Jocelyne JUNG wrote:
Bonjour, Je veux réaliser ce top mais j'ai un peu de mal pour la compréhension des diagrammes. Pouvez-vous me confirmer si j'ai bien compris. Diagramme A1 à A3 : 4 mailles en l'ai + 1, 1 dble bride m. suivante, 1 ml jusqu'à la fin du rang à répéter jusqu'à la fin du rang. 2eme rang 2 ml sauter une m. 1 m serrée jusqu'à la fin du rang. A4 à A6 3 ml sauter une m. 1 demi bride 1ml, sauter une m. 1 demi bride jusqu'à la fin du rang. Merci pour la réponse
12.08.2020 - 12:44DROPS Design answered:
Bonjour Mme Jung, les diagrammes A.1 à A.3 se lisent ainsi sur l'endroit = de droite à gauche: A.1 = 4 mailles en l'air, A.2 = 1 double bride dans la maille suivante - A.3 = 1 double-bride dans la maille en l'air du début du rang précédent. Sur l'envers: A.3 = 1 maille en l'air - A.2 = 1 maille serrée dans la double-bride - A.1 = 1 maille serrée dans la 4ème maille en l'air du début du rang précédent. Bon crochet!
12.08.2020 - 13:52Veerle wrote:
In het stekenpatroon A2 beginnen de zijranden parallel schuin te lopen. Na de dubbele keerlosse steek ik het eerste halve stokje in de vierde steek vanaf de naald. Bij de enkele keerlosse voor de rij vasten haak,ik de eerste vaste in de derde steek vanaf de naald. Hierbij beginnen dus de zijranden schuin te lopen, wat na een paar cm zichtbaar wordt. Hoe komt dit en hoe kan dit vermeden worden ?
06.06.2020 - 09:58DROPS Design answered:
Dag Veerle,
Nadat je de keerlossen hebt gehaakt (dus 4 lossen die het eerste dubbele stokje vervangen), steek je de haaknaald in de eerstvolgende vaste van de vorige toer. Je slaat dus geen steken over. Door steken over te slaan wordt je werk steeds smaller en dat is niet de bedoeling.
08.06.2020 - 12:34Veerle wrote:
Beste, Wat betreft vasten haken en keren : in de video tutorial van DROPS over vasten keren, wordt 1 keerlosse gehaakt, en wordt de eerste vaste in de eerste steek gehaakt. In de beschrijving van het patroon, wordt bij het keren twee lossen gehaakt (tweede losse telt dan als 1e vaste) en wordt de eerste vaste dus in de tweede steek gehaakt. Is er een reden waarom dit zo gedaan wordt ? Het is in elk geval minder mooi. vriendelijke groet
05.06.2020 - 22:06DROPS Design answered:
Dag Veerle,
Bij de toer met vasten wordt de eerste vaste op de toer vervangen door een losse. Dan haak je een volgende vaste in de eerstvolgende steek van de vorige toer.
08.06.2020 - 12:38Veerle wrote:
Beste, Om de aangegeven stekenverhouding te krijgen, moet ik met haaknaald 3 haken ipv 5. Nochtans haak ik niet los. Ik neem aan dat het geen probleem is om deze top met dikte 3 te haken ? (op DROPS PARIS staat 5 aangegeven, ook in patroon). vriendelijke groet
05.06.2020 - 22:05DROPS Design answered:
Dag Veerle,
Als de stekenverhouding maar overeen komt met de aangegeven stekenverhouding in het patroon. Zelf gebruik ik ook altijd een kleinere naald :)
08.06.2020 - 12:40Bianka wrote:
Ich hätte gern die Anleitung. Wann wird sie reingestellt.
20.04.2020 - 16:14DROPS Design answered:
Liebe Bianka, dieses Modell kommt bald online, kommen Sie bald zurück!
21.04.2020 - 09:14Bianka wrote:
Wo finde ich die Anleitung zu diesem Model ?
05.04.2020 - 16:31Hannah Brostrøm wrote:
Hvid svane
18.03.2020 - 09:39Hanne K wrote:
Så fin!
13.02.2020 - 21:53Fabienne wrote:
Petit simple et mignon ! A faire.
07.01.2020 - 08:34
White Heat |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Heklaður toppur úr DROPS Paris. Stærð S - XXXL.
