DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 215-19
DROPS Design: Mynstur ml-058
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
300-300-350-400-400-450 g litur 15, beige

PRJÓNFESTA:
13 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7: fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 80 cm fyrir stroff.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6: fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Marble nr 630: 6-7-7-7-7-7 st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1, A.2 og A.3.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = Prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 5, 14, 23, 32, 41 og 51 cm
M: 5, 12, 20, 28, 36, 44 og 53 cm
L: 5, 12, 20, 28, 37, 46 og 55 cm
XL: 6, 13, 21, 30, 39, 48 og 57 cm
XXL: 6, 14, 23, 32, 41, 50 og 59 cm
XXXL: 6, 14, 23, 32, 41, 51 og 61 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna í stykkjum og saumuð saman í lokin.
Lykkjur fyrir ermar eru prjónaðar upp í handvegi á fram- og bakstykki og ermar eru prjónaðar í hring, ofan frá og niður. Að lokum er prjónaður upp kantur í hálsmáli, sem er brotinn saman tvöfaldur og saumaður niður.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 66-74-74-82-90-98 lykkjur á hringprjóna 6 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 lykkja garðaprjón. Haldið áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 11-15-15-19-23-27 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 1-2-0-0-0-1 lykkjur jafnt yfir (= 10-13-15-19-23-26 lykkjur í sléttprjóni), A.1 yfir næstu 6 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur yfir þessar (A.1 = 10 lykkjur), 10 lykkjur í sléttprjóni, A.2 yfir næstu 10 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir (A.2 = 18 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 10 lykkjur, A.3 yfir næstu 6 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur yfir þessar (A.3 = 10 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 11-15-15-19-23-27 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 1-2-0-0-0-1 lykkjur jafnt yfir (= 10-13-15-19-23-26 lykkjur sléttprjón) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni = 80-86-90-98-106-112 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. ATH! Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við hvorn kaðal, þá er auðveldara að fá kaðalinn á réttan stað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið (merkir handveg) = 76-82-86-94-102-108 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm.
Fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.2. Síðan eru felldar af miðju 22-22-22-24-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á næstu umferð við háls þannig: 1 lykkja 1 sinni = 22-25-27-30-34-37 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fækkið um 4 lykkjur yfir A.1/A.3 = 18-21-23-26-30-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 1 umferð, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 37-41-45-49-53-53 lykkjur á hringprjón 6 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu:
5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan - sjá HNAPPAGAT að ofan.
Haldið áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7.
Prjónið áfram þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur sléttprjón, A.1 yfir næstu 6 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur yfir þessar (= 10 lykkjur), 6 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 10 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir (A.2 = 18 lykkjur), sléttprjón yfir næstu 7-11-15-19-23-23 lykkjur, JAFNFRAMT er fækkað um 0-1-3-3-3-0 lykkjur jafnt yfir (= 7-10-12-16-20-23 lykkjur sléttprjón) og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 49-52-54-58-62-65 lykkjur. Haldið áfram með þetta mynstur. ATH! Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við hvorn kaðal, þá er auðveldara að fá kaðalinn á réttan stað. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, fellið af 2 lykkjur í byrjun á umferð frá röngu (merkir handveg) = 47-50-52-56-60-63 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm.

Nú á að fækka lykkjum og lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli. Byrjið í sömu hlið og kantur (mitt að framan) þannig: Prjónið eins og áður, fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.1 – setjið síðan fyrstu 13-13-13-14-14-14 lykkjur frá miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 2 sinnum = 26-29-31-34-38-41 lykkjur eftir á öxl. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir A.2 = 18-21-23-26-30-33 lykkjur eftir á öxl. Prjónið 1 umferð, fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, en gagnstætt, nú er prjónað A.3 í stað A.1 – þannig:

Fitjið upp 37-41-45-49-53-53 lykkjur á hringprjóna 6. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu:
1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með stroff í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7.
Prjónið síðan þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 7-11-15-19-23-23 lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 0-1-3-3-3-0 lykkjur jafnt yfir (= 7-10-12-16-20-23 lykkjur sléttprjón), A.2 yfir næstu 10 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir (A.2 = 18 lykkjur), 6 lykkjur sléttprjón, A.3 yfir næstu 6 lykkjur, JAFNFRAMT er aukið út um 4 lykkjur yfir þessar (= 10 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón, endið með 5 lykkjur garðaprjón = 49-52-54-58-62-65 lykkjur. Haldið áfram á sama hátt og hægra framstykki, en nú er lykkjum fækkað fyrir handveg í byrjun á hverri umferð frá réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju upp að handvegi.

