DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 1.82 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3.64€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Horizon Trekkers

Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað í vinkil og röndum frá tá og upp. Stærð 35 – 43.

DROPS 209-24
DROPS Design: Mynstur fa-455
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: 16 - 18 - 20 cm

EFNI:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 340, bláa lónið
50-50-50 g litur 100, natur

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm, 60 cm eða 80 cm.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 1.82 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3.64€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt!

RENDUR:
Stykkið er prjónað í röndum þannig:
Prjónið 6 umferðir með litnum natur.
Prjónið 2 umerðir með litnum bláa lónið.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HÆLL:
Prjónið sléttprjón fram og til baka með litnum natur þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkjunni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Lyftið fyrstu lykkjunni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Lyftið fyrstu lykkjunni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
Haldið áfram með snúninga alveg eins þar til 14 lykkjur eru eftir mitt á prjóni.
Haldið áfram fram og til baka, en nú er prjónuð 1 lykkja fleiri í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu) yfir hæl. Til að koma í veg fyrir göt í hverri skiptingu þegar snúið er við, lyftið upp lárétta þræðinum á undan lykkjunni sem var prjónuð og setjið snúinn á prjóninn. Prjónið þráðinn saman með næstu lykkju á vinstri prjón (frá réttu er þráðurinn og lykkjan prjónað slétt saman og frá röngu er þráðurinn og lykkjan prjónað brugðið saman). Prjónið svona þar til prjónað hefur verið yfir allar lykkjur á hæl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá tá og upp. Fyrst er prjónað á hringprjón fram og til baka í vinkil með stuttum umferðum, áður en stykkið er prjónað áfram í hring á sokkaprjóna. Hællinn er prjónaður fram og til baka með stuttum umferðum. Stroffið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI SOKKUR:
Fitjið upp 48-52-56 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 2,5 með litnum bláa lónið.
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið 23-25-27 lykkjur brugðið, setjið 1 prjónamerki (þ.e.a.s. prjónamerkið er sett á milli lykkja), prjónið 23-25-27 lykkjur brugðið, endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Nú á að auka út lykkjur hvoru megin við prjónamerki.
UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn – sjá ÚTAUKNING (= 1 lykkja fleiri), 4 lykkjur slétt (= prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið sléttar lykkjur þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu (= alls 50-54-58 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 3 (= ranga): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= rétta): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (= prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið slétt þar til eftir eru alls 5-7-9 lykkjur í umferð, snúið stykkinu (= alls 52-56-60 lykkjur á prjóni).
UMFERÐ 5 (= ranga): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til eftir eru alls 5-7-9 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 6 (= rétta): ): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið 4 lykkjur slétt (= prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið slétt þar til eftir eru alls 10-12-14 lykkjur í umferð, snúið stykkinu (= alls 54-58-62 lykkjur í umferð).
UMFERÐ 7 (= ranga): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til eftir eru alls 10-12-14 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 8 (= rétta): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið slétt þar til eftir eru alls 15-17-19 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 9 (= ranga): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til eftir eru alls 15-17-19 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 10 (= rétta): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið slétt þar til eftir eru alls 20-22-24 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 11 (= ranga): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til eftir eru alls 20-22-24 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 12 (= rétta): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju garðaprjón, snúið stykkinu.
UMFERÐ 13 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 14 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 15 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið brugðið þar til eftir er 1 lykkja, endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Skiptið yfir í natur.
UMFERÐ 16 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 17 (= ranga): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til eftir eru 2 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 18 (= rétta): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið slétt þar til eftir eru alls 5-7-9 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 19 (= ranga): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til eftir eru alls 5-7-9 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 20 (= rétta): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið slétt þar til eftir eru alls 10-12-14 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 21 (= ranga): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til eftir eru alls 10-12-14 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 22 (= rétta): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið slétt þar til eftir eru alls 15-17-19 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 23 (= ranga): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til eftir eru alls 15-17-19 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 24 (= rétta): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið slétt þar til eftir eru alls 20-22-24 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 25 (= ranga): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið brugðið þar til eftir eru alls 20-22-24 lykkjur í umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 26 (= rétta): Lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, prjónið slétt þar til eftir er 1 lykkja í umferð, endið með 1 kantlykkju garðaprjón, snúið stykkinu.
UMFERÐ 27 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið brugðið þar til eftir er 1 lykkja í umferð, endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
UMFERÐ 28 (= rétta): Prjónið slétt.
UMFERÐ 29 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið brugðið þar til eftir er 1 lykkja, endið með 1 kantlykkju garðaprjóni.
Skiptið yfir í litinn bláa lónið.
Prjónið umferð 16 til 29 1 sinni til viðbótar.
Skiptið yfir í litninn natur.
Prjónið umferð 16 til 29 1 sinni til viðbótar.
Skiptið yfir í litninn bláa lónið.
Prjónið umferð 16 til 29 1 sinni til viðbótar, en í 2 síðustu umferðum er felld af fyrri kantlykkjan í hvorri hlið á stykki = 52-56-60 lykkjur.
Nú færist umferðin til með því að lyfta fyrstu 39-42-45 lykkjum frá réttu yfir á hægri prjón. Byrjun á umferð = mitt undir fæti.
Klippið frá.
Setjið nú stykkið saman og prjónað er í hring á sokkaprjóna.
Prjónið RENDUR í sléttprjóni – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 17-18½-21 cm, sjá Mynd 1 (þegar stykkið er mælt er stykkið lagt flatt með uppfitjunarkantinn í hlið, mælt mitt í stykki frá horni/tá).
Nú skiptist stykkið fyrir hæl og stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð með litnum natur.
Látið 22 miðjulykkjur á fæti hvíla á prjóninum (þ.e.a.s. 11 lykkjur á 2. og 3. sokkaprjóni). Skiptið þeim 30-34-38 lykkjum sem eftir eru á 1. og 4. sokkaprjón með 15-17-19 lykkjur á hvorum prjóni. Prjónið HÆLL – sjá útskýringu að ofan (hællinn er prjónaður í sléttprjóni).
Þegar hællinn hefur verið prjónaður til loka, haldið áfram með rendur og sléttprjón – ATH: Til að koma í veg fyrir gat í horni á hæl þegar fyrsta umferðin er prjónuð eftir að hællinn hefur verið prjónaður, lyftið upp lárétta þræðinum á undan næstu lykkju á vinstri prjóni og setjið snúinn á prjóninn. Prjónið þráðinn saman með næstu lykkju á vinstri prjóni.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá hæl, aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir = 54-58-62 lykkjur.
Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 8 cm frá hæl = 56-60-64 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 12-14-16 cm frá hæl, stillið af að næsta umferð sé prjónuð með litnum natur, aukið út 4 lykkjur jafnt yfir = 60-64-68 lykkjur.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með litnum natur í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá uppfitjunarkantinn og saumið saman, saumið með litnum natur upp þar sem stykkið var sett saman og prjónað í hring.

