DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mikado Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tveggja lita klukkuprjóni og lettneskum köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 216-8
DROPS Design: Mynstur sk-097
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-300-300-350-350 g litur 03, ljós beige
50-50-50-50-50-50 g litur 17, karrí
50-50-50-50-50-50 g litur 12, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur 13, ljós gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
20 lykkjur á breidd og 44 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff og klukkuprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS TALA, Eik NR 503: 8-8-9-9-9-9 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
Mynsturteikning A.1 og A.2 er prjónuð í sléttprjóni með tveggja lita mynstri.
Mynsturteikning A.3 og A.4 er prjónuð í tveggja lita klukkuprjóni.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 133 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim 123 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 8,78.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftri ca 9. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu.
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-7½-8-8½-8½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 129-133-137-145-151-157 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum karrí. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Skiptið yfir í litinn ljós beige (klippið frá þráðinn með litnum karrí).
Í næstu umferð er prjónað stroff frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru í umferð, 1 lykkja slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Þegar kantur í hálsi mælist 1½-2 cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Haldið svona áfram með stroff í 7-8-8-9-9-10 cm, frá uppfitjunarkanti.
Skiptið yfir á hringprjón 4.

BERUSTYKKI:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 14-14-18-18-22-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 143-147-155-163-173-183 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið slétt.
Setjið 5 kantlykkjur að framan á sitt hvorn þráðinn í hlið á stykki án þess að prjóna þær, það á að prjóna mynstur yfir berustykki, áður en kantur að framan er prjónaður sér og saumaður niður í lokin = 133-137-145-153-163-173 lykkjur.
Skiptið yfir í karrí, klippið frá þráðinn í litnum ljós beige.
UMFERÐ 3: Prjónið sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 20-20-20-20-26-28 lykkjur jafnt yfir og fitjið upp 1 kantlykkju í lok umferðar = 154-158-166-174-190-202 lykkjur.
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur og fitjið upp 1 kantlykkju í lok umferðar = 155-159-167-175-191-203 lykkjur.
Prjónið nú mynstur, prjónið lykkjur utan við mynstur með sama lit eins og fyrsta lykkja í mynstri.
UMFERÐ 5: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 (= 4 lykkjur) þar til 2 lykkjur eru eftir (= 38-39-41-43-47-50 sinnum á breidd), prjónið næstu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.1 og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram þannig:
Skiptið yfir í karrí (það þarf ekki að klippa ljós beige þráðinn frá, það á að nota hann bráðlega).
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur á meðan aukið er út um 12-12-14-16-20-28 lykkjur jafnt yfir = 167-171-181-191-211-231 lykkjur.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 0-0-1-0-0-0 lykkja sléttprjón, A.2 (= 4 lykkjur) þar til 2-2-3-2-2-2 lykkjur eru eftir (= 41-42-44-47-52-57 sinnum á breidd), prjónið næstu lykkju eins og fyrstu lykkju í A.2, 0-0-1-0-0-0 lykkju sléttprjón og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 12-13-13-14-14-15 cm.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, með litnum ljós beige þar til stykkið mælist 12-13-13-14-15-17 cm.
Prjónið síðan þannig:
Skiptið yfir í litinn gallabuxnablár (klippið frá þráðinn í litnum ljós beige) og prjónið síðan með hringprjón 3.
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið slétt.
Þegar nú er prjónað mynstur, prjónið lykkjur utan við mynstur með sama lit og fyrstu lykkju í mynstri.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.3 (= 2 lykkjur), * A.4 (= 4 lykkjur), A.3 yfir 8-6-6-6-6-6 lykkjur (= 4-3-3-3-3-3 sinnum á breidd) *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir (= 13-16-17-18-20-22 sinnum á breidd), A.4 yfir 4 lykkjur, A.3 yfir 3 lykkjur og endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Þegar A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 279-307-325-343-379-415 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið lettneskan kaðal þannig:
UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið 1 umferð brugðið með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið, með gallabuxnablár.
UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón með litnum ljós beige, * 1 lykkja slétt með litnum ljós beige, 1 lykkja slétt með litnum gallabuxnablár *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt með litnum ljós beige og endið með 1 kantlykkju garðaprjón með litnum ljós beige.
UMFERÐ 3 (= frá röngu): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón með litnum ljós beige, leggið báða þræðina á bakhlið á stykki, 1 lykkja slétt með litnum ljós beige.
Dragið þráðinn með litnum gallabuxnablár undir þráðinn í litnum ljós beige og prjónið 1 lykkju slétt með litnum gallabuxnablár. Haldið svona áfram með sléttum lykkjum til skiptis með litnum ljós beige og gallabuxnablár, en færði alltaf þráðinn UNDIR þráðinn frá síðustu lykkju sem var prjónuð þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju garðaprjón með ljós beige.
UMFERÐ 4 (= frá réttu): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón með ljós beige, leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér), prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið.
Dragið þráðinn með litnum gallabuxnablár undir þráðinn í litnum ljós beige, 1 lykkja brugðið með litnum gallabuxnablár og færið þráðinn til baka að framhlið.
Haldið svona áfram með brugðnar lykkjur til skiptis með litnum ljós beige og gallabuxnablár, en færið alltaf þráðinn UNDIR þráðinn frá síðustu lykkju sem var prjónuð þar til 1 lykkja er eftir, leggið þráðinn með litnum gallabuxnablár á bakhlið og endið með 1 kantlykkju garðaprjón með litnum ljós beige.
Stykkið mælist ca 21-22-22-23-24-26 cm. Prjónið nú stykkið í sléttprjóni með litnum ljós beige.
Fellið af 1 kantlykkju í byrjun á 2 næstu umferðum (þ.e.a.s. í hvorri hlið á stykki) = 277-305-323-341-377-413 lykkjur. Prjónið nú yfir kantlykkjur að framan þannig:

