DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Golden Moments

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, köðlum og kúlum. Stærð XS - XXL.

DROPS 213-16
DROPS Design: Mynstur vs-062
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS BELLE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 04, fífill

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.3).

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 92 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 28) = 3,2.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum, prjónið í þessu dæmi ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman.

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur.

ÚRTAKA (á við um ermar):
Ef gatamynstrið og úrtakan kemur í sömu umferð, stillið af að úrtakan komi í næstu umferð.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 92-92-96-100-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með Belle. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 8 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 28-28-32-28-28-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 120-120-128-128-136-136 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki eftir ca 23-23-24-24-25-25 lykkjur (= ca mitt aftan á bakstykki), berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna: Setjið fyrsta prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), setjið næsta prjónamerki eftir 47-47-49-49-51-51 lykkjur (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), setjið næsta prjónamerki eftir 13-13-15-15-17-17 lykkjur (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), setjið næsta prjónamerki eftir 47-47-49-49-51-51 lykkju (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), nú eru 13-13-15-15-17-17 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki.
Prjónið nú mynstur – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð, þannig: * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 yfir næstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur, A.2 yfir næstu 35 lykkjur, A.3 yfir næstu 5-5-6-6-7-7 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, byrjið á 5.-5.-4.-4.-3.-3. lykkju í A.4 og prjónið yfir næstu 11-11-13-13-15-15 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hafa verið auknar út 8 lykkjur fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 22-26-29-31-35-39 sinnum = 296-328-360-376-416-448 lykkjur, jafnframt er mynstrið prjónað þannig:
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Mynstur fram- og bakstykki:
Þegar A.1 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina prjónið A.5 yfir síðustu 13 lykkjur í A.1 og A.6 yfir fyrstu 13 lykkjur í A.3, þær lykkjur sem eftir eru við hverja laskalínu eru prjónaðar í sléttprjóni þar til aukið hefur verið út 16 sinnum fyrir laskalínu. Síðan, þegar byrjað er á 3. gatamynstrinu á hæðina á ermum (þ.e.a.s. í 33. umferð á berustykki), prjónið gatamynstur (A.4) alveg eins og á ermum. Þ.e.a.s. það eiga alltaf að vera 1-1-2-2-3-3 lykkjur slétt á milli ysta uppsláttar í gatamynstri og útaukningu fyrir laskalínu. Eftir því sem auknar eru út fleiri lykkjur fyrir laskalínu, prjónið eins mörg heil gatamynstur og pláss er fyrir.
Mynstur ermar:
Á ermum er endurtekið A.4 á hæðina og það eru prjónuð eins mörg gatamynstur og pláss er fyrir á breiddina. Það eiga alltaf að vera 1-1-2-2-3-3 lykkjur slétt á milli ysta uppsláttar í gatamynstri og útaukningu fyrir laskalínu.

Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð mælist stykkið ca 17-20-22-24-27-30 cm frá prjónamerki. Í stærð XS er prjónað áfram með mynstur (án útaukninga fyrir laskalínu) þar til stykkið mælist 20 cm frá prjónamerki. Ef stykkið mælist styttra en 20-22-24-27-30 cm í stærð S, M, L, XL og XXL er prjónað áfram í mynstri (án útaukninga fyrir laskalínu) að réttu máli.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 91-99-107-111-121-129 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 57-65-73-77-87-95 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-12-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermum), prjónið næstu 91-99-107-111-121-129 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 57-65-73-77-87-95 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-8-12-12-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Klippið frá. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 198-214-230-246-266-290 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi (= 4-4-4-6-6-8 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð í annarri hliðinni. Haldið áfram hringinn með mynstri eins og áður og prjónið eins margar einingar með gatamynstri og pláss er fyrir í hverri hlið (gatamynstrin eiga að passa yfir hvert annað alveg eins og áður í stykkinu). Þær lykkjur sem eftir eru sem ekki ganga jafnt upp í gatamynstri, í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni (= 6-4-2-6-5-5 lykkjur sléttprjón á milli prjónamerkja í hlið og ysti uppslátturinn í gatamynstri í hlið). Haldið svona áfram hringinn þar til stykkið mælist ca 24-26-26-26-25-24 cm – stillið af að endað sé eftir 1., 2. umferð, 14.-18. umferð eða 30.-34. umferð í A.2.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 19-23-27-31-36-42 lykkjur og aukið jafnframt út 6-6-6-8-9-9 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 61 lykkjur, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 19-23-27-31-36-42 lykkjur og aukið jafnframt út 6-6-6-8-9-9 lykkjur jafnt yfir *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 222-238-254-278-302-326 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 25-29-33-39-45-51 lykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki hér. Þetta er núna byrjun á umferð. Nú er prjónað stroff. Það eru 2 útgáfur af stroffi yfir 61 lykkjur í mynstri. Ef endað er eftir 1., 2. eða 30.-34. umferð í A.2 er prjónað stroff-1, ef endað er eftir 14.-18. umferð í A.2 er prjónað stroff-2.
Stroff-1:
* Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 18 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 21 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir næstu 18 lykkjur, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 50-58-66-78-90-102 lykkjur *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð.
Stroff-2:
* Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir fyrstu 61 lykkjur, (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 50-58-66-78-90-102 lykkjur *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð.
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 57-65-73-77-87-95 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-12-12-16 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 65-73-81-89-99-111 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermum. Prjónið mynstur mismunandi eftir stærðum þannig:
Stærð XS, S og M:
Haldið áfram hringinn með eins mörg gatamynstur og pláss er fyrir í umferð. Þær lykkjur sem eftir eru undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 4 cm, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 0-10-5 cm millibili alls 1-3-6 sinnum = 63-67-69 lykkjur. Prjónið nú áfram eins og útskýrt er að neðan.
Stærð L, XL og XXL:
Haldið áfram hringinn með eins mörg gatamynstur og pláss er fyrir í umferð. Þær lykkjur sem eftir eru undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni. Jafnframt í fyrstu umferð er lykkjum fækkað undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 2-5-9 sinnum, síðan með 4-3-2 cm millibili alls 7-8-9 sinnum = 71-73-75 lykkjur.
Allar stærðir:
Haldið áfram þar til ermin mælist 38-40-39-37-34-32 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 23-23-25-23-25-23 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist alls 42-44-43-41-38-36 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.04.2020
Búið er að bæta við ör í mynsturteikningu A.2 og útskýringu undir mynsturtexta
Yfirfarið á vefsvæði: 09.09.2022
LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Kúla: Prjóni 1 lykkju slétt framan og aftan í sömu lykkju þar til 1 lykkja hefur aukist í 5 lykkjur, snúið og prjónið 3 umferðir sléttprjón yfir 5 lykkjurnar, snúið og prjónið 5 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja)
symbols = þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er mynsturteikning endurtekin frá umferð með ör
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Golden Moments

Tuuli, Estonia

Golden Moments

J_e_z_i_o_r_k_a, Poland

Golden Moments

Nina, Denmark

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

country flag Valentina wrote:

Buonasera, Ho dimenticato di chiedere se la spiegazione del raglan è corretta in quanto mi sembra che dopo il gettato, 2 maglie diritto vi è scritto 1 maglia diritto e poi 1 gettato. Dopo le 2 maglie diritto è corretto fare un'altra maglia diritto? Grazie per la pazienza

05.11.2020 - 16:51

DROPS Design answered:

Buonasera Valentina, le spiegazioni sono corrette. Buon lavoro!

05.11.2020 - 19:03

country flag Valentina wrote:

Buonasera, Adoro questo modello e sto iniziando a realizzarlo. Sto lavorando lo sprone in taglia M e sono arrivata al punto in cui bisogna iniziare sulla 4° maglia in A.4 e lavorare le 13 maglie successive. Potrei avere delle delucidazioni in merito? Non riesco a capire come faccio a lavorare 13 maglie partendo dalla 4° maglia. Grazie

05.11.2020 - 16:38

DROPS Design answered:

Buonasera Valentina, deve lavorare dalla 4° maglia e poi ricominciare il giro. Buon lavoro!

05.11.2020 - 18:59

country flag Mrs Maharaj wrote:

Hi again, In XS YOKE, in the 1st line of pattern, marker thread is not coming in the middle and 1 more time on round is left from being fully completed. Also, are all the diagrams read from right to left? can you give me the break down of the pattern on 1st round of the patterns as - * K1, M1YO, A.1 (P3,K2), A.2 (P11,K2,P2,K2,P1,K2,P2,K2,P11), A.3 (K2.P3), M1YO,K2 (Marker thread), M1YO, ----Please whats after this? Thanks

29.10.2020 - 17:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Maharaj, the marker threads inserted at the very beg of yoke are not coming in the middle of piece but should mark the different parts of yoke: beg of round, back piece (= 47 sts); sleeve (= 13 sts), front piece (= 37 sts), sleeve (= 13 sts)- and you will increase as explained on first round in yoke working diagrams at the same time - read more about diagrams here. Happy knitting!

