DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lunar Tides

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Baby Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stuttum ermum, gatamynstri, garðaprjóni og stuttum umferðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 211-11
DROPS Design: Mynstur bm-075
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
350-400-400-450-500-550 litur 01, hvítur

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kanta með garðaprjóni.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir i grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir i finni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað i hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt i öllum umferðum.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja i umferð (t.d. 106 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 7,57.
I þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. I næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt i þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri).
I næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur i sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma i veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur i hálsmáli er prjónaður i hring á hringprjón. Síðan eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka i stykkjum með gatamynstri og garðaprjóni. Prjónuð eru alls 6 stykki, 3 í garðaprjóni og 3 í gatamynstri. Berustykkið skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki sem er prjónað hvort fyrir sig.
Fram- og bakstykki er prjónað i hring á hringprjón. Kantar i ermum eru prjónaðir i hring á sokkaprjóna.

KANTUR I HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 106-110-115-122-127-134 lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón hringinn og aukið út 14-15-15-8-13-16 lykkjur jafnt yfir i fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 120-125-130-130-140-150 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Berustykkið er prjónað i stykkjum, fram og til baka með stuttum umferðum í garðaprjóni og gatamynstri þannig:

FYRSTA STYKKI (í gatamynstri):
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt og setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á að nota þetta prjónamerki síðar þegar prjónaðar eru stuttar umferðir.
UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið*-* þar til 0-1-0-0-0-0 lykkja er eftir, endið með 0-1-0-0-0-0 slétt lykkja.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
Prjónið nú fyrsta stykki með stuttum umferðum fram og til baka í gatamynstri þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 6-7-6-6-6-6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 115-120-125-125-135-145 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 110-115-120-120-130-140 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 3: Prjónið1 lykkju slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 12-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-2-2-2-2 lykkjur slétt (= 105-110-115-115-125-135 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið brugðið þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 100-105-110-110-120-130 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 5: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 16-17-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 95-100-105-105-115-125 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 6: Prjónið brugðið þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 90-95-100-100-110-120 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 7: Prjónið 1 lykkju slétt * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 22-21-22-22-22-22 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-2-2-2-2 lykkjur slétt (= 85-90-95-95-105-115 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 8: Prjónið brugðið þar til 20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 80-85-90-90-100-110 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 5 lykkjur færri, þess vegna byrjar önnur hver gataumferð með 1 lykkju slétt og endar með 2-1-2-2-2-2 lykkjur slétt og næsta umferð byrjar með gatamynstri og endar með 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt.
Haldið svona áfram þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 10-15-10-10-10-10 lykkjurnar frá röngu (= 12-12-13-13-14-15 gataumferðir þar sem stykkið er breiðast).
Prjónið síðustu brugðnu umferðina brugðið út, þ.e.a.s. prjónið brugðið yfir þær 55-55-60-60-65-70 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu.
UMFERÐ 1: Prjónið * 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 144-150-156-156-168-180 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

ANNAÐ STYKKI (í garðaprjóni):
Klippið þráðinn frá.
Lyftið yfir 72-75-78-78-84-90 lykkjur frá vinstra prjóni á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð).
Annað stykkið er núna prjónað með byrjun frá prjónamerki.
UMFERÐ 1: Prjónið* 6-6-3-3-3-3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-52-52-56-60 fleiri lykkjur) = 168-175-208-208-224-240 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt).
Prjónið 2 umferðir garðaprjón.
Prjónið nú annað stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan þannig:
UMFERÐ 1 (= réttu): Prjónið slétt þar til 7-7-8-8-8-8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 161-168-200-200-216-232 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar 7-7-8-8-8-8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 154-161-192-192-208-224 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt þar 14-14-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 147-154-184-184-200-216 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt þar 14-14-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 140-147-176-176-192-208 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 5: Prjónið slétt þar 21-21-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 133-140-168-168-184-200 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt þar 21-21-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 126-133-160-160-176-192 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 7-7-8-8-8-8 lykkjur færri í hvert skipti sem stykkinu er snúið við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 14-21-16-16-16-16 lykkjurnar frá röngu.
Prjónið síðustu umferðina frá röngu alveg út, þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur yfir 77-77-96-96-104-112 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu.
Prjónið síðan hringinn þannig:
Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið* 7-7-8-8-8-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 192-200-234-234-252-270 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt).

