DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Boston Vest

Prjónað vesti fyrir herra úr DROPS Karisma eða DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með V-hálsmáli og köntum í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 219-3
DROPS Design: Mynstur u-899
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
300-350-400-400-450-500 g litur 57, ólífa
eða:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-350-350-400-400 g litur 17, spínatpie

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Mocha NR 623: 6 stykki í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um V-hálsmál):
Sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um hlið á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan. Neðsta hnappagatið á að sitja ca 2 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið 1 cm frá þar sem v-hálsmálið byrjar (þ.e.a.s. ca 32-33-34-35-36-37 cm mælt frá affellingarkanti á fram- og bakstykki). Prjónið alls 6 hnappagöt með ca 6-6-6½-6½-7-7 cm millibili.
Stillið staðsetninguna af þannig að fellt er af í brugðnum einingum (séð frá réttu).
1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur brugðið saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka. Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, aukið er út/fitjaðar eru upp lykkjur fyrir v-hálsmáli og undir ermi áður en stykkið er sett saman í eitt stykki. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka. Lykkjur eru teknar upp fyrir kant í hálsmáli, kant á ermum og kanti að framan og prjónað er stroff fram og til baka yfir þessar lykkjur í lokin.

FRAMSTYKKI:

Hægra framstykki:
Fitjið upp 20-21-21-22-22-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Karisma eða Soft Tweed. Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 4-5-5-6-6-7 cm, byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli og þegar stykkið mælist 18-18-18-17-17-16 cm, aukið út lykkjur fyrir handveg, sjá útskýringu að neðan:
V-hálsmál:
Aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annað hvert skipti í annarri hverri og 4. hverri umferð alls 19-19-20-20-21-21 sinnum (útaukning fyrir v-hálsmáli er ekki lokið þegar handvegur hefur verið gerður til loka, en heldur áfram á fram- og bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Handvegur:
Aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu 2-1-1-3-4-4 sinnum, síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 0-2-2-3-3-4 sinnum og 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum (= alls 2-5-8-12-16-21 lykkjur fleiri fyrir handveg). Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki.

Vinstra framstykki:
Fitjið upp 20-21-21-22-22-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Karisma eða Soft Tweed. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 4-5-5-6-6-7 cm, byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli og þegar stykkið mælist 18-18-18-17-17-16 cm, aukið út lykkjur fyrir handveg, sjá útskýringu að neðan:
V-hálsmál:
Aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í byrjun næstu umferðar frá réttu – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út í annað hvert skipti í annarri hverri og 4. hverri umferð alls 19-19-20-20-21-21 sinnum.
Handvegur:
Aukið út um 1 lykkju innan við 2 lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu 2-1-1-3-4-4 sinnum, síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 0-2-2-3-3-4 sinnum og 3 lykkjur 0-0-1-1-2-3 sinnum (= alls 2-5-8-12-16-21 lykkjur fleiri fyrir handveg). Geymið stykkið og prjónið bakstykki.

BAKSTYKKI:
Hvor öxl er prjónuð fyrir sig áður en stykkin eru sett saman:
Hægri öxl:
Fitjið upp 20-21-21-22-22-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Karisma eða Soft Tweed. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út 1 lykkju innan við 2 lykkjur í byrjun á næstu umferð frá réttu = 21-22-22-23-23-24 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl.

Vinstri öxl:
Fitjið upp 20-21-21-22-22-23 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4 með Karisma eða Soft Tweed. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út 1 lykkju innan við 2 lykkjur í lok næstu umferðar frá réttu = 21-22-22-23-23-24 lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka frá röngu.

