DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mistletoe Muse Vest

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 217-2
DROPS Design: Mynstur ai-305
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
150-150-150-150-200-200 g litur 02, hveiti
50-50-50-50-50-50 g litur 05, brúnn
50-50-50-50-50-50 g litur 26, beige
50-50-50-50-50-50 g litur 22, gulur
50-50-50-50-50-50 g litur 07, rúbínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 28, rauður múrsteinn
50-50-50-50-50-50 g litur 29, bleikvínrauður
50-50-50-50-50-50 g litur 30, salvíugrænn

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni/norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón/norrænt mynstur.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12276.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast, kemur einingin með mynstri að verða styttri en gefið er upp í uppskrift – þetta er hægt að jafna til með því að prjóna 1 auka umferð með jöfnu millibili í einlitu einingunum.
Ef prjónað er of laust, þá kemur einingin með mynstri að verða lengri en gefið er upp í uppskrift, þá er hægt að prjóna 1 umferð færri með jöfnu millibili í einlitu einingunum.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kantlykkjur í garðaprjóni (t.d. 4 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 14) = 6,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka í stykkjum þar til klauf í hvorri hlið hefur verið gerð til loka. Bakstykki er 4 cm lengra en framstykki. Setjið síðan framstykki og bakstykki inn á sama hringprjón og prjónið í hring upp að handveg. Prjónið síðan framstykki og bakstykki til loka hvort fyrir sig. Að lokum er kantur í hálsmáli og í handvegi prjónað í stroffprjóni hringinn.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 93-101-109-115-129-145 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 kantlykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 2 kantlykkjur garðaprjón.
UMFERÐ 2 (brugðið): Prjónið 2 kantlykkjur garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúið brugðið, 2 kantlykkjur garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-16-18-18-20-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 79-85-91-97-109-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Geymið stykkið og prjónið framstykki.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 93-101-109-115-129-145 lykkjur á hringprjón 4 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Prjónið síðan stroff þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 kantlykkjur garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúið slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju snúið slétt og endið með 2 kantlykkjur garðaprjón.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 kantlykkjur garðaprjón, * prjónið 1 lykkju snúið brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, 1 lykkja snúið brugðið, 2 kantlykkjur garðaprjón.
Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 14-16-18-18-20-24 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA = 79-85-91-97-109-121 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.