ÞRIÐJA STYKKI (í gatamynstri):
Klippið þráðinn frá.
Lyftið 96-100-117-117-126-135 lykkjur frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Þriðja stykkið er núna prjónað með byrjun frá prjónamerki.
Prjónið áfram hringinn þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið * 8-8-9-9-9-9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 216-225-260-260-280-300 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt).
UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 0-1-0-0-0-0 lykkjur eru eftir, endið með 0-1-0-0-0-0 sléttri lykkju.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
Prjónið nú þriðja stykki með stuttum umferðum fram og til baka í gatamynstri þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 0-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 10-11-11-11-11-11 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 207-216-250-250-270-290 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið þar til 9-9-10-10-10-10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 198-207-240-240-260-280 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 20-19-21-21-21-21 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-1-1-1-1 lykkju slétt (= 189-198-230-230-250-270 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið brugðið þar til 18-18-20-20-20-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 180-189-220-220-240-260 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 5: Prjónið 0-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn * , prjónið frá *-* þar til 28-29-31-31-31-31 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 171-180-210-210-230-250 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 6: Prjónið brugðið þar til 27-27-30-30-30-30 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 162-171-200-200-220-240 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 7: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 38-37-41-41-41-41 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-1-1-1-1 lykkju slétt (= 153-162-190-190-210-230 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 8: Prjónið brugðið þar til 36-36-40-40-40-40 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 144-153-180-180-200-220 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-10-10-10-10 lykkjur færri í hvert skipti sem stykkinu er snúið við.
Gataumferðina á að halda áfram yfir sig sjálfa á hæðina, þess vegna byrjar önnur hver gataumferð með 0-0-1-1-1-1 sléttri lykkju og endar með 1-2-1-1-1-1 lykkju slétt og næsta umferð byrjar með 1 sléttri lykkju og endar með 2-1-1-1-1-1 lykkju slétt.
Haldið svona áfram þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 18-27-20-20-20-20 lykkjurnar frá röngu (= 12-12-13-13-14-15 gataumferðir þar sem stykkið er breiðast).
Prjónið brugðið til enda á umferð, þ.e.a.s. prjónið brugðið yfir 99-99-120-120-130-140 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu.
Prjónið áfram hringinn þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið * 9-9-10-10-10-10 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 240-250-286-286-308-330 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt).

FJÓRÐA STYKKI (í garðaprjóni):
Klippið þráðinn frá:
Lyftið 120-125-143-143-154-165 lykkjum frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Fjórða stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki.
UMFERÐ 1: Prjónið * 10-10-11-11-11-11 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 264-275-312-312-336-360 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt).
Prjónið 2 umferðir garðaprjón.
Prjónið nú fjórða stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 11-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 253-264-300-300-324-348 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar til 11-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 242-253-288-288-312-336 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt þar til 22-22-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 231-242-276-276-300-324 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt þar til 22-22-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 220-231-264-264-288-312 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 5: Prjónið slétt þar til 33-33-36-36-36-36 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 209-220-252-252-276-300 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt þar til 33-33-36-36-36-36 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 198-209-240-240-264-288 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 11-11-12-12-12-12 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 22-33-24-24-24-24 lykkjurnar frá röngu.
Prjónið að enda á síðustu umferð frá röngu, þ.e.a.s. prjónið slétt yfir 121-121-144-144-156-168 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu við.
Prjónið áfram hringinn þannig:
Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið * 11-11-12-12-12-12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 288-300-338-338-364-390 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt).

FIMMTA STYKKI (í gatamynstri):
Klippið þráðinn frá.
Lyftið 144-150-169-169-182-195 lykkjum frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Fimmta stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki.
Prjónið hringinn þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið * 288-12-13-13-13-13 lykkjur slétt, 0-1-1-1-1-1 uppsláttur *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 0-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 288-325-364-364-392-420 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt).
UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 0-1-0-0-0-0 lykkjur eru eftir, endið með 0-1-0-0-0-0 sléttri lykkju.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
Nú er fimmta stykkið prjónað með stuttum umferðum fram og til baka í gatamynstri þannig:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 1-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 13-15-15-15-15-15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 276-312-350-350-378-406 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið þar til 12-13-14-14-14-14 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 264-299-336-336-364-392 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 25-27-29-29-29-29 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið1 slétt lykkja (= 252-286-322-322-350-378 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið brugðið þar til 24-26-28-28-28-28 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 240-273-308-308-336-364 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 5: Prjónið 1-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn * , prjónið frá *-* þar til 37-41-43-43-43 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 228-260-294-294-322-350 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 6: Prjónið brugðið þar til 36-39-42-42-42-42 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 216-247-280-280-308-336 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 7: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 49-53-57-57-57-57 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1 slétta lykkju (= 204-234-266-266-294-322 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 8: Prjónið brugðið þar til 48-52-56-56-56-56 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 192-221-252-252-280-308 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði.
Haldið svona áfram þ.e.a.s. prjónið yfir 12-13-14-14-14-14 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við.
Gataumferðir á að halda áfram yfir sig sjálfa á hæðina, þess vegna byrjar önnur hver gataumferð með 1-0-1-1-1-1 sléttri lykkju og endar með 1-2-1-1-1-1 lykkju slétt og næsta gataumferð byrjar með 1 sléttri lykkju og endar með 1 sléttri lykkju.
Haldið svona áfram þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 24-39-28-28-28-28 lykkjurnar frá röngu (= 12-12-13-13-14-15 gataumferðir þar sem stykkið er breiðast).
Prjónið brugðið að enda á síðustu umferð frá röngu, þ.e.a.s. prjónið brugðið yfir þær 132-143-168-168-182-196 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu.
Prjónið þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið * 12-13-14-14-14-14 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 312-350-390-390-420-450 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt).