Prjónið nú bæði stykkin saman þannig: Prjónið 21-22-22-23-23-24 lykkjur á vinstri öxl eins og áður, fitjið upp 36-36-38-38-40-40 lykkjur á prjóni (= hálsmál) prjónið 21-22-22-23-23-24 lykkjur á hægri öxl eins og áður = 78-80-82-84-86-88 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 18-18-18-17-17-16 cm, aukið út/fitjið upp nýjar lykkjur í hvorri hlið á stykki fyrir handveg alveg eins og á framstykki (= alls 2-5-8-12-16-21 lykkjur fleiri fyrir handveg í hvorri hlið) = 82-90-98-108-118-130 lykkjur.
Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, prjónið fram- og bakstykki.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Hversu margar lykkjur eru í umferð fer eftir því hversu margar útaukninar fyrir V-hálsmáli eru eftir.
Setjið 1 prjónamerki í miðju á 11-11-13-13-15-15 nýjum lykkjum undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, síðar á að fækka lykkjum hvoru megin við prjónamerkin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið nú framstykki og bakstykki saman frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, sléttprjón yfir lykkjur fyrir vinstra framstykki, fitjið upp 11-11-13-13-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón yfir næstu 82-90-98-108-118-130 lykkjur á bakstykki, fitjið upp 11-11-13-13-15-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á hægra framstykki, 1 kantlykkja garðaprjón.
Hversu margar lykkjur eru í umferð fer eftir því hversu margar útaukningar fyrir V-hálsmáli eru eftir.
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju af 11-11-13-13-15-15 nýju lykkjum í hvorri hlið. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar lykkjum er fækkað hvoru megin við prjónamerkin.
Þegar allar útaukningar fyrir V-hálsmáli hafa verið gerðar til loka eru 186-202-222-242-266-290 lykkjur í umferð.
Þegar stykkið mælist 5 cm, fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með ca 9-9-10-10-10-11 cm alls 4 sinnum = 170-186-206-226-250-274 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, aukið út um 26-26-30-34-38-42 lykkjur jafnt yfir = 196-212-236-260-288-316 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið á stykki þar til stroffið mælist 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Vestið mælist ca 57-59-61-63-65-67 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori.

KANTUR Á ERMUM:
Prjónið upp 88-132 lykkjur innan við 1 lykkju frá réttu á stuttan hringprjón 3 með Karisma eða Soft Tweed.
Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Prjónið hinn kantinn á ermi alveg eins.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN OG KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið upp 144-172 lykkjur á hringprjón 3 með Karisma eða Soft Tweed innan við 1 kantlykkju garðaprjón og upp mitt að aftan í hálsmáli aftan í hnakka. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem v-hálsmálið endar (þ.e.a.s. í horni ca 33-34-35-36-37-38 cm mælt frá affellingarkanti og upp), prjónið * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið *-* alls 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 2 kantlykkjur garðaprjón síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) út umferðina (uppslátturinn er prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat). Passið uppá að kantur að framan hvorki herðist né sé of laus miðað við lengd á framstykki, prjónið e.t.v. upp fleiri/færri lykkjur. Þegar kantur að framan mælist 1 cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar kantur að framan/kantur í hálsi mælist 2½ cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN OG KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið mitt aftan í hálsmáli í hnakka með hringprjón 3 með Karisma eða Soft Tweed og prjónið upp jafnmargar lykkjur og á hægri kanti að framan og kanti í hálsmáli innan við 1 kantlykkju mitt að framan frá réttu.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið út með uppslætti nákvæmlega þar sem v-hálsmálið endar (þ.e.a.s. í horni ca 33-34-35-36-37-38 cm mælt frá affellingarkanti og upp), prjónið * 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið *-* alls 4 sinnum (= 4 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur garðaprjón (= uppslátturinn er prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat). Þegar kantur að framan/kantur í hálsmáli mælist 2½ cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Boston Vest

Jocelyn, Singapore

Boston Vest

Karen, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 219-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Mathilde wrote:

Kan jeg strikke denne vest i Alpaca Bouclé? Og i så fald, hvordan omregner jeg garnforbrug?

24.03.2024 - 15:10

DROPS Design answered:

Hej Mathilde, den vil blive lidt kompakt hvis du strikker den i Alpaca Boucle, men det gør måske ikke noget. Prøv at strikke en strikkeprøve og se om du synes om det :)

03.04.2024 - 13:55

country flag Linda Nardin wrote:

Buonasera. Sto facendo questo bel gilet. Lo trovo molto interessante. Ho fatto davanti sinistro e destro e li ho messi da parte, spalla destra e sinistra e li devo unire ...trovo difficoltà nel mettere tutti in un unico ferro per lavorare il corpo.. aiuto😊 Grazie mille

06.02.2024 - 17:59

country flag Dorothy wrote:

What size, in inches, is this pattern, please? Thank you.