VINSTRI ERMI:
Prjónið upp lykkjur meðfram handveg efst á peysu og ermin er prjónuð í hring á hringprjóna, ofan frá og niður.

Byrjið þar sem felldar voru af 2 lykkjur fyrir handveg á vinstra framstykki og prjónið upp 46-50-52-54-58-60 lykkjur frá réttu með Melody á hringprjóna 7. Prjónið upp lykkjur meðfram handvegi á framstykki og niður meðfram handvegi á bakstykki þar sem felldar voru af 2 lykkjur fyrir handvegi. Prjónið sléttprjón hringinn. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum með 6-5½-5½-5-4½-4 cm millibili alls 6-7-7-7-8-8 sinnum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-43-42-40-38-37 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Aukið út 2-4-2-4-2-4 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Fellið af þegar stroffið mælist 6 cm, ermin mælist nú 50-49-48-46-44-43 cm.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en byrjið á bakstykki. Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á bakstykki og niður meðfram handveg á framstykki að þeim stað sem fækkað var um 1 lykkju fyrir handveg.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 64 til 76 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjón 6. Passið uppá að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4 + 12. Prjónið þannig – frá réttu: 5 lykkjur garðaprjón, stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið stroff svona í 8 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki. Brjótið stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot og saumið saman hvoru megin í uppábroti við miðju að framan. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og beygist út, er mikilvægt að saumurinn verði teygjanlegur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 13.08.2020
Leiðrétting: Upplýsingum hefur verið bætt við undir hægra og vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Johanne wrote:

Bonjour. J'aimerais modifier un peu le modèle. Pour le dos, j'aimerais omettre les torsades donc tricoter en jersey seulement. Comment puis-je répartir les augmentations au dos ? Au devant, j'aimerais faire seulement les torsades A1/A3, donc comment puis-je répartir les augmentations au devant ? Merci pour votre réponse. Merci

08.11.2023 - 21:27

DROPS Design answered:

Bonjour Johanne, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; n'hésitez pas à parcourir les différents modèles de même tension qui pourraient vous inspirer ou vous servir comme base pour vos modifications,; votre magasin pourra fort probablement volontiers vous aider - vous pouvez également demander conseil sur un forum spécialisé si besoin. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

09.11.2023 - 08:24

country flag Nicola Warnants wrote:

Thanks for your reply, but isn't cable 2 every 6th row?

28.04.2022 - 23:06

DROPS Design answered:

Dear Mrs Warnants, you are right sorry, I mistyped yesterday, the cables in diagram A.2 are worked on every 6th row, not on every 5th row. Happy knitting!

29.04.2022 - 08:27

country flag Nicola Warnants wrote:

Please can you confirm what method of increasing is appropriate for this garment (swirling smoke jacket), as nowhere seems to say. Also, to work the pattern, do i run the cables in parallel, so that A1 and A3 repeat every 10 rows, and A2 repeats every 12 rows? I guess you'd have to write it down to keep track of where you are on every pattern? Thanks!

28.04.2022 - 09:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Warnants, you can use your favorite technique to increase (make 1, yarn over, knit front and back loop...). The cables in A.1 and A.3 will be worked both every 10th row but cables in A.2 are worked on every 5th row. Happy knitting!

28.04.2022 - 11:59

country flag Sara wrote:

Hej igen! Ytterligare en fråga - Börjar diagram A2 tidigare än A1 och A3? Eftersom A2 har 12 varv, och A1 och A3 bara har 10?

