DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Delight

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað með köðlum og tvöföldu perluprjóni. Stærð S – XXXL.

DROPS 208-8
DROPS Design: Mynstur me-195
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
750-800-900-950-1050-1150 g litur 39, ísblár
eða notið:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
650-700-750-800-900-950 g litur 11, vatnsblár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
20 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með tvöföldu perluprjóni = 10 x 10 cm.
A.2 til A.4(alls 74-74-74-82-82-82 lykkjur) mælist ca 29-29-29-33-33-33 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir kaðla og tvöfalt perluprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldur mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2, A.3 og A.4). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Á þessu eintaki þá eru lykkjurnar prjónaðar upp meðfram handveg og ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Þetta er gert til að fá betri yfirsýn yfir lengd á ermum. Ef óskað er eftir að prjóna ermarnar stakar og sauma þær síðan á, þá er einfalt að gera það með því að fitja upp jafnmargar lykkjur og lykkjur sem prjóna á upp meðfram handveg og fylgja síðan útskýringu fyrir ermar. Saumið ermarnar í (ermin er sett undir kant með garðaprjóni meðfram handveg, þannig að kanturinn í garðaprjóni sést – saumið í ystu lykkjuna meðfram kanti með garðaprjóni).

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 44 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 4,4. Úrtakan er gerð frá réttu!
Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og 4. og 5. hverja lykkju slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um miðju undir ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman ef þessi lykkja á að vera slétt, eða prjónið 2 lykkjur brugðið saman ef þessi lykkja á að vera brugðin.
Fækkið um 1 lykkju á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman ef þessi lykkja á að vera slétt, eða prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman ef þessi lykkja á að vera brugðin.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp.
Axlasaumar eru saumaðir. Prjónið síðan upp lykkjur meðfram handveg fyrir ermar – sjá LEIÐBEININGAR! Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón þar til ermakúpan er tilbúin, prjónið síðan afgang af ermi í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður til loka.
Að lokum er botninn á handveg saumaður og prjónaður er kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 108-116-124-132-140-156 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine eða Soft Tweed. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í ca 2 cm, en stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Nú byrjar mynstrið. Þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjurnar (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.3 (= 28-28-28-30-30-30 lykkjur), prjónið A.4 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.5 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjur (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur svona.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 1-3-5-7-9-13 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 106-110-114-118-122-130 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg.
Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir miðju 44-44-44-48-48-48 lykkjurnar í umferð – sjá ÚRTAKA-1 = 96-100-104-108-112-120 lykkjur eftir. Í næstu umferð (ranga) eru felldar af miðju 36-36-38-38-40-40 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 29-31-32-34-35-39 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.
Bakstykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 108-116-124-132-140-156 lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine eða Soft Tweed. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkju brugðið *, prjónið þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í ca 2 cm, en stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá réttu.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Skiptið yfir á hringprjón 4,5.
Nú byrjar mynstrið. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjur (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum), prjónið A.2 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.3 (= 28-28-28-30-30-30 lykkjur), prjónið A.4 (= 23-23-23-26-26-26 lykkjur), prjónið A.5 yfir næstu 16-20-24-24-28-36 lykkjur (= 4-5-6-6-7-9 mynstureiningar með 4 lykkjum) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af 1-3-5-7-9-13 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 106-110-114-118-122-130 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en nú með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við handveg.
Þegar stykkið mælist 57-59-61-62-64-66 cm, fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir miðju 44-44-44-48-48-48 lykkjur í umferð = 96-100-104-108-112-120 lykkjur eftir. Í næstu umferð (ranga) eru miðju 20-20-22-22-22-22 lykkjur settar á 1 þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og síðan 1 lykkju 3-3-3-3-4-4 sinnum = 29-31-32-34-35-39 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.

ERMI:
Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið í horni í handvegi í annarri hlið á stykki, þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 76-80-84-88-92-96 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 4,5 með Merino Extra Fine (þ.e.a.s. það á ekki að prjóna upp lykkjur meðfram botni á handvegi) – sjá LEIÐBEININGAR!
Prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 1-2-3-4-5-7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónamerkið merkir hvar á að sauma ermina síðar við botn á handvegi og ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki!
Prjónið síðan ermina í hring. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Haldið áfram með A.1 hringinn yfir allar lykkjur (= 19-20-21-22-23-24 mynstureiningar með 4 lykkjum). Þegar ermin mælist 3-2-3-2-3-2 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2.
Fækkið lykkjum svona með 3-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 54-53-52-51-50-48 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm.
Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 57-57-57-57-57-57 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur. Saumið ermar í við botn á handveg frá prjónamerki og inn að horni í hvorri hlið.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu (á stuttan hringprjón 3,5) ca 80 til 94 lykkjur í kringum hálsmál – meðtaldar lykkjur af þræði að framan.
Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út jafnt yfir til 90-92-94-96-100-102 lykkjur. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 27.01.2023
Leiðrétting í stroffi: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju brugðið af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Delight

KatTheKat

Winter Delight

Marida_knits, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 208-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Nicole BUISSON wrote:

Bonjour Le diagramme A2 ne correspond pas à l'explication de la torsade Celle-ci est expliqué sur 6 mailles alors que sur le diagramme il y a 9 maillesf Pourriez vous m'aider En vous remerciant Cordialement

11.02.2023 - 16:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Buisson, cette torsade se tricote effectivement sur 6 mailles, mais vous tricoterez la torsade soit sur les 6 premières des 9 mailles jersey, soit sur les 6 dernières de ces mêmes 9 mailles jersey; autrement dit , tricotez le 3ème rang de A.2 ainsi: torsade sur 6 m, 3 m end; puis celle du 9ème rang ainsi: 3 m end, torsade sur 6 m (attention à bien suivre le symbole correspondant à chaque fois). Bon tricot!

