DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Autumn Days

Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, mynsturáferð á berustykki og garðaprjóni á fram- og bakstykki og ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-21
DROPS Design: Mynstur ks-170
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-200-200 g litur 33, ryð

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
23 lykkjur á breidd og 45 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og garðaprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 9-9-9-10-10-10 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

--------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.3 og A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 315 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 305 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 21,8.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 22. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, prjónið þá í þessu dæmi ca 21 og 22. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING-1 (á við um útaukningu í stroffi í berustykki):
Aukið út um 1 lykkju í byrjun á hverri brugðinni einingu (séð frá réttu) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar slétt frá röngu/brugðið frá réttu.
ATH: Í 3 stærstu stærðunum á að auka út 3 sinnum í brugðnu einingunum. Það er fallegast ef fyrst er aukið út í byrjun á hverri brugðinni einingu, í næsta skipti í lokin á hverri brugðinni einingu og í lokin í byrjun á hverri brugðinni einingu.

ÚTAUKNING-2 (á við um útaukningu í klukkuprjónslykkjum):
Aukið út um 4 lykkjur í 1 klukkuprjónslykkju með því að prjóna 5 lykkjur í sömu lykkju þannig (frá réttu): Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjum af vinstri prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju á vinstri prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, lyftið síðan lykkjum af vinstri prjóni = 5 lykkjur (þ.e.a.s. 4 lykkjur fleiri).

ÚTAUKNING-3 (á við um í hliðum á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni.

ÚRTAKA (á við um í hvorri hlið á ermi):
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm, öðru hnappagati þegar kantur í hálsmáli mælist 5 cm og þriðja hnappagati þegar kantur í hálsmáli mælist 8 cm.
Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8½-7½-8-8 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður til þar sem stroffið byrjar. Stroffið er prjónað í hring á sokkaprjóna til loka. Að lokum eru ermasaumar saumaðir og litla opið undir hvorri ermi.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 111-115-123-127-131-135 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með 2 þráðum Kid-Silk. Takið frá annan þráðinn – afgangur af stykki er prjónaður með 1 þræði Kid-Silk.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja sem prjónuð er brugðið í hverri umferð, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju sem prjónuð er brugðið í hverri umferð. Haldið svona áfram með stroff, en munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
JAFNFRAMT þegar kantur í hálsmáli mælist 8 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, aukið út um 50-52-56-58-60-62 lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan:
Prjónið eins og áður yfir fyrstu 5 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð og endið með 5 lykkjur í stroffi eins og áður = 161-167-179-185-191-197 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 prjónamerki innan við 5 ystu lykkjur mitt að framan. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið við miðju að framan sem nú eru prjónaðar brugðið í hverri umferð (uppsláttur frá útaukningu er prjónaður snúinn slétt og kantar að framan eru prjónaðir brugðið í hverri umferð til loka).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan brugðið, prjónið A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 50-52-56-58-60-62 mynstureiningar með 3 lykkjum), prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 (þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 5 kantlykkjum að framan brugðið.
Haldið svona áfram með A.1 JAFNFRAMT er aukið út í brugðnu einingunum eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

S, M og L:
Þegar A.1 mælist 7-8-8 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, aukið út allar 2 lykkjur brugðið (séð frá réttu) til 3 lykkjur brugðið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli hverra og einna af 2 lykkjum slétt frá röngu = 50-52-56 lykkjur fleiri = 211-219-235 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

XL, XXL og XXXL:
Þegar A.1 mælist 3-3-3 cm, aukið út allar 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið – sjá ÚTAUKNING-1 = 58-60-62 lykkjur fleiri = 243-251-259 lykkjur.
Þegar A.1 mælist 6-6-7 cm, aukið út allar 3 lykkjur brugðið til 4 lykkjur brugðið = 58-60-62 lykkjur fleiri = 301-311-321 lykkjur í umferð.
Þegar A.1 mælist 9-9-10 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, aukið út allar 4 lykkjur brugðið (séð frá réttu) til 5 lykkjur brugðið = 58-60-62 lykkjur fleiri = 359-371-383 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 211-219-235-359-371-383 lykkjur í umferð.
Byrjið frá réttu og prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka með 5 kantlykkjum að framan brugðið í hvorri hlið við miðju að framan (uppslátturinn frá útaukningu er prjónaður snúinn slétt í fyrstu umferð).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5kantlykkjur að framan brugðið, prjónið A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= 50-52-56-58-60-62 mynstureiningar með 4-4-4-6-6-6 lykkjum), prjónið fyrstu lykkju í A.2 (þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan) og endið með 5 kantlykkjum að framan brugðið.
Haldið svona áfram með mynstur, en þegar prjónaðar hafa verið 6 umferðir með A.2, á að auka út í klukkuprjónslykkjum. Þetta er gert frá réttu eins og útskýrt er að neðan:

