flag Linda Brinckerhoff wrote:

WHere is the diagram for pattern A.1?

18.03.2021 - 17:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brinckerhoff, you will find the diagram A.1 on the right side of the measurement chart, below sleeve. Happy knitting!

19.03.2021 - 07:46

country flag Corinne Z wrote:

Bonjour, Un grand merci pour votre réponse et ces explications très précises. J'ai compris maintenant ;-). Bien cordialement. Corinne

26.11.2020 - 15:06

country flag Corinne Z wrote:

Bonsoir, j'ai un problème avec le devant droit du modèle du cardigan. Au niveau de l'encolure je ne comprends pas vos explications. Que dois-t' on faire des mailles qui sont en attente sur le fil ? à quel moment faut-il les récupérer ? les diminutions pour l'encolure se font après les mailles en attente et non pas en début de rang ? Merci d'avance pour votre réponse. Bien cordialement. Corinne

25.11.2020 - 18:53

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne, sur l'endroit (devant droit), tricotez les 14 -16 premières mailles en début de rang et glissez-les en attente; terminez votre rang, tournez et tricotez le rang retour. Maintenant, rabattez pour l'encolure au début de chaque rang à partir de l'encolure comme indiqué pour votre taille (= après les mailles en attente, vu sur l'endroit). Lorsque vous ferez le col, tout à la fin, vous relèverez les mailles le long de la bordure devant, reprendrez les mailles en attente du devant droit, relèverez les mailles autour de l'encolure, reprendrez les mailles du devant gauche et terminerez par relever les mailles le long de la bordure devant gauche. Bon tricot!

26.11.2020 - 09:50

country flag Isabel Kramer wrote:

Das Diagramm A.1 stimmt nicht. Der Pullover mit dem gleichen Muster hat das richtige Diagramm.

08.09.2020 - 08:53

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kramer, Diagram wurde aktualisiert - danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!

08.09.2020 - 10:40

country flag Lise wrote:

Tak skal I have :-)

31.08.2020 - 18:06

country flag Lise wrote:

Hej Drops, jeg er også i tvivl om diagrammet. Er alle pinde tegnet ind i det? Jeg synes, at trøjen på fotografierne har et andet mønster, end det jeg får, når jeg følger diagrammet. Venlig hilsen Lise

28.08.2020 - 16:55

DROPS Design answered:

Hei Lise. Diagrammet er oversendt til desigh avd. slik at de kan komme med en evnt rettelse. mvh DROPS design

31.08.2020 - 15:02