DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Inner Circle

Prjónuð peysa fyrir herra með hringlaga berustykki úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 208-11
DROPS Design: Mynstur u-897
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS KARISMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
600-650-650-650-750-750 g litur 54, beige
100-150-150-150-150-200 g litur 69, ljós grágrænn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4: fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3: fyrir stroff.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.
Allar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR (á við um marglitt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu.

UPPHÆKKUN:
Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt að aftna. Byrjið frá réttu og prjónið garðaprjón þar til prjónaðar hafa verið 11-11-12-13-13-14 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að byrjun á umferð.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 6,8.
Í þessu dæmi eru prjónuð ca 6. og 7. hver lykkja saman.
Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 7. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-116-120-124-128-132 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós grágrænn. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn beige. Prjónið nú stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þart til stykkið mælist ca 4 cm. Prjónið 1 umferð þar sem fækkað er um 16-19-19-20-20-20 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 92-97-101-104-108-112 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-32-36-39-42 lykkjur jafnt yfir = 112-119-133-140-147-154 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Till að flíkin passi betur eru er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verðu hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá UPPHÆKKUN.

BERUSTYKKI:
Nú er prjónað mynstur A.1 (= 7 lykkjur) 16-17-19-20-21-22 mynstureiningar hringinn í umferð (byrjaðu við þína stærð í mynsturteikningu) – sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur hringinn. Þegar allt A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 288-306-342-360-378-396 lykkjur í umferð. Stykkið á nú að mælast ca 23-24-24-24-24-24 cm.

Stærð S: Berustykkið er nú tilbúið – haldið áfram með næsta kafla ALLAR STÆRÐIR að neðan

Stærð M, L og XL berustykki er prjónað áfram þannig:
Prjónið sléttprjón með litnum beige þar til stykkið mælist 25-27-28 cm frá uppfitjunarkanti, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24-24 cm aukið út 14-6-20 lykkjur jafnt yfir = 320-348-380 lykkjur. Haldið áfram með næsta kafla ALLAR STÆRÐIR að neðan.

Stærð XXL og XXXL berustykki er prjónað áfram þannig:
Prjónið sléttprjón með litnum beige þar til stykkið mælist 30-32 cm frá uppfitjunarkanti, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-24 cm aukið út 11-14 lykkjur jafnt yfir og þegar stykkið mælist 27-29 cm aukið út 11-14 lykkjur jafnt yfir = 400-424 lykkjur. Haldið áfram með næsta kafla.

ALLAR STÆRÐIR:
Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 42-46-50-56-60-65 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-92-100-112-120-130 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 60-68-74-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-46-50-56-60-65 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 184-200-220-244-264-288 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (= 92-100-110-122-132-144 lykkjur á milli prjónamerkja bæði á bakstykki og framstykki.
Prjónið sléttprjón hringinn með beige. Þegar stykkið mælist 30-30-30-31-31-31 cm frá skiptingu er prjónuð 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 40 lykkjur jafnt yfir = 224-240-260-284-304-328 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-68-74-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón / sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-76-84-88-92-96 lykkjur í umferð.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjurnar (= mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn með beige. Þgar stykkið mælist 5-3-4-5-5-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með ca 5-4-3-3-2,5-2,5 cm millibili alls 8-10-12-12-14-14 sinnum = 52-56-60-64-64-68 lykkjur. Þegar ermin mælist 45-43-42-41-40-38 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjóna 3.
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affelllingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 49-47-46-45-44-42 cm frá skiptingu og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = beige
symbols = ljós sægrænn
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat
symbols = prjónstefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Inner Circle

Andrea Di Muzio, Italy

Inner Circle

IntreccidiCeci, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 208-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Marie wrote:

Hi thanks, when I started my yoke, I had 119 stitches in the round (size M) is this the correct number? Then, I started A1 Row 1 and 2, I knit all the way through Row 3 I made a YO after every 7 stitches Row 4 i knit though Row 5, I made a YO after every 8 stitches Row 6 I knit through Row 7 i made a YO every 9 stitches row 8 i knit through. Did i go about it the right way? now after my row 8, I have 19 stitches too many ? or did i miss something? thank you so much!

07.03.2024 - 07:39

DROPS Design answered:

Dear Marie, when working the diagram, just repeat all stitches as shown in diagram, ie on 3rd round repeat (YO, K7) all the round; on 5th row, repeat (K8, YO) all the round; on 7th row repeat (YO, K9) all the round, etc. Happy knitting!

07.03.2024 - 08:21

country flag Marie wrote:

How many stitches do you start with when you are at row 9 of the A1 chart if you are in size medium for men/women?

