DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS SS24

Nature Awakes

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca og DROPS Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tveggja lita klukkuprjóni, röndum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 213-5
DROPS Design: Mynstur de-213
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-400-400 g litur 100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur 302, kamel
Og notið:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-100-150-150 g litur 20, bláberjapie

PRJÓNFESTA:
24 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
23 lykkjur á breidd og 48 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón og kant í hálsi.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7.
A.2 er gatamynstur.
A.1 og A.3 til A.7 er prjónað fram og til baka í klukkuprjóns mynstri með litnum natur og litnum bláberjapie.

ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 123 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 42) = 2,9.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN:
Prjónað er í röndum.
Opin rúða og fyllt rúða (utan við mynsturteikningu) sýnir í hvaða lit á að prjóna umferðina með.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 117-123-129-132-141-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum natur.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið).
Þegar stykkið mælist 2 cm, prjónið 1 umferð slétt og aukið út 40-42-44-46-46-52 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 157-165-173-178-187-196 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 2-3-3-3-4-4 cm frá prjónamerki.
Skiptið yfir í litinn kamel.
Prjónið 3 sléttar umferðir.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 41-43-45-46-47-52 lykkjur jafnt yfir = 198-208-218-224-234-248 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið.
Skiptið yfir í litinn natur.
Prjónið 1 umferð slétt.

KLUKKUPRJÓNS MYNSTUR:
Skiptið yfir á hringprjón 2,5.
Prjónið nú mynstur með litnum bláberjapie og litnum natur þannig – sjá TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN:
Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur.
Endurtakið A.1a á hæðina þar til stykkið mælist 7-8-9-9-10-10 cm frá prjónamerki (þ.e.a.s. ca 4-4-5-5-5-5 cm klukkuprjóns mynstur), stillið af að endað sé með 1 umferð frá röngu með litnum natur.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og haldið áfram með litnum natur þannig:

GATAMYNSTUR:
Prjónið 2 umferðir slétt (klukkuprjóns uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjum frá fyrstu umferð).
Skiptið yfir í litinn kamel.
Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út 22-24-28-34-38-44 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 220-232-246-258-272-292 lykkjur.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig:
Prjónið A.2 (= 2 lykkjur) yfir allar lykkjur.
Skiptið yfir í litinn natur.
Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 52-56-58-62-64-76 lykkjur jafnt yfir = 272-288-304-320-336-368 lykkjur.

KLUKKUPRJÓNS MYNSTUR:
Skiptið yfir í litinn bláberjapie.
Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 2,5.
Prjónið A.3 yfir allar lykkjur.
Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið mynstur þannig:
Prjónið A.4 (= 3 lykkjur), A.5 (= 9 lykkjur), A.4 yfir 3 lykkjur, A.6 (= 1 lykkja) *, prjónið frá *-* alls 17-18-19-20-21-23 sinnum á breidd.
Endurtakið A.4 til A.6 þar til stykkið mælist ca 20-21-22-25-26-28 cm á hæðina, stillið af að endað sé með heila eða hálfa mynstureiningu á hæðina.
Skiptið yfir á hringprjón 3.
Prjónið 1 umferð slétt með litnum bláberjapie og aukið út 47-67-70-80-88-92 lykkjur jafnt yfir (klukkuprjóns uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjum) = 319-355-374-400-424-460 lykkjur.
Skiptið yfir í litinn natur.
Prjónið 1 umferð frá réttu og aukið út 0-0-15-29-45-45 lykkjur jafnt yfir = 319-355-389-429-469-505 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 20-22-23-26-27-29 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar:
Prjónið 46-52-55-61-68-75 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 91-103-111-123-137-151 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 68-74-84-92-98-102 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi og endið með 46-52-55-61-68-75 lykkjur (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 199-223-237-261-289-317 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 17-21-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir = 182-202-216-238-264-290 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt.

KLUKKUPRJÓNS MYNSTUR:
Skiptið yfir á hringprjón 2,5.
Prjónið A.1 hringinn. Endurtakið A.1a á hæðina þar til klukkuprjóns mynstrið mælist ca 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3.

AFGANGUR AF FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið nú stykkið til loka með litnum natur og sléttprjóni.
Í næstu umferð er aukið út um 17-21-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir (klukkuprjóns uppslátturinn er prjónaðu saman við lykkjur) = 199-223-237-261-289-317 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki 50-56-59-65-72-79 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 99-111-119-131-145-159 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út í hliðum.
Þegar stykkið mælist 2 cm frá klukkuprjóns mynstri, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri).
Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 8-6-7-7-7-8 sinnum = 231-247-265-289-317-349 lykkjur. Þegar stykkið mælist 29-29-30-29-30-30 cm frá skiptingu, aukið út 57-59-59-59-58-59 lykkjur jafnt yfir = 288-306-324-348-375-408 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING!