03.01.2024 - 02:28

DROPS Design answered:

Hi Dorothy, pattern for this vest is in sizes: S - M - L - XL - XXL – XXXL, which corresponds to finished measurements: Chest measurements: 88-96-106-116-126-138 cm = 34 5/8”-37 3/4”-41 3/4”-45 3/4”-49 1/2”-54 1/4” Full length: 57-59-61-63-65-67 cm = 22 1/2”-23 1/4”-24”-24 3/4”-25 1/2”-26 3/8” Happy knitting!

03.01.2024 - 05:46

country flag Birgit Werge wrote:

Der står at man skal strikke ret på alle pinde, men billedet af vesten er i glat strik. Hvad er rigtigt

28.12.2023 - 16:27

country flag Laurence Garibian wrote:

Bonsoir, j'adore ce gilet, est-il possible d'obtenir la marche à suivre en français ? merci !

03.12.2023 - 17:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Garibian, tout à fait, cliquez simplement sur le menu déroulant sous les photos pour changer de langue et sélectionner "français". Bon tricot!

04.12.2023 - 08:24

country flag Andreea wrote:

How wide should the ribbed finishes in the finished garment be?

12.11.2023 - 00:22

DROPS Design answered:

Dear Andreea, all the finished measurements are indicated in the pattern. The bands should have a width of 2½ cm each. The armhole edges should be approx. 2cm and the rib at the end of the body measures 4cm approx. Happy knitting!

12.11.2023 - 20:48

country flag Rita wrote:

Essendo un gilet da uomo, perché date le indicazioni di fare le asole sul bordo destro? Non dovrebbero stare sul bordo sinistro?

02.11.2023 - 22:16

DROPS Design answered:

Buonasera Rita, in questo modello i bottoni sono sul lato sinistro. Buon lavoro!

02.11.2023 - 22:55

country flag Alejandra Hernández wrote:

Ths gauge is made with 4mm needles?

08.07.2023 - 19:27

DROPS Design answered:

Hi Alejandra, Yes, the guage is with 4 mm needles. Happy knitting!

10.07.2023 - 07:54

country flag Anna Birkemose wrote:

Spørgsmål til højre og Venstre forstykke: Der står at man skal tage ud på h.h.v. Hver 2. Og 4. Pind. Udtagningen skal ske fra retsiden ved at man slår en maske op. Det er forståeligt. Men jeg kan komme frem til mindst to måder at tage ud på h.h.v. Hver 2. Og hver 4. Pind så hvad er rigtigt ? Den ene måde hiver 7 pinde den anden giver 9 pinde. Hvad er korrekt? Tusind tak. Bh Anna

10.06.2023 - 22:36

DROPS Design answered:

Hej Anna, når du tager ud fra retsiden på skiftevis hver 2. og hver 4 pind, så er det på pind 2-6-8-12-14-18 osv :)

13.06.2023 - 13:42

country flag Faes wrote:

Bij de top voor het minderen staat niet wat je met de gemarkeerde steek moet doen? Is het : breien tot 3 steken voor de gemarkeerde steek, 2rs, 1r; dan de gemarkeerde steek r; dan 1r, 1recht afhalen, 1r en dan de afgehaalde steek overhalen? Zo zit de mindering telkens op 1 steek van de gemarkeerde steek?

30.11.2022 - 09:50

DROPS Design answered:

Dag Feas,

Het lijkt inderdaad niet helemaal te kloppen. Waarschijnlijk is het als volgt: Brei tot er 2 steken over zijn voor de steek met de markeerdraad, 2 recht samen, 1 recht, 1 steek recht afhalen, 1 recht en haal de afgehaalde steek over de gebreide steek.

04.12.2022 - 16:51