13.02.2023 - 09:05

country flag Cornelia wrote:

The pattern for A2 S-M-L is suddenly dissapeared from the site! Can you please restore that?

17.11.2022 - 12:53

DROPS Design answered:

Dear Cornelia, it looks like diagrams are back - if you can't see them, try to refresh the page, clean the cache/cookies and try again, it should work. Happy knitting!

17.11.2022 - 16:08

country flag Cornelia wrote:

Opeens zijn een paar onderdelen van het patroon verdwenen? A2 voor s-M en L wordt niet meer weergegeven? En ik ben net met het voorpand begonnen, dus dit is wel een probleem!!!

17.11.2022 - 12:35

DROPS Design answered:

Dag Cornelia,

Het kan zijn dat de pagina tijdelijk niet goed wou laden. Heb je inmiddels het patroon in beeld kunnen krijgen. Anders eventueel even proberen met Shift + F5 of een andere browser.

20.11.2022 - 17:50

country flag Simona wrote:

DROPS Design, thank you for your reply, I could write a question at the beginning in English :) No worry, I already figured out the pattern and finished the front/back of the sweater already :) Thank you again

16.11.2022 - 14:46

country flag Simona wrote:

Dobry den, nerozumiem ako mam zacat uberat ocka na priekrcnik. V navode sa uvadza, ze nad prostrednymi 44 ockami mam ubrat 10 ok - prostrednych 44 ociek mi zasiahne aj do schemy A4, A2 a teda ju narusim. Ked si ale porovnam sveter z ilustracneho obrazka, schema A4 a A2 pokracuje az na ramena. Nie je v navode chyba? Dakujem

13.09.2022 - 14:54

DROPS Design answered:

Hi, if you can write your question in English, we can try to help you :)

16.11.2022 - 13:46

country flag Dolores wrote:

Buenos dias, me gustaria saber si me pueden ayudar a realizar este modelo en agujas numero 7, o sea el doble de la que aparecen aqui, desde ya muchas gracias.

04.07.2022 - 16:01

DROPS Design answered:

Hola Dolores, nosotros no hacemos patrones personalizados. El dibujo de trenza queda mejor con agujas más finas, por lo que la mayoría de nuestros modelos van a usar agujas de menos de 7. Puedes intentar hacer una muestra con aguja de 7mm, comparar con la tensión del patrón y ajustar las cuentas como se explica a continuación:https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=25&cid=23.

04.07.2022 - 19:04

country flag Annamaria wrote:

Salve vorrei creare questo modello, consigliate di usare i ferri circolari ma io preferisco i ferri diritti, ma seguendo i diagrammi non capisco come lavorare i ferri a rovescio? Grazie per la vostra risposta

07.01.2022 - 03:23

DROPS Design answered:

Buonasera Annamaria, questo modello è lavorato in piano con i ferri circolari, quindi può seguire le stesse spiegazioni anche utilizzando i ferri dritti. Buon lavoro!

07.01.2022 - 16:47

country flag Marianne wrote:

In het patroon staat:" 1 recht onder de volgende steek". Ik snap niet wat ik moet doen. Kunt u dat uitleggen

21.11.2021 - 13:46

DROPS Design answered:

Dag Marianne,

Je steekt dan de naald niet in de volgende steek op de linker naald, maar in de steek die 1 rij daaronder zit. In onderstaande video kun je zien hoe dat precies in zijn werk gaat.

23.11.2021 - 10:59

country flag Daniela wrote:

Buongiorno per lavorare questo modello in circolare e non avanti e indietro. cosa bisogna fare per adattare lo schema? Grazie

19.09.2021 - 16:12

DROPS Design answered:

Buongiorno Daniela, questo modello è stato progettato per la lavorazione in piano anche per dare una struttura maggiore al capo: se volesse lavorarlo in tondo, deve togliere le maglie di vivagno e riadattare la lavorazione dei motivi alla lavorazione in tondo. Buon lavoro!

20.09.2021 - 09:26

country flag MARTIN Véronique wrote:

Bonjour, La stature de mon cousin est de 157 cm. Pensez-vous que la taille S correspondrait pour lui ? D'avance merci.

23.03.2021 - 07:48

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martin, l'idéal est de mesurer un pull qu'il a et dont il aime la forme et de comparer ces mesures avec celles du schéma; vous trouverez ainsi plus facilement la bonne taille. Retrouvez plus d'infos sur les tailles et les schémas ici. Bon tricot!

23.03.2021 - 08:26