Pearl Pointe |
||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||
Prjónuð vafningspeysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-9 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (á við um handveg): Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út innan við 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hálsmál að framan): Aukið út fyrir hálsmáli innan við 20 lykkjur í A.1/A.2. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING -3 (á við um hlið á fram- og bakstykki): Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri). Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VAFNINGSPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur fyrir snúru. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á hringprjón / sokkaprjóna ofan frá og niður. HÆGRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist ca 2 cm, í síðustu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 16-18-18-20-22-24 nýjar lykkjur í umferð = 38-40-40-42-44-46 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl aftan. VINSTRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist ca 2 cm, stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu. Nú eru bæði stykkin sett saman og bakstykkið er prjónað eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Setjið hægri – og vinstri öxl á sama hringprjón 5 þannig að þær 16-18-18-20-22-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru í miðju = 60-62-62-64-66-68 lykkjur. Byrjið frá réttu og prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju á handveg. Þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4.-4.-4.-2.-2.-2. hverri umferð alls 2-4-8-11-15-19 sinnum í hvorri hlið. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm. Fitjið nú upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. Nú er stykkið mælt héðan! Prjónið 4 umferðir sléttprjón með 6 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1 (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm = 64-70-78-86-96-106 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-3. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg og aukið jafnframt út 8-8-9-10-12-14 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu = 78-84-93-102-114-126 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Bakstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað): Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni að handveg, 2-2-2-2-2-2 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 17 lykkjur í fyrstu umferð) = 25-25-25-25-25-25 lykkjur þegar fyrsta umferð í A.1 hefur verið prjónuð til loka. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, A.1 er endurtekið á hæðina frá 3. umferð. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út fyrir hálsmáli innan við A.1 við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-11-12-13 sinnum, í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 14-16-15-14-14-14 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum. Jafnframt, þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið fyrir handveg – haldið áfram að auka út á sama hátt og á bakstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok næstu umferða frá röngu. Haldið áfram eins og áður með A.1 við miðju að framan, útaukningu fyrir hálsmáli og sléttprjón, en yfir ystu 6 lykkjurnar að hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón (þ.e.a.s. þetta er gert í 4 næstu umferðum). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og A.1 við miðju að framan (útaukningin heldur áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-3. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm. Þegar allar útaukningar innan við A.1 hafa verið gerðar til loka er haldið áfram með mynstur eins og áður þar til útaukning í hlið hefur verið gerð til loka. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 54-58-62-66-71-76 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg og aukið út 6-8-7-6-7-8 lykkjur jafnt yfir = 60-66-69-72-78-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 20 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 yfir síðustu 20 lykkjurnar (það er fækkað um 2 lykkjur í mynsturteikningu = 18 lykkjur) = 58-64-67-70-76-82 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Framstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl. VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð): Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.2 (= 17 lykkjur í fyrstu umferð), prjónið 2-2-2-2-2-2 lykkjur sléttprjón og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg = 25-25-25-25-25-25 lykkjur þegar fyrsta umferð í A.2 hefur verið prjónuð til loka. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina frá 3. umferð. Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út fyrir hálsmáli innan við A.2 við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-11-12-13 sinnum, í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 14-16-15-14-14-14 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum. Jafnframt, þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið fyrir handveg – haldið áfram að auka út á sama hátt og á bakstykki og hægra framstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok næstu umferða frá röngu. Haldið áfram eins og áður með A.2 við miðju að framan, útaukningu fyrir hálsmáli og sléttprjón, en yfir ystu 6 lykkjur í hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón (þ.e.a.s. þetta er gert í 4 næstu umferðum). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og A.2 við miðju að framan (útaukningin heldur áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-3. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm. Þegar öll útaukning innan við A.2 hefur verið gerð til loka er haldið áfram með mynstur eins og áður þar til útaukning í hlið hefur verið gerð til loka. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 54-58-62-66-71-76 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg og aukið út 6-8-7-6-7-8 lykkjur jafnt yfir = 60-66-69-72-78-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff þannig: A.4 yfir fyrstu 20 lykkjur (nú hefur fækkað um 2 lykkjur í mynsturteikningu = 18 lykkjur), * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón = 58-64-67-70-76-82 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Framstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl. ERMI: Fitjið upp 22-24-26-28-24-26 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk. Prjónið sléttprjón fram og til baka fyrir ermakúpu og fitjið jafnframt upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 0-1-2-3-3-5 sinum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 58-62-66-70-74-80 lykkjur. Setjið stykkið saman og prjónið síðan hringinn á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Setjið 1 prjónamerki þar sem stykkið var sett saman = mitt undir ermi. Það á að nota prjónamerkið síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem það var sett saman er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 3-4-5-6-7-9 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-18-18-17-16-14 cm frá þar sem það var sett saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 2-0-1-2-0-1 lykkjur jafnt yfir í umferð = 54-54-57-60-60-63 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 29-29-30-30-31-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, en skiljið eftir smá op í hvorri hlið til að þræða snúruna í gegn – opið er staðsett 8 cm frá neðri kanti og 2½–3 cm upp að handveg. Endurtakið í hinni hliðinni. Leggið ermarnar undir kant með garðaprjóni meðfram handveg og saumið niður frá réttu (það á að vera aðeins laus kantur þar sem saumað er og saumað er í ystu lykkju með garðaprjóni frá réttu, svo að kanturinn í garðaprjóni liggi fallega ofan á ermi). SNÚRA: Prjónið upp á prjón 4 með 1 þræði af hvorri tegund: Ca 6-7 lykkjur meðfram stroffkanti að framan, þannig að það verða 8 cm frá affellingarkanti neðst og upp að fyrstu af þeim 6-7 lykkjum. Á hægra framstykki er prjónað garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 40 cm. Fellið af. Á vinstra framstykki er prjónað garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 84-94 cm. Fellið af. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (90)
Annie Fouilhoux wrote:
Je souhaite réaliser le modèle de cache -coeur DROPS 21-9 en taille S mais avec des manches longues. combien dois-je rajouter de pelotes ?
21.06.2020 - 16:06DROPS Design answered:
Bonjour Mme Fouilhoux, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande. Vous pouvez vous inspirer d'un modèle de tension identique avec des manches longues. Votre magasin DROPS saura vous apporter toute l'assistance nécessaire, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
22.06.2020 - 08:36Angelika wrote:
Wieso sollen beim Zusammennähen an beiden Seiten Schlitze für die Bindebänder offen gelassen werden? Es reicht doch eine Seite?
15.06.2020 - 07:43Pragna Amin wrote:
Please could you let me know if the whole jacket is kitted with 2 strands ( DROPS BABYALPACA SILK and DROPS KID-SILK
09.06.2020 - 14:57DROPS Design answered:
Dear Mrs Amin, that's right, the jacket is worked entirely with 1 strand each quality, this means 1 strand DROPS BabyAlpaca Silk + 1 strand DROPS Kid-Silk held together as there were just one. Happy knitting!
09.06.2020 - 19:02Nissi wrote:
Hallo, ich stricke die Größe S und habe eine Frage zum Zunahmetipp 2 rechte Vorderseite: Was genau bedeutet in Richtung vorderer Rand? Muss sich das Strickstück, wenn die Vorderseite einen auf der Nadel anschaut, nach links oder rechts erweitern? Ich hätte nach rechts erwartet... Wenn ich aber in den Hinreihen nach den ersten 20M von A1 zunehme, erweitert es sich nach links. Oder mache ich etwas falsch? Vielen Dank!
01.05.2020 - 20:27DROPS Design answered:
Liebe Nissi, A.1 wird über die letzten Maschen bei den Hinreihen bein dem rechten Vorderteil gestrickt (von oben nach unten). Die Zunahmen werden dann vor A.1 gestrickt, dh die Reihe stricken bis die Maschen von A.1 bleiben, 1 Masche zunehmen, A.1 stricken. Hier ist es gemeint, daß A.1 für die Blende gestrickt wird. (Beim linken Vorderteil stricken Sie A.2 am Anfang den Hinreihen: bein den Zunahmen stricken Sie zuerst A.2 dann nehmen Sie 1 Masche zu, dann stricken Sie bis zur Ende der Reihe). Viel Spaß beim stricken!
