DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Spring Surrender

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-40
DROPS Design: Mynstur z-881
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-200-250-250-300 g litur 3112, daufbleikur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu):
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um í hlið á fram- og bakstykki og ermar):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

LYKKJUFJÖLDI:
Þar sem bæði er fækkað lykkjum og fjölgað í A.1a, A.2a, A.3a og A.4a, kemur lykkjufjöldinn til með að breytast eftir því hvaða umferð er talið í (eftir því hvort fækka hafi lykkjum/fjölgað í mynstri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, fellið af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur – sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju og uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-120-126-132-135-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið).
Haldið svona áfram með stroff í 2 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Hálft berustykki: Prjónið 6-9-9-9-9-12 lykkjur slétt, A.1 (= 7 lykkjur).
Hægri ermi: Prjónið 2 lykkjur slétt, A.2 (= 4 lykkjur), A.3a (= 17-17-17-23-23-23 lykkjur), A.4 (= 4 lykkjur), 2 sléttar lykkjur.
Framstykki: Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur, 11-17-22-17-19-23 lykkjur slétt, A.1 yfir 7 lykkjur.
Vinstri ermi: Prjónið 2 lykkjur slétt, A.2 yfir 4 lykkjur, A.3a yfir 17-17-17-23-23-23 lykkjur, A.4 yfir 4 lykkjur, 2 lykkjur slétt.
Hálft bakstykki: Prjónið A.1 yfir 7 lykkjur, 5-8-9-8-9-11 lykkjur slétt.
Prjónið 1 umferð áfram með þetta mynstur.
Í næstu umferð er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við A.1 – sjá ÚTAUKNING-1 (= 8 lykkjur fleiri). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 22-24-28-33-37-40 sinnum.
Þegar fyrstu 3 umferðirnar í mynstri A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað, endurtakið A.1a, A.2a og A.4a áfram á hæðina.
Þegar A.3a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið A.3b (= 29-29-29-35-35-35 lykkjur) yfir A.3a.
Þegar útaukningu fyrir laskalínu er lokið, eru 324-352-390-436-471-504 lykkjur í umferð – sjá LYKKJUFJÖLDI.
Prjónið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki.
Stillið af að næsta umferð sé umferð með heildar fjölda lykkja (þ.e.a.s. 324-352-390-436-471-504 lykkjur), þar sem lykkjufjöldinn getur verið mismunandi vegna úrtöku/útaukningar í mynsturteikningu.
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið yfir fyrstu 45-50-54-61-68-73 lykkjur eins og áður, setjið næstu 73-77-87-97-101-107 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 89-99-108-121-134-145 lykkjur, setjið næstu 73-77-87-97-101-107 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi og prjónið yfir síðustu 44-49-54-60-67-72 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 194-214-232-258-285-306 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í stykkið mitt á milli 8 lykkja undir hvorri ermi (= í hliðar á fram- og bakstykki).
Nú eru 97-107-116-129-142-153 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og 97-107-116-129-143-153 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum.
Þegar síðasta endurtekning af A.1a á berustykki hefur verið prjónuð til loka á hæðina, prjónið A.1b yfir hvert A.1a.
Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 190-210-228-254-281-302 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram hringinn i sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 4 sinnum = 174-194-212-238-265-286 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 10 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í hverjum cm alls 9 sinnum = 210-230-248-274-301-322 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 21-21-22-22-22-22 cm frá skiptingu, aukið út 12-13-13-14-14-14 lykkjur jafnt yfir = 222-243-261-288-315-336 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá skiptingu, fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING:

ERMI:
Setjið 73-77-87-97-101-107 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 81-85-95-105-109-115 lykkjur – munið eftir lykkjufjölda. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 nýrra lykkja. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Prjónið nú mynstur og fækkið lykkjum mitt undir ermi þannig:
Prjónið A.2a, A.3b og A.4a yfir miðju lykkjur, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar slétt.
Þegar A.3b hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3c yfir A.3b.
Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverjum cm alls 3-3-3-3-5-5 sinnum, síðan er lykkjum fækkað með 2 cm millibili alls 2-2-2-2-0-0 sinnum = 71-75-85-95-99-105 lykkjur.
Í síðustu umferð í A.3c er aukið út um 0-1-2-0-1-1 lykkjur á undan mynstri og 2-0-1-2-0-0 lykkjur á eftir mynstri = 73-76-88-97-100-106 lykkjur.
Þegar A.3c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, mælist stykkið ca 14-12-11-10-8-6 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir fyrstu 15-18-24-24-27-30 lykkjur, A.2b yfir A.2a, haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur í A.3c, A.4b yfir A.4a, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir 15-15-21-24-24-27 lykkjur og endið með 2 lykkjur brugðið = 75-78-90-99-102-108 lykkjur.
Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist 17-15-14-13-11-9 cm frá skiptingu, fellið síðan af með sléttum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.06.2020
Leiðrétting: Breyting í mynsturteikningu A.4. Í viðbót hefur textinn verið uppfærður með meiri upplýsingum hvernig mynsturteikning A.1a, A.2a og A.4a er endurtekin á hæðina.
Yfirfarið á vefsvæði: 25.02.2021
Leiðrétting: Leiðrétting á mynsturteikningu A.3b stærð S-M-L.
Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2021
Leiðrétting: Mynsturteikning A.3b (6. umferð), stærð XL-XXL-XXXL.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónið 3 lykkjur í lykkju þannig: Prjónið lykkjuna slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem var prjónuð af prjóninum, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna slétt 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan lykkjunum af vinstri prjóni = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri)
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem fækkað hefur verið um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir hinar tvær þannig að þessi lykkja liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-40

