DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Pearl Pointe

Prjónuð vafningspeysa úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-9
DROPS Design: Mynstur bs-156
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-250-250-250-300-300 g litur 1306, púður
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-75-100-100-100-125 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1 (á við um handveg):
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út innan við 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING-2 (á við um hálsmál að framan):
Aukið út fyrir hálsmáli innan við 20 lykkjur í A.1/A.2. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. Prjónið síðan útauknar lykkjur í sléttprjóni.

ÚTAUKNING -3 (á við um hlið á fram- og bakstykki):
Aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri).
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kantlykkju og prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri).

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VAFNINGSPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum eru prjónaðar upp lykkjur fyrir snúru.
Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á hringprjón / sokkaprjóna ofan frá og niður.

HÆGRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist ca 2 cm, í síðustu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 16-18-18-20-22-24 nýjar lykkjur í umferð = 38-40-40-42-44-46 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið vinstri öxl aftan.

VINSTRI ÖXL AFTAN (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist ca 2 cm, stillið af að síðasta umferðin sé prjónuð frá röngu.
Nú eru bæði stykkin sett saman og bakstykkið er prjónað eins og útskýrt er að neðan.

BAKSTYKKI:
Setjið hægri – og vinstri öxl á sama hringprjón 5 þannig að þær 16-18-18-20-22-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru í miðju = 60-62-62-64-66-68 lykkjur. Byrjið frá réttu og prjónið 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Síðan er prjónað sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju á handveg.
Þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin fyrir handveg – sjá ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í 4.-4.-4.-2.-2.-2. hverri umferð alls 2-4-8-11-15-19 sinnum í hvorri hlið. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm. Fitjið nú upp 3 nýjar lykkjur fyrir handveg í lok 2 næstu umferða = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. Nú er stykkið mælt héðan!
Prjónið 4 umferðir sléttprjón með 6 lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1 (= 2 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm = 64-70-78-86-96-106 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjóni í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING-3. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm = 70-76-84-92-102-112 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg og aukið jafnframt út 8-8-9-10-12-14 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð frá röngu = 78-84-93-102-114-126 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Bakstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar stykkið er mátað):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni að handveg, 2-2-2-2-2-2 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 17 lykkjur í fyrstu umferð) = 25-25-25-25-25-25 lykkjur þegar fyrsta umferð í A.1 hefur verið prjónuð til loka. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, A.1 er endurtekið á hæðina frá 3. umferð.
Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út fyrir hálsmáli innan við A.1 við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-11-12-13 sinnum, í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 14-16-15-14-14-14 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum. Jafnframt, þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið fyrir handveg – haldið áfram að auka út á sama hátt og á bakstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok næstu umferða frá röngu. Haldið áfram eins og áður með A.1 við miðju að framan, útaukningu fyrir hálsmáli og sléttprjón, en yfir ystu 6 lykkjurnar að hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón (þ.e.a.s. þetta er gert í 4 næstu umferðum). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið og A.1 við miðju að framan (útaukningin heldur áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-3. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm. Þegar allar útaukningar innan við A.1 hafa verið gerðar til loka er haldið áfram með mynstur eins og áður þar til útaukning í hlið hefur verið gerð til loka. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 54-58-62-66-71-76 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg og aukið út 6-8-7-6-7-8 lykkjur jafnt yfir = 60-66-69-72-78-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 20 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið A.3 yfir síðustu 20 lykkjurnar (það er fækkað um 2 lykkjur í mynsturteikningu = 18 lykkjur) = 58-64-67-70-76-82 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Framstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 22-22-22-22-22-22 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið A.2 (= 17 lykkjur í fyrstu umferð), prjónið 2-2-2-2-2-2 lykkjur sléttprjón og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni við handveg = 25-25-25-25-25-25 lykkjur þegar fyrsta umferð í A.2 hefur verið prjónuð til loka. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina frá 3. umferð.
Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út fyrir hálsmáli innan við A.2 við miðju að framan – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 8-8-9-11-12-13 sinnum, í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 14-16-15-14-14-14 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum. Jafnframt, þegar stykkið mælist 17-14-8-12-10-7 cm, aukið út um 1 lykkju í hlið fyrir handveg – haldið áfram að auka út á sama hátt og á bakstykki og hægra framstykki. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok næstu umferða frá röngu. Haldið áfram eins og áður með A.2 við miðju að framan, útaukningu fyrir hálsmáli og sléttprjón, en yfir ystu 6 lykkjur í hlið eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón (þ.e.a.s. þetta er gert í 4 næstu umferðum). Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið og A.2 við miðju að framan (útaukningin heldur áfram eins og áður). Þegar stykkið mælist 4 cm frá handveg, fækkið um 1 lykkju í hlið – munið eftir ÚRTAKA-1. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 og 12-13-14-15-16-17 cm. Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hlið – munið eftir ÚTAUKNING-3. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 19-20-21-22-23-24 cm og 23-24-25-26-27-28 cm. Þegar öll útaukning innan við A.2 hefur verið gerð til loka er haldið áfram með mynstur eins og áður þar til útaukning í hlið hefur verið gerð til loka. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 54-58-62-66-71-76 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá handveg og aukið út 6-8-7-6-7-8 lykkjur jafnt yfir = 60-66-69-72-78-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú stroff þannig: A.4 yfir fyrstu 20 lykkjur (nú hefur fækkað um 2 lykkjur í mynsturteikningu = 18 lykkjur), * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, 1 lykkja slétt, 1 kantlykkja garðaprjón = 58-64-67-70-76-82 lykkjur. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Framstykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm frá öxl.

