DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Rose Blush

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Sky eða DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað með stroffi og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-44
DROPS Design: Mynstur sk-093
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
150-150-150-200-200-200 g litur 18, dökk bleikur
eða notið:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-250-250-300-300-300 g litur 03 sandur

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4488.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA:
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur), mínus kantlykkjum að framan í garðaprjóni (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjufjölda sem eftir er með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 9,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 9. og 10. hverja lykkju slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum og saumað saman í lokin. Síðan eru prjónaðar upp lykkjur fyrir stroff í kringum handveg og hálsmál.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 88-96-104-116-128-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky eða Soft Tweed. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram í 3 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 8-8-8-10-10-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 80-88-96-106-118-130 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-5-6-7-8-9 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-3-4-6 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-3-5-5 sinnum = 68-70-72-74-76-78 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorir hlið.
Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af miðju 30-30-32-32-34-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 18-19-19-20-20-21 lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur).
Stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 88-96-104-116-128-144 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky eða Soft Tweed. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * prjónið 2 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur garðaprjón *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur sléttprjón og endið með 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram í 3 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 8-8-8-10-10-14 lykkjur jafnt yfir = 80-88-96-106-118-130 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Prjónið sléttprjón fram og til baka með 5 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4-5-6-7-8-9 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-3-4-6 sinnum og 1 lykkju 2-2-2-3-5-5 sinnum = 68-70-72-74-76-78 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorir hlið.
Þegar stykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm, setjið miðju 16-16-18-18-18-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 1-1-1-1-2-2 sinnum = 18-19-19-20-20-21 lykkjur eftir fyrir öxl. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg. Fellið af með sléttum lykkjum (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur).
Stykkið mælist alls 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Byrjið undir ermi og hliðarsaum niður í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur – skiljið eftir ca 18 cm fyrir klauf. Endurtakið í hinni hliðinni.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Prjónið upp með stuttum hringprjón 3,5 ca 100 til 120 lykkjur (meðtaldar 16-16-18-18-18-18 lykkjur af þræði) innan við 1 lykkju í kringum allt opið í hálsmáli (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2½-3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í HANDVEGI:
Byrjið frá réttu við hliðarsaum undir handveg. Prjónið upp með stuttum hringprjón 3,5 ca 96 til 120 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Rose Blush

Inês, Portugal

Rose Blush

Margaret, Norway

Rose Blush

Ullpikene, Norway

Rose Blush in DROPS Sky

Agnieszka, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (151)

country flag Gine wrote:

Bonjour. Je suis à faire le dos et suis rendu à 35 cm . On demande de rabattre pour les emmanchures. Je ne comprend pas . Doit-on diminuer sur un seul rang? 1 fois 5 m, 1 fois 2 m.et 2 fois 1 m. On dit au début de ch gros. De chaque côté. Pouvez-vous m’expliquer? Merci Gine

11.02.2023 - 00:21

DROPS Design answered:

Bonjour Gine, on doit rabattre (et non diminuer) au début de chaque rang de chaque côté, autrement dit en début de rang sur l'endroit et en début de rang sur l'envers (pour que les emmanchures soient symétriques), en M: 5 x 1 m (= 1 m au début des 10 rangs suivants) puis 2 m au début des 2 rangs suivants et 2 x 1 m (= 1 m au début des 4 rangs suivants) = vous rabattez 18 m au total, il vous reste 70 mailles. Bon tricot!

13.02.2023 - 08:57

country flag Miranda wrote:

Hello! I have a questions about casting off the armholes. "cast off for the armholes at the beginning of each row on each side: Cast off 4-5-6-7-8-9 sts 1 time, 2 sts 0-1-2-3-4-6 times and 1 stitch 2-2-2-3-5-5 times = 68-70-72-74-76-78 sts." In this instruction, I read that for a size SM, you cast off 4 sts 1 time, then 1 st 2 times. Since I'm starting with 80 sts, That leaves me with 74 sts, but the patterns says I should have 68 at the end?

04.02.2023 - 16:34

DROPS Design answered:

Dear Miranda, you need to cast off once or twice on each side. So cast off 4 stitches once on one side and 4 stitches on the other side. Then, cast off 1 stitch on each side twice (so, cast off 4 more stitches). 4+4+4 = 12 cast-off stitches. 80-12 = 68 stitches. Happy knitting!