S, M og L:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, * aukið út 4 lykkjur í klukkuprjónslykkju – sjá ÚTAUKNING-2, prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið 1 klukkuprjónslykkju eins og áður án útaukningar, prjónið 3 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 4 lykkjur í síðustu klukkuprjónslykkju og endið með 5 kantlykkjur að framan brugðið = 315-327-351 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

XL:
Byrjið útaukningu í 2. klukkuprjónslykkju frá kanti og aukið út um 4 lykkjur í 4. hverja klukkuprjónslykkju út umferðina – sjá ÚTAUKNING-2 (það eru auknar út alls 15 klukkuprjónslykkjur í umferð) = 419 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

XXL:
Byrjið útaukningu í fyrstu klukkuprjónslykkju frá kanti og aukið út 4 lykkjur í 3. hverja klukkuprjónslykkju út umferðina – sjá ÚTAUKNING-2 (það eru auknar út alls 21 klukkuprjónslykkja í umferð) = 455 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

XXXL:
Byrjið útaukningu í 2. Klukkuprjónslykkju frá kanti og aukið út 4 lykkjur í 3. Hverja klukkuprjónslykkju út umferðina – sjá ÚTAUKNING-2 (það eru auknar út alls 21 klukkuprjónslykkja í umferð) = 467 lykkjur í umferð. Haldið áfram undir ALLAR STÆRÐIR.

ALLAR STÆRÐIR:
= 315-327-351-419-455-467 lykkjur í umferð.
Haldið áfram alveg eins og áður, en þar sem aukið var út í klukkuprjónslykkjum, prjónið 5 lykkjur þannig (séð frá réttu): 1 klukkuprjónslykkja, 3 lykkjur brugðið, 1 klukkuprjónslykkja (sjá A.2B).
Þegar berustykkið mælist 15-17-17-19-19-21 cm frá prjónamerki, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan brugðið, prjónið A.3 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, en í XL, XXL og XXXL prjónið A.4 yfir A.2B, þannig að mynstrið gangi fallega upp. Þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið fyrstu lykkju í A.3 (þannig að mynstrið byrji og endið alveg eins í hvorri hlið), endið síðan með 5 kantlykkjur að framan brugðið.
Haldið svona áfram með mynstur þar til A.3 mælist 3-3-3-5-5-5 cm. Berustykkið mælist nú ca 18-20-20-24-24-26 cm frá prjónamerki við hálsmál.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka (kantlykkjur að framan eru prjónaðar brugðið eins og áður) yfir allar lykkjur og aukið jafnframt út 14-30-34-6-2-26 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 329-357-385-425-457-493 lykkjur.
Prjónið síðan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, en þær 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar brugðið í hverri umferð eins og áður – með þessu þá verður kantur að framan aðeins afmarkaður miðað við garðaprjón á sjálfu stykkinu.
Þegar berustykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 52-57-60-66-72-79 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 66-70-78-86-90-94 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 93-103-109-121-133-147 lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki), setjið næstu 66-70-78-86-90-94 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 52-57-60-66-72-79 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 213-233-249-273-301-329 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 56-61-65-71-78-85 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 101-111-119-131-145-159 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Haldið áfram fram og til baka í garðaprjóni og 5 kantlykkjur að framan brugðið í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-3 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 6 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 229-249-265-289-317-345 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 58-62-67-73-78-86 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 287-311-332-362-395-431 lykkjur. ATH: Aukið er út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjónast dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan brugðið, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan brugðið. Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið laust af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Fitjið upp 4-4-5-5-6-6 lykkjur á hringprjón 3,5 með Kid-Silk, prjónið sléttar lykkjur yfir 66-70-78-86-90-94 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki og fitjið upp 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur í lok umferðar = 74-78-88-96-102-106 lykkjur í umferð.
Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur.
JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 7-8-12-15-16-17 sinnum í hvorri hlið = 60-62-64-66-70-72 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. ATH: Það er styttra máli í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Afgangur af ermi (stroff) er prjónaður í hring á sokkaprjóna. Skiptið öllum lykkjum niður á sokkaprjóna 3. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 60-63-63-66-69-72 lykkjur í fyrstu umferð.
Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING!
Ermin mælist ca 47-45-44-42-41-39 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í mitt undir – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana, þannig að saumurinn verði flatur. Saumið saman op undir ermum (þar sem nýjar lykkjur voru fitjaðar upp). Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju (= klukkuprjónslykkja)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Rita Kragh wrote:

