DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

White Peacock Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-3
DROPS Design: Mynstur ne-333
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
450-500-550-650-700-750 g litur 0100, natur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble NR 629: 7 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6336.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 221 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 71.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 71. lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-8½-8½-9-9½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 87-93-93-99-105-111 lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, 1 kantlykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 3½-4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 6 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir (= 4 lykkjur fyrir kant að framan), * A.1 – veldu mynstur fyrir þína stærð (= 3 lykkjur), A.2 (= 3 lykkjur) *, prjónið frá *-* 12-13-13-14-15-16 sinnum, A.3 yfir næstu 3 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 6 lykkjur og fækkið jafnframt um 2 lykkjur jafnt yfir (= 4 lykkjur fyrir kant að framan). Nú eru 83-89-89-95-101-107 lykkjur í umferð. Mynstrið á að ganga jafnt upp með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur í stroffi og síðan eru prjónaðar ystu 4 lykkjur í hvorri hlið í garðaprjóni (= kantur að framan).
Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 til A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 221-238-238-269-287-305 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19 cm frá prjónamerki.
Prjónið nú sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Jafnframt er aukið út mismunandi eftir stærðum þanngi:

Stærð S, M og L:
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 3-7-23 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 224-245-261 lykkjur. Prjónið áfram þar til berustykkið mælist 20-22-23 cm frá prjónamerki sem var sett í eftir kant í hálsi. Prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan.

Stærð XL, XXL og XXXL:
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 10-11-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 279-298-319 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-25-27 cm. Prjónið nú 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 10-11-13 lykkjur jafnt yfir = 289-309-332 lykkjur. Prjónið áfram þar til berustykkið mælist 25-27-29 cm frá prjónamerki sem var sett í eftir kant í hálsmáli. Prjónið áfram eins og útskýrt er að neðan.

Allar stærðir:
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er frá röngu og er prjónuð þannig:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 35-38-40-44-48-53 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 46-50-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-69-73-81-89-98 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 46-50-54-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 35-38-40-44-48-53 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 148-161-173-189-209-228 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 26-26-27-27-27-27 cm, aukið út um 23-25-28-30-34-36 lykkjur jafnt yfir = 171-186-201-219-243-264 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, endið með 4 kantlykjum að framan í garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 46-50-54-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 5,5 – og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki).
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4-3½-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 8-9-11-13-15-15 sinnum = 38-40-42-44-44-46 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 34-33-32-31-29-27 cm. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Nú er aukið út um 4-5-6-7-7-8 lykkjur jafnt yfir = 42-45-48-51-51-54 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 7 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 41-40-39-38-36-34 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat
symbols = aukið út um 2 lykkjur í eina lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 2 lykkjur fleiri)
symbols = prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri)
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri)
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri)
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Ida Jönsson wrote:

Hej! Jag stickar denna kofta i strl XL. Jag håller på med oket. Enligt instruktion ska jag sticka A1, följt av A2 14ggr, och sedan A3. Det ser dock ut på bilden som att mönstret går in i varann, alltså att ökningarna och minskningarna som görs på varv 25 i A2 ska göras varannan gång, och varannan gång görs de på varv 17, såsom A1/A3. Har jag missförstått instruktionen? Ska jag ändå upprepa A2 14 ggr?

21.11.2023 - 19:59

DROPS Design answered:

Hej Ida, det er de 6 masker i A.1 og A.2 du gentager 14 gange (ikke kun A.2) :)

24.11.2023 - 13:52

country flag Nicole wrote:

Re bonjour autre méthode peut être faire A1, A2.,A1,A2......ainsi en alternance 13 fois chaque diagramme et finir À 3 Merci de votre aide et réponse

01.04.2023 - 07:59

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, effectivement, vous devez tricoter (A.1, A.2) et répéter ces diagrammes ainsi, alternativement A.1 puis A.2 et terminer par A.3 avant les mailles de bordure devant. Bon tricot!

11.04.2023 - 10:10

country flag Nicole wrote:

Bonjour taille M je ne comprend pas vos diagrammes dans que quelle ordre ont tricotte les diagrammes et quel sont leur place dans les rang .en principe dans vos tricot A1 est tricote au début A2 au milieu et A3 a la fin du tricot Jai bien enlevé les 2 maille de chaque coté Comment fait ton pour retrouve le 6 mailles bordure j'ai lu les commentaires je ne trouve pas l'explications claire pouvez vous éclaircir je je vous remercie de aide précieuses faire se Gillet

31.03.2023 - 16:55

country flag Ulla wrote:

Jag vill byta ut Dropps Nepal mot: Baby Merino och Kid Silk. Klarar inte att omvandla åtgången av garn själv. Ska sticka i stl L

27.07.2022 - 22:23

DROPS Design answered:

Hej Ulla, da skal du bruge ca 300 g DROPS Baby Merino og 125g DROPS Kid Silk - God fornøjelse!

04.08.2022 - 09:39

country flag Katarzyna wrote:

Oh Entschuldigung - mein Kommentar/meine Frage vorhin - ich habe den Fehler=MEINEN Fehler gefunden! Den habe ich ziemlich am Anfang gemacht und dadurch ein etwas anderes Muster gestrickt. Also ribbeln und neu anfangen. Liebe Grüße

08.06.2022 - 17:28

country flag Katarzyna wrote:

Guten Tag, ich stolpere gerade über die Maschenzahlen (Größe M, wahrscheinlich auch L) nach Beendigung des Muster: Passe 238M. Ich kann keinen Fehler in meinem Musterbild entdecken, trotzdem habe ich nur 233 Maschen. Gebe ich nachher die 7 dazu, komme ich auf keinen Fall mit den Zahlen für Ärmel und Rumpf zusammen. Ich kann mir schwer vorstellen, dass ich irgendwo 5 Maschen verloren habe und es ist dem Cardigan nicht anzusehen, aber nichts ist unmöglich;-) Trotzdem schön. Danke.

08.06.2022 - 16:52

country flag Johanna wrote:

Kann es sein, dass die Anleitung einen Fehler hat? Bei der Passe wird beschrieben, dass (in Größe S) je 46 Maschen für die Ärmel stillgelegt und 8 neue angeschlagen werden. Unter der Überschrift Ärmel wird dann aber beschrieben, dass 48 stillgelegte Maschen aufgenommen und aus den 6 angeschlagenen Maschen neu aufgenommen werden.

20.06.2021 - 15:24

DROPS Design answered:

Liebe Johanna, Sie sind ja recht, es sollte "46"Maschen anstatt "'48" hier sein, die Korrektur erfolgt gleich, danke für den Hinweis. Viel Spaß beim stricken!

21.06.2021 - 08:55

country flag Pascale wrote:

Det er en feil i diagrammets forklaringer på norsk: symbolen 0 skal ikke strikkes vridd for å ikke lage hull, men den skal strikkes rett nettopp for å lage hull.

29.05.2021 - 15:37

DROPS Design answered:

Hej. Tack för info, detta är nu rättat! Mvh DROPS Design

31.05.2021 - 11:36

country flag Pascale wrote:

Er det noe spesiell grunn som gjør at stolpen ikke starter helt fra halskanten?

26.05.2021 - 22:11

DROPS Design answered:

Hei Pascale, Det er en del av mønsteret, men hvis du vil ha stolpene i rille hele veien er det helt mulig. God fornøyelse!

27.05.2021 - 07:42

country flag Erna Christiansen wrote:

Hvordan tager man ind til knaphul når der kun er 4 masker?

22.04.2021 - 13:33