DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mountain Moraine

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóns mynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 210-4
DROPS Design: Mynstur ai-259
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL – XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-250-250-300-300 g litur 03, perlugrár

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 80 cm fyrir klukkuprjón.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 40 cm fyrir kant í hálsmáli.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4 (prjónað í klukkuprjóni).

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 62 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 6,2. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 5. og 6. hverja lykkju brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Lykkjur eru auknar út fyrir öxl á berustykki áður en stykkið skiptist og framstykki og bakstykki er prjónað hvort fyrir sig niður að handveg. Stykkin eru sett saman og fram- og bakstykki er síðan prjónað í hring.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 62-62-66-70-70-74 lykkjur á hringprjón 6 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð brugðið og fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 52-52-56-60-60-64 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 7.

BERUSTYKKI:
Prjónið mynstur þannig: Prjónið A.1 (= 2 lykkjur) yfir fyrstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur (= hálft bakstykki), A.2 (= 2 lykkjur), A.1 yfir 12 lykkjur, A.3 (= 2 lykkjur = öxl), A.1 yfir 10-10-12-14-14-16 lykkjur (= framstykki), A.2 yfir 2 lykkjur, A.1 yfir 12 lykkjur, A.3 yfir 2 lykkjur (= öxl) og A.1 yfir síðustu 4-4-6-6-6-8 lykkjur (= hálft bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a á hæðina.
Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er endurtekið A.2a og A.3a á hæðina, þ.e.a.s. það er haldið áfram með útaukningar í 6. hverri umferð, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur.
Þegar A.2a og A.3a hefur verið prjónað alls 8-9-9-10-11-12 sinnum á hæðina eru 132-140-144-156-164-176 lykkjur í umferð. Prjónið A.1a yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 24-25-25-25-26-26 cm þar sem það er lengst (þ.e.a.s. mælt meðfram öxl), stillið af að næsta umferð sé umferð sem prjónuð er brugðið.
Nú skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og axlalykkjur eru felldar af þannig:
Prjónið 26-28-28-32-34-36 lykkjur klukkuprjóns mynstur, 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= hálft bakstykki), fellið af næstu 13 lykkjur (fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja), 1 lykkja garðaprjón, prjónið 51-55-57-63-67-73 lykkjur klukkuprjóns mynstur, 1 lykkja garðaprjón (= framstykki), fellið af næstu 13 lykkjur (fellið uppsláttinn af eins og eigin lykkja), 1 lykkja garðaprjón og prjónið klukkuprjóns mynstur yfir síðustu 25-27-29-31-33-37 lykkjur.
Klippið frá.
Nú er prjónað op fyrir ermar fram og til baka yfir bakstykki.
Geymið lykkjurnar fyrir framstykki á prjóninum.

BAKSTYKKI:
= 53-57-59-65-69-75 lykkjur.
Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, A.4 (= 2 lykkjur) þar til 1 lykkja er eftir (þ.e.a.s. klukkuprjóns mynstur byrjar og endar með 1 brugðinni klukkuprjóns lykkju) og endið með 1 lykkju garðaprjón.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka í 10-10-11-12-13-14 cm, mælt meðfram lykkju með garðaprjóni, stillið af að síðasta umferðin sé frá röngu. Geymið lykkjurnar á prjóni, á meðan framstykkið er prjónað.

FRAMSTYKKI:
Prjónið op fyrir ermar yfir 53-57-59-65-69-75 lykkjur á framstykki á sama hátt og á bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið A.1a yfir framstykki (þ.e.a.s. lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið eru prjónaðar eins og sléttar klukkuprjóns lykkjur), fitjið upp 3 lykkjur, prjónið A.1a yfir bakstykki og fitjið upp 3 lykkjur í lok umferðar = 112-120-124-136-144-156 lykkjur.
Prjónið nú A.1a yfir allar lykkjur, hringinn. Í fyrstu umferð eru prjónaðar 3 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermar í mynstri án uppsláttar.
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, mælt frá hálsmáli, fellið af með sléttum lykkjum, uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja (þetta er gert til að affellingarkanturinn verði ekki stífur).

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = prjónið frá réttu
symbols = prjónið frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá hægri prjón, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi brugðið
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað slétt saman
symbols = uppslátturinn og lykkjan er prjónað brugðið saman
symbols = prjónið 3 lykkjur í sléttu lykkjuna og uppsláttinn þannig: Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var af vinstra prjóni = 3 lykkjur
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (160)

country flag Madeleine Beaumier wrote:

Pourquoi faire simple quand on peut faire compliqué...voilà ce que ce patron signifie :-)

14.11.2022 - 23:30

country flag Gitte Hansen wrote:

Hej Kan det virkelig passe, at jeg i str. XXL kun skal have 176 masker. Ser virkelig meget smalt ud. Hvor mange gange skal jeg tage ud? Så er det nemmere for mig at forstå. Jeg ved godt det er på hver 6 omg. Mvh Gitte

14.11.2022 - 22:59

country flag Susanne wrote:

Wie viele andere verstehe ich die Anleitung nicht. Sie ist schlecht getextet. In allen Sprachen. Auch im Original. Vielleicht kann man bitte das Diagramm nach oben erweitern? Das Video und Maschenmarkierer helfen nicht. Nach jeder Aufnahme in A2a und A3a kommen je 2 Maschen dazu. Das Muster verschiebt sich und man kann nicht einfach A2a und A3a wie vorher fortführen. Die je 4x2 Maschen müssen irgendwo in den Abstand zu A2a/A3a dazu gezählt werden

