Lebon wrote:
Bonjour, je me demandais si on pouvait commencer par le bas car je n'ai pas d'aiguilles circulaire et comment faire pour debuter merci
15.04.2020 - 13:23DROPS Design answered:
Bonjour Mme Lebon, vous trouverez ici comment adapter un modèle sur aiguilles droites - pour le tricoter de bas en haut, il suffit peut être de prendre les instructions en sens inverse - n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS pour toute assistance complémentaire et pour tous les ajustements nécessaires. Bon tricot!
15.04.2020 - 14:34Åsa wrote:
Så vacker tröja och underbara färger tillsammans.
15.03.2020 - 18:41Jane wrote:
Da ich nicht gerne nähe, habe ich die letzte Reihe Bündchen direkt mit der Anschlagkante zusammen abgestrickt. Ähnlich wie bei der Entstehung eines Mäusezähnchenrandes. Es hat super geklappt und erspart mir am Ende das Zusammennähen :-)
11.03.2020 - 11:27Rikke Mørch Wilche wrote:
Ønsker at strikke denne sweater, men kan ikke finde farven 15 lys mint. Jeg finder en lys lilla når jeg søger 15 og kan slet ikke finde en farve der hedder lys mint. Vh Rikke, Danmark
13.02.2020 - 19:18DROPS Design answered:
Hej Rikke, Her finder du farvekortet med farve 15 lys mint DROPS Sky
14.02.2020 - 11:30Helena wrote:
Goedendag, op de afbeelding zie ik donkergrijze motieven (staven) maar deze kleur komt niet terug in de beschrijving en materiaal.
09.02.2020 - 13:29Marja wrote:
Regenboog/rainbow
17.01.2020 - 12:18Ute wrote:
Name: Mittsommer
15.01.2020 - 16:06Inger Victoria wrote:
Midtsommer genser
05.01.2020 - 14:35Gabriele wrote:
Möchte ich unbedingt stricken.
03.01.2020 - 18:51
Retro beauty |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með marglitu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 36) = 2,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca önnur hver og 3. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er brotinn niður tvöfaldur og saumaður niður að innanverðu á stykki í lokin. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-106-110-116 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum sítróna. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 9 cm. Setjið 1 prjónamerki hér, héðan er nú mælt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið síðan eftir A.1 og aukið út jafnt yfir í umferð með ör – SJÁ ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Aukið svona út við örvar í mynsturteikningu þannig: ÖR 1: aukið út 34-36-38-44-46-52 lykkjur = 126-132-138-150-156-168 lykkjur í umferð. ÖR 2: aukið út 36-36-36-42-42-48 lykkjur = 162-168-174-192-198-216 lykkjur í umferð. ÖR 3: aukið út 30-30-36-42-42-48 lykkjur = 192-198-210-234-240-264 lykkjur í umferð. ÖR 4: aukið út 24-30-34-38-40-40 lykkjur = 216-228-244-272-280-304 lykkjur í umferð. ÖR 5: aukið út 24-28-36-32-40-40 lykkjur = 240-256-280-304-320-344 lykkjur í umferð. ÖR 6: aukið út 24-24-24-32-32-40 lykkjur = 264-280-304-336-352-384 lykkjur í umferð. ÖR 7: aukið út 16-24-24-28-36-28 lykkjur = 280-304-328-364-388-412 lykkjur í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með litnum ljós mynta þar til stykkið mælist 20-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 42-46-49-54-59-64 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 56-60-66-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 84-92-98-108-118-128 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 56-60-66-74-76-78 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 42-46-49-54-59-64 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-216-236-260-284 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum ljós mynta. Þegar stykkið mælist 29-31-32-32-32-32 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 56-60-66-74-76-78 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum ljós mynta = 64-68-76-84-88-92 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 10-10-5-3-3- 3 cm millibili alls 2-2-4-6-6-6 sinnum = 60-64-68-72-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-38-38-36-34-33 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-20-20-24-24-24 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 44-44-48-48-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Ermin mælist ca 42-42-42-40-38-37 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur – munið eftir AFFELLING. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið þannig að það verði uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kanturinn í hálsmáli verði stífur og sveigist út, þá er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur og ekki stífur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Strickerin wrote:
Die Größe M entspricht leider eher S
14.04.2020 - 19:10