ERMI:
Setjið 68-74-84-92-98-102 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3 og prjónið að auki upp 1 nýja lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8 lykkja undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið 2 næstu umferðir með litnum natur.
Í næstu umferð er fækkað um 8 lykkjur jafnt yfir = 68-74-84-92-98-102 lykkjur. Prjónið síðan mynstur þannig:

KLUKKUPRJÓNS MYNSTUR:
Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5.
Prjónið nú áfram í mynstri með litnum bláberjapie og litnum natur þannig:
Prjónið A.7 (= 2 lykkjur) hringinn yfir allar lykkjur.
Í fyrstu 12 umferðum er slétta lykkjan prjónuð með litnum bláberjapie, í síðustu 4 umferðum skiptist þetta, þannig að slétta lykkjan er prjónuð í litnum natur – sjá prjónamerki í mynsturteikningu A.7.

AFGANGUR AF ERMI:
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3.
Ermin er núna prjónuð til loka með litnum natur. Prjónið sléttprjón hringinn (klukkuprjóns uppslátturinn er prjónaður saman með lykkjum frá fyrstu umferð).
Í fyrstu umferð er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 76-82-92-100-106-110 lykkjur.
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri).
Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 12-14-17-20-22-23 sinnum = 52-54-58-60-62-64 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 38-37-36-34-33-32 cm frá skiptingu, aukið út 11-12-11-12-10-11 lykkjur jafnt yfir = 63-66-69-72-72-75 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið).
Fellið af með sléttum lykkjum þegar stroffið mælist 4 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.04.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning A.3 hefur verið leiðrétt

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = umferðin er prjónuð með natur

symbols = umferðin er prjónuð með bláberjapie
symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið yfir 1 lykkju á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman
symbols = prjónið 9 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sléttu lykkjuna og uppsláttinn aftur slétt saman án þess að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóni *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 9 lykkjur.
symbols = lyftið 1 lykkju og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur og 1 uppslátt slétt saman, steypið síðan lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (þ.e.a.s. 2 lykkjur færri)
symbols = prjónið 3 lykkjur og 2 uppslætti slétt saman (þ.e.a.s. 2 lykkjur færri)

symbols = prjónið 5 lykkjur og 3 uppslætti (= alls 8 lykkjur) saman þannig: Lyftið fyrstu 3 lykkjunum og 2 uppsláttum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjurnar og 1 uppslátt slétt saman, lyftið 5 lausu lykkjunum (meðtalinn uppsláttur) frá hægri prjóni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (þ.e.a.s. 4 lykkjur færri)
symbols = brugðin lykkja
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Nature Awakes

Kamila, Poland

Nature Awakes

Kamila, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (54)

country flag Rj wrote:

For size large, how do you get from 389 stitches, to the next section for dividing body from sleeves: 55+84+ 111+ 84+55?

28.12.2023 - 22:18

DROPS Design answered:

Dear Rj, 55+84+ 111+ 84+55 = 389. Don't forget to cast on under the sleeves 8 sts on each sleeve, so you will have on the body: 55 +55 +111+ 8+8 = 237. Happy knitting!

29.12.2023 - 00:26

country flag Dorthe Andersen wrote:

Hvor kan jeg købe Delight farve 20 blåbærtærte. Eller hvor finder jeg et billed af den så jeg kan finde en med tilsvarende farve kombination.

21.11.2023 - 21:35

DROPS Design answered:

Hej Dorthe, hvis du søger på DROPS 201-13 så er den strikket i Delight 20 blåbærtærte :)

24.11.2023 - 13:55

country flag Adrienne Owen wrote:

213/5 Nature awakes Graph A3 Thank you for this lovely pattern but can you confirm the edit on this graph please, as the brioche not working properly. Kind regards Adrienne

12.05.2023 - 10:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Owen, Diagram A.3 is right - note that you first work first row decreasing 1 stitch as follows with off-white: *make 1 yarn over, slip 1 as if to P, k1*, then work Round 2 with blueblerry pie: *purl yarn over and stitch together, make 1 yarn over, slip 1 as of to P*, work Round 3 with off-white: *make 1 yarn over, slip 1 as if to P, Ktog yarn over and slipped stitch*, and work Round 4 as round 3. Happy knitting!