Jeg er i gang med størrelse L og det er første udtagning, næste udtagning jeg ikke kan forstå. Og patentmaske kan jeg ikke fine noget om på jeres hjemmeside ? Hilsen Rita Kragh

08.03.2023 - 14:47

DROPS Design answered:

Hej Rita, vi har flere videoer med udtagning i patent. Her ser du en af dem: tag 4 masker ud i patent

09.03.2023 - 09:18

country flag Rita Kragh wrote:

Jeg forstår ikke helt den måde som jeg skal tage ud på og hvor mange masker jeg skal tage ud ? Hilsen Rita

05.03.2023 - 17:19

DROPS Design answered:

Hej Rita, Hvilken størrelse strikker du og hvor er du i opskriften?

08.03.2023 - 09:36

country flag Reiko wrote:

Hi there, I'm working on the size s. After Diagram A2 ( Fisherman’s rib stitches from the right side as described below), 315 stitches on the needle. I believe at this point pattern would be on the wrong side, but next steps will be continue to work on the right side again. What have I missed?

24.01.2023 - 22:46

DROPS Design answered:

Dear Reiko, after you have increased from RS you will work the next row from WS and adjust so that the 5 sts will be worked (seen from RS: 1 st in English rib, P3, 1 st in English rib) as 2nd row in A.2B = from WS purl the stitches in English rib and knit the 3 sts. Happy knitting!

25.01.2023 - 11:54

country flag Rebekka Mie Bohm wrote:

Hej, Hvor store er knapperne i opskriften? :)

26.09.2022 - 12:10

country flag Mona Åström wrote:

Komplicerat mönster framförallt med det garnet.

26.08.2021 - 08:52

country flag Mona Åström wrote:

Hej! Förstår inte beskrivningen till mönstret. Diagram A.1 rätmaska från rätsidan, avigmaska från avigsidan och avigmaska från rätsidan, rätmaska från avigsidan. Enligt er så ska man läsa mönstret från rätsidan men hur stickar man det från avigsidan.

26.08.2021 - 08:50

DROPS Design answered:

Hej Mona. Diagrammet är sett från rätsidan, men vi har förklarat hur symbolerna ska stickas både från rätsidan och avigsidan. Den första symbolen (vit fyrkant) stickar du alltså rät när du stickar på rätsidan. När du sedan har vänt arbetet och stickar på avigsidan så stickar du den symbolen som en avigmaska istället. Mvh DROPS Design

26.08.2021 - 10:35

country flag Anna wrote:

Hallo Ich habe versehentlich die erste Masche der Frontblende nicht immer links gestrickt sondern in der Rückreihe wie die übrigen 4 Maschen der Blende rechts. Jetzt rollt sich die Blende vorne auf. Ich habe den Fehler erst realisiert als ich schon weit hinter der Passe war und will auf gar keinen Fall alles wieder auf machen. Was hilft? Am Ende der Arbeit seitlich quer zwei Reihen an die Blende dran stricken?

24.08.2021 - 09:29

DROPS Design answered:

Liebe Anna, Entschuldigung für die späte Antwort; Sie können die Jacke am Ende mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage spannen, anfeuchten (z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen) und trocknen lassen, danach entfernen Sie die Stecknadeln, dann sollte sich der Rand nicht mehr rollen.

03.01.2022 - 08:08

country flag Anette wrote:

Hallo, wie strickt man eine Randmasche links? Wird die erste Masche in Hin- und Rückreihe links gestrickt und die letzte Masche auch links?

22.05.2021 - 20:58

DROPS Design answered:

Liebe Anette, ja genau so werden die erste + die letzte Masche gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

25.05.2021 - 07:47

country flag María wrote:

Hello. I'm quite thin and wear a xs size. I'm not a very experienced knitter and have often trouble trying to adapt the patterns. Could you please help me with this one? And could you consider including xs size in your designs? Best regards.

26.10.2020 - 12:11

DROPS Design answered:

Dear Maria, we are unfortunately not able to adapt every pattern to every single request, we do have some patterns in size XS - you might find one of them to inspire you. Feel free to request any individual assistance from your DROPS store or any knitting forum. Happy knitting!

26.10.2020 - 12:51

country flag Sara wrote:

The neckline is very elegant and it gives this cardigan a vintage touch. I’ve been searching for a pattern like this!

15.06.2020 - 16:36