Oksana wrote:
Please specify if A.2 is knitted on sleeve or not. Thank you!
20.04.2020 - 10:10DROPS Design answered:
Dear Oksana, A.2 is not worked on the sleeve, neither before the yoke nor after - see written pattern. Happy knitting!
20.04.2020 - 11:03Lene Viktoria Bødker wrote:
Hej, Starter udtagningerne på ærmerne først efter mønster A1B er strikket færdigt? Tak :o)
16.04.2020 - 07:25DROPS Design answered:
Hej Lene, ja det stemmer, udtagningerne på ærmerne starter når A.1b er færdig. God fornøjelse!
17.04.2020 - 15:35Joe wrote:
Bonjour - "Après les côtes, tricoter 1 rang endroit sur l'endroit en diminuant en même temps 23-29-31-35-37-39 mailles à intervalles réguliers – voir DIMINUTIONS = 161-179-185-209-227-245 mailles. Tricoter 1 rang envers sur l'envers (tricoter les jetés torse à l'envers et les bordures des devants au point mousse). " de quels jetés parlez-vous ? est-ce une erreur ? Merci
13.04.2020 - 11:55DROPS Design answered:
Bonjour Joe, il le semble , il n'y a effectivement pas de jetés au rang précédent, tricotez simplement les mailles à l'envers et les bordures des devants au point mousse. Bon tricot!
14.04.2020 - 12:45Bente Kristoffersen wrote:
Det er ikke cm. Mål for avstand på knapphullene for str. L. Det kan se ut som det er kommet på en ekstra X str.? Det står xxl men jakken har kun xxL.
07.04.2020 - 18:06DROPS Design answered:
Hei Bente. Beklager, men jeg forstår ikke spørsmålet ditt. Hva mener du med ikke cm? Knappehullene er oppgitt med en avstand i cm. Extra x str og det står xxl men jakken har kun xxL? mvh DROPS design
15.04.2020 - 13:35Gerda wrote:
Hallo Zusammen, ich benötige Hilfe zur Berechnung. Ich brauche Größe XXL bei einer Körpergröße von 1,78m, denn dieses Jäckchen ist zu kurz. Welche Menge an Material benötige ich und wie ändern sich die Maße in den Längenangaben in der Strickanleitung. Könnten Sie mir eine überarbeitete Strickanleitung senden? Vielen Dank für die Hilfe, LG Gerda
05.04.2020 - 14:52DROPS Design answered:
Liebe Gerda, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem DROPS Laden, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!
09.04.2020 - 13:50Christine wrote:
J'ai hâte de tricoter ce joli modèle !
02.04.2020 - 21:24Ulla Björlesjö wrote:
Snygg modell! När kommer stickbeskrivningar?
28.03.2020 - 07:40Ann Britt Eriksen wrote:
Hvornår kommer strikkeopskriften, glæder mig til at strikke den
26.03.2020 - 17:39Ulla Bj wrote:
Mycket fin! När kommer mönster beskrivningen????
25.03.2020 - 00:25
Late Nights Jacket |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 212-12 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1a til A.1c). ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 184 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjum) deilið þessum lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 23) = 7,5. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis 6. og 7. hverja lykkju og 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur færri) þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki situr hér, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. HNAPPAGAT (neðan frá og upp): Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = gat. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: XS: 5, 12½, 20, 27½, 35 og 42½ cm S: 5, 12½, 20, 27½, 35 og 42½ cm M: 4, 12, 20, 28, 36 og 44 cm L: 4, 11, 18, 25, 32, 39 og 46 cm XL: 3, 10½, 18, 25½, 33, 40½, og 48 cm XXL: 5, 12½, 20, 27½, 35, 42½ og 50 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Síðan eru ermarnar prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón upp að handveg. Síðan eru ermarnar settar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Berustykkið og kantur í hálsmáli er prjónað fram og til baka frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 184-208-216-244-264-284 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 23-29-31-35-37-39 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 161-179-185-209-227-245 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (kantar að framan eru prjónaðir í garðaprjóni). Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið mynstur þannig – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð: 5 kantlykkjur að framan garðaprjón, A.1a yfir fyrstu 6 lykkjur, A.1b þar til 12 lykkjur eru eftir í umferð (= alls 23-26-27-31-34-37 mynstureiningar með 6 lykkjum), A.1c yfir næstu 7 lykkjur, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar eftir er 1 umferð í A.1a til A.1c, mælist stykkið ca 23 cm. Næsta umferð frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 37-43-43-48-54-60 lykkjur (= vinstra framstykki), fellið af næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 69-75-81-91-97-103 lykkjur (= bakstykki), fellið af næstu 9-9-9-11-11-11 lykkjur fyrir handveg, prjónið þær 37-43-43-48-54-60 lykkjur sem eftir eru (= hægra framstykki). Nú eru 143-161-167-187-205-223 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá. Leggið stykkið til hliðar og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 52-56-56-64-64-68 lykkjur á sokkaprjóna 4 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 10-8-8-10-10-8 lykkjur jafnt yfir = 42-48-48-54-54-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið nú mynstur A.1b – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, hringinn í umferð (= 7-8-8-9-9-10 mynstureiningar með 6 lykkjum). Þegar A.1b hefur verið prjónað til loka á hæðina, mælist ermin ca 23 cm. Prjónið nú eins margar einingar með gatamynstri í A.3 og pláss er fyrir í umferð – stillið af að stjarnan í A.3 sé prjónuð yfir stjörnu í A.1b! Hinar lykkjurnar í umferð eru prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 3-4-3-2-1-1 cm millibili alls 6-5-6-7-10-10 sinnum = 54-58-60-68-74-80 lykkjur. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina, haldið áfram með sléttprjón til loka. Þegar ermin mælist 41-43-41-40-38-37 cm, fellið af 9-9-9-11-11-11 lykkjur undir ermi (fellið af 5-5-5-6-6-6 lykkjur á undan prjónamerki og 4-4-4-5-5-5 lykkjur á eftir prjónamerki) = 45-49-51-57-63-69 lykkjur fyrir ermi. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 233-259-269-301-331-361 lykkjur. Nú eru sett 4 prjónamerki í stykkið. Setjið prjónamerkin 2-0-2-2-0-2 inn á framstykki og bakstykki (mælt frá skiptingunni á milli fram- og bakstykki og erma). Þ.e.a.s. í stærð S og XL setjið prjónamerki í skiptinguna á milli fram- og bakstykkis og erma í stærð XS, M, L, XXL setjið prjónamerkin þannig að 2 lykkjur í hvorri hlið á fram- og bakstykki komi inn á ermar. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið hægra framstykki þannig: 5 kantlykkjur garðaprjón, 6-3-0-6-3-6 lykkjur í sléttprjóni, A.2 (= 4 lykkjur), A.3 yfir næstu 12-24-24-24-36-36 lykkjur (= 1-2-2-2-3-3 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.4 yfir næstu 3 lykkjur, 5-4-5-4-3-4 lykkjur í sléttprjóni, prjónamerkið situr hér. Prjónið hægri ermi þannig: Prjónið sléttprjón yfir næstu 49-49-55-61-63-73 lykkjur (= hægri ermi), prjónamerki situr hér. Prjónið bakstykki þannig: Prjónið 5-4-5-4-3-4 lykkjur í sléttprjóni, A.2 (= 4 lykkjur), A.3 yfir næstu 48-60-60-72-84-84 lykkjur (= 4-5-5-6-7-7 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.4 (= 3 lykkjur), prjónið 5-4-5-4-3-4 lykkjur í sléttprjóni, prjónamerkið situr hér. Prjónið vinstri ermi þannig: Prjónið sléttprjón yfir næstu 49-49-55-61-63-73 lykkjur, prjónamerki situr hér. Prjónið vinstra framstykki: Prjónið 5-4-5-4-3-4 lykkjur í sléttprjóni, A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.3 yfir næstu 12-24-24-24-36-36 lykkjur (= 1-2-2-2-3-3 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.4 yfir næstu 3 lykkjur, 6-3-0-6-3-6 lykkjur í sléttprjóni, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar berustykkið mælist 3-2-2-1-2-2 cm, byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 18-19-21-24-25-28 sinnum = 89-107-101-109-131-137 lykkjur. Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni til loka. Stykkið mælist ca 19-19-21-23-25-27 cm frá þar sem fram- og bakstykki og ermar er sett saman. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 5-19-9-13-31-37 lykkjur jafnt yfir = 84-88-92-96-100-100 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Prjónið stroff þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, 2 lykkjur slétt, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 46-46-48-50-52-54 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Manjola wrote:
Ho finito di fare questo modello proprio oggi..... bellissimo.....mi è piaciuto un monte......!!!!!!Le spiegazioni sono state molto precise..... grazie!
16.04.2020 - 20:35