ERMI:
Fitjið upp 22-24-26-28-24-26 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði BabyAlpaca Silk + 1 þræði Kid-Silk. Prjónið sléttprjón fram og til baka fyrir ermakúpu og fitjið jafnframt upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið, 1 lykkja 0-1-2-3-3-5 sinum í hvorri hlið, 2 lykkjur 3-3-3-3-4-4 sinnum í hvorri hlið og að lokum 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið = 58-62-66-70-74-80 lykkjur. Setjið stykkið saman og prjónið síðan hringinn á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Setjið 1 prjónamerki þar sem stykkið var sett saman = mitt undir ermi.
Það á að nota prjónamerkið síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem það var sett saman er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 4-3-2-1½-1-1 cm millibili alls 3-4-5-6-7-9 sinnum = 52-54-56-58-60-62 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 19-18-18-17-16-14 cm frá þar sem það var sett saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 2-0-1-2-0-1 lykkjur jafnt yfir í umferð = 54-54-57-60-60-63 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 29-29-30-30-31-31 cm frá uppfitjunarkanti og niður.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju, en skiljið eftir smá op í hvorri hlið til að þræða snúruna í gegn – opið er staðsett 8 cm frá neðri kanti og 2½–3 cm upp að handveg. Endurtakið í hinni hliðinni. Leggið ermarnar undir kant með garðaprjóni meðfram handveg og saumið niður frá réttu (það á að vera aðeins laus kantur þar sem saumað er og saumað er í ystu lykkju með garðaprjóni frá réttu, svo að kanturinn í garðaprjóni liggi fallega ofan á ermi).

SNÚRA:
Prjónið upp á prjón 4 með 1 þræði af hvorri tegund: Ca 6-7 lykkjur meðfram stroffkanti að framan, þannig að það verða 8 cm frá affellingarkanti neðst og upp að fyrstu af þeim 6-7 lykkjum. Á hægra framstykki er prjónað garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 40 cm. Fellið af. Á vinstra framstykki er prjónað garðaprjón fram og til baka þar til snúran mælist ca 84-94 cm. Fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 10.11.2020
Undir HÆGRA FRAMSTYKKI og VINSTRA FRAMSTYKKI: ...í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) alls 14-16-15-14-14-14 sinnum og að lokum í 4. hverri umferð 2-2-2-2-2-2 sinnum.
Yfirfarið á vefsvæði: 07.03.2022
HÆGRA FRAMSTYKKI:.. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka, A.1 er endurtekið á hæðina frá 3. umferð...
VINSTRA FRAMSTYKKI:.. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka. A.2 er endurtekið á hæðina frá 3. umferð...

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo að það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo að ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram að næsta tákni í mynsturteikningu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Pearl Pointe

Lelia, United States

Pearl Pointe

Woolhalla by pwa, Germany

Pearl Pointe

Zsuzsa, Australia

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (90)

country flag Monika Larsen wrote:

Når a1 er strikket ferdig med en rapport har jeg problemer med å få første omg til å stemme igjen, for da blir det tre kast og de svarte rutene stemmer ikke på neste rapport runde

22.07.2021 - 13:22

DROPS Design answered:

Hej Monika, når du gentager diagrammerne, så starter du på 3.pind i diagrammet. Vi skal få snakket med design, så der kommer en rettelse ud :)

05.08.2021 - 14:26

country flag Frederike wrote:

Mooi patroon! kan ik ook kiezen voor 2 draden kid silk voor een iets meer zacht/fluffy/pluizig gevoel?

