DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Scent of Pine Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri á berustykki og neðst á ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-7
DROPS Design: Mynstur z-895
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-350-350-400-400-450 g litur 7323, sjávarþoka
50-50-100-100-100-100 g litur 100, natur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni og norrænu mynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Mocha NR 623: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 111 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 37) = 3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef það eru kantlykkjur eða kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki, eru þær dregnar frá heildarfjölda lykkja áður en lykkjufjöldinn er deildur með fjölda útaukninga sem á að gera. Ekki er aukið út yfir kantlykkjur eð kantlykkjur að framan.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldur mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

UPPHÆKKUN (aftan í hnakka):
Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Slepptu þessum kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Byrjið frá réttu með litnum sjávarþoka og prjónið 14-15-16-16-17-18 sléttar lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-30-32-32-34-36 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 42-45-48-48-51-54 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-60-64-64-68-72 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 70-75-80-80-85-90 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 84-90-96-96-102-108 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu lykkju með prjónamerki slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7½-8-8-7½-7½-8 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Hluti af kanti að framan er prjónaður sér og er saumaður við framstykki í lokin. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 121-125-131-135-139-145 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 2,5 með sjávarþoka.
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm, en munið eftir HNAPPAGAT á hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Endið stroff eftir umferð frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður og setjið þær síðan á þráð eða lykkjuhaldara, fitjið upp 1 nýja lykkju í byrjun á umferð (= kantlykkja fyrir saum), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 111-115-121-125-129-135 lykkjur og aukið jafnframt út 37-38-40-42-43-45 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1, fitjið upp 1 nýja lykkju á prjóninn (= kantlykkja fyrir saum) og setjið þær 5 kantlykkjur að framan sem eftir eru á þráð eða lykkjuhaldara = 150-155-163-169-174-182 lykkjur í umferð.
(Kantar að framan eru prjónaðir til loka síðar og eru síðan saumaðir niður að framstykki innan við 1 kantlykkju).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni). Setjið 1 prjónamerki á eftir kantlykkju í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, farðu beint áfram í BERUSTYKKI:

BERUSTYKKI:
Lestu allan kaflann áður en þú prjónar!
Prjónið sléttprjón fram og til baka með sjávarþoka og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 1½-2-2-3-3-3 cm frá prjónamerki við hálsmál, aukið út 49-52-54-56-57-59 lykkjur jafnt yfir = 199-207-217-225-231-241 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 2-3-3-4-4-5 cm frá prjónamerki við hálsmál byrjar mynstrið, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (lykkjufjöldinn gengur ekki jafnt upp með 14 lykkjum fyrir aukningu við ör-1 (S, M, og L) og ör-2 (XL, XXL og XXXL), prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Sjá LEIÐBEININGAR og haldið svona áfram með mynstur (þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 alveg eins).
JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 og A.2 eru prjónaðar lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir ÚTAUKNING-1!

S, M og L:
Ör-1: Aukið út 42-48-52 lykkjur jafnt yfir = 241-255-269 lykkjur (nú er pláss fyrir 17-18-19 mynstureiningar A.1 með 14 lykkjum).
Ör-2: Aukið út 50-48-58 lykkjur jafnt yfir = 291-303-327 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-25-27 mynstureiningar A.1 með 12 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 36-40-48 lykkjur jafnt yfir = 327-343-375 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-42-46 mynstureiningar A.2 með 8 lykkjum, prjónið síðan 5 fyrstu lykkjurnar í A.2 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan).
Ör-4: Aukið út 12-20-24 lykkjur jafnt yfir = 339-363-399 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-30-33 mynstureiningar A.2 með 12 lykkjum).
Prjónið til og með umferð á undan ör-5 í A.2.

