DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 1.26 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7.56€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Alberta Rose

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri, blaðamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-5
DROPS Design: Mynstur e-300
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL – XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-400-400-450 g litur 56, dauf bleikur

PRJÓNFESTA:
23 lykkjur á breidd og 30 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 1.26 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7.56€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.

ÚTAUKNING-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 244 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 62) = 3,93.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-116-124-124-128-140 lykkjur á hringprjón 2,5 með Safran. Prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) hringinn (= 27-29-31-31-32-35 sinnum á breidd).
Þegar fyrstu 6 umferðirnar á mynstri hafa verið prjónaðar, skiptið yfir á hringprjón 3,5.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er núna mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 216-232-248-310-320-350 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 5-5-5-6-6-6 cm frá prjónamerki.
Prjónið A.2 (= 8-8-8-10-10-10 lykkjur) hringinn (= 27-29-31-31-32-35 sinnum á breidd).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 324-348-372-434-448-490 lykkjur í umferð.
Stykkið mælist ca 16-16-16-21-21-21 cm frá prjónamerki. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 46-50-53-62-65-73 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 70-74-80-93-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-8-12-10 lykkjur undir ermi, 92-100-106-124-130-148 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 70-74-80-93-94-98 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-8-12-10 lykkjur undir ermi og endið með 46-50-53-62-65-73 lykkjur slétt = hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 200-216-232-264-284-314 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-8-12-10 lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermum (= í hliðar á fram- og bakstykki). Nú eru 100-108-116-132-142-156 lykkjur á bakstykki og 100-108-116-132-142-158 lykkjur á framstykki.
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum.
Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 7 sinnum = 228-244-260-292-312-342 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-26-27-27-27-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 60-62-64-65-66-66 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-2 = 288-306-324-357-378-408 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið).
Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING.

ERMI:
Setjið 70-74-80-93-94-98 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 3,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-8-12-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 78-82-90-101-106-108 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-8-12-10 nýrra lykkja undir ermi.
Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við þetta prjónamerki.
Prjónið í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1-1-1 cm millibili alls 9-10-13-17-18-18 sinnum = 60-62-64-67-70-72 lykkjur.
Þegar ermin mælist 30-28-28-26-25-23 cm frá skiptingu, aukið út 6-7-8-5-8-6 lykkjur jafnt yfir = 66-69-72-72-78-78 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum þegar ermin mælist 34-32-32-30-29-27 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.03.2020
Leiðrétting: Leiðrétting á villu í 4. umferð í mynsturteikningu A.2 í stærð XL-XXL-XXXL.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónið 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni af vinstra prjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju *, prjónið frá *-* alls 3-3-3-4-4-4 sinnum, sleppið síðan prjónuðu lykkjunni af prjóni.
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð (það eiga ekki að myndast göt)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = takið 2 lykkjur óprjónaðar eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónið 3 lykkjur í sömu lykkju þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, en bíðið með að sleppa lykkjunni sem var prjónuð af vinstra prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju, sleppið lykkjunni af prjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Alberta Rose

Ida Marin, Sweden

Alberta Rose

Inês, Portugal

Alberta Rose

Olena Kostrytsia, India

Alberta Rose

Cindy, United States

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Kirsten Grønby wrote:

Jeg kan ikke finde ud af hvilken størrelse jeg skal strikke. Jeg kan ikke finde brystmål på de forskellige størrelser. Det plejer I at have på opskrifterne. Hvor finder jeg dem?

12.03.2024 - 16:24

DROPS Design answered:

Hei Kirsten. Jo, alle mål finner du på målskissen nederst på oppskriften. mvh DROPS Design

18.03.2024 - 13:52

country flag Lilia wrote:

Hallo, ich habe eine Frage, ich weiß nicht was ich falsch mache. Ich habe für die Größe S -108 Maschen mit 2,5 Stricknadel angeschlagen und zu einer Runde geschlossen, aber der Ausschnitt ist so eng. Es sieht niemals so aus wie auf dem Bild. Meine Maschen Probe stimmt. Was mache ich falsch?

25.02.2024 - 16:17

DROPS Design answered:

Liebe Lilia, beachten Sie, daß die Anschlagskante nicht zu eng wird, gerne können Sie dann mit grösseren Nadeln oder mit 2 Fäden anschlagen, dann sollte der Hals breit genug sein. Viel Spaß beim stricken!

