DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sunset Shopper

Hekluð taska / net úr DROPS Paris. Stykkið er heklað neðan frá og upp með stjörnumynstri í botni.

DROPS 211-26
DROPS Design: Mynstur w-791
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Mál: Þvermál í botni: ca 26 cm. Ummál: ca 82 cm. Hæð án axlabands: ca 40 cm.
Axlaról: ca 40 cm.

EFNI (í eitt net í hvorum lit):
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250 g litur 38, hindber
250 g litur 31, fjólublár

HEKLFESTA:
18 stuðlar á breidd og 10½ umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1760.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

HEKLLEIÐBEININGAR (á við um loftlykkjur):
1 loftlykkja jafngildir 1 fastalykkju á breiddina. Passið uppá að lykkjan sem er gerð í loftlykkjuna dragist aðeins upp á heklunálinni svo að hún verði ekki of stíf. Ef loftlykkjurnar eru heklaðar of fast, þá kemur mynstri til með að dragast saman í þeim einingum þar sem eru margar loftlykkjur.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA / NET - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp.

TASKA / NET:
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Paris og tengið saman loftlykkjur í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð.
Heklið A.1 hringinn. Þegar A.1 hefur verið heklað til loka eru 3 loftlykkjur og 18 stuðlar í umferð.
Setjið 1 prjónamerki í síðustu umferð. Stykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.2 einu sinni (= fyrsta einingin sem einnig sýnir byrjun og lok á umferð), heklið síðan A.3 alls 5 sinnum = 6 blöð í umferð. Haldið svona áfram með mynstur.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar A.2 og A.3 hefur verið heklað til loka eru 42 loftlykkjubogar í umferð.
Setji 1 prjónamerki í síðustu umferð. Það á að mæla stykkið síðar frá þessu prjónamerki.
Heklið síðan loftlykkjuboga hringinn án þess að auka út, þ.e.a.s. heklið þannig: Heklið keðjulykkjur að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, * heklið 5 loftlykkjur, heklið 1 fastalykkju um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* hringinn án þess að enda umferð.
Heklið þar til taskan/netið mælist ca 38 cm frá prjónamerki sem sett var í og endið næstum því í sömu línu og byrjun á botni á töskunni/netinu.
Heklið keðjulykkjur að byrjun á næsta loftlykkjuboga. Heklið síðan kant með axlabandi eins og útskýrt er að neðan.

KANTUR MEÐ AXLARÓL:
UMFERÐ 1: Heklið 3 loftlykkjur (jafngildir 1 stuðli), heklið 3 stuðla um sama loftlykkjuboga, heklið síðan 4 stuðla um hvern loftlykkjuboga umferðina hringinn, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 168 stuðlar í umferð.
UMFERÐ 2: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul.
UMFERÐ 3: Heklið 1 stuðul í hvern af fyrstu 28 stuðlum, heklið 75 lausar loftlykkjur – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, hoppið yfir næstu 28 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 56 stuðlum, heklið 75 lausar loftlykkjur, hoppið yfir næstu 28 stuðla, heklið 1 stuðul í hvern af þeim 28 stuðlum sem eftir eru.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hvern af fyrstu 28 stuðlum, heklið 1 fastalykkjur í hvern af næstu 75 loftlykkjum, 1 fastalykkju í hvern af næstu 56 stuðlum, 1 fastalykkja í hverja af næstu 75 loftlykkjum, 1 fastalykkja í hvern af síðustu 28 stuðlum.
UMFERÐ 5-8: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið eftir síðustu umferð með fastalykkjum.
Heklið að lokum eina loka umferð innan á báðum axlarólunum með því að byrja mitt í 28 lykkjur neðst á axlaról, heklið 1 fastalykkju í hverja af 14 fastalykkjum, heklið 1 fastalykkju í hverja af 75 lykkjum á axlaról og heklið 1 fastalykkju í hverja af 14 lykkjum að miðju, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Endurtakið á hinni axlarólinni.

Mynstur

symbols = Byrjið hér – þessi loftlykkjuhringur er útskýrður í uppskrift. Haldið áfram frá tákni yfir punkti á hring og heklið til vinstri
symbols = fastalykkja um hringinn
symbols =
keðjulykkja í lykkju/um loftlykkjuboga
symbols = stuðull í lykkju
symbols = í byrjun á umferð er hekluð 1 loftlykkja (þessi loftlykkja jafngildir 1 fastalykkju á hæðina) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í þessa loftlykkju
symbols = í byrjun á umferð eru heklaðar 3 loftlykkjur (þessar 3 loftlykkjur jafngilda 1 stuðli á hæðina) og umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð
symbols = 2 loftlykkjur
symbols = 3 loftlykkjur
symbols = 4 loftlykkjur
symbols = 5 loftlykkjur
symbols = ekki á að hekla þessa umferð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig hekla á í lykkjurnar í næstu umferð
diagram
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Evelyne wrote:

Bonjour,\r\nLe diagramme A3 n\'apparaît pas sur la photo du modèle. Comment le commencer et où ?

26.11.2022 - 10:04

DROPS Design answered:

Bonjour Evelyne, quand A.1 est terminé, crochetez les diagrammes A.2 et A.3 ainsi: crochetez 1 fois A.2 en largeur (montre comment commencer et terminer les tours), puis répétez 5 fois A.3 jusqu'à la fin du tour. Continuez ainsi jusqu'à ce que les diagrammes soient terminés. Bon crochet!

