DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Catch the Wind

Prjónaður toppur með laskalínu og stuttum ermum úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 211-5
DROPS Design: Mynstur e-306
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-250-300-300-350 g litur 18, natur

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

LASKALÍNA:
Aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin á bakstykki og í hvorri hlið á framstykki (að ermum). Aukið út með því ð slá 1 sinni uppá prjóninn á undan/eftir lykkju með prjónamerki, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt. Á ermum er útaukning fyrir laskalínu teiknuð inn í mynstur A.1 og A.3.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram hringinn, ofan frá og niður. Á ermum er prjónaður lítill kantur áður en fellt er af.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 106-110-116-120-124-132 lykkjur á hringprjón 3 með Safran. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar).
Prjónamerkin eru notuð síðar þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 16-17-18-19-20-22 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 32-34-37-39-41-45 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 19 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 16-17-19-20-21-23 lykkjur á eftir síðasta prjónamerki á hálfu bakstykki:
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón fram að lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (ÚTAUKNING FYRIR LASKALÍNU – sjá útskýringu að ofan), prjónið lykkju með prjónamerki í sléttprjóni, prjónið A.1 (= 2 lykkjur), A.2 (= 14 lykkjur) og A.3 (= 3 lykkjur) (= 19 lykkjur á ermi), prjónið lykkju með prjónamerki í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón fram að lykkju með prjónamerki (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónameri í sléttprjóni, prjónið A.1 (= 2 lykkjur), A.2 (= 14 lykkjur) og A.3 (= 3 lykkjur) (= 19 lykkjur á ermi), prjónið lykkju með prjónamerki í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru (= hálft framstykki).
Haldið svona áfram í sléttprjóni á fram- og bakstykki og með A.1, A.2 og A.3 á ermum. Í hvert skipti sem A.1, A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 mynstureiningar fleiri af A.2 á milli A.1 og A.3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

JAFNFRAMT heldur útaukning fyrir laskalínu áfram í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 22-26-28-31-35-39 sinnum við hvert prjónamerki (meðtalin útaukning sem útskýrð er í fyrstu umferð). Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni á fram- og bakstykki og í gatamynstri eins og útskýrt er í mynsturteikningu á ermum.
Þegar útaukningu fyrir laskalínu er lokið, eru 294-334-356-388-424-468 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 39-44-47-51-56-62 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 69-79-83-91-99-109 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-11-13-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 78-88-95-103-113-125 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 69-79-83-91-99-109 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-9-11-13-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 39-44-48-52-57-63 lykkjurnar (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 174-194-208-228-252-280 lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í miðju lykkju sem fitjuð var upp undir ermi í hvorri hlið. Klippið frá og byrjið umferð 6 lykkjum á undan annarri lykkjunni með prjónamerki. Prjónið A.4 (= 13 lykkjur), 74-84-91-101-113-127 lykkjur sléttprjón, A.4 og sléttprjón yfir síðustu 74-84-91-101-113-127 lykkjum. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út hvoru megin við A.4, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við A.4, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, það eiga ekki að myndast göt (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu með 1 ½ cm millibili alls 18 sinnum, útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni = 246-266-280-300-324-352 lykkjur. Þegar stykkið mælist 28-29-29-30-29-29 cm frá skiptingu, prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af.

KANTUR Á ERMI:
Setjið til baka 69-79-83-91-99-109 lykkjur af þræði á stuttan hringprjón 3 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-11-13-15 lykkjum undir ermi = 78-88-92-102-112-124 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af.

Prjónið hinn kantinn á ermi á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.05.2020
Leiðrétting: 2 uppslættir í 9. umferð í mynsturteikningu A.4 hefur verið fjarlægt
Yfirfarið á vefsvæði: 04.06.2020
Leiðrétting: Búið er að bæta við í mynsturteikningu A.4 tveimur uppsláttum í umferð 13
Yfirfarið á vefsvæði: 04.11.2021
BERUSTYKKI:.. Prjónið lykkju með prjónamerki í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki).

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, það eiga að myndast göt
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Catch the Wind

Inger Gamme, Norway

Catch the Wind

Emmanuelle, France

Catch the Wind

Kornelia, Poland

Catch the Wind

Enni / Tänkimäätein, Finland

Catch the Wind

Maria, Poland

Catch the Wind

DA SILVA FARIA Cécile, France

211-5 Catch the Wind

Jerry, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (156)

country flag Nidhi wrote:

Can u please give a vedio how to make this?

06.10.2020 - 20:21

DROPS Design answered:

Dear Nidhi, we do our best to make videos for many patterns showing how to do some techniques when people have worries to understand/want to look at. We do have some videos showing an entire pattern but we cannot make a video for such a top, this would take to many time. You will find relevant videos and lessons to that pattern at the bottom of the page, just above the comment section, feel free to ask your question here and contact your yarn store for any individual assistance. Happy knitting!

07.10.2020 - 08:21

country flag Genevieve wrote:

I am just starting this pattern. I have worked 1 round of the yoke. Pattern says to increase on raglan on every 2nd round. Meaning the next round, I increase on raglan, round 3 knit as per pattern, round 4 increase until desired number of stitches?

04.10.2020 - 12:49

DROPS Design answered:

Hi Genevieve, Yes, that is right. Happy knitting!