VINSTRI SOKKUR:
Prjónið á sama hátt og hægri sokkur, en þegar umferðin á að færast til mitt undir fæti, lyftið fyrstu 13-14-15 lykkjum frá réttu yfir á hægri prjón.

Mynstur

symbols = horn/tá, mælt héðan
symbols = hér byrjar hællinn, mælt fram að þessum stað
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 209-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag Cande wrote:

Bonjour avoir coupé le fil de la pointe peut-on continuer avec une aiguille circulaire plutôt que 4 aiguilles double pointe? mille mercis pour votre réponse 6

08.12.2023 - 19:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cande, tout à fait, mais il vous faudra alors utiliser la technique du magic loop. Bon tricot!

11.12.2023 - 07:22

country flag Laura Stel wrote:

Ik ben hieraan begonnen en begrijp eigenlijk niet waarom ik zoveel toeren moet breien voordat ik het rond kan gaan breien. Kunt u dit uitleggen?

23.02.2023 - 16:30

country flag YOLANDE wrote:

COMMENT SE FAIT-IL QUE QUAND J'IMPRIME UN PATRON DE TRICOT, JE RETROUVE EN BAS DE PAGE LES DEUX DERNIERES LIGNE EN IMPRESSION SUR LES DEUX LIGNE DU BAS ANNONCANT L'UTILISATION DE COOKIES. JE NE VOIS JAMAIS BIEN LES DIRECTIVES DU MODELE DEMANDER. MERCI BEAUCOUP A L'AVANCE POUR LE RENSEIGNEMENT.

25.07.2020 - 00:59

DROPS Design answered:

Bonjour Yolande, utilisez-vous bien le bouton "Imprimer" pour lancer l'impression des explications? Pensez ensuite à bien vérifier les paramètres de votre imprimante, mais en procédant ainsi, vous devriez être en mesure de pouvoir imprimer l'intégralité des explications. Bon tricot!

29.07.2020 - 10:00

country flag Bärbel wrote:

Tolle Socken , wäre schön , wenn es so was auch ab Bund , Schaft , Ferse , Spitze , gestrickt geben würde liebe Grüsse

13.05.2020 - 15:15

country flag Davina wrote:

I’m stuck - what does it mean to move stitches from the right side to right needle? Also how does moving the stitches make it mid foot? And if I cut the yarn how do I continue knitting? Pls help!

20.03.2020 - 22:28

DROPS Design answered:

Dear Davina, move the stitches means that you slip the stitches of the right side of teh piece to the needle that is in your right hand. If you cut the yarn, you can make a slipknot, put it on the needle and knit together with the first stitch. Or simply just hold thightly against the knitted piece. it will be a bit loose at first, but you can thighten it up when you weave in teh ends. Happy Knitting!

22.03.2020 - 11:45

country flag Berta wrote:

¿Se traduciràn las instrucciones al Español?

03.03.2020 - 17:02

DROPS Design answered:

Hola Berta. Todos los patrones se traducen al español. Este en concreto se publicará antes del jueves.

03.03.2020 - 23:22

country flag Ute wrote:

Namensvorschlag: "Schräge Sache"

25.01.2020 - 09:17

country flag Carmen wrote:

Geniales, los tricoto seguro!!!

20.12.2019 - 10:03

country flag Reina Groen wrote:

Interesting short row pattern on the feet

10.12.2019 - 20:09