SJÖTTA STYKKI (í garðaprjóni):
Klippið þráðinn frá.
Lyftið 156-175-195-195-210-225 lykkjur frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Sjötta stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki.
UMFERÐ 1: Prjónið * 312-350-390-15-15-15 lykkjur slétt, 0-0-0-1-1-1 uppsláttur *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 0-0-0-26-28-30 fleiri lykkjur) = 312-350-390-416-448-480 lykkjur.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt ).
Prjónið 2 umferðir garðaprjón.
Prjónið nú sjötta stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 13-14-15-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 299-336-375-400-432-464 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar til 13-14-15-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 286-322-360-384-416-448 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt þar til 26-28-30-32-32-32 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 273-308-345-368-400-432 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt þar til 26-28-30-32-32-32 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 260-294-330-352-384-416 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 5: Prjónið slétt þar til 39-42-45-48-48-48 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 247-280-315-336-368-400 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt þar til 39-42-45-48-48-48 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 234-266-300-320-352-384 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði.
Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 13-14-15-16-16-16 lykkjur færri í hvert skipti sem stykkinu er snúið við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 26-42-30-32-32-32 lykkjurnar frá röngu.
Prjónið slétt út umferðina í síðustu umferðinni frá röngu, þ.e.a.s. prjónið slétt yfir þær 143-154-180-192-208-224 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu.
Prjónið hringinn þannig:
Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð).
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðið.
Stykkið mælist ca 23-23-25-25-27-28 cm þar sem það er styst (mælt frá uppfitjunarkant). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 23-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti.
Klippið þráðinn frá. Færið umferðina um 33-37-41-43-44-46 lykkjur til baka (þ.e.a.s. lyftið síðustu 33-37-41-43-44-46 lykkjum frá hægra prjóni (= hálf ermin) eins og prjóna eigi brugðið yfir á vinstri prjón, setjið 1 prjónamerki hér = byrjun á umferð).
Deilið stykkinu hér:
Setjið fyrstu 66-74-82-86-88-92 lykkjurnar á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur under ermi, prjónið slétt yfir fyrstu 90-101-113-122-136-148 lykkjurnar (= framstykki), setjið næstu 66-74-82-86-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur under ermi, prjónið slétt yfir síðustu 90-101-113-122-136-148 lykkjurnar (= bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 196-218-246-264-296-320 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli de 8-8-10-10-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi og færið byrjun á umferðinni að prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út hvoru megin við þau.
Stilltu af að þú prjónir minnst 6 umferðir garðaprjón eftir gatamynstri á berustykki.
Prjónið e.t.v. garðaprjón á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir garðaprjón.
Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar fram- og bakstykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4-4-8-6-8-6 cm millibili alls 6-6-3-4-3-4 sinnum = 220-242-258-280-308-336 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón þar til fram- og bakstykki mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið garðaprjón í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING!