05.10.2020 - 09:18

country flag Verena Bailey wrote:

In the Body, it says when the piece measures 2 cm to increase. How many rows is 2 cm? Also how many rows is 1 1/2 cm? Thanks

01.10.2020 - 01:27

DROPS Design answered:

Hi Verena, 2 cm is approx 6.5 rows. It is easier to use a tape measure and use measurements because this also depends on your knitting tension. Happy knitting!

01.10.2020 - 07:25

country flag Mélanie wrote:

Bonjour Je voudrais savoir si les augmentations du raglan se font bien avec "1 jeté avant et 1 jeté après la maille" (comme expliqué dans 'technique employée') en plus des explications ou s'il faut juste suivre les explications écrites (cf tricoter le 1er tour). En d'autres termes, 2 des 4 augmentations de chaque raglan se trouvent-elles dans les motifs A1 et A3? Par avance, merci.:)

27.09.2020 - 16:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mélanie, pas exactement, les jetés des raglans des diagrammes figurent dans les diagrammes, ce sont ceux qui se trouvent à 2 mailles du bord (après 2 m dans A.1 et avant 2 m dans A.3 quand on augmente qu'une seule maille = sauf aux rangs 11 et 23). Côté jersey = devant et dos, on va augmenter au début du dos/devant après la maille jersey avec un fil marqueur et à la fin du dos/devant avant la maille jersey avec un f il marqueur, vous aurez donc plutôt: 1 jeté, maille avec le fil marqueur, diagramme (ou en sens inverse pour l'autre côté); Bon tricot!

28.09.2020 - 10:16

country flag Angelika Brandenburg wrote:

Hallo, ich habe schon wegen der zweite Runde bei A1 eine Frage. Bei mir ist die linke Masche nicht versetzt, sondern auf der linken Masche der ersten Runde. Irgendwo habe ich wohl einen Denkfehler. Danke im Voraus und liebe Grüße.

20.08.2020 - 19:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Brandenburg, so ist es auch richtig,da Sie nach dem linken Maschen in A.1 (und vor dem letzen Maschen in A.3) zunehmen, werden die ersten bzw letzte immer eine rechte Masche sein, und die 2. bzw die vorletzte immer eine linke Masche sein. Viel Spaß beim stricken!

21.08.2020 - 07:52

country flag Verena Bailey wrote:

Hi , what does this mean - there are not enough stitches to do this. Continue this pattern with stocking stitch on the front and back pieces and A.1, A.2 and A.3 on the sleeves. Each time A.1, A.2 and A.3 are worked 1 time in height, you work 2 more repeats of A.2 between A.1 and A.3.

20.08.2020 - 01:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Bailey, when you have worked the diagrams A.1 - A.3 once in height, you have increased 14 sts in A.1 and 14 sts in A.3. On next row, work diagrams from row 1 again with A.1 over the first 3 sts, repeat A.2 a total of 2 more times as before (the last 14 sts inc in previous A.1 + the first 14 sts inc in previous A.3) and finish with A.3 over the last 3 sts. Happy knitting!

20.08.2020 - 10:19

country flag Tanja Strupler wrote:

A1 und A3 stimmen für mich nicht in Runde 12. Die linken Maschen sind beim Stricken nicht wie in der Zeichnung übereinander, sondern versetzt. Habe ich ev. einen Denkfehler? Zuvor waren es 1 re, 1 u, 1 li, 1 u. Freundliche Grüsse Tanja

19.07.2020 - 12:33

DROPS Design answered:

Liebe Frau Strupler, schauen Sie mal, ob Sie die 11. Runde richtig gestrickt haben (= es sind 2 Zunahmen = 3 Umschläge + 1 Abnahme) - dh es sind 9 Maschen inA.1 und in A.3 bei der 12. Reihe. Viel Spaß beim stricken!

20.07.2020 - 09:51

country flag Jeannette Van Altena wrote:

Klopt het dat de stekenverhouding bij aanvang van de verdeling van de pas niet klopt? Opzet 124 st. Bijv. bij maat xl : 20 st ( helft achterpand) 2 keer 19 st voor de mouwen, 41 st voorpand en 21 st voor de rest van het achterpand, totaal is hier 120 st, blijven er dus 4 st. over

19.07.2020 - 10:22

DROPS Design answered:

Dag Jeannette,

De markeerdraden worden in de steek geplaatst en niet tussen de steken. Ik denk dat dit het verschil van 4 steken verklaart...? (

20.07.2020 - 08:42

country flag MaryK wrote:

It looks like row 21 in the pattern moves the raglan? Can you confirm? Or tell me what it means if not.

14.07.2020 - 22:46

DROPS Design answered:

Dear MaryK, on row 21 you work the last stitch in A.1 together with the first 2 sts in A.2 (= this is now the last st in A.1. You then work the last 2 sts in A.2 together with the first stitch next A.2/A.3. But the raglan increases will not move, only lace pattern on this row will be "displaced". Happy knitting!

15.07.2020 - 07:39

country flag Monica wrote:

Hay algún patrón que empiece desde arriba y sea con agujas planas?

11.07.2020 - 19:02

DROPS Design answered:

Hola Minica! No lo creo.

20.11.2020 - 17:07