DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 1.26 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7.56€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Alberta Rose Jacket

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, blaðamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-6
DROPS Design: Mynstur e-301
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S – M – L – XL – XXL – XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-400-400-450 g litur 56, dauf bleikur

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 2,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 7-7-7-8-8-8 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 1.26 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7.56€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll útaukning er gerð í umferð frá réttu.
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 257 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 64) = 3,79.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur brugðið saman og prjónið 2 síðustu lykkjurnar slétt. Í næstu umferðer uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7-7½-7-7-7½ cm millibili.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 123-131-139-139-143-155 lykkjur (meðtaldar 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið (= kantur að framan), A.1 (= 1 lykkja), A.2 (= 4 lykkjur) þar til 7 lykkjur eru eftir (= 27-29-31-31-32-35 sinnum á breidd), yfir kant að framan eru prjónaðar 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Þegar fyrstu 6 umferðirnar af mynstri hafa verið prjónaðar, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Haldið áfram með mynstur eins og áður eins og útskýrt er í A.2. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 231-247-263-325-335-365 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki.
Í næstu umferð frá réttu er prjónað þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið yfir kant að framan eins og áður, A.3 (= 1 lykkja), A.4 (= 8-8-8-10-10-10 lykkjur) þar til eftir eru 15-15-15-17-17-17 lykkjur (= 26-28-30-30-31-34 sinnum á breidd), A.5 (= 8-8-8-10-10-10 lykkjur), yfir kant að framan, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.3 til A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 337-361-385-447-461-503 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 16-16-16-21-21-21 cm frá prjónamerki. Haldið áfram í sléttprjóni og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur á kanti að framan þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið yfir fyrstu 53-56-59-69-71-80 lykkjur, setjið næstu 70-74-80-93-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-8-12-10 lykkjur undir ermi, prjónið 91-101-107-123-131-147 lykkjur, setjið næstu 70-74-80-93-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-8-12-10 lykkjur undir ermi og prjónið yfir síðustu 53-56-59-69-71-80 lykkjur.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 213-229-245-277-297-327 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 57-60-64-73-77-85 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 99-109-117-131-143-157 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum.
Haldið áfram í sléttprjóni og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur yfir kantlykkjur að framan eins og áður.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu fyrir berustykki, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 7 sinnum = 241-257-273-305-325-355 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-26-27-27-27-27 cm frá skiptingu (eða að óskaðri lengd, þar til ca 4 cm eru að loka máli). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út 62-64-66-67-68-68 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður) – sjá ÚTAUKNING-2 = 303-321-339-372-393-423 lykkjur.
Þetta er gert til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjónast dragist saman.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið næstu umferð frá röngu þannig:
Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt yfir kant að framan eins og áður,* 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og yfir kant að framan eru prjónaðar 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eins og áður.
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING.

ERMI:
Setjið 70-74-80-93-94-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-8-12-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-82-90-101-106-108 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-8-12-10 nýjar lykkjur undir ermi.
Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki.
Prjónið í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 9-10-13-17-18-18 sinnum = 60-62-64-67-70-72 lykkjur.
Þegar ermin mælist 30-28-28-26-25-23 cm frá skiptingu, aukið út 6-7-8-5-8-6 lykkjur jafnt yfir = 66-69-72-72-78-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjurnar. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 34-32-32-30-29-27 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.03.2020
Leiðrétting: Leiðrétting á villu í 4. umferð í mynsturteikningu A.4 og A.5 í stærð XL, XXL, XXXL.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = prjónið 4-4-4-5-5-5 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 0-0-0-1-1-1 lykkjur slétt í sömu lykkju og sleppið lykkjunni af prjóni
symbols = prjónið 7-7-7-9-9-9 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni af vinstra prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju * , prjónið frá *-* alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, sleppið lykkjunni sem var prjónuð af prjóni
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn

symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið yfir 2 lykkjum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið báðum lykkjunum sem lyftar voru yfir lykkjuna sem var prjónuð

symbols = prjónið 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem var prjónuð af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið lykkjunni af prjóni
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Eva Persson wrote:

Jag har börjat med med halskant ,lagt upp 143 maskor (xxl) och börjat med mönstret ...7 kantmaskor ,mönster A1 + A2 = 5 maskor ,och man ska göra detta 32 gånger på bredden ....det kan väl inte stämma .antalet maskor räcker inte ?

13.09.2023 - 13:41

DROPS Design answered:

Hei Eva. A.1 = 1 maske og den skal bare strikkes 1 gang slik at starten og slutten på jakken blir 1 rettmaske før/etter stolpen. Altså strikk: Stolpen over 7 masker (2 rett, 2 vrang, 1 rett, 2 vrang), deretter A.1 (= 1 maske), så strikk A.2 (= 4 masker) til det gjenstår 7 masker (= A.2 32 ganger i bredden i str. XXL). Over stolpen strikkes 2 vrang, 1 rett, 2 vrang, 2 rett. mvh DROPS Design

18.09.2023 - 12:59

country flag Majolie wrote:

Dans le diagramme A3, je dois tricoter la maille 4 fois. Donc si je fait ainsi 1 maille endroit sans lâcher la maille de l’aiguille gauche, 1 jeté, je tricote la même maille et je fais 1 jeté et je dois lâcher la maille de l’aiguille gauche. Ma jeté que j’ai faite sans tricoter la maille fait très bizarre. Suis-je dans l’erreur car il doit avoir 4 mailles sur mon aiguille droite et si je la tricote j’en aurais 5.