07.03.2024 - 01:14

DROPS Design answered:

Hi Marie, On row 9 in A.1 you should have 97 + 51 = 148 stitches on the round: 17 repeats of A.1 in width x 3 increased stitches in each repeat during the 9 rounds = 51 increased stitches. Happy knitting!

07.03.2024 - 07:05

country flag Maija Kunnari wrote:

Hei, ko. ohjeessa pääntien resorin jälkeen pitää kaventaa 19s, neuloa yksi kerros oikein ja lisätä 22s... Mikä idea on ensin kaventaa ja sitten lisätä...vai onko tässä virhe?

14.02.2024 - 14:24

DROPS Design answered:

Hei, tällä tavoin pääntien reunuksen ja kaarrokkeen rajakohdasta tulee siisti.

03.04.2024 - 17:52

country flag Albrecht wrote:

The measurements in this pattern dont work at all. I made it once in XL and it turned out much to big. I ripped it and worked again in L and it turned out far too small... I wasted over 2 years and now i have a pile of worn out yarn that is not useable anymore. Thanks for nothing.

17.01.2024 - 23:26

country flag Andrea wrote:

Good morning, Is the kinitting tension 21X28=10X10cm intended after blocking (washed and dried)? Thank you

14.09.2023 - 10:00

DROPS Design answered:

Dear Andrea, we don't block anything, but should you have a difference between/after, then just block it - so that you will get the finished measurements in the chart. Happy knitting!

14.09.2023 - 17:10

country flag Diana Hellström wrote:

Hej, har kommit till ärmhålen. Lagt upp 10m på var sida. Markör i mitten. Har stickat runt i 2 cm. Ska jag nu fortsätta sticka runt eller ska man sticka framstycket för sig och bakstycket för sig , alltså dela fram och bakstyckena? och öka 2 m på vardera sida av markören i ärmen? Mvh Diana

15.03.2023 - 18:27

DROPS Design answered:

Hej Diana. Du ska fortsätta att sticka fram- och bakstycket runt (alltså inte dela på de). När fram- och bakstycket är färdigt så stickar du ärmarna. Mvh DROPS Design

16.03.2023 - 10:50

country flag Kari Pauline wrote:

Prøver å strikke Inner Circle genser i størrelse M.Må omtrent gjette meg til det meste med økinger og fellinger. Nesten ikke et tall som er oppgitt som stemmer. Det begynner med at det skal felles til 97 masker. 2 rette og 2 vrange kan jo ikke gå opp i 97.Det siste er at jeg skal øke 40 masker før jeg strikker vrangborden nede på genseren. Har aldri hørt at man øker før man strikker vrangborden på en vanlig genser. Syntes dere bør gå igjennom oppskriften før dere legger den ut.

04.04.2022 - 14:48

country flag Gerda Van Den Bergh-Huibers wrote:

Goedemiddag, ik ben met deze trui nog bezig en moet nog de mouwen. Maar als mijn man hem aan heeft, trekt het onder de armen. Hoe kan ik dit oplossen. Kan ik extra steken opnemen wanneer ik ze onder de arm moet opnemen om weer verder te gaan? Of hoe krijg ik misschien op een andere manier meer ruimte? Ik hoor heel graag een reactie. Vriendelijke groet, Gerda vd Bergh

01.02.2022 - 13:28

DROPS Design answered:

Dag Gerda,

Begrijp ik dat het te strak zit om de arm ter hoogte van de oksel? Ja, dan zou ik inderdaad proberen meer steken onder de arm op te nemen, maar ook vlak daarnaast, zodat de extra steken wat verdeeld zijn.

02.02.2022 - 09:12

country flag Marianne Sandberg wrote:

Jag stickar fram och bakstycke. Jag ska nu sticka slätstickning. När jag kommer till de 8 "nya" maskorna, ska jag sticka dem också eller gör man på ngt annat sätt? MVH: Marianne Sandberg

16.12.2021 - 17:42

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Ja de stickar du i slätstickning som resten av oket. Mvh DROPS Design

17.12.2021 - 08:01

country flag Marianne Sandberg wrote:

Tack för att du svarade så fort! Jag är fortfarande osäker på mönstret 208-11. När jag börjar sticka med 2 färger gör jag ett omslag och därefter 7 maskor varvet ut. Stämmer det? Jag kallar det för första varvet. Nästa varv stickas som vanligt, utan ngn ökning, stämmer det? Tredje varvet stickas 8 maskor och sedan omslag, hela varvet ut. Är det så? MVH: Marianne Sandberg

24.11.2021 - 10:10

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Ja det stämmer. Det du kallar första varvet är alltså där det är en pil och står S (du börjar med 2 färger först senare i diagrammet). Mvh DROPS Design

25.11.2021 - 08:25