DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 1.81 € /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 2.13 € /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 28.43€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

White Comfort Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Snow og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað með djúpu v-hálsmáli og vösum. Stærð XS - XXL.

DROPS 213-29
DROPS Design: Mynstur ee-690
Garnflokkur E + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
550-600-650-700-750-850 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-125-125-125-150-150 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
7 lykkjur á breidd og 10 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS PRJÓNAR NR 15: fyrir sléttprjón.
DROPS PRJÓNAR NR 12: fyrir kanta í perluprjóni neðst niðri á bakstykki og framstykki.
DROPS PRJÓNAR NR 10: fyrir kanta í perluprjóni neðst niðri á ermum.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 540: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 1.81 € /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 2.13 € /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 28.43€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

MÆLING:
Öll mál á breiddina eru gerð þegar stykkið liggur flatt án þess að strekkja á því.
Öll mál á lengdina eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of síð við notkun.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli innan við 4 kantlykkjur í perluprjóni (A.1). Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 4 kantlykkjum þannig:
Byrjið 2 lykkjum á undan A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 kantlykkjur í A.1 eins og áður (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á eftir 4 kantlykkjum þannig:
Prjónið 4 kantlykkjur í A.1 eins og áður, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Aukið út innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, til skiptis í byrjun og í lok umferðar eins og útskýrt er í uppskrift. Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð, prjónið uppsláttinn snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Bakstykki, framstykki og ermar er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp. Stykkið er saumað saman á öxlum, ermar eru saumaðar í og saumar undir ermum og hliðarsaumar eru saumaðir í eitt niður að klauf í hvorri hlið. Kraginn er saumaður saman mitt að aftan og saumaður að hálsmáli aftan í hnakka. Að lokum eru prjónaðir tveir vasar sem saumaðir eru á framstykkin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 35-37-41-43-47-51 lykkjur á prjón 12 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka á 4 prjóna (= 1. umferð = rétta).
Skiptið yfir á prjón 15. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm – sjá MÆLING, fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 29-31-33-35-37-39 lykkjur eftir.
Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 71-74-77-80-83-86 cm fellið af miðju 5-5-7-7-7-9 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Prjónið áfram eins og áður og fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 11-12-12-13-14-14 lykkjur eftir.
Þegar 1 umferð er eftir þar til stykkið mælist 74-77-80-83-86-89 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.
Bakstykkið mælist ca 74-77-80-83-86-89 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 21-22-24-25-27-29 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á prjón 12 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka í 4 umferðir (1. umferð = rétta).
Skiptið yfir á prjón 15. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu lykkjurnar (= kantur að framan), prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni og endið með 1 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið. Haldið áfram fram og til baka svona.
Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli og fækkið um 1 lykkju eftir 4 kantlykkjur að framan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-5 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á fyrstu umferð frá röngu.
Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handveg eru 15-16-16-17-18-18 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram með 4 kantlykkjum að framan í A.1, sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið.
Þegar eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 74-77-80-83-86-89 cm, prjónið sléttar lykkjur frá röngu yfir fyrstu 11-12-12-13-14-14 lykkjurnar, haldið síðan áfram með A.1 yfir 4 kantlykkjur að framan. Snúið stykkinu, prjónið A.1 yfir 4 kantlykkjur að framan og fellið af þær 11-12-12-13-14-14 lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá. Framstykkið mælist ca 74-77-80-83-86-89 cm frá öxl og niður.
Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
= 4 lykkjur. Haldið eftir lykkjum á prjóni 15. Setjið 1 prjónamerki. Haldið áfram með A.1 fram og til baka þar til kantur í hálsmáli mælist ca 8 til 11 cm frá prjónamerki – leggið kant í hálsmáli meðfram hálsmáli að miðju aftan í hnakka til að ákveða lengdina, strekkið aðeins á kantinum. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 21-22-24-25-27-29 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan við miðju að framan) á prjón 12 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka í 4 umferðir (1. umferð = rétta).
Skiptið yfir á prjón 15. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð og haldið áfram með A.1 yfir 4 síðustu lykkjurnar (= kantur að framan). Haldið áfram fram og til baka svona.
Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli og fækkið um 1 lykkju eftir 4 kantlykkjur að framan – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6. hverri umferð alls 3-3-4-4-4-5 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af 3-3-4-4-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á fyrstu umferð frá réttu.
Eftir allar úrtökur fyrir v-hálsmáli og handveg eru 15-16-16-17-18-18 lykkjur eftir í umferð. Prjónið síðan með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið við handveg, sléttprjón og 4 kantlykkjum að framan í A.1.
Þegar eftir er 1 umferð þar til stykkið mælist 74-77-80-83-86-89 cm, prjónið næstu umferð frá röngu þannig: Haldið áfram með A.1 yfir 4 kantlykkjur að framan og prjónið sléttar lykkjur frá röngu yfir þær 11-12-12-13-14-14 lykkjur sem eftir eru. Snúið stykkinu, fellið af fyrstu 11-12-12-13-14-14 lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu og prjónið A.1 yfir 4 kantlykkjur að framan. Klippið frá. Framstykkið mælist ca 74-77-80-83-86-89 cm frá öxl og niður. Prjónið síðan kant í hálsmáli á sama hátt og á hægra framstykki.

