Nature Awakes |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca og DROPS Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tveggja lita klukkuprjóni, röndum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 213-5 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. A.2 er gatamynstur. A.1 og A.3 til A.7 er prjónað fram og til baka í klukkuprjóns mynstri með litnum natur og litnum bláberjapie. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 123 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 42) = 2,9. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN: Prjónað er í röndum. Opin rúða og fyllt rúða (utan við mynsturteikningu) sýnir í hvaða lit á að prjóna umferðina með. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 117-123-129-132-141-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 2 cm, prjónið 1 umferð slétt og aukið út 40-42-44-46-46-52 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 157-165-173-178-187-196 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 2-3-3-3-4-4 cm frá prjónamerki. Skiptið yfir í litinn kamel. Prjónið 3 sléttar umferðir. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 41-43-45-46-47-52 lykkjur jafnt yfir = 198-208-218-224-234-248 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir í litinn natur. Prjónið 1 umferð slétt. KLUKKUPRJÓNS MYNSTUR: Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið nú mynstur með litnum bláberjapie og litnum natur þannig – sjá TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur. Endurtakið A.1a á hæðina þar til stykkið mælist 7-8-9-9-10-10 cm frá prjónamerki (þ.e.a.s. ca 4-4-5-5-5-5 cm klukkuprjóns mynstur), stillið af að endað sé með 1 umferð frá röngu með litnum natur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og haldið áfram með litnum natur þannig: GATAMYNSTUR: Prjónið 2 umferðir slétt (klukkuprjóns uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjum frá fyrstu umferð). Skiptið yfir í litinn kamel. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út 22-24-28-34-38-44 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 220-232-246-258-272-292 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig: Prjónið A.2 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur. Skiptið yfir í litinn natur. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 52-56-58-62-64-76 lykkjur jafnt yfir = 272-288-304-320-336-368 lykkjur. KLUKKUPRJÓNS MYNSTUR: Skiptið yfir í litinn bláberjapie. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið A.3 yfir allar lykkjur. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig: Prjónið A.4 (= 3 lykkjur), A.5 (= 9 lykkjur), A.4 yfir 3 lykkjur, A.6 (= 1 lykkja) *, prjónið frá *-* alls 17-18-19-20-21-23 sinnum á breidd. Endurtakið A.4 til A.6 þar til stykkið mælist ca 20-21-22-25-26-28 cm á hæðina, stillið af að endað sé með heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt með litnum bláberjapie og aukið út 47-67-70-80-88-92 lykkjur jafnt yfir (klukkuprjóns uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjum) = 319-355-374-400-424-460 lykkjur. Skiptið yfir í litinn natur. Prjónið 1 umferð frá réttu og aukið út 0-0-15-29-45-45 lykkjur jafnt yfir = 319-355-389-429-469-505 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20-22-23-26-27-29 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar: Prjónið 46-52-55-61-68-75 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 91-103-111-123-137-151 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi og endið með 46-52-55-61-68-75 lykkjur (= hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 199-223-237-261-289-317 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 17-21-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir = 182-202-216-238-264-290 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. KLUKKUPRJÓNS MYNSTUR: Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið A.1 hringinn. Endurtakið A.1a á hæðina þar til klukkuprjóns mynstrið mælist ca 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. AFGANGUR AF FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið nú stykkið til loka með litnum natur og sléttprjóni. Í næstu umferð er aukið út um 17-21-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir (klukkuprjóns uppslátturinn er prjónaðu saman við lykkjur) = 199-223-237-261-289-317 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 50-56-59-65-72-79 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 99-111-119-131-145-159 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum. Þegar stykkið mælist 2 cm frá klukkuprjóns mynstri, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 8-6-7-7-7-8 sinnum = 231-247-265-289-317-349 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-29-30-29-30-30 cm frá skiptingu, aukið út 57-59-59-59-58-59 lykkjur jafnt yfir = 288-306-324-348-375-408 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! ERMI: Setjið 68-74-84-92-98-102 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 lykkja undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið 2 næstu umferðir með litnum natur. Í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir = 68-74-84-92-98-102 lykkjur. Prjónið síðan mynstur þannig: KLUKKUPRJÓNS MYNSTUR: Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið nú áfram í mynstri með litnum bláberjapie og litnum natur þannig: Prjónið A.7 (= 2 lykkjur) hringinn yfir allar lykkjur. Í fyrstu 12 umferðum er slétta lykkjan prjónuð með litnum bláberjapie, í síðustu 4 umferðum skiptist þetta, þannig að slétta lykkjan er prjónuð í litnum natur – sjá prjónamerki í mynsturteikningu A.7. AFGANGUR AF ERMI: Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Ermin er núna prjónuð til loka með litnum natur. Prjónið sléttprjón hringinn (klukkuprjóns uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjum frá fyrstu umferð). Í fyrstu umferð er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 12-14-17-20-22-23 sinnum = 52-54-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-37-36-34-33-32 cm frá skiptingu, aukið út 11-12-11-12-10-11 lykkjur jafnt yfir = 63-66-69-72-72-75 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (54)
Deb wrote:
Love this! Can't wait to see the pattern
23.01.2020 - 14:46Jana wrote:
Magical !!! Knitted brioche, very interestingly designed. I firmly believe, I hope that it will be translated into the Czech language, the saddle will be quite demanding for accuracy ....
22.01.2020 - 18:58Petra wrote:
Nádherný model, pevně věřím, že uspěje. Modlím se, aby byl přeložen do českého jazyka. Je tam poměrně složitý vzor, něžná krása.....
22.01.2020 - 18:41Tove Irene Lyngstad wrote:
Kjempefin modell. Gleder meg til å strikke denne !
21.01.2020 - 23:43Ruiz wrote:
Il est magnifique j’espère qu’il fera partie de la nouvelle collection.
19.01.2020 - 10:08Juana wrote:
Me encanta este es mio
18.01.2020 - 11:26Ina wrote:
Wouw, das ist Mal ein tolles Muster
15.01.2020 - 22:02Grethe Højgaard Strand wrote:
Så smuk. Den vil jeg gerne strikke.
15.01.2020 - 13:07Claudia wrote:
Stupendo!me ne sono innamorata.....
12.01.2020 - 23:35Alexandra wrote:
Tres beau design et couleur j'adore
09.01.2020 - 16:57