Prjónið nú bæði stykkin saman þannig:
Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á framstykki, prjónið síðustu lykkjuna á framstykki slétt saman með fyrstu lykkju á bakstykki (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki, prjónið síðustu lykkju á bakstykki slétt saman með fyrstu lykkju á framstykki (= 1 lykkja færri) = 156-168-180-192-216-240 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. í lykkju þar sem 2 lykkjur voru prjónaðar slétt saman í hvorri hlið. Prjónamerkin eru notuð síðar þegar fella á af lykkjum fyrir handveg.
Til að mynstrið í stykkinu verði áfram samhverft mitt að framan er mikilvægt að umferðin byrji eins og útskýrt er að neðan.
Í stærð M, XL, XXL og XXXL er lykkjan með prjónamerki í eini af hliðum 1. lykkja í umferð.
Í stærð S og L er 3. lykkja á undan lykkju með prjónamerki í einni af hliðum 1. lykkja í umferð (þ.e.a.s. lykkja með prjónamerki í er 4. lykkja í umferð) – setjið e.t.v. auka prjónamerki til að merkja 1. lykkju í umferð.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið áfram hringinn með sléttum lykkjum yfir allar lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist alls 6-8-9-11-12-14 cm mælt frá uppfitjunarkanti á framstykki, prjónið mynstur A.1 hringinn í umferð (= 13-14-15-16-18-20 mynstureiningar með 12 lykkjum hringinn í umferð) – sjá LEIÐBEININGAR.
Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá uppfitjunarkanti á framstykki, fellið af 9-9-11-11-13-13 lykkjur í hlið undir hvorri ermi (þ.e.a.s. lykkja með prjónamerki í og 4-4-5-5-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 69-75-79-85-95-107 lykkjur fyrir framstykki og bakstykki.
Síðan er framstykki og bakstykki prjónað til loka hvort fyrir sig. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju á framstykki og miðjulykkju á bakstykki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAMSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið og prjónið mynstur A.1 eins og áður – mynstrið á að halda áfram yfir hverja mynstureiningu eins og áður og prjónaðar eru jafn margar lykkjur af mynstri við hvorn handveg eins og pláss er fyrir. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-5 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-2-3-3 sinnum = 55-57-57-59-61-63 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað með A.2 yfir A.1 – mynstrið á að halda áfram yfir hverja mynstureiningu eins og áður og prjónaðar eru jafnmargar lykkjur af mynstri við handveg í hvorri hlið og pláss er fyrir. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið alls 39-41-42-44-45-47 cm ef prjónfestan passar á hæðina. Haldið áfram með litnum hveiti til loka. Þegar stykkið mælist 15-16-16-17-17-18 cm frá prjónamerki, setjið miðju 15-15-17-17-19-19 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Fellið síðan af lykkjur fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 14-15-14-15-15-16 lykkjur fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.
Vestið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður á framstykki.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið mynstur A.1 eins og áður – mynstrið á að halda áfram yfir hverja mynstureiningu eins og áður og prjónaðar eru jafn margar lykkjur af mynstri við hvorn handveg eins og pláss er fyrir. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig:
Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3-4-4-5 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-2-3-3 sinnum = 55-57-57-59-61-63 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað með A.2 yfir A.1 – mynstrið á að halda áfram yfir hverja mynstureiningu eins og áður og prjónaðar eru jafnmargar lykkjur af mynstri við handveg í hvorri hlið og pláss er fyrir. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina mælist stykkið alls 39-41-42-44-45-47 cm ef prjónfestan passar á hæðina. Haldið áfram með litnum hveiti til loka. Þegar stykkið mælist 23-24-25-26-27-28 cm frá prjónamerki, felli af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 14-15-14-15-15-16 lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Vestið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður á bakstykki.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið uppi á öxl með stuttum hringprjón 4 með litnum hveiti og prjónið upp ca 78-84 lykkjur í kringum kant í hálsi (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2). Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu þar sem stykkið skiptist fyrir handveg. Notið hringprjón 4 og prjónið upp ca 82 til 106 lykkjur í kringum handveg (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) með litnum hveiti. Prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 19.10.2020
Leiðrétting: FRAMSTYKKI: Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. .. BAKSTYKKI:... Þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm, fellið af með sléttum lykkjum frá réttu...

Mynstur

symbols = hveiti
symbols = beige
symbols = brúnn
symbols = bleikvínrauður
symbols = rauður múrsteinn
symbols = rúbínrauður
symbols = salvíugrænn
symbols = bakstykkið er 4 cm lengra en framstykki
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 217-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Rebecca Woods wrote:

Hello, I’m thinking of doing this in stripes, I think with all the different colours it’s 450g, how much yarn does it need if one colour was used please? Thanks

23.11.2023 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Woods, you can get helped from any other similar patterns (see all our slipovers in Air here to inspire you. Happy knitting!

24.11.2023 - 07:42

country flag Janneke Van Gaal wrote:

Drops steenrood 28 is helaas niet meer leverbaar. Welke kleur kan ik als alternatief hiervoor gebruiken? Dank

29.04.2023 - 08:20

DROPS Design answered:

Dag Janneke,

In plaats van steenrood zou je bijvoorbeeld oranje 13 kunnen kiezen of framboos 25. Ik zie dat oudroze er ook niet meer is. Hiervoor zou je bijvoorbeeld blus 32 kunnen kiezen.

30.04.2023 - 16:46

country flag Inger wrote:

Hei, Hvor mye garn ville man ha brukt hvis man ikke hadde strikket mønster, men alt i samme farge? I størrelse L?