26.02.2024 - 09:31

country flag Desislava Abadzhieva wrote:

Hello how to start with sleeve . May i have a video .

11.12.2023 - 17:54

DROPS Design answered:

Sure, in this video, from time code approx. 9:37 we show how to put stitches back on needle and work sleeve; you can find the same technique in this lesson from picture 18. Happy knitting!

12.12.2023 - 08:48

country flag Anna wrote:

Czy po każdym rzędzie znaków należy przerobic kolejny rząd prawych oczek, (jak lewych jakbym robiła nna lewej stronie), czy robię kolejne rzędy schematu jeden bezpośrednio po drugim?

18.08.2023 - 10:35

DROPS Design answered:

Witam, schematy pokazują wszystkie rzędy, widok na prawej stronie robótki. Początek schematu jest w prawym dolnym rogu i dalej czytamy schemat do góry. Jak odczytywać schematy znajdziesz w kursie DROPS TUTAJ. Miłego dziergania!

18.08.2023 - 10:58

country flag Laurence Roquet wrote:

Bonjour, comment faire une rehausse pour le dos sur ce modèle dont le yoke commence très tot ? merci

23.06.2023 - 21:12

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roquet, vous pouvez tenter de les rajouter dans la partie côtes de A.1, avant de commencer les augmentations. Bon tricot!

26.06.2023 - 09:09

country flag Anne Andersen wrote:

Er diagrammet for str XL rettet , jeg får 11 retmasker mellem vrangmaskerne og det kan jeg ikke få til st passe

20.02.2023 - 12:43

country flag Anne Andersen wrote:

Jeg har nu opgivet at strikke denne model, da diagram 2 i str XL ikke virker. Og det er netop pind 4 der driller. Hvor mage retmasker skal der være mellem vrang maskerne ?? Jeg får det til 11 masker, men så bliver det forkert på resten af omgangen Er mønstret rettet ?? Mvh Anne

20.02.2023 - 12:41

DROPS Design answered:

Hej Anne, ja det stemmer, du strikker 9 masker i stjernemasken og så har du 2 masker ret fra den anden side af diagrammet :)

23.02.2023 - 15:29

country flag Núria wrote:

Hola primeramente muchas gracias por los patrones gratuitos, tengo una duda he empezado el patrón Alberta Rose con hilo safran y no entiendo cuando pone seguir esquema A1 (4 puntos) y 27 en horizontal? Gracias de antemano, espero me ayuden. Saludos

01.10.2022 - 05:58

DROPS Design answered:

Hola Núria, tienes que trabajar la primera fila del diagrama A.1, que se encuentra bajo las instrucciones del patrón. Puedes ver cómo leer los diagramas aquí: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=68&cid=23 El diagrama A.1 tiene 4 puntos en la primera fila, tienes que repetir estos 4 puntos 27 veces en la vuelta (es decir, repites la primera fila de A.1 27 veces en la vuelta).

02.10.2022 - 23:54

country flag Susan wrote:

Ich verstehe die Zunahmen nicht. Also im Diagramm mit dem Stern gekennzeichnet. Und auch nicht was mit hintere Mitte gemeint ist. Es ist ein wirklich sehr schöner Pulli aber bin wohl zu doof.

30.03.2022 - 13:49

DROPS Design answered:

Liebe Susan, die hintere Mitte ist die Mitte am Rückenteil. Mit dem Stern (3. Symbol im Diagram) sollen Sie die selbe Maschen entweder 7 Mal (S, M, L) oder 9 Mal (XL, XXL, XXXL) stricken (so nehmen Sie 6 Maschen (S,M,L) oder 8 Maschen (XL, XXL, XXXL). Dieses Video zeigt für den Top, wie man solche Diagramme strickt, sicher kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

30.03.2022 - 14:16

country flag Lisa wrote:

Hallo, ich bin etwas verwirrt darüber, wo ich den Markierer der Halsbänder anbringen. Nach den ersten sechs Runden oder wenn ich A.1 fertig geschrieben habe?

25.01.2022 - 15:17

DROPS Design answered:

Liebe Lisa, der Markierer setzen Sie nach Bündchen, am Ende der Halsblende (= vor der Passe), er soll hier bleiben so daß die Arbeit ab diese Markierer gemessen wird. Viel Spaß beim stricken!

25.01.2022 - 16:48