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Setjið lykkjur á hringprjón 4 og prjónið með litnum ljós beige þannig:
Prjónið fram og til baka í garðaprjóni, en fitjið upp 1 kantlykkju í lok fyrstu umferðar frá röngu (þ.e.a.s. að berustykki). Þegar kantur að framan mælist sama og berustykkið, fellið kantlykkjur af í næstu umferð frá réttu og kantur að framan er settur til baka á sama hringprjón og afgangur af berustykki (þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu).

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Setjið lykkjur á hringprjón 4 og prjónið með litnum ljós beige þannig:
Prjónið fram og til baka í garðaprjóni, en fitjið upp 1 kantlykkju í lok fyrstu umferðar frá réttu (þ.e.a.s. að berustykki). Þegar kantur að framan mælist sama og berustykkið, fellið kantlykkjur af í næstu umferð frá röngu, prjónið 1 umferð frá réttu og kantur að framan er settur til baka á sama hringprjón og afgangur af berustykki (þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá röngu).

BERUSTYKKI:
= 287-315-333-351-387-423 lykkjur.
Prjónið nú stykkið með litnum ljós beige.
Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Útaukningu er nú lokið í stærð S-M-L, en haldið áfram í stærð XL-XXL-XXXL þannig.

STÆRÐ XL-XXL-XXXL:
Í næstu umferð frá réttu er aukið út um 12-14-12 lykkjur jafnt yfir = 363-401-435 lykkjur.
Endurtakið útaukningu eftir 2 cm = 375-415-447 lykkjur.