06.02.2023 - 00:14

country flag Miranda wrote:

Hello! I have a question about casting off the armholes. "cast off for the armholes at the beginning of each row on each side: Cast off 4-5-6-7-8-9 sts 1 time, 2 sts 0-1-2-3-4-6 times and 1 stitch 2-2-2-3-5-5 times = 68-70-72-74-76-78 sts." In this instruction, I read that for a size SM, you cast off 4 sts 1 time, then 1 st 2 times. Since I'm starting with 80 sts, That leaves me with 74 sts, but the patterns says I should have 68 at the end?

04.02.2023 - 16:34

DROPS Design answered:

Dear Miranda, you need to cast off once or twice on each side. So cast off 4 stitches once on one side and 4 stitches on the other side. Then, cast off 1 stitch on each side twice (so, cast off 4 more stitches). 4+4+4 = 12 cast-off stitches. 80-12 = 68 stitches. Happy knitting!

06.02.2023 - 00:14

country flag Hanne Estdahl wrote:

Må op pind 5 1/2 for at strikkefastheden passer , og 150 g garn ( drops sky ) er bestemt heller ikke nok , strikker en str medium . Er ret træls at få sådan en opskrift der åbenbart ikke er afprøvet , skulle bruge vesten til julegave og er ikke sikker på jeg nu kan få samme indfarvning , surt .

17.12.2022 - 17:33

DROPS Design answered:

Hej Hanne, Det er individuelt hvilken pind som skal bruges for at få strikkefastheden som står i opskriften. I denne opskrift er det vigtigt at du får 20 masker i bredden og 26 pinde i højden på 10x10 cm, overholder du strikkefastheden vil det også være nok garn :)

20.12.2022 - 08:33

country flag Tanja wrote:

Den strikkefasthed, der angives i opskriften - er det på pind 4,5 eller 3,5 ? Jeg har købt soft tweed

04.12.2022 - 22:54

DROPS Design answered:

Hei Tanja. Strikkefastheten som oppgis er med den pinnen selve plagget strikkes med, ikke vrangbord. I denne vesten er det DROPS RUNDPINNER NR 4,5, men husk pinne nr er kun veiledende. Får du for mange masker på 10 cm, bytt til tykkere pinner. Får du for få masker på 10 cm, bytt til tynnere pinner. mvh DROPS Design

05.12.2022 - 14:14

country flag Marita Weslien wrote:

Hej, jag har stickat mycket och aldrig haft problem med stickfastigheten. Detta mönster med 20m på 10 cm kan du inte nå på stickor 4,5 slätstickning. Då måste man sticka oerhört löst. Jag vill att ni kontrollerar och ändrar i mönstret. Ser att flera i kommentarsfältet också tar upp detta problem.

02.11.2022 - 20:01

country flag Melanie Proudlock wrote:

I did keep the tension correct but only by using larger needles, had to use 5.5 mm instead of 4.5 mm

15.10.2022 - 09:32

country flag Melanie Proudlock wrote:

I bought 150 grams of the Sky yarn to make the Medium size vest but found I had to increase the size of the needles and make a bigger size to get the correct dimensions. I now find I have insufficient yarn to finish the piece and the dye lot is out of stock. Very disappointed as I loved the look of the vest

14.10.2022 - 10:42

DROPS Design answered:

Dear Mrs Proudlock, sorry to hear that ; did you get and keep the correct tension in width as well as in height? Read more about tension here. Happy knitting!

14.10.2022 - 13:24

country flag Catharina wrote:

De Soft Tweed staat er als alternatief bij, maar hiervan lijken minder bollen nodig te zijn terwijl er minder meters op een bol zitten. Een klant van ons had hierdoor te weinig. Kun je hiernaar kijken?

20.09.2022 - 10:26

DROPS Design answered:

Dag Catharina,

Dank voor het doorgeven! Er was inderdaad te weinig garen aangegeven voor de Soft Tweed en het is nu aangepast.

21.09.2022 - 19:37

country flag Bittan wrote:

Varför maskar man av vid halsen på bakstycket, men sätter maskorna på en tråd på framstycket?

20.02.2022 - 12:59