20.02.2023 - 23:31

DROPS Design answered:

Hej Inger, prøve at søge på slipover og DROPS Air, så kan du se garnforbruget på en ensfarvet DROPS Air :)

23.02.2023 - 15:46

country flag Mariana Mikiej wrote:

Hola, que es "trigo"? (Montar 93-101-109-115-129-145 puntos con una aguja circular de 4 mm y trigo. )

08.11.2022 - 13:38

DROPS Design answered:

Hola Mariana, trigo es el color con el que empiezas a trabajar; un ovillo del color nº02 o el color principal.

13.11.2022 - 16:51

country flag Bee wrote:

Hello! Based on the pattern diagram, the bust of the XL size measure 80cm around (40cm front + 40cm back). Is that correct? It seems a little small for XL. Thanks!

10.11.2021 - 15:05

DROPS Design answered:

Dear Dee, the 40 cm is the distance between the two shoulder edges.. for the complete width of the west see the bottom of the drawing, according to which, the piece in XL size is 2 X 54 cm around. Happy Stitching!

10.11.2021 - 20:55

country flag VERONIQUE CHENEBAULT wrote:

Bonjour, je souhaite réaliser le modèle mistletoe muse vest en taille S mais au lieu d'utiliser 7 couleurs comme proposées, j'aimerais utiliser le blé et pour le jacquard brume ref 15, bleu marine ref9 et bleu uni ref 16, dans ce cas, combien de pelotes dois-je prévoir en plus des 3 pelotes pour le blé la couleur principale ?

01.11.2021 - 11:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chenbeault, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, votre magasin DROPS saura vous conseiller, même par mail ou téléphone. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

03.11.2021 - 07:37

country flag Mette wrote:

Hejsa Jeg ville gerne, at der var en størrelses-anvisning i opskriften. Hvad måler vesten i størrelse S, M, L osv. Det er rart, når man f.eks. er usikker på, om man skal vælge S eller M

29.10.2020 - 08:29

DROPS Design answered:

Hej Mette, Jo men det findes, du finder vestens mål i måleskitsen nederst i opskriften. God fornøjelse!

29.10.2020 - 08:42

country flag Sofia wrote:

Rättelsen 19.10 gäller väl BAKSTYCKET ?

25.10.2020 - 22:47

DROPS Design answered:

Hei Sofia. Her har den svenske rettelse teksten for bakstykket ikke blitt lagt inn. Det skal vi få gjort, i mellomtiden kan du se på den norske eller danske rettelse teksten. Takk for at du gjorde oss oppmerkom på denne feilen. mvh DROPS design

26.10.2020 - 15:30

country flag Pernille Hegner wrote:

Ved bagstykket står i 10. linie: “ når arbejdet måler 23-24–25-26-27-28 cm fra mærket, lukkes de midterste 25-25-27-27.... masker af til hals. Lidt længere nede står der i 13. linie “når arbejder målet 22- 23-24-25-26-27 cm, lukkes der af med ret....... Hvordan kan det være at Arbejdet først skal være 24 cm og så blive mindre til 23 cm? Burde det ikke være omvendt?

09.10.2020 - 21:20

DROPS Design answered:

Hei Pernille. Ja, her er det noen tall som er feil. Det vil bli lagt ut en rettelse snart. God Fornøyelse!

19.10.2020 - 08:43

country flag Hanne Jensen wrote:

Jeg kan ikke få masketal og strikkefasthed til at passe med målskitsen. I str S skal man have 93 m. Med en strikkefasthed på 17m=10 cm giver det knap 55cm, men ifølge målskitsen skal det give 46 cm,. Det er en ret stor afvigelse. Har jeg misforstået noget?

07.10.2020 - 07:04

DROPS Design answered:

Hej Hanne. Du börjar med att sticka rib så det är därför du inte får det att stämma. Stickfastheten är uppgett i glatstrik/mönster. När du börjar sticka glatstrik minskar du till 79 m och då stämmer det med målskitsen. Mvh DROPS Design

07.10.2020 - 08:33