XL, XXL og XXXL:
Ör-1: Aukið út 30-40-50 lykkjur jafnt yfir = 255-271-291 lykkjur.
Ör-2: Aukið út 28-40-48 lykkjur jafnt yfir = 283-311-339 lykkjur (nú er pláss fyrir 20-22-24 mynstureiningar A.1 með 14 lykkjum).
Ör-3: Aukið út 28-32-36 lykkjur jafnt yfir = 311-343-375 lykkjur.
Ör-4: Aukið út 28-32-36 lykkjur jafnt yfir = 339-375-411 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-31-34 mynstureiningar A.2 með 12 lykkjum).
Ör-5: Aukið út 52-56-60 lykkjur jafnt yfir = 391-431-471 lykkjur (nú er pláss fyrir 48-53-58 mynstureiningar A.2 með 8 lykkjum, prjónið síðan 5 fyrstu lykkjurnar í A.2 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan).
Ör-6: Aukið út 44-40-36 lykkjur jafnt yfir = 435-471-507 lykkjur (nú er pláss fyrir 36-39-42 mynstureiningar A.2 með 12 lykkjum).
Prjónið til og með umferð á undan ör-7 í A.2.

ALLAR STÆRÐIR:
Geymið berustykkið á prjóninum og prjónið kanta að framan eins og útskýrt er að neðan.
Setjið 5 kantlykkjur að framan af þræði í vinstra framstykki á prjón 3 og prjónið garðaprjón fram og til baka með litnum sjávarþoka í ca 17-18-18-22-22-23 cm – geymið síðan kanta að framan meðfram miðju að framan og athugið mál, það þarf að strekkja aðeins á kanti að framan. Setjið lykkjurnar á 1 þráð eða lykkjuhaldara.
Prjónið hægri kant að framan á sama hátt, en munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan.

Prjónið síðan umferð merktri með ör-5 í A.2 (S, M og L) og ör-7 í A.2 (XL, XXL og XXXL) þannig: Setjið til baka 5 kantlykkjur að framan frá vinstra framstykki á prjóninn og prjónið þessar 5 lykkjur í garðaprjóni eins og áður, fellið af 1 kantlykkju, prjónið sléttar lykkjur frá réttu með sjávarþoka yfir næstu 337-361-397-433-469-505 lykkjur JAFNFRAMT er aukið út um 3-11-3-7-7-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, fellið af 1 kantlykkju og prjónið garðaprjón yfir 5 kantlykkjur að framan á hægra framstykki = 350-382-410-450-486-522 lykkjur í umferð. Prjónið A.2 til loka. Stykkið mælist nú ca 19-20-20-24-24-25 cm frá prjónamerki við háls.
Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með litnum sjávarþoka og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan (í S er prjónað áfram einungis ef stykkið mælist minna en 19 cm þegar A.2 hefur verið prjónað til loka).
Þegar stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 55-60-63-69-76-83 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 70-76-84-92-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 100-110-116-128-142-156 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 70-76-84-92-96-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 55-60-63-69-76-83 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 222-242-258-282-314-342 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 58-63-67-73-81-88 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðum á fram- og bakstykki). Það eru 106-116-124-136-152-166 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum á fram- og bakstykki.
Haldið áfram fram og til baka með sjávarþoka, sléttprjón og 5 kantlykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan.
Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm alls 4 sinnum í hvorri hlið = 238-258-274-298-330-358 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 4 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd.
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 59-65-69-75-83-89 lykkjur jafnt yfir = 297-323-343-373-413-447 lykkjur (lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman).
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til eftir eru 6 lykkjur í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

ERMI.
Setjið 70-76-84-92-96-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur.
Setjið nú 2 prjónamerki í stykkið (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar):
Byrjið mitt undir ermi á milli de 6-6-8-8-10-10 lykkja, setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju á eftir miðju, teljið 37-40-45-49-52-54 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju = 37-40-45-49-52-54 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónamerkið mitt undir ermi er notað síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi.
Prjónamerkið mitt á ermi er notað þegar telja á hvar mynstrið á að byrja frá.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð mitt undir ermi með lykkju með prjónamerki í og prjónið sléttprjón hringinn með sjávarþoka.
Þegar stykkið mælist 3-3-3-3-2-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá AFFELLING.
Fækkið lykkjum svona með 3-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 12-14-17-20-22-23 sinnum = 52-54-58-60-62-64 lykkjur.
Prjónið þar til ermin mælist 36-35-33-31-29-28 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 9 cm að loka máli í öllum stærðum, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd, takið vel eftir að úrtaka undir ermum heldur áfram í hluta af stærðunum. ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykki.
Nú er A.3 prjónað hringinn (teljið út frá miðju á ermi hvar mynstrið eigi að byrja – lykkjan með prjónamerki mitt á ermi a að passa við lykkju merktri með stjörnu í A.3).
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, mælist ermin ca 41-40-38-36-34-33 cm frá skiptingu. Afgangur af ermi er prjónaður með litnum sjávarþoka.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-12-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 64-66-72-74-78-80 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 45-44-42-40-38-37 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið kanta að framan fallega innan við 1 kantlykkju á berustykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sjávarþoka
symbols = natur
symbols = útaukningsumferð
symbols = miðjulykkja
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Marie wrote:

