NELLY PREVOT wrote:
Je viens de réaliser l'échantillon et dans la qualité Drops Brushed Alpaca silk (appartient au groupe de fil C) . Que veut-dire le groupe fil C ? merci) par ailleurs avec cette qualité de fil le point de blé n'apparait pas très bien et c'est dommage ; pourriez-vous me conseiller une autre qualité de fil - merci et dès votre réponse je repasserai une commande. Merci Peut-on vous joindre par téléphone ?
06.11.2020 - 17:18DROPS Design answered:
Bonjour Mme Prevot, nos fils à tricoter sont classés par groupe de A. à C - voir ici - Vous pouvez ainsi utiliser en alternative 2 fils du groupe A ou bien un autre fil du groupe C, mais rappelez-vous qu'un autre fil rendra différemment car les matières sont différentes - plus d'infos ici - n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS par téléphone, on saura vous conseiller. Bon tricot!
09.11.2020 - 08:26Benedicte Choplin wrote:
Bonjur, je ne vois nul part si le pull se tricote en double fils merci ;)
01.11.2020 - 15:09DROPS Design answered:
Bonjour Choplin, si rien n'est indiqué, alors on tricote en simple, autrement dit, vous tricotez ici Brushed Alpaca Silk en simple sur la base d'un échantillon de 16 m x 24 rangs au point de blé (= diagramme A.1) = 10 x 10 cm - plus d'infos sur l'échantillon ici. Bon tricot!
02.11.2020 - 08:33Pilar wrote:
Que puntos tiene que tener la muestra?
24.10.2020 - 16:58DROPS Design answered:
Hola Pilar. La tensión del tejido en este labor es 16 puntos x 24 filas trabajando en punto arroz doble (A.1) = 10 x 10 cm.
25.10.2020 - 15:21Claire wrote:
Bonjour, pour tricoter ce pull j'ai besoin de 125g de brush alpaca silk, taille S. Cependant, je souhaite le faire avec 1 fil de kid silk et 1 fil de baby alpaca silk. J'ai déjà tricoté ces 2 fils ensembles c'est tout doux ! Pouvez vous me donner le grammage de chacune de ces deux laines pour faire ce pull ? Merci beaucoup pour votre réponse.
02.10.2020 - 18:45DROPS Design answered:
Bonjour Claire, vous trouverez comment calculer la nouvelle quantité nécessaire dans les deux laines ici. Bon tricot!
05.10.2020 - 08:38Irmgard Walentin wrote:
Sie schreiben für Größe M 150 gr. Bei der Bestellung wird 250 gr. angegeben. Wieviel Wolle soll ich bestellen? Herzlichen Dank für Ihre Antwort. Mit lieben Grüßen vom Bodensee Irmgard Walentin
12.05.2020 - 12:39DROPS Design answered:
Liebe Frau Walentin, Sie brauchen in M 150 g DROPS Brushed Alpaca Silk /25 g das Knäuel = 6 Knäuel. Viel Spaß beim stricken!
12.05.2020 - 12:43Jette Hoffmann wrote:
Kan denne opskrift fåes på dansk , det ville være dejligt
26.04.2020 - 14:41DROPS Design answered:
Hei Jette. Ja, denne oppskriften finner du på dansk. Bruk nedtrekksmenyen under bildet og velg det språket du ønsker. God Fornøyelse!
27.04.2020 - 14:31Helen Helland wrote:
Hei, og takk for flott oppskrift. Jeg lurer på det som står at 1. maske på 3. pinne i A1 skal være rett? Sitat: Avpass at neste pinne strikkes fra retten og er som 3.pinne i A.1 (dvs første maske etter kantmasken i rille på begynnelsen av pinnen fra retten skal være en rett maske).
24.04.2020 - 14:52DROPS Design answered:
Hej Helen, vi kan også se at 1. maske på 3.pinne i A.1 er en vrangmaske. Vi skal høre med design hvad som er tænkt. Tak for info :)
28.04.2020 - 12:14Anh Harker wrote:
I’m going to knit this sweater today. It’s the second time I work with brushed alpaca silk. It’s quite soft and the color is real pretty. However this yarn does not hold the shape very well so loose pattern would be a best selection
28.03.2020 - 22:31Martin wrote:
C'est vraiment un super modèle sympa et mode pour les jeunes et les moins jeunes. Par contre je n'ai pas trouvé d'explications pour le réaliser .Pouvez-vous me dire quand ce tuto sera en ligne ? Cordiales pensées à toutes...par ces temps difficiles le tricot est un best !
22.03.2020 - 10:31DROPS Design answered:
Bonjour Mme Martin, tous les modèles de la collection printemps-été présentés sur cette page seront disponibles d'ici juillet, revenez régulièrement pour vérifier s'il est en ligne et/ou abonnez-vous à notre newsletter pour ne rien manquer. Bon tricot!