ALLAR STÆRÐIR:
= 287-315-333-375-415-447 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar stykkið mælist 22-24-25-28-29-31 cm frá uppfitjunarkanti, skiptist stykkið til fram- og bakstykki og ermar í næstu umferð þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 39-44-46-53-59-65 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-64-68-76-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 79-89-95-107-119-131 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 60-64-68-76-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 39-44-46-53-59-65 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 183-203-213-239-263-287 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 48-53-55-62-68-74 inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Það eru 87-97-103-115-127-139 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum.
Haldið áfram með sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri) – sjá ÚTAUKNING-2.
Aukið svona út með 3-5-4-4-4-3 cm millibili alls 7-5-6-6-6-7 sinnum = 211-223-237-263-287-315 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 27-27-28-27-28-28 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stroffið mælist 4 cm – sjá AFFELLING.
Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring í sléttprjóni með ljós beige.
Setjið 60-64-68-76-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-76-84-92-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 lykkja undir ermi (það á síðar að fækka lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA!
Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-2-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-14-17-20-21 sinnum = 44-46-48-50-52-54 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 37-36-35-33-32-31 cm frá skiptingu, prjónið lettneskan kaðal með litnum ljós beige og gallabuxnablár þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið * 1 lykkja slétt með litnum gallabuxnablár, 1 lykkja slétt með litnum ljós beige *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Dragið þráðinn með litnum gallabuxnablár yfir á bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og dragið þráðinn til baka að framhlið.
Dragið þráðinn með litnum ljós beige undir þráðinn með litnum gallabuxnablár og síðan yfir að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og dragið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með brugðnar lykkjur í til skiptis með litnum gallabuxnablár og ljós beige, en dragið alltaf þráðinn UNDIR þráðinn frá síðustu lykkju sem var prjónuð.
UMFERÐ 3: Prjónið eins og 2. umferð, en nú er þráðurinn dreginn alltaf yfir þráðinn frá fyrri lykkju sem var prjónuð.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir allar lykkjur.
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist ca 4 cm.
Ermin mælist alls ca 42-41-40-38-37-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið lausa kanta að framan við berustykki, innan við 1 kantlykkju.
Saumið tölur í vinstri kanti að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.09.2020
Leiðrétting: Mynsturtákn og útskýring á mynsturteikningu hefur verið leiðrétt

Mynstur

symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman
symbols = prjónið 5 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni, * sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sléttar lykkjur og uppsláttinn aftur slétt saman, án þess að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 5 lykkjur.
symbols = brugðið frá réttu með karrí
symbols = slétt lykkja
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með ljós beige

symbols = brugðin lykkja frá röngu með ljós gallabuxnablár
symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með gallabuxnablár

symbols = prjónið frá réttu með ljós gallabuxnablár
symbols = prjónið frá réttu með karrí
symbols = prjónið frá röngu með ljós gallabuxnablár
symbols = prjónið frá röngu með karrí
symbols = prjónið frá röngu með gallabuxnablár

symbols = prjónið frá réttu með gallabuxnablár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 216-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Mary Catherine Searle wrote:

Knitting the English rib on this jacket there is no mention of sliding stitches across needle as you do in the urban jacket. So should I be doing this for the mikado jacket? Thank you

12.09.2023 - 18:24

country flag Mary Catherine Searle wrote:

Knitting the English rib on this jacket there is no mention of sliding stitches across needle as you do in the urban jacket. So should I be doing this for the mikado jacket? Thank you

12.09.2023 - 18:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Searle, on the mikado jacket you will just work a part of yoke with English rib - as shown in diagram A.3 and A.4, ie you will alternately slip the stitches making a yarn over or knit/purl this stitch together with its yarn over. Or maybe I misunderstood your question?

13.09.2023 - 08:24

country flag Eva Albinsson wrote:

Hur läser jag diagram A3 och A4 ? A3 = 2 maskor A4 = 4 maskor, varför är det symboler vid sidorna om diagrammet? Mvh Eva

25.07.2023 - 19:04

DROPS Design answered:

Hei Eva Denne jakken strikkes med 2-farget helpatent. De ikonene du ser på hver side av diagram A.3 og A.4 forteller deg hvilken farge du skal strikke med og om det er fra retten eller vrangen. Når du strikker 1.rad av A.3, strikker du fra retten med lys jeansblå slik: 1 rett + lag 1 kast om høyre pinne, løft 1 maske løs over på høyre pinne som om den skulle strikkes vrang. Når du skal strikke videre med A.4 strikker du fremdeles fra retten med lys jeansblå. Når 1. rad er ferdigstrikket skal du fortsette å strikke fra retten (skyv maskene på pinne tilbake), strikk A.3 fra retten med fargen karri. Rad 3 og 4 strikkes fra vrangen, rad 5 og 6 fra retten igjen, osv.

28.07.2023 - 10:27

country flag Judith Goodison wrote:

I am trying to follow the diagram for A4 and A3 but in the symbol instructions some of the symbols say for example, "Work in Light Jeans from wrong side" but i am on a RS row - how can I do this? I am using a circular need to accommodate my stitches, but working as I would on normal needles. Also, the instructions say for example " Knit together the yarn over and stitch" is this 1 or 2 instructions? EG "knit 2 together by placing yarn over and stitch"

12.06.2023 - 14:48

DROPS Design answered:

Dear Mrs Goodison, when working English rib with 2 colours, you will work alternately 2 rows from RS (first with one colour, then with the 2nd colour) and 2 rows from WS (first with one colour then with the 2nd colour). In this video, we show how to work English rib with 2 colours, it should help you understanding how to work the symbols (knit tog yarn over and stitch is just 1 instructions, see video). Happy knitting!

