DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Copper Rose

Prjónuð peysa úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, laskalínu, gatamynstri á berustykki og ¾ löngum ermum. Stærð XS- XXL.

DROPS 212-10
DROPS Design: Mynstur e-304
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 59, rauður leir

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 114 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 18) = 6,3.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 6. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma, þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 4 prjónamerkin eins og útskýrt er að neðan: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 lykkjur fleiri við prjónamerki og alls 8 lykkjur fleiri í útauknings umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 114-118-122-128-132-136 lykkjur á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-26-34-28-36-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 132-144-156-156-168-180 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt). Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið A.1 hringinn (= 11-12-13-13-14-15 mynstureiningar með 12 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, eru 242-264-286-312-336-360 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 11-11-11-13-13-13 cm frá prjónamerki við háls. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 248-268-292-316-340-364 lykkjur.
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (prjónamerkin eru sett án þess að prjóna lykkjurnar). Þessi prjónamerki eru notuð síðar þegar auka á út lykkjum fyrir laskalínu.
Teljið 38-42-46-49-53-58 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 48-50-54-60-64-66 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 76-84-92-98-106-116 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 48-50-54-60-64-66 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 38-42-46-49-53-58 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki (= ½ bakstykki).
Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 9-10-10-12-13-15 sinnum á hæðina = 320-348-372-412-444-484 lykkjur.
Á eftir síðustu útaukningu, prjónið sléttprjón án útaukningar þar til stykkið mælist 18-19-20-22-24-26 cm frá prjónamerki við hálsMÁL.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 47-52-56-61-66-73 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 66-70-74-84-90-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 94-104-112-122-132-146 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-84-90-96 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-52-56-61-66-73 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 200-220-240-260-284-312 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hlið á stykki, mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 19-20-21-21-21-21 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 40-44-48-52-56-62 lykkjur jafnt yfir = 240-264-288-312-340-374 lykkjur. ATH: Lykkjur eru auknar út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi stykkið saman.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 66-70-74-84-90-96 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 72-76-82-92-100-106 lykkjur.
Byrjið umferð mitt í 6-6-8-8-10-10 lykkjum undir ermi og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 18-17-17-15-14-14 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 12-14-18-24-30-34 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 60-62-64-68-70-72 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir affelling! Stykkið mælist ca 23-22-22-20-19-19 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðið lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt (það eiga að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn snúinn prjónaður slétt (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = Kúla: Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 5 lykkjur), snúið stykkinu. Prjónið 4 umferðir sléttprjón yfir þessar 5 lykkjur. Lyftið síðan 2. lykkju á hægri prjóni yfir fyrstu lykkju, lyftið síðan 3. lykkju yfir fyrstu lykkju, síðan er 4. lykkju lyft yfir fyrstu lykkju og að lokum er 5. lykkju lyft yfir fyrstu lykkju (= 1 lykkja eftir)
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Copper Rose

Edyta, Poland

Copper Rose

Beatrice Mauri, Italy

Copper Rose

Zsófi, Hungary

Copper Rose

Claudia, Italy

Copper Rose

Simona, Italy

212-10 Copper Rose

Irina V Etobayeva, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Ulla wrote:

Jeg er ved at strikke str L men forstår ikke at der efter diagram A1 er færdigstrikket i højden skal være 286 masker på pinden. Der er 13 rapporter som bliver 24 masker tilsidesat i diagrammet og det giver 312 masker. Hvad gør at der kun skal være 286 masker

22.03.2021 - 19:33

DROPS Design answered:

Hej Ulla, Hvis du strikker L (4.størrelse) så skal du have 312 masker efter at have strikke diagrammet, tager 4 masker ud så du har 316 masker osv...

23.03.2021 - 14:12

country flag Irina E wrote:

Hi DROPS Team, I just want to tell you how much I like this pattern. Almost done knitting this top. I added slight modification by adding after yoke extra rows on the back by knitting incomplete row. Thank you!

09.08.2020 - 16:55

country flag Lill Heidi Hillmann wrote:

Det er feil beskrivelse i mønsteret når det gjelder den sorte prikken. Kastet skal strikkes vridd på neste omgang da det ikke skal bli hull

03.07.2020 - 09:13

DROPS Design answered:

Hej. Tack för info, detta har nu rättats! Mvh DROPS Design

03.07.2020 - 09:44

country flag Hildegard østergaard wrote:

Er ved at strikke denne, men hvorfor kan jeg ikke udskrive opskriften, det er irriterende at sidde med en Ipad og følge opskriften, har førhen kunnet udskrive, det står jo også i Jeres opskrifter (UDSKRIV). Bruger Jer rigtig meget og også drops garn. Håber at høre fra Jer. Mvh Hildegard 🥴❤️

09.06.2020 - 16:29

DROPS Design answered:

Hej Hildegard. Det ska gå att skriva ut den. Tryck på knappen där det står "Skriv ud" och välj "Opskrift". Om det inte fungerar så kanske det kan vara något med dina inställningar på printern du måste se över. Mvh DROPS Design

10.06.2020 - 09:01

country flag Ia Pudas wrote:

Varför ska tråden klippas av mitt på bakstycket efter att jag delat arbetet i ärmar och bak-/framstycke?

08.06.2020 - 00:17

DROPS Design answered:

Hei Ia. Fordi du til nå har strikket rundt med start og slutt midt bak. Etterat at du har klippet tråden, settes det en merketråd i den ene siden av arbeidet (start og slutt på hver omgang blir nå i denne siden). God Fornøyelse!

09.06.2020 - 14:01

country flag Martina wrote:

Ahojte :-) kedy bude prosim vas dostupny navod v cestine? Dakujem

26.05.2020 - 22:56

DROPS Design answered:

Dobrý den, návod je v češtině již k dispozici - volbu jazyka můžete provést výběrem z výklopného menu pod fotkou modelu.

17.06.2020 - 16:28

country flag Zuzana wrote:

Dobrý deň, stále čakám na návod v čeština..... priadza šafrán kúpená a návod stále nikde :(

19.05.2020 - 10:13

DROPS Design answered:

Dobrý den, Zuzano, návod je k dispozici - můžete nahodit! Hodně zdaru!

17.06.2020 - 16:36

country flag Zuzana wrote:

Hello, when will be the translation in CZECH available? thanks

14.05.2020 - 10:21

DROPS Design answered:

Dobrý den, Zuzano, česká verze bude k dispozici v průběhu 1-2 dnů. Ať se vám hezky plete! Hana

14.05.2020 - 16:12

country flag Laurier Nicolle wrote:

Merci de nous mettre les explications en français de ce très joli modèle !

04.05.2020 - 07:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Laurier, tous nos modèles sont disponibles en français, cliquez simplement sur le menu déroulant sous la photo et sélectionnez "français". Bon tricot!

04.05.2020 - 13:38

country flag Gisèle V wrote:

Très beau modèle, racé, élégant, encolure travaillée qui met en valeur le visage. Dommage, pas d'explications en ligne ! Merci de nous montrer ce miracle de l'aiguille. G.V.

14.04.2020 - 10:23