28.11.2022 - 08:57

country flag Hanne wrote:

Hei! Fin og enkel oppskrift! Jeg kjøpte inn en hel del Drops Paris, tenkte julegaver, og driver og hekler på veske nummer to. Men jeg plages veldig med at garnet deler seg. Noen gode tips til hvordan jeg kan unngå det? Synes det er vanskelig å få det pent.

16.10.2022 - 16:11

DROPS Design answered:

Hei Hanne. Når man hekler et slik nett, er det viktig å ha skikkelig hold/hekles stramt/hekles med tynnere heklenål en "vanlig", ettersom da vil ikke nettet sige når man fylles opp. Og når man da hekler med tynn heklenål er det nok litt lettere å dele garnet, men slik er det med dette bomullsgarnet. DROPS Paris er spunnet av flere tynne tråder, slik at når det hekles er det viktig å hekle med/rundt alle trådene, slik at det ikke deler seg opp. mvh DROPS Design

17.10.2022 - 13:54

country flag Laura wrote:

Hola, he acabado el diagrama A.3 con 42 arcos. He seguido haciendo arcos de 5 cadenetas y un punto bajo, pero mi labor sigue con una forma plaza y cada vez más grande. Parece un plato. Como he de hacer para que me crezca hacia arriba y no hacia los lados? Todas las vueltas que he hecho son de 42 arcos, pero el bolso sigue de forma plana. No entiendo estas indicaciones de este paso. Gracias

26.08.2022 - 13:28

DROPS Design answered:

Hola Laura, después de A.3, comienzas a trabajar en redondo sin aumentos, y así debería de subir la bolsa hacia arriba. Si no sube hacia arriba, puede tratarse de un problema con la tensión del tejido.

27.08.2022 - 20:23

country flag ELIANA MARIA GUEDES wrote:

I would like to have the Pattern in English. Please,

18.08.2022 - 23:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Guedes, all our patterns are available in English - click on the scroll down menu and choose the desired language - either UK or US English (important for the crochet terminology). Happy crocheting!

19.08.2022 - 11:40

country flag Birgitt Deckert wrote:

Hallo, Ich verstehe nicht wie man die Runde mit den 13 Maschen häkelt. Wieviel Bögen müssen in dieser Runde sein?

04.07.2022 - 09:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Deckert, so häkeln Sie die Diagramme (nach A.1) : A.2x 1, dann A.4 x 5 = so haben Sie 6 Blätter. Bei der 6. Reihe A.2/A.3 häkeln Sie 13 Stb mit je 2 Luftmaschen, bei der nächsten Runde häkeln Sie weniger Stäbchen aber mehr Luftmaschenbogen: 2 LmBogen bei der 7. Runde: 4 Luftmaschen 1 fM in den LmBogen von der 6. Runde, 4 Luftmaschen (so haben Sie 2 LmBogen zwischen jedem Blatt). Viel Spaß beim häkeln!

04.07.2022 - 16:41

country flag Cinzia wrote:

Dopo aver finito schema A.3 devo avere 42 archetti, continuando a lavorare deve prendere la forma della borsa oppure rimanere piatto il lavoro? Grazie

30.06.2022 - 17:49

DROPS Design answered:

Buonasera Cinzia, la forma finale della borsa la può dare alla fine quando lavora la tracolla. Buon lavoro!

30.06.2022 - 20:04

country flag Kasia wrote:

Dzień dobry, chciałam zapytać czy schemat A3 jest wykonywany na pewno w całości ?ponieważ przerobiłam A2 i powstało 6 listków . Gdy przerobię A3 wówczas znowu ze słupków będą powstawać listki a torba ma ich tylko 6. Proszę o dokładne wyjasnienie

06.04.2022 - 10:20

DROPS Design answered:

Witaj Kasiu, schemat A.2 to pierwszy listek (ten schemat pokazuje również początek i koniec okrążeń). Schemat A.3 to pozostałe 5 listków. Na końcu otrzymasz 6 listków. W okrążeniu wykonujesz najpierw schemat A.2 (1-szy rząd), a następnie powtarzasz schemat A.3 5 razy (też 1-szy rząd). Itd. Pozdrawiamy!

06.04.2022 - 10:35

country flag Carine Bastarache wrote:

Bonjour , Je n'arrive pas à comprendre cette phrase : c'est-à-dire sauter la première bride du tour précédent. ?? Je reste toujours avec une branche de plus sur A2 à cause des 3m en l'air. Merci !!

14.01.2022 - 14:31

country flag Christina wrote:

Forstår jeg oppskriften som riktig hvis jeg leser det sånn at tykkelsen på det første bladet blir litt bredere enn de andre pga. de tre første luftmaskene som starter med eller skal man da hoppe over noe for at de alle skal bli like?

28.12.2021 - 07:13

DROPS Design answered:

Hei Christina. Ja, du kan tenkte deg at det liksom blir en "søm" pga de 3 luftmaskene+1kjedemaske hver omgang starter og slutter med. mvh DROPS Design

04.01.2022 - 13:31

country flag Agneta Nordmark wrote:

Hej, jag har lite svårt att förstå diagrammen. A.2: I första varvet på "bladet", ska ovaltecknet/3 lm räknas som 1 stolpe + 3 st till, alltså 4? Eller ska det vara 3 lm + 2 stolpar = 3 st. I de följande bladen på varvet är det 3 stolpar x 5. I nästa varv, ska det vara 3 lm + 5 stolpar, eller 3 lm + 4 stolpar = 5 på första bladet? osv Tacksam för klarläggande!

19.10.2021 - 19:59

DROPS Design answered:

Hej Agneta, varje maska finns med i diagrammet, så första varvet i A.2 = 4 maskor och A.3 = 3 maskor :)

21.10.2021 - 09:37