12.05.2023 - 13:19

country flag Muriel Pons wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas dans les côtes anglaises ce que veut dire tricoter le diagramme A.1a "en hauteur"; quelle est la différence avec le fait de tricoter un diagramme en rond dans la largeur en répétant le dessin? Et aussi je ne comprends pas ce que veut dire, toujours dans les côtes anglaises mais après le point fantaisie, tricoter le diagramme A.4 "au-dessus de trois mailles". Merci.

31.03.2023 - 14:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pons, les 4 premiers rangs montrent comment tricoter le motif, y compris les diminutions du 1er rang, vous répétez ensuite les 4 derniers rangs de A.1a (vous répétez ainsi le diagramme en hauteur, pour la largeur, il suffit de répéter les mailles). Pour A.4, vous tricotez simplement les 3 mailles de A.4 (A.4 au-dessus de 3 mailles). Bon tricot!

11.04.2023 - 10:00

country flag Hanny wrote:

Hallo, in A1a, A6 en A5 wordt na het begin niet meer aan gegeven met welke kleur ik verder moet breien. Betekent dit dat ik door moet breien met de laatste kleur? Dus blauwe bessen. Dank! Prachtig patroon trouwens. Groet Hanny

20.02.2023 - 13:05

DROPS Design answered:

Dag Hanny,

Nee, je breit door met afwisselend blauwe bessentaart en naturel bij alle drie de telpatronen waar je het over hebt.

22.02.2023 - 13:17

country flag Lisbeth wrote:

Hej! Mönstret är vackert men färgen blåbärspaj av Drops Delight går inte att få tag på. Kan ni rekommendera något annat garn så resultatet blir så likt som möjligt?

18.01.2023 - 12:55

DROPS Design answered:

Hej, du kunde välja till exempel färgen 06, rosa/lila av DROPS Delight. Se gärna även på färgkartan för garnet DROPS Fabel, som har samma tjocklek som Delight.

18.01.2023 - 16:59

country flag Élodie wrote:

Bonjour, Merci pour ce beau modèle. J'ai commencé cet ouvrage et je suis à la 1ere ligne du diagramme A.6. J'ai tricoté les 2 premières mailles (la maille et son jeté) ensemble sans les lâcher de l'aiguille gauche, et j'obtiens bien 9 mailles mais la maille suivante (celle qu'on faisait glisser), dois je la tricoter simplement a l'endroit sans l'augmenter? Merci d'avance

30.09.2022 - 21:44

DROPS Design answered:

Bonjour Élodie, au 1er rang de A.6 vous tricotez ainsi: *A.4 = 3 m), A.5 (= 9m), A.4 (= 3 m), A.6 (= 1 m)*, autrement dit, vous tricotez ce rang ainsi: A.4 (= 1 jeté, glissez 1 m à l'env, tric. ens. à l'end la m et son jeté, 1 glissé, glissez 1 m à l'env), puis A.5 (= diminuez 2 m, 1 jeté, glissez 1 m à l'env, tric. ens à l'end la m et son jeté, 1 jeté, glissez 1 m à l'env, 3 m ens à l'end), puis A.6 (= tricotez 9 fois la m suivante)* et reprenez de *-* tout le tour. Ainsi, la dernière m tricotée de A.6 est 1 m end dans la m et son jeté, et la 1ère m du A.4 suivant est à glisser avec son jeté. Bon tricot!

03.10.2022 - 08:26

country flag Tina Bak Poulsen wrote:

Jeres tekster til indtagningerne af de to masker i 2 farvet patent passer ikke med videoen. Teksten beskriver en indtagning på flere masker end to. Synes i skal rette det hurtigst muligt, da man ellers kan sidde i lang tid og være forvirret, hvis man ikke har strikket det før

22.08.2022 - 08:32

country flag Andrea wrote:

Kedves Drops design! Hol találom meg a kijavított A.4- es mintát? Gyönyörű ez a pulóver, nagyon szeretném elkészíteni. Köszönettel.

24.02.2022 - 20:45

DROPS Design answered:

Hi Andrea, if you could write your question in English, we will try to answer :)

22.04.2022 - 11:47

country flag Helle Commerou wrote:

Hej. Kan i hjælpe mig med enten et link til en video eller anden måde vise mig hvordan jeg strikker 9 masker i en ret maske i Nature Awakes bluse det er diagram A6 som jeg ikke kan gennemskue

15.04.2021 - 18:05

DROPS Design answered:

Hej Helle. Vi har dessvärre ingen video på just detta, men denna video visar hur du stickar 5 maskor i en maska. Kanske den kan vara till hjälp då principen är densamma. Mvh DROPS Design

16.04.2021 - 10:19