12.06.2023 - 15:53

country flag Erin G wrote:

I am knitting 216-8. When reading from the diagram there is a solid black squares with instructions “purl together the yarn over and stitch”. Do I purl these stitches together regardless of whether I am on a RS or RS row or do I need to switch to knit together? Thank you

06.11.2022 - 16:29

DROPS Design answered:

Dear Erin, you always purl them together, regardless of the side you are working on, since there is another symbol for knitting the yarn over and stitch together. Happy knitting!

06.11.2022 - 23:33

country flag Eva wrote:

Hej mönster A4 i patent är ju alla varv från rätsida hur stickar man avigsidan

14.03.2022 - 12:38

DROPS Design answered:

Hei Eva. De 2 første pinnnene i diagram A.4 strikkes fra retten (se digramforklaringen, sort og hvit diamant ikon), mens 3. og 4. pinne strikkes fra vrangen (se diagramforklaringen, sort og hvit stjerne ikon). Altså strikk 1. pinne fra retten med lys jeansblå og når pinnen er strikket ut, skyv maskene tilbake og strikk neste pinne (2. pinne) også fra retten, men denne gangen med fargen karri. mvh DROPS Design

21.03.2022 - 11:51

country flag Draye Julia wrote:

Bonjour Quand A3 et A4 sont terminés je commence la tresse lettone mais faut-il compter les jetés effectués au dernier rang ? faut-il les tricoter car j’ai effectivement 325 mailles mais avec les jetés cela fait beaucoup plus je vous remercie de votre superbe modèle Julia

20.12.2021 - 19:53

DROPS Design answered:

Bonjour Julia, les jetés des mailles glissées ne comptent pas comme des mailles car ils appartiennent à la maille glissée, si vous avez 325 mailles en taille L, vous avez le bon nombre de mailles, au 1er rang de la tresse lettone, tricotez (en bleu jeans) 1 rang envers sur l'envers avec 1 maille lisière au point mousse de chaque côté et tricotez ainsi ensemble à l'envers les jetés avec leur maille glissée (il doit vous rester 325 m à la fin de ce rang). Bon tricot!

21.12.2021 - 07:18

country flag Draye wrote:

Bonjour excusez-moi je ne comprends pas le rang 5 du diagramme A4 le carré avec La Croix au milieu existe t’il une vidéo merci bcp pour le modèle 216-8

10.12.2021 - 09:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Draye, tout à fait, cette vidéo montre comment tricoter 5 fois la même maille pour augmenter 4 mailles dans des côtes anglaises bicolores. Bon tricot!

10.12.2021 - 11:32

country flag Robyn wrote:

I am knitting another Drops cardigan at the moment (La Belle) and am hoping to make this one as well. I was wondering if the wool requirements on this pattern are correct as the other cardigan with the same dimensions is listed as needing a lot more wool than this one.

28.11.2021 - 05:51

DROPS Design answered:

Dear Robyn, you need to take into account that the yarns have different yardage. DROPS Karisma has almost half the yardage of DROPS Sky so, even though they belong to the same yarn group, you will need less balls of Sky to make the cardigan. Happy knitting!

28.11.2021 - 19:15

country flag Julia Draye wrote:

Bonjour je réalise le modèle 216.8 J’ai terminé les deux rangs en bleue jeans foncés je suis arrivée au début du diagramme quelle est la couleur employée je vous remercie bcp Julia

10.11.2021 - 13:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Draye, les couleurs à tricoter dans A.3 et A.4 sont indiquées par les losanges blancs/noir à droite et les étoiles blanches/noires à gauche de A.3 (selon que le rang se tricote sur l'endroit ou sur l'envers), autrement dit, le 1er rang se tricote sur l'endroit en bleu jeans clair, le 2ème rang sur l'endroit en curry etc.. bon tricot!

11.11.2021 - 08:49