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (81)

country flag Vivi wrote:

Så vitt jag kan se är inget ändrat i mönstret. A.2a och A.4a slutar och börjar inte på samma varv.

05.06.2020 - 16:27

DROPS Design answered:

Hej Vivi. Diagrammet är uppdaterat nu (A.4a består av samma varv som A.2a) så om du inte ser det så kan du behöva rensa cacheminnet för att få upp det nya diagrammet. Mvh DROPS Design

08.06.2020 - 11:13

country flag Karin Sandli wrote:

Takk for svar, men jeg kan ikke se at oppskriften er rettet. Det står fortsatt ingen forklaring på trekanten i A4.

05.06.2020 - 10:09

country flag Aud wrote:

Jeg strikker jakken i str L. Jeg har øket raglan 28 ganger og antar at siste repetisjon da er strikket ferdig. Hvorfor er det fortsatt flere cm før jeg kommer til delingen ( 21 cm ) ?? Hvorfor kommer avsnittet om " siste repetisjon av A1a" under avsnittet "Bol" -- altså etter delingen ??? Håper på raskt svar denne gangen.

04.06.2020 - 20:28

DROPS Design answered:

Hej igen Aud, Du strikker A.1a til du deler arbejdet. Hvis du ikke har nøjagtig samme strikkefasthed i højden som vi skriver i opskriften, så vil du blive færdig med raglan inden du når målet. Det gør ikke noget, men følg målene i opskriften. God fornøjelse!

05.06.2020 - 08:19

country flag Karin Sandli wrote:

Jeg spør også én gang til: Hvordan skal man strikke trekanten i A4?? Jeg kjøpte garn til denne toppen for snart to uker siden og er ivrig etter å komme igang!!

04.06.2020 - 13:15

DROPS Design answered:

Hej Karin. Trekanten i A4 strikkes som i A2 og det er rettet i opskriften. God fornøjelse!

05.06.2020 - 08:16

country flag Vivi wrote:

Jag frågar igen: Hur ska trekanten i A4 stickas? A. 2a och A.4a börjar och slutar inte på samma varv, ska det vara så?

03.06.2020 - 14:06

DROPS Design answered:

Hej igen Vivi, trekanten i A4 strikkes som i A2 og det er rettet i mönsteret. Lycka till :)

05.06.2020 - 08:15

country flag Karin Sandli wrote:

Det er skuffende at det tar så lang tid å få svar, når det er tydelig mangel i oppskriften. Det fins ingen forklaring på hvordan trekanten i A.4 skal strikkes.

29.05.2020 - 14:55

country flag Anita wrote:

Det står at når alle repetisjoner A.1a er strikket så skal man strikke en repetisjon av A.1b over disse. Men hvor mange repetisjoner skal det strikkes av diagram A.1a i høyden? Er siste repetisjon av A.1a i det jeg deler til til ermer og bol?

25.05.2020 - 19:01

DROPS Design answered:

Hej Anita, ja det stemmer, du strikker A.1a til du deler til ermer og bol. God fornøjelse!

29.05.2020 - 10:22

country flag Vivi wrote:

Mönster A.2 och A.4 A.2a börjar och slutar inte på samma varv som A.4a Ska det vara så? Det finns ingen förklaring till hur trekanten i A.4 ska stickas.

23.05.2020 - 15:28

DROPS Design answered:

Hej Vivi, så er diagrammet rettet så de starter og slutter på samma varv. Trekanten er vendt så den stickas som A.2. :)

05.06.2020 - 08:14

country flag Jorun Holmen wrote:

Tegnforklaring til den lille firkanten med trekant i. Strikkes den på samme måte, selv om trekanten heller til forskjellig vei?

23.05.2020 - 10:08

country flag Kjersti Hartvedt wrote:

Veldig fin topp! Blir oppskift lagt ut på drops.no? Og evntl når?

09.05.2020 - 18:40

DROPS Design answered:

Hei Kjersti. Ja, oppskriften vil bli publisert i nærmeste fremtid. Bare å følge med på vår hjemmeside. God Fornøyelse!

11.05.2020 - 12:37