17.03.2022 - 13:43

DROPS Design answered:

Hej Sara. Du börjar diagrammen samtidigt och när diagrammet är färdigt i höjden börjar du från längst ner igen (du kommer alltså börja om på diagram A1 och A3 tidigare än A2). Mvh DROPS Design

17.03.2022 - 14:26

country flag Sara wrote:

Hej! Har precis börjat med bakstycket. Jag förstår inte hur jag ska göra A2. Har aldrig följt ett sådant diagram innan och lyckas inte läsa mig till det. Tror att jag redde ut A1, men nu är det två streck i diagrammet och det reder jag inte ut. Går det att förklara i text? I texten för bakstycket ser det också ut som att minskningar och ökningar ska göras varje varv, men det kan väl inte stämma? Tack!

15.03.2022 - 13:48

DROPS Design answered:

Hej Sara. Nej minskningar och ökningar gör du bara på första varvet för att få rätt antal maskor. Efter det stickar du diagram och slätstickning som det står i texten. Läs gärna lektionen Hur man läser ett stickdiagram och vi har även flera videor du kan se för att få hjälp, bl.a. annat denna om hur man stickar flätor. Hoppas det kan hjälpa dig vidare! Mvh DROPS Design

16.03.2022 - 09:19

country flag Manuela Schlensok wrote:

Nach meiner Rechnung komme ich beim Vorderteil bei grösse M auf 50 M insgesamt aber laut Anleitung müssen es 52 sein

05.02.2021 - 15:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schlensok, bei der 1. Reihe mit Diagram sollen Sie gleichzeitig zu- und abnehmen: 5 M kraus rechts, 2 M glatt rechts, A.1 über die nächsten 6 M und dabei 4 M gleichmäßig verteilt zunehmen (A.1 = 10 M), 6 M glatt rechts, A.2 über die nächsten 10 M und dabei 8 M gleichmäßig verteilt zunehmen (A.2 = 18 M), glatt rechts über die nächsten 11 M und dabei 1 M gleichmäßig verteilt abnehmen (= 10 M glatt rechts), 1 Rand-M kraus rechts = 5+2+10+6+18+10+1= 52M. Viel Spaß beim Stricken!

08.02.2021 - 07:27

country flag Ghislaine Reygnier wrote:

Bonjour Pour le gilet jersey torsade en L est ce que 7 pelotes de melody c'est bon?Merci

02.02.2021 - 14:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ghislaine Reygnier, oui c'est bon. Bon tricot!

02.02.2021 - 16:28

country flag Marie-Noëlle wrote:

Bonjour, Est-ce que pour éviter les coutures de côté, on peut tricoter en un seul morceau à partir du milieu devant jusqu'aux emmanchures ? Merci de votre réponse

20.10.2020 - 18:00

DROPS Design answered:

Bonjour Marie-Noëlle, tout à fait, il vous suffit de monter 1 m en moins de chaque devant et 2 m en moins pour le dos (= lisières) - rappelez-vous d'ajuster au moment de rabattre les mailles des emmanchures. Bon tricot

21.10.2020 - 08:01

country flag Dity Zuidwijk wrote:

Ik zou graag het vest Swirling Smoke Jacket breien, maar dan van een ander garen. Liefst iets minder kwetsbaar en wat niet prikt. Welk garen adviseert u mij?

27.09.2020 - 14:31

DROPS Design answered:

Dag Dity,

DROPS Melody heeft toch wel een hele typische look, wat niet makkelijk te vervangen is door een ander garen. Melody is ook het enige garen uit categorie D, maar om dezelfde dikte te krijgen, kun je 2 draden uit categorie B nemen. DROPS Karisma is bijvoorbeeld heel geschikt voor jouw wensen omdat het niet prikt en in de machine wasbaar is. Echter heeft dit niet het pluizige effect. Je zou ook 2 draden DROPS Sky kunnen nemen. Misschien een goed idee om even bij een verkooppunt langs te gaan om de garens te bekijken.

19.11.2020 - 00:15

country flag Moureau wrote:

J'aime

11.07.2020 - 09:11