Bonjours pourquoi quand je suis arrivé à la flèche 2 en taille XXL j'ai 311 mailles je ne peux donc pas faire 22 motifs de 14 mailles !!!!! cordialement

19.03.2024 - 09:06

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, vous avez 311 mailles et tricotez ainsi: 1 m lis, répétez 22 fois les 14 mailles de A.1, tricotez la 1ère maille de A.1 (pour que le motif soit symétrique) et terminez par 1 m lisière = 1+ (22x14)+1+1=311 mailles. Bon tricot!

19.03.2024 - 11:26

country flag Mieke wrote:

Welke kleur wordt gebruikt voor de ribbrlsteek tijdens het breien van het patroon? Na meerderen bij pijl 1 blijven er 3 steken over na 18 herhalingen, waarvan 2 ribbelsteken ( begin en eind). Wat is de 3e steek? Dank voor uw antwoord.

15.03.2024 - 15:54

DROPS Design answered:

Dag Mieke,

De ribbelsteken voor de voorbies worden in de hoofdkleur zeemist gebreid. Helaas begrijp ik je vraag niet goed. Pijl 3 zit op een naald waar je allen met zeemist breit en op deze naald meerder je steken. Hetzelfde geldt voor pijl 1. Op deze naalden meerder je steken verdeeld over de hele naald en hoef je geen rekening te houden met het patroon. Na een meerdernaald maak je meer patroonherhalingen in totaal op de naald.

17.03.2024 - 19:10

country flag Helena wrote:

Hej! Jag undrar om det går att sticka denna som en tröja istället för en kofta och i så fall hur?

16.02.2024 - 08:30

DROPS Design answered:

Hej Helena, ja det är DROPS 215-8 :)

23.02.2024 - 10:46

country flag Annsofi WILES wrote:

Kan jag sticka koftan 215-7 med Nepal istället för med Alpaca? Hur många nystan behöver jag då av varje färg?

24.12.2023 - 16:11

country flag Irene wrote:

Hei hva betyr åpne felt i Diagramm

01.10.2023 - 16:57

DROPS Design answered:

Hej Irene, du gentager rapporten som går over 8 masker omgangen rundt, øvrige rapport går over 12 masker, som alle er tegnet ind i diagrammet :)

04.10.2023 - 07:24

country flag Jette Junge wrote:

Hej. Er begyndt på denne, men undrer mig over, hvordan man skal strikke én pind i en farve og så den næste i den anden farve, når man strikker frem og tilbage? Den anden garnfarve følger jo ikke med over…

29.08.2023 - 13:29

DROPS Design answered:

Hej Jette, du kan strikke med flere nøgler, eller så kan du strikke fra den side hvor garnet er :)

08.09.2023 - 15:18

country flag Anna Marie Fedel wrote:

Why , the further I go into the sweater , the more it curls. Am I doing something wrong?

16.03.2022 - 20:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fedel, not sure what you mean here, do you have correct tension in width? Even working with the stranded pattern? Make sure you stil have 24 sts = 10 cm in width. If you are still unsure, you can show your work to your store (even sending them a picture per mail), so that they can check with you. Happy knitting!

17.03.2022 - 09:44

country flag Anxu wrote:

The question didn't seem to get there so i'll put it again. I have a problem with A. 3. The pattern fails with the (52) number of loops. Could i have a help video from A.3?

23.09.2021 - 12:31

DROPS Design answered:

Dear Anxu, you can find all the available videos related to this pattern linked just below the pattern and the diagrams. I hope you will find what you are looking for. Happy Stitching!

23.09.2021 - 21:14

country flag Anxu wrote:

Hello, lovely knit

23.09.2021 - 11:19

country flag Gunn wrote:

Har begynt på bærestykke. Etter forhøyningen skal det strikkes til merke i nakken og så likt på det andre siden av merket eller skal det strikkes fram og tilbake på hele pinnen,

19.09.2021 - 22:39