ERMI:
Fitjið upp 17-17-18-19-19-20 lykkjur á prjón 10 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í 3 cm.
Skiptið yfir á prjón 15 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 6-6-7-7-8-8 cm, aukið út um 1 lykkju í byrjun á umferð – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu til skiptis í lok umferðar og í byrjun á umferð með 5-4-3½-3½-2½-2½ cm millibili alls 4-5-5-5-6-6 sinnum í hvorri hlið = 25-27-28-29-31-32 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 45-45-42-42-40-38 cm. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi – prjónamerkin merkja hvar botninn á handveg byrjar. Prjónið síðan með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til öll ermin mælist 49-49-48-48-47-47 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina ermina á sama hátt. Á mynd höfum við brotið aðeins uppá ermarnar.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í og saumið botninn á handveg – prjónamerkin sem sett voru í eiga að passa við hliðar á fram- og bakstykki.
Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði flatur, en endið sauminn þegar eftir eru ca 25 til 30 cm neðst niðri í hvorri hlið á framstykki/bakstykki (= klauf).
Saumið kanti í hálsi saman mitt að aftan með lykkjuspori, en passið uppá að saumurinn snúi inn. Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið tölur í vinstri kant að framan – efsta talan er saumið ca 1 til 2 cm fyrir neðan þar sem v-hálsmálið byrjar og næsta tala er saumuð ca 12 til 14 cm fyrir neðan efstu tölu.
ATH: Til að tölurnar sitjið fallega í hnappagatinu, hneppið hverja tölu í gegnum lykkju í hægri kanti að framan, þ.e.a.s. ekki er fellt af fyrir hnappagötum.

VASI:
Fitjið upp 15-15-17-17-19-19 lykkjur á prjón 15 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur þar til vasinn mælist ca 23-23-23-25-25-25 cm. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Felið af með sléttum lykkjum frá réttu. Vasinn mælist ca 26-26-26-28-28-28 cm á hæðina.
Prjónið hinn vasann á sama hátt.

Saumið einn vasa á hvort framstykki, ca 11-13-15-15-17-19 cm frá neðri kanti og ca 5-5-6-7-7-8 cm inn frá miðju að framan (mátið e.t.v. peysuna og stillið staðsetningu vasa eftir eigin ósk.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Corina wrote:

Hi, I would like to know how much Drops Snow should be used for size XS if I decided to only use this yarn in needle size 10? Would 700g be enough?

14.12.2023 - 17:26

DROPS Design answered:

Dear Corina, to get the correct finished measurements for your size as in the chart, you should have the correct tension; if you like to get with another tension you will have to recalculate the whole piece following your own tension; you can also find similar patterns with the correct tension, see here for example. Happy knitting!