23.03.2020 - 11:46
Oats and Honey |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með V-hálsmáli úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með tvöföldu perluprjóni á hæðina og blöðruermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 213-20 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.4). ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 42 lykkjur), mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið lykkjum sem eftir er með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir aðra hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um ermar): Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. BAKSTYKKI: Fitjið upp 75-83-87-95-103-115 lykkjur á hringprjón 5,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan mynstur fram og til baka þannig: 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 yfir næstu 73-81-85-93-101-113 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm - prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 3-5-5-5-9-13 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum fyrir handveg = 69-73-77-85-85-89 lykkjur. Haldið síðan áfram með tvöföldu perluprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, fellið af miðju 21-21-21-25-25-25 lykkjurnar fyrir hálsmáli (fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 23-25-27-29-29-31 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 75-83-87-95-103-115 lykkjur á hringprjón 5,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan mynstur fram og til baka þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 yfir næstu 73-81-85-93-101-113 lykkjur, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu og sé eins og 1. umferð í A.1 (þ.e.a.s. fyrsta lykkja á eftir kantlykkju í garðaprjóni í byrjun á umferð frá réttu á að vera slétt lykkja), prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 3-5-5-5-9-13 lykkjur í byrjun á umferð fyrir handveg, prjónið eins og áður yfir næstu 34-36-38-42-42-44 lykkjur, prjónið 2 lykkjur í næstu lykkju (= miðjulykkja), prjónið þær lykkjur sem eftir eru. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-5-5-5-9-13 lykkjur, prjónið næstu 35-37-39-43-43-45 lykkjur áður en þær eru settar á þráð fyrir hægra framstykki, prjónið þær 35-37-39-43-43-45 lykkjur sem eftir eru í umferð (= vinstra framstykki). VINSTRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni, 1 kantlykkju garðaprjóni við handveg og prjónið A.2 yfir síðustu 12 lykkjur við V-hálsmál. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur fækkað um 2 lykkjur 3 sinnum. Haldið áfram með úrtöku fyrir V-hálsmáli alveg eins 3-3-3-4-4-4 sinnum til viðbótar (= alls 12-12-12-14-14-14 lykkjur færri fyrir hálsmáli) = 23-25-27-29-29-31 lykkjur fyrir öxl. Prjónið síðan tvöfalt perluprjón og 1 kantlykkju garðaprjón við handveg eins og áður til loka. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur frá þræði í annarri hlið til baka á prjóninn = 35-37-39-39-43-45 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni, 1 kantlykkju garðaprjóni við handveg og prjónið A.3 yfir fyrstu 12 lykkjur við V-hálsmáli. Þegar allt A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina hefur fækkað um 2 lykkjur 3 sinnum. Haldið áfram með úrtöku fyrir V-hálsmáli alveg eins 3-3-3-4-4-4 sinnum til viðbótar (= alls 12-12-12-14-14-14 lykkjur færri fyrir hálsmáli) = 23-25-27-26-26-31 lykkjur fyrir öxl. Prjónið síðan tvöfalt perluprjón og 1 kantlykkju garðaprjón við handveg eins og áður til loka. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI Fitjið upp 42-46-46-46-50-50 lykkjur á prjón 4,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja garðaprjón. Þegar stroffið mælist 4 cm, prjónið 1 umferð slétt, þar sem aukið er út um 20-20-22-22-22-22 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 62-66-68-68-72-72 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið til baka frá röngu. Prjónið nú mynstur þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, A.1 þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 17 cm í öllum stærðum er lykkjum fækkað frá réttu þannig: Prjónið 4-6-7-7-4-4 lykkjur eins og áður, A.4 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, yfir næstu 54-54-54-54-64-64 lykkjur (= 9-9-9-9-8-8 mynstureiningar með 6-6-6-6-8-8 lykkjum), prjónið síðustu 4-6-7-7-4-4 lykkjur = 44-48-50-50-56-56 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með tvöföldu perluprjóni á hæðina og 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. Í næstu umferð frá réttu byrjar útaukning mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 13-13-8½-6-11½-5 cm millibili alls 3-3-3-5-3-5 sinnum = 50-54-56-60-62-66 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 48-48-48-46-44-42 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkja hvar botninn á handveg byrjar. Haldið áfram þar til ermin mælist alls 50-51-51-49-50-50 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í og saumið botninn á handveg – prjónamerkin sem sett voru í á ermum eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Laurence wrote:
Super joli ! Mais quel dommage qu’il ne se tricote pas en rond... Du coup, je passe mon tour, mais avec regret.
11.04.2020 - 09:47