DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 3.62 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18.10€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Seaside Watcher

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað með gatamynstri og blöðruermum. Stærð XS - XXL.

DROPS 212-43
DROPS Design: Mynstur ai-251
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 24, bleikur

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 3.62 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18.10€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3).
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 100 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 9,09. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 8. og 9. hverja lykkju og 10. og 11. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 lykkju í hvorri hlið á stykki (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig. Fellið af lykkjur fyrir handveg og hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón. Prjónaður er kantur í hálsi þegar stykkið hefur verið saumað saman.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 88-94-100-106-115-124 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff með byrjun frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju garðaprjón.
Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 11-11-11-11-12-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 77-83-89-95-103-113 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 4-4-4-5-6-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 69-75-81-85-91-101 lykkjur.
Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 41-43-45-47-49-51 cm, setjið miðju 37-37-39-39-41-41 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 16-19-21-23-25-30 lykkjur eftir á hvorri öxl.

HÆGRI ÖXL:
Haldið áfram með sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Fellið af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá röngu) þannig:
Fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 14-17-19-21-23-28 lykkjur.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið á sama hátt og hægri öxl, en þegar felldar eru lykkjur af fyrir öxl, fellið af í byrjun á hverri umferð frá réttu.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 87-93-99-105-114-123 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið á stykki) á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff með byrjun frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 1 lykkja slétt * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 kantlykkju garðaprjón.
Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 10-10-10-10-11-10 lykkjur jafnt yfir = 77-83-89-95-103-113 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið síðan mynstur þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 0-3-6-9-9-14 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 11 lykkjur), A.2 (= 10 lykkjur), A.3 (= 33-33-33-33-41-41 lykkjur), A.2 yfir 10 lykkjur, A.1 yfir 11 lykkjur, 0-3-6-9-9-14 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkju garðaprjón.
Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af 4-4-4-5-6-6 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 69-75-81-85-91-101 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og áður, ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð áfram í garðaprjóni.
Þegar stykkið mælist 38-39-41-42-43-44 cm, (stillið af að það verði fallegt miðað við mynstur), setjið miðju 33-33-33-33-41-41 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli í næstu umferð frá réttu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 18-21-24-26-25-30 lykkjur á hvorri öxl.

HÆGRI ÖXL:
Haldið áfram með sléttprjón, A.1 og A.2 eins og áður, ysta lykkjan í hvorri hlið er núna prjónuð í garðaprjóni. Fellið af fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli (þ.e.a.s. í byrjun á hverri umferð frá réttu) þannig: Fellið af 2 lykkjur 1-1-1-1-0-0 sinnum, síðan 1 lykkju 2-2-3-3-2-2 sinnum = 14-17-19-21-23-28 lykkjur. Í stærð XS-S-M-L er ekki prjónað lengur gatamynstur í A.2, en haldið er áfram með brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Í stærð XL-XXL heldur mynstrið áfram eins og áður. Ystu lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni.
Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið á sama hátt og hægri öxl, en þegar lykkjur eru felldar af fyrir hálsmáli, fellið af í byrjun á hverri umferð frá röngu.

ERMI:
Fitjið upp 35-35-38-38-41-41 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja garðaprjón í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með Air.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan frá réttu þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Þegar stroffið mælist 5 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og aukið út þannig:
Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 4-3-4-4-6-5 slétt, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5-4-5-5-7-6 lykkjur eru eftir, 4-3-4-4-6-5 lykkjur slétt og 1 kantlykkja garðaprjón = 60-62-66-66-68-70 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Skiptið yfir á hringprjón 5,5.
Prjónið síðan mynstur þannig: Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, 24-25-27-27-28-29 lykkjur sléttprjón, A.2 yfir næstu 10 lykkjur, 24-25-27-27-28-29 lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja garðaprjón.
Endurtakið A.2 á hæðina.
Þegar ermin mælist 10 cm, aukið út 0-0-0-1-1-1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 8 cm millibili alls 0-0-0-2-2-3 sinnum = 60-62-66-70-72-76 lykkjur.
Þegar ermin mælist 47-47-47-46-44-42 cm frá uppfitjunarkanti, setjið 1 prjónamerki innan við 1 kantlykkju í byrjun á næstu umferð – prjónamerki merkir hvar botninn á handveg byrjar. Prjónið þar til ermin mælist alls 50-50-50-49-48-46 cm.
Fellið af – sjá AFFELLING!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermasauminn saman, en skiljið eftir 3-3-3-3-4-4 cm efst á ermi (þ.e.a.s. að prjónamerki á ermi).
Saumið efst á ermi við botninn á handveg og saumið síðan ermina við fram- og bakstykki.
Saumið hliðarsaum innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu ca 75 til 96 lykkjur í kringum hálsmál. (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 3) á stuttan hringprjón 4,5 með Air.
Passið uppá að kanturinn í hálsi verði ekki of stífur eða of laus miðað við hálsmál á peysu.
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = lyftið 2 lykkjum eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónið 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið lykkjuna slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem var prjónuð af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Seaside Watcher

Renate Heinz, Germany

Seaside watcher

Malin, Norway

Seaside Watcher

Vanina Vadi, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Alain CHAGOT wrote:

Modèle Drop 212-43. Je suis surprise par la dimension des manches. Plus la taille est grande, plus les manches sont courtes. Est-ce normal ? Merci pour votre réponse.

28.12.2023 - 12:06

DROPS Design answered:

Bonjour, oui c'est normal. C'est parce que les epaules sont plus larges dans les tailles plus grandes. Vous pouvez bien sur ajuster la longueur des manches a vos besoins. Bon tricot!