KANTUR Á ERMI:
Setjið 66-74-82-86-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og takið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-82-92-96-100-104 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.08.2020
Leiðrétting: Sjötta stykki: UMFERÐ 1: Prjónið * 312-350-390-15-15-15 lykkjur slétt, 0-0-0-1-1-1 uppsláttur *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 0-0-0-26-28-30 fleiri lykkjur) = 312-350-390-416-448-480 lykkjur.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.11.2020
Leiðrétting: Fimmta stykki (með gatamynstri):.. 1 UMFERÐ: * 288-12-13-13-13-13 lykkjur slétt, 0-1-1-1-1-1 uppslættir *, prjónið frá *-* út umferðina

Mynstur

symbols = stykki 1 til 6 – sjá upplýsingar í uppskrift
symbols = prjónstefna
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (76)

country flag Oleksandra wrote:

> depending on the size worked, you will have to work either 0 or 1 stitch before (K2 tog, YO) Indeed. - in SECTION 1, first yo row (ROUND 3) starts with k2tog, 1yo, and next yo row (ROW 1) starts with k2tog, 1yo. - in SECTION 3, first yo row (ROUND 3) starts with k2tog, 1yo - same as in previous lace section. But in second yo row (ROW 1) four of six sizes start with additional knit stitch, shifting second yo row forward and BREAKING the lace pattern.

19.12.2020 - 23:34

country flag Sandra wrote:

Where can I find the sizing in US inches the S-M doesn’t give that information

28.11.2020 - 09:40

DROPS Design answered:

Dear Sandra, since the patterns are for many different countries, each with their sizing guide, you should check the scheme with measurements below the pattern. If in doubt between 2 sizes, it's better to choose the larger one. Happy knitting!

29.11.2020 - 17:56

country flag Isabel Fernández Vicioso wrote:

Muy entretenida la realización de este modelo, ha quedado genial¡¡¡

22.10.2020 - 15:08

country flag Dea wrote:

Buongiorno, nella sezione 5 c'è qualcosa che non quadra. Al Giro 1 dice "GIRO 1: * 288-12-13-13-13-13 maglie diritto, 0-1-1-1-1-1-1 gettati *, lavorare *-* fino alla fine del giro (= 0-25-26-26-28-30 aumenti) = 288-325-364-364-392-420 maglie. " Se le taglie disponibili sono 6 perchè dove indica i gettati le possibilità sono 7?

13.08.2020 - 20:30

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea. L'indicazione corretta per i gettati è la seguente 0-1-1-1-1-1. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

17.08.2020 - 21:56

country flag Dea wrote:

La domanda che ho fatto prima conta per le sezioni a trafori, in quelle a legaccio sono tutti ferri lavorati a diritto. Scusate se non ho precisato. Grazie.

08.08.2020 - 15:40

country flag Dea wrote:

Buongiorno, perchè nei ferri pari dei ferri accorciati non viene mai scritto che bisogna lavorare a rovescio? Dovrebbe essere specificato altrimenti per molti è incomprensibile. Grazie.

08.08.2020 - 15:37

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea. Abbiamo corretto il testo. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!

08.08.2020 - 21:13

country flag Marita wrote:

Jeg ser at dere enda ikke har rettet oppskriften for feilen jeg har gjort oppmerksom paa 24.06.20. Jeg har strikket denne modellen i garnet Safran og ble skuffet over resultatet. Ikke like fin som modellen paa bilde. En helt annen sak: Hvor er det blitt av deres kolleksjon for neste höst/vinter?

28.07.2020 - 22:52

DROPS Design answered:

Hej Marita, vi skal få set på den :) Jo men den nye kollektion er på vej :)

04.08.2020 - 13:44

country flag Dea wrote:

Nelle sezioni a trafori che metodo di ferri accorciati è meglio fare? Se c'è un metodo adatto. Grazie.

26.07.2020 - 21:41

DROPS Design answered:

Buonasera Dea, non c'è un metodo per la lavorazione dei ferri accorciati più indicato: può scegliere quello che le riesce meglio. Buon lavoro!

26.11.2020 - 21:42

country flag Dea wrote:

Buongiorno, il campione con che ferri è fatto? Grazie.

26.07.2020 - 18:26

DROPS Design answered:

Buongiorno Dea, solitamente i campioni vengono lavorati con i ferri con cui si lavora il corpo, quindi 3,5 mm ma la misura dei ferri è solo indicativa: deve aggiustare il numero di ferri secondo la sua tensione, in modo da ottenere il campione riportato. Buon lavoro!

27.07.2020 - 09:17

country flag Oleksandra wrote:

Why is pattern in short rows part in sections 3 and 5 shifted forward? Section 1 has * k2tog, 1yo* in this row; sections 3 and 5 have additional knit stitches before * k2tog, 1yo* repeat, while previous two rounds are knit identically in all sections. Wouldn't this cause way different look to lace in 3rd and 5th sections than in 1st section?

23.07.2020 - 15:36

DROPS Design answered:

Dear Oleksandra, depending on the size worked, you will have to work either 0 or 1 stitch before (K2 tog, YO) to make the lace pattern match. Happy knitting!

29.07.2020 - 09:21