10.07.2023 - 02:31

DROPS Design answered:

Bonjour Majolie, vous devez tricoter 4 fois la même maille, autrement dit augmenter 3 mailles ainsi: tricotez 1 m à l'end, faites 1 jeté, tricotez la même maille encore 1 fois à l'endroit et faites encore 1 jeté puis lâcher la maille de l'aiguille gauche et continuez le rang. Bon tricot!

25.08.2023 - 09:51

country flag Martine wrote:

En ce qui concerne la boutonnière, j’ai 2m end , 2m env , 1m end , 2m env pour la bordure. De l’autre côté j’ai 2m env , 1m end , 2m env , 2m end. Donc dans le patron de la boutonnière c’est écrit jusqu’à ce qu’il reste 4 m. , faire une jetée, tricoter 2 m ens à l’endroit et tricoter les 2 dernières m. à l’endroit. Donc ça ne fonctionne pas car j’ai des mailles aussi à l’envers . Merci de prendre le temps de me répondre.

04.06.2023 - 12:41

DROPS Design answered:

Bonjour Martine, les boutonnières se tricotent en fin de rang sur l'endroit (bordure devant droit = 2 m env, 1 m end, 2 m env, 2 m end. Tricotez jusqu'à la fin du rang, tricotez ensuite: 2 m env, 1 m end, il reste 4 mailles sur l'aiguille gauche; tricotez ensuite les 2 m suivantes à l'endroit (vous pouvez aussi les tricoter à l'envers si vous préférez ), et terminez par 2 mailles endroit. Bon tricot!

05.06.2023 - 10:12

country flag Alecia Flores wrote:

I figured out my mistake - I missed the bit about ALL the rows from the right.

17.04.2023 - 04:07

country flag Alecia Flores wrote:

The instructions state the gauge is 30 rows = 4"; in the yoke, they show after completing A1&A2 once, the piece measures 2", from the marker on row 6; my problem is my piece measures ~3.25" after 32 rows & my gauge is accurate. I'm supposed to have 247 stitches, but I only have 218, & I haven't started A5 yet. I don't know how to fix this, at 2" I would only have 189 sts. at most.

15.04.2023 - 22:59

DROPS Design answered:

Dear Alecia, the gauge is calculated in stocking stitch, while you are working A.1 and A.2, which is mostly a rib pattern. So both gauges shouldn't match. The increases are indicated in A.2 so, as long as you complete the charts you should have the correct number of stitches. The relevant part is that you should have the correct number of stitches after having completed the charts. A.1 and A.2 are only 20 rows, so you should measure the garment from the marker after having worked these 20 rows of the charts in total. Please indicate the measurement at this point (from the marker) so that we can help you more. Happy knitting!

16.04.2023 - 18:51

country flag Alecia Flores wrote:

I'm trying to make the medium size, I cast on 131 stitches, but the numbers didn't work; I'm supposed to do 29 repeats of A1+A2, 29x5=145, plus 7 on each side = 159. HELP!!

12.04.2023 - 01:00

DROPS Design answered:

Hi Alecia, You have the 7 stitches on each side, as you say, which leaves you with 117 stitches for the pattern, then you work A.1 (which is not repeated), leaving you with 116 stitches for the repeats of A.4 (4 x 29). Hope this helps and happy knitting!

12.04.2023 - 06:53

country flag Hilde Brenk wrote:

Strikker i str. M og følger oppskriften men det stemmer dårlig med maskeantall. Måtte ha 134(131står i oppskriften) for å få mønsteret til å stemme men når jeg var ferdig med A1 og A2 hadde jeg bare 230 masker. Er det noe feil i oppskriften?

05.06.2022 - 19:12

DROPS Design answered:

Hej Hilde, du starter med 131 masker, strikker 2+2+1+2 (stolpe) 1 + A.2 (=4x29) + 2+1+2+2 =131 masker. Du tager 4 masker ud ifølge diagrammet 29 gange = 247 masker. God fornøjelse!

08.06.2022 - 07:50

country flag Brenda Moore wrote:

Na de meerderingen in de hals in A.2(maat M) verspringen de rechte steken. Heel lelijk.... maar ik snap niet hoe dit komt? Graag advies!

31.05.2022 - 16:25

DROPS Design answered:

Dag Brenda,

Het is de bedoeling dat je na de meerderingen de lijnen van de rechte steken doorzet en de gemeerderde steken worden dus averechte steken aan de goede kant. Op die manier zouden ze niet moeten verspringen.

05.06.2022 - 21:19

country flag LOUVET Françoise wrote:

Désolée pour l'erreur dans mon précédent post c'est avec du Safran que je souhaite le tricoter mais avec des manches longues. Cordialement

23.08.2021 - 13:54

DROPS Design answered:

- cf réponse ci-dessous-

23.08.2021 - 14:36

country flag LOUVET Françoise wrote:

Bonjour, Je voudrais faire des manches longues à ce modèle. Combien de grammes ou de pelotes de Fabel me faut-il en plus? Merci

23.08.2021 - 13:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Louvet, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande; votre magasin pourra volontiers vous conseiller, même par mail ou téléphone. Merci pour votre compréhension. Bon tricot!

23.08.2021 - 14:36