28.12.2023 - 13:40

country flag Malgorzata wrote:

Co to znaczy 39 oczek srodkowych na nitke na dekold w nastepnym rzedzie na prawej stronie robotki i konczyc kazde ramie osobno

17.09.2023 - 10:45

DROPS Design answered:

Witaj, na podanej wysokości przerobić oczka prawego ramienia na prawej stronie robótki. Zdjąć na nitkę 39 o. środkowych na dekolt. Przerabiać najpierw oczka prawego ramienia, czyli w kolejnym rzędzie (na lewej stronie) zamknąć 1 o. na początku rzędu. Przerobić do końca rzędu, przerobić rząd na prawej stronie i w kolejnym rzędzie (na lewej stronie) zamknąć 1 o. na początku rzędu. Przerabiać dalej (bez zamykanie o.) i zakończyć ramię, gdy długość tyłu od rzędu nabierania o. wynosi X cm (patrz cyfrę dla swojego rozmiaru). Teraz przerabiać lewe ramię (dołączyć nową nitkę i zacząć na prawej stronie robótki, czyli od strony dekoltu). Pozdrawiamy!

18.09.2023 - 08:30

country flag Benamer wrote:

Merci pour votre réponse Cordialement

13.02.2023 - 13:36

country flag Benamer Noura wrote:

Bonjour modele 21243 que veut dire A.2 au-dessus des 10 mailles suivantes, A.1 au-dessus des 11 mailles suivantes

11.02.2023 - 17:24

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Benamer, comme pour A.2 (cf réponse ci-dessous), cela signifie pour A.1 que vous devrez tricoter les 11 mailles suivantes comme indiqué dans le diagramme A.1. Bon tricot!

13.02.2023 - 09:09

country flag Benamer wrote:

Bonjour que veut dire tricoter A.2 au-dessus des 10 mailles suivantes,

11.02.2023 - 17:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Benamer, cela signifie que vous devez tricoter les 10mailles suivantes en suivant le diagramme A.2. Bon tricot!

13.02.2023 - 09:08

country flag Christa Lee wrote:

Hi, about the neckline, the instruction says that it needs to be picked up 75 to 96 stitches. But the stitches, front and back, that are on the holders have already made up 70 stitches. How can I just pick up 5 to 26 stitches for the two shoulders, front and back ? Can I pick up more stitches than 96 ? I have counted mine and expected to pick up about 50 stitches without counting those on the holders. So it would be around 120 stitches in total for the neckline. Is it ok ?

03.01.2023 - 00:57

DROPS Design answered:

Hi Christa, The stitches around the neck are mainly made up of the front and back pieces, with the 70 stitches on the threads. The remaining stitches are picked up by the shoulder seams, where you don't need many stitches, just enough to avoid holes and make a neat neckline. Happy New Year!

03.01.2023 - 06:50

country flag Diana wrote:

Hallo, vielen Dank für die tolle Anleitung! Das Muster ist ganz zauberhaft. Werden die Ärmel nicht in Runden gestrickt? Also, in Hin-und Rückreihen und danach zusammengenäht? Vielen Dank

01.11.2022 - 13:32

DROPS Design answered:

Liebe Diana, richtig, die Ärmel werden in Hin- und Rückreihen gestrickt dann zusammengenäht. Viel Spaß beim stricken!

01.11.2022 - 15:49

country flag Rita wrote:

Going back to the shoulder Cast off! of the Seaside watcher jumper so, if i am casting off from the wrong side 2 stitches each time , whatever i am left with after the overall length i Just cast off the remaining stitches. Thanks Rita

29.10.2022 - 18:36

DROPS Design answered:

Dear Rita, when you have cast off the 37 middle stitches you finish each shoulder separately casting off 1 st at the beginning of next 2 rows from neck (= at the beg. of row from the right side for the left shoulder). Thee are now 17 sts left, cast off these sts when piece measures 50 cm. Work the 2nd shoulder the same way, casting off for the right shoulder 1 stitch at the beginning of next 2 rows from the wrong side. Happy knitting!

31.10.2022 - 08:40

country flag Rita wrote:

Hi there Can u clarify the Right Shoulder From the CAST OFF. I'm knitting the back of the jumper Seaside Watcher. Iv casted off the 1 stitch 2 times, leaving 17sts. Prior to that the sentence reads I have 2 cast off on Every Row at the neck side. I do no what this means Exactly. Tks Rjta

26.10.2022 - 17:43

DROPS Design answered:

Dear Rita, after you have casting off the middle 37 sts (size M) for neck on back piece, you continue each shoulder separately, then cast off at the beginning of every row from neck 1 stitch 2 times (this means you cast off at the beg of every row from WS for the right shoulder (and then later from RS for the left shoulder), and continue working until piece measures 50 cm then cast off and work 2nd shoulder the same way. Happy knitting!

27.10.2022 - 09:43

country flag Raquel wrote:

Hola!como puedo recoger solo 96 puntos en escote si solo en descanso hay 72? Queda un hueco muy grande de escote por los 12cm de hombros(tallaL). O son 96 delante y 96 detras?

09.04.2022 - 18:02

DROPS Design answered:

Hola Raquel, la cantidad de puntos a recoger es aproximada (por eso dice entre 75 y 96 puntos). Dependiendo de la tensión del tejido puedes haber trabajado más o menos vueltas en el escote. Lo importante es que recojas puntos repartidos, que la cenefa del escote no quede tensa y que el número de puntos recogidos en total sea divisible entre 3 (debido al patrón del elástico).

09.04.2022 - 18:47