01.11.2022 - 11:28

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, wenn A.2 und A.3 fertig in der Höhe sind, wiederholen Sie die 6 Reihen A.2a/A.3a so daß die 6 Maschen A.2a werden über die 6 letzten Maschen vorrigen A.2a gestrickt, und die 6 Maschen A.3a werden über die vorrigen ersten 6 Maschen A.3a gestrickt, damit eine gerade Linie entsteht und das Muster sich nicht veschiebt (est gibt immer mehr Maschen, die in A.1 zwischen A.2 und A.3 und zwischen A.3 und A.2 gestrickt werden). Dieses Video zeigt die Reihen "a" von A.2 und A.3 und sollten Ihnen helfen zu sehen, wie die Zunahmen und das Muster gestrickt wird. Viel Spaß beim stricken!

01.11.2022 - 15:42

country flag Eric Tremblay wrote:

Hello, Could you tell me if there was any changes for the Mountain Moraine model. (DROPS 210-4) I'm having trouble finishing the project. The result is not good. It seems that diagrams A.2a and A.3a are not accurate. The raglans are not going in the right direction. This model is beautiful and I would love to finish it. Thanks for your help. Sincerely, Eric T.

23.02.2022 - 02:38

DROPS Design answered:

Dear Eric, this video shows how to work the diagrams A.1, A.2. and A.3, it should help you. Happy knitting!

23.02.2022 - 08:29

country flag Therese wrote:

Försökt i omgångar nu med halsen till 210-4. Men får inte rätt på det. Jag är nybörjare på att sticka och är beroende av era video men halsen blir inte rätt om jag följer den aktuelle videon . Hjälp

05.02.2022 - 15:48

DROPS Design answered:

Hei Therese. Om man følger oppskriften og videoen skal det bli riktig. Et godt tips er å bruke maskemarkører flittig, så ser du hele tiden hvor du er. Om du fremdeles har problemer, prøv å skriv mer nøyaktig hvor i oppskriften du får problemer og hvilken str. du strikker, så skal vi hjelpe deg så godt vi kan. mvh DROPS Design

07.02.2022 - 14:36

country flag Therese wrote:

Hej. I beskrivningen står att jag ska använda 3 olika rundstickar. Man börjar arbetet med nr 6. Sen när man gjort lite på halsen ska man byta till nr 7 . Vilken av dom? Den som är 40 lång eller 80 lång? Står nämligen inte vilken jag ska använda Mvh

03.02.2022 - 23:02

DROPS Design answered:

Hej Therese. Då byter du till den korta (40 cm) nr 7. Du byter sedan till den långa när du inte längre får plats med maskorna på den korta. Mvh DROPS Design

04.02.2022 - 13:27

country flag Marti wrote:

Hi again. In addition to my first question, I wanted to add that I am NOT using Drops yarn. However Drops Air has a gauge of 17stitches by 22 rows for 4 inches, for size 8 needles, which when adjusted to the larger needles in the pattern is a gauge of 11 stitches by 14 rows. Certainly not 32. The yoke requires about 70 rows to increase from 60 to 156 stitches for size L. That would make the yoke about 20 inches long at a gauge of 14 rows for 4 inches! I am truly missing something!

22.01.2022 - 16:47

DROPS Design answered:

Hei Marti, When you adjust the needle size and stitch number for a different yarn, you also need to adjust the number of rows. So where the pattern specifies 32 rows, you will need approx. 19 rows. Any increases throughout the pattern over a certain number of rows will also need to be adjusted to the fewer rows you are working. Hope this helps and happy knitting!

24.01.2022 - 08:14

country flag Marti wrote:

I have a question about the gauge.: 11 stitches width per 10 cm seems right, but 32 rows per 10 cm seems way too many. Compare to the pattern Isla which is 11 by 15 respectively. This latter gauge is what I get for Mountain Moraine. I don't understand how the English rib pattern should get twice the number of rows as the stockinette pattern in the Isla vest. thanks

21.01.2022 - 22:42

DROPS Design answered:

DROPS Design: Dear Marti, do not forget that the English rib Mountaine Moraine is knitted with is avtually takes two rows to have one real row (as you slip every other stitch in each row, you actually only knit one stitchin in every second row). Consequently the piece is extra warm, and flexible. Happy Knitting!

24.01.2022 - 00:54

country flag Anita Midtskogsæter wrote:

Hei,hva er riktig rekkefølge å strikke på diagrammene ?. Økningene legger seg riktig bare på ene siden , både på framstykket og bakstykket.

11.12.2021 - 08:49

DROPS Design answered:

Hej Anita. Har du sett våra videor till denna oppskrift? Mvh DROPS Design

13.12.2021 - 08:02

country flag Trudy Koster wrote:

Wil dit graag breien van beneden naar boven ? Kan iemand mij er bij helpen ?steken vehouding

30.11.2021 - 10:48

DROPS Design answered:

Dag Trudy,

Helaas is het voor ons niet mogelijk om patronen aan te passen naar persoonlijke wensen. Misschien is het mogelijk om hulp te vragen bij de winkel waar je het garen hebt gekocht.

01.12.2021 - 11:37