30.10.2020 - 07:17

country flag MRS Maharaj wrote:

Hi again, thanks for the quick reply earlier. I have another question. Pls help me. Thanks. In YOKE, pls explain me this for XS :- “ begin on 5th-5th-4th-4th-3rd-3rd stitch in A.4 and work the next 11-11-13-13-15-15 stitches”. I don’t understand what to begin on 5th stitch. Thanks.

28.10.2020 - 18:40

DROPS Design answered:

Hi Mrs Maharaj, You begin on the 5th stitch in A.4 (reading from the right to left) and then work A.4 over the next 11 stitches. This is so you get a symmetric pattern in your size. Happy knitting!

29.10.2020 - 07:11

country flag Mrs S Maharaj wrote:

Hi, In the NECK EDGE section, it says "Switch to circular needle size 4.5 mm. Insert 1 marker after approx. 23-23-24-24-25-25 stitches (= approx. mid back on back piece), measure yoke from this marker!" Does that mean, we just insert the marker after 23 sts (for XS), without working the line ? Or do we have to work that line? Thanks,

22.10.2020 - 18:19

DROPS Design answered:

Hi Mrs Maharaj, You can insert the marker without working the stitches first. It is for measuring the length of the yoke, so the position on the round is not so important. Happy knitting!

23.10.2020 - 07:56

country flag Kat Arnett wrote:

Correction for the transition from body to rib = Work next round as follows: * Knit the first 19-23-27-31-36-42 stitches and increase at the same time 6-6-6-8-9-9 stitches evenly, knit over knit and purl over purl over the next 61 stitches, knit the next 19-23-27-31-36-42 stitches and decrease (SHOULD SAY INCREASE) at the same time 6-6-6-8-9-9 stitches evenly, work from *-* 1 more time on round = 222-238-254-278-302-326 stitches. Knit the first 25-29-33-39-45-51 stitches on round.

22.09.2020 - 05:33

country flag Birgit Sanden wrote:

Hej. Jeg har skrevet til jer den 19/8 vedr. problemer med diagram A1 og A3, og kan se der er andre der også har problemer. Hvornår kan jeg forvente at få svar? 🙏 Jeg vil gerne snart i gang med at strikke.

20.09.2020 - 18:53

country flag Vibeke Hansen wrote:

Har strikket mønstre i mange år, men med dette diagram er jeg ved at opgive:)Jeg strikker i str. M og har problemer fra omgang 6 i diagram A-1 og A-3 (som flere andre). Jeg husker at tage ud som beskrevet, men når vrangmaskerne forskydes i de nævnte diagrammer, går det helt galt. Har haft kontakt til Anita fra Anita Garn, der har været meget behjælpelig, men det er svært at forklare og vejlede, når man ikke lige sidder med strikketøjet . Håber I kan hjælpe. VH Vibeke

07.09.2020 - 14:56

country flag Karen Ida Bech Pedersen wrote:

Jeg er forøvrigt en rutineret strikker, jeg har strikket i snart 50 år

30.08.2020 - 18:24

DROPS Design answered:

Så skal du nok løse det. God fornøjelse! :)

01.09.2020 - 12:34

country flag Karen Ida Bech Pedersen wrote:

Jeg har skrevet til jer før angående diagram A4 til Golden moments. Jeg er begyndt med 3.m i A4, til række 9 og 11, det er i orden, men når jeg så skal til række 21 og 23, skal jeg så stadig starte med 3.m i diagrammet? Jeg synes ikke, mønsteret passer, når jeg gør det. Det er lige før jeg opgiver . Hjælp med venlig hilsen Karen

30.08.2020 - 18:03

DROPS Design answered:

Hej Karen, hvis du tænker at du skal forskyde 2.hulmønster, så du har 1 maske ret imellem yderste omslag (sidst) i nederste hulmønster og yderste omslag (først) i øverste hulmønster ifølge diagrammet.

01.09.2020 - 12:33