DROPS 211-6 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/tvíbrugðinn stuðull/hálfur stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. HEKLLEIÐBEININGAR (á við um A.1, A.3, A.4 og A.6): Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum, skiptið út fyrstu fastalykkju með 1 loftlykkju. Í byrjun á hverri umferð með tvíbrugðnum stuðlum, skiptið út fyrsta tvíbrugðna stuðli með 4 loftlykkjum. Í byrjun á hverri umferð með hálfum stuðlum, skiptið út fyrsta hálfa stuðli með 2 loftlykkjum. ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á bakstykki og framstykki): Aukið út 1 lykkju með því að hekla 2 lykkjur í sömu lykkju. ÚRTAKA-1 (á við um handveg): Í byrjun á umferð: Skiptið út þeim fjölda lykkja sem fækka á með 1 keðjulykkju. Í lok umferðar: Heklið ekki yfir lykkjurnar sem fækka á um. ÚRTAKA-2 (á við um hálsmál að aftan): Fækkið um 1 lykkju með því að hekla í 2 ystu lykkjurnar við hálsmál saman þannig: Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 hálfur stuðull færri). ÚRTAKA-3 (á við um hálsmál að framan): Fækkið um 2 lykkjur með því að hekla 3 ystu lykkjurnar við hálsmál saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn *, heklið frá *-* alls 3 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 7 lykkjurnar á heklunálinni (= 2 hálfir stuðlar færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykki og framstykki er heklað fram og til baka hvort fyrir sig, neðan frá og upp. Síðan er stykkið saumað saman á öxlum og í hliðum. BAKSTYKKI: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU og heklið 58-65-72-79-91-100 loftlykkjur með heklunál 5 með Paris. Snúið og heklið 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni (jafngildir nú 2 fastalykkjum), heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6-6-6-6-4-6 loftlykkjum *, hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 6 loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 50-56-62-68-78-86 fastalykkjur í umferð. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklið A.1 til A.3 þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með A.3 yfir síðustu lykkjuna. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 7-7-8-8-9-9 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 56-62-68-74-84-92 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-18-20-20-23-23 cm, heklið A.4 til A.6 þannig: Heklið A.4 yfir fyrstu lykkjuna, heklið A.5 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með A.6 yfir fyrstu lykkjuna, heklið A.5 þar til 1 lykkja er eftir í umferð og endið með A.6 yfir síðustu lykkjuna. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Klippið frá og festið enda þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm. Nú á að fækka lykkjum fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan. Heklið A.4 til A.6 eins og áður yfir miðju 50-56-60-66-74-80 lykkjur = 3-3-4-4-5-6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg sem ekki er heklað yfir. Sjá ÚRTAKA-1 og fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umferð þannig: Fækkið um 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-1-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 0-2-1-2-3-3 sinnum = 40-42-44-44-46-48 lykkjur eftir. Heklið áfram þar til stykkið mælist 38-40-42-44-46-48 cm. Heklið nú öxlina yfir fyrstu 8-9-9-9-9-10 lykkjur í umferð (næstu 24-24-26-26-28-28 lykkjur eru fyrir hálsmáli og síðustu 8-9-9-9-9-10 lykkjur eru fyrir öxl í hinni hliðinni). Lesið ÚRTAKA-2 og fækkið um 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð með hálfum stuðlum = 7-8-8-8-8-9 lykkjur eftir fyrir hlýra á öxl. Heklið eins og áður yfir þessar 7-8-8-8-8-9 lykkjur þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Byrjið á sama hátt og á bakstykki og heklið á sama hátt og á bakstykki þar til stykkið mælist 31-33-34-36-37-39 cm. Heklið nú öxlina yfir fyrstu 13-14-14-14-14-15 lykkjur (næstu 14-14-16-16-18-18 lykkjur eru fyrir hálsmáli og síðustu 13-14-14-14-14-15 lykkjur eru fyrir öxl í hinni hliðinni). Sjá ÚRTAKA-2 og fækkið um 2 lykkjur fyrir hálsmáli í næstu umferð með hálfum stuðlum. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð með hálfum stuðlum alls 3 sinnum á hæðina = 7-8-8-8-8-9 hálfir stuðlar eftir fyrir hlýra á öxl. Heklið síðan eins og áður yfir þessar 7-8-8-8-8-9 lykkjur þar til stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm. Klippið frá og festið enda. Heklið hina öxlina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma kant í kant með smáu fallegu spori. Saumið hliðarsauma alveg eins. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Joyce wrote:
Graag patroon
27.04.2020 - 22:12