04.05.2020 - 11:14Netty Hoefakker wrote:
Ik snap hier helemaal niets van, kunt u het uitleggen? Brei verder tot het werk 19-20-21-22-23-24 cm meet en zet 3 nieuwe steken op aan het einde van de volgende naald aan de verkeerde kant. Ga zo verder als hiervoor met A.1 richting midden voor, meerderingen voor de halslijn en tricotsteek maar, over de buitenste 6 steken richting de zijkant, breit..... tot de meerderingen in de zijkant klaar zijn. dit is de omschrijving van rechtsvoor.
27.04.2020 - 21:09DROPS Design answered:
Dag Netty,
Op een hoogte van 19-20-21-22-23-24 cm zet je steken aan de zijkant op voor het armsgat. Tegelijkertijd ga je gewoon verder met A.1 midden voor. Vlak nadat je de 3 steken voor het armsgat hebt opgezet brei je over de buitenste 6 steken, dus aan de kant van het armsgat, 2 ribbels. Die ribbels komen dus a.h.w. onder de oksels. Daarna brei je weer gewoon tricotsteek aan de zijkant, met 1 kantsteek in ribbelsteek.
28.04.2020 - 20:09Lily wrote:
Bonjour, Je tricote ce magnifique modèle en taille L. En revanche, je trouve étrange (dans la partie DOS) l'indication "Quand l'ouvrage mesure 17-14-8-12-10-7 cm, augmenter 1 maille de chaque côté...". N'y a t-il pas un problème d'indication pour la taille L? La longueur tricotée ne devrait-elle pas être entre 14 et 12 cm? J'ai continué à avancer un peu, mais je doute, et préfère faire une pause en attendant confirmation de ces 8 cm. Merci à vous!
19.04.2020 - 02:30DROPS Design answered:
Bonjour Lily, c'est tout à fait juste ainsi, vous commencez à augmenter à 8 cm en taille L et augmentez 8 fois tous les 4 cm. Il vous faut commencer plus tôt qu'en taille M (moins d'augmentations tous les 4 rangs) ou XL (plus d'augmentations mais tous les 2 rangs=) pour avoir la bonne hauteur. Bon tricot!
20.04.2020 - 10:16Ragnhild wrote:
Jeg holder på å strikke denne jakken. Har nettopp begynt, og satt sammen høyre og venstre skulder bak på samme pinnen med opplagte masker til hals i midten. Synes dette ser veldig rart ut, har dere et bilde av hvordan jakken skal se ut bak? Jeg ser at det ligger et bilde der, men håret til modellen dekker over akkurat det området jeg lurer på! Tusen takk for svar :-)
06.04.2020 - 10:37DROPS Design answered:
Hej Ragnhild, vi har desværre ikke flere billeder, du har de 2 skulderstykker med de nye masker imellem, nu fortsætter du over alle masker frem og tilbage. God fornøjelse!
21.04.2020 - 12:24Wiesje Aukema wrote:
Wat wordt bedoeld met BINNENKANT van A1 meerderen aan de halslijn. (Zie rechtervoorpand.)\r\nIs dat hetzelfde als; richting halslijn?
01.03.2020 - 14:42DROPS Design answered:
Dag Wiesje,
Hiermee wordt bedoeld dat je aan de kant van het pand meerdert, dus niet bij de bies maar tussen A.1 en het gedeelte in tricotsteek.
04.03.2020 - 15:34Joop wrote:
På Montering ”Lämna hål till knytband i *varje sida*.”. ska det inte vara bara i den ena sidan ... på bilden ser det ut som att knytbandet från den innersta framstycket går igenom sidhålet och sedan runt på baksidan och knyts ihop med det andra knytbandet som är fastsytt i det yttersta framstycket...
26.02.2020 - 21:16DROPS Design answered:
Hej, jo fast det beror på om du vill ha bandet innanför tröjan på ryggen eller som på bilden :)
27.02.2020 - 08:58Joop wrote:
I am confused. Increases inside A1 -8 every 4th +15 every other +2 every 4th ...= 25 increases... I have 54 stitches... I have 3 increases too many inside A1 (I assumed the increasing repeats) 2 increases left in the side. If I take away 3 stitches that were too many I have 51 stitches + remaining 2 = 53... it should be 54 by now.... is it a mistake in the numbers? Perhaps it should be 8+15+3....?
23.02.2020 - 12:26DROPS Design answered:
Dear Mrs Joop, could you please tell us which size you are working on? It would be then easier to check. Thank you!
24.02.2020 - 09:04