15.12.2023 - 08:11

country flag Astrid Rui wrote:

Hva menes med å legge opp med 1 tråd i hver kvalitet?

14.09.2021 - 21:29

DROPS Design answered:

Hei Astrid. Denne jakken strikkes med 2 kvaliteter, 1 tråd DROPS Snow og 1 tråd DROPS Brushed Alpaca Silk. Når du legger opp, legger du opp med 1 tråd Snow og 1 tråd Brushed Alpaca Silk = 2 tråder. mvh DROPS design

15.09.2021 - 15:28

country flag Amanda Marcucci wrote:

Morning! How many balls of yarn are required? Im using Eskimo.

04.12.2020 - 13:04

DROPS Design answered:

Dear Mrs Marcucci, DROPS Snow is the new name for DROPS Eskimo so that you will find matching amount of yarn for each size in grams, eg. 550 g DROPS Snow/Eskimo /50 g a ball = 11 balls DROPS Snow/Eskimo + 100 g /25 g the ball DROPS Brushed Alpaca Silk = 4 balls in size XS. Happy knitting!

04.12.2020 - 16:30

country flag Alison wrote:

Pattern says to use 1 stand of each quality (2 strands) but not clear if this is just for the edges or whole garment and also whether it means 2 strands one of eAch type of wool? Not sure If there will be enough wool. I have bought the drops wools specified for the pattern

10.08.2020 - 20:15

DROPS Design answered:

Hi Alison, The whole garment is worked with 1 strand of each quality. Happy knitting!

11.08.2020 - 07:15

country flag Margareta Westling wrote:

Fått svar från er att jag ska använda rundstickor nr.10,12 och 15 till mönster 213-29.Men går det inte att använda vanliga stickor i aluminium och i så fall vilka mm. ska jag använda. Mvh Margareta Westling

21.05.2020 - 11:09

DROPS Design answered:

Hej Margareta. Ja du kan använda vanliga parstickor istället om du hellre vill det. Det är samma nr du ska använda på parstickor dvs 10.00, 12.00 och 15.00 mm. Mvh DROPS Design

22.05.2020 - 08:10

country flag Jo Ann wrote:

Hallo. Könnte man an die jacke eine Kapuze anstricken? Und wenn ja wie viele Maschen müsste ich am Hals aufnehmen? Dankeschön

19.05.2020 - 08:48

DROPS Design answered:

Liebe Jo Ann, wir können leider nicht jede Anleitung nach jedem indiviudellen Wunsch umrechnen aber hier finden Sie Modellen, die Sie inspierieren können. Gern wird Ihnen Ihr DROPS Laden weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

19.05.2020 - 09:11

country flag Margareta Westling wrote:

Ska sticka kofta nr.213-29 och undrar om Drops Eskimo ljusrosa och Drops brushed Alpacka Silk dovt rosa passar ihop .Vidare hittar inte dom sticknr.ni föreslår när jag går in på Drops stickor.Har massa stickor hemma så vad motsvar Drops nummer vanliga stickor?

14.05.2020 - 17:54

DROPS Design answered:

Hei Margaretha. Personlig syns jeg Drops Eskimo ljusrosa og Drops Brushed Alpacka Silk dovt rosa passer fint sammen, men dette er en personlig smak. Usikker på hva du mener med vanlige pinner. Vi har standard pinner størrelser som brukes i hele strikkeverden. I denne oppskrifter en det oppgitt str. 10,12 og 15 og dette finner du i vårt sortiment, se underDROPS Basic Rundpinne 60 eller 80 cm str 10, 12 og 15. God Fornøyelse!

18.05.2020 - 14:24

country flag Karen wrote:

Hvilke pinde skal jeg beregne strikke fast hed

23.04.2020 - 20:45

DROPS Design answered:

Hej Karen, du skal bruge pind nr 15 til at få 7 masker glatstrik i bredden. God fornøjelse!

24.04.2020 - 09:56

country flag Marcin wrote:

Nice pattern!

31.01.2020 - 11:08

country flag Kersti H-B Lycke wrote:

Kose plagg

02.01.2020 - 14:11