29.06.2021 - 10:39

DROPS Design answered:

Dag Frederike,

Jazeker, dat kan! Maak wel altijd een proeflapje en pas eventueel de naalddikte aan om op de juiste stekenverhouding te komen.

02.07.2021 - 09:37

country flag Anna wrote:

J'ai de nouveau suivi vos i structions suite a ma question. Pour le devant droit le diagramme A 2 se terminant par ub jete je fais 3 m end (emmanchure) puis 2 m jersey (corps du devant) puis 17 m de motif et la je me retrouve avec un jete dans le vide donc il y a un probleme

02.06.2021 - 11:24

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, le diagramme A.2 se tricote sur le devant gauche ainsi, sur l'endroit: 17 m (= en terminant par 1 jeté au 1er rang), 2 m jersey et 3 m point mousse. Pour le devant droit, vous tricoterez: 3 m point mousse, 2 m jersey, A.1 (= 17 m au 1er rang en commençant par 1 jeté). Bon tricot!

02.06.2021 - 13:10

country flag Anna wrote:

Bonjour, il me semble qu'il faut inverser les explications piur le debut des devants : on commence par les rangs ajoures sur 17 m puis 2 m end et enfin 3 mailles miysse piur les avou au niveau des emmanchures. Faut-il inverser les explcations du pint ajoure ?. Sinon on se trouve avec les 3 lailles non pas a droure mais a gauche .

22.05.2021 - 20:33

DROPS Design answered:

Bonjour Anna, les devants se tricotent de haut en bas, ainsi, pour le devant droit, on doit augmenter avant A.1 sur l'endroit = avant les mailles de bordure d'encolure et on monte les mailles de l'emmanchure en fin de rang sur l'envers = à droite, vu sur l'endroit. Bon tricot!

25.05.2021 - 07:46

country flag Birgit Everbeck wrote:

Wenn ich die Jacke mit nur einem Garn stricken möchte, welche Garnstärke benötige ich?

05.05.2021 - 14:00

DROPS Design answered:

Liebe Frau Everbeck, 2 Fäden von der Garngruppe A werden durch 1 Faden der Garngruppe C ersetzt werden- hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

05.05.2021 - 14:26

country flag Rita Harang Andersen wrote:

Skal det være hull både i høyre og venstre side for å tre knytebånd? For meg virker det logisk med hull kun på høyre side for å tre det lengste båndet gjennom.

26.04.2021 - 18:56

DROPS Design answered:

Hei Rita. Jo, om du vil ha det slik du ser det på bilde trenger du bare 1 hull. Men om du vil ha flere muligheter til å knyte bådet kan du ha 2 hull. mvh DROPS design

03.05.2021 - 12:02

country flag Tine wrote:

Hej. Er strikkeprøven strikket med p 4 eller 5 ?

24.04.2021 - 14:23

DROPS Design answered:

Hei Tine. På pinne 5. mvh DROPS design

26.04.2021 - 15:32

country flag Patricia Paduvan wrote:

Bonjour, je ne trouve pas dans les explications le sens de lecture des diagrammes. Lit on de gauche à droite ou de droite a gauche. Merci pour votre aide.

22.04.2021 - 21:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Paduvan, les diagrammes se lisent de bas en haut en commençant sur l'endroit dans le coin à droite, on les lit de droite à gauche sur l'endroit et de gauche à droite sur l'envers - retrouvez ici plus d'infos sur les diagrammes. Bon tricot!

23.04.2021 - 08:03

country flag Hanneke wrote:

Ik heb 22 steken ,naald 4 , bij proef lapje, neem ik ‘n dikkere naald dan wordt het breiwerk veel te los. Ik moet maat m hebben, zal ik nu ‘n grotere maat breien of klopt het patroon dan niet meer? Hoe kan 8k dit oplossen?

14.04.2021 - 09:35

DROPS Design answered:

Dag Hanneke,

Wat vooral van belang is, is dat je 17 steken in de breedte op 10 cm hebt. Als je minder dan 17 steken hebt, kun je nog een kleinere naald gebruiken. De hoogte kun je namelijk makkelijk aanpassen door extra naalden te breien.

15.04.2021 - 11:10

country flag Anne wrote:

Olisiko ohjeessa syytä mainita etukappaleen ohjeessa, että silmukoiden lisäykset ennen joustinneuletta pitäisi tehdä sileällä osuudella, eikä tasaisesti, kuten nyt mainitaan? Varmaankin näin on ollut ajatus, mutta se ei käy ohjeesta ilmi. Toinenkin asia, miksi sivureunoihin pitää jättä aukko molemmille puolille?

14.04.2021 - 09:25