DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 210-36
DROPS Design: Mynstur ai-247
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
300-350-350-400-450-500 g litur 03, perlugrár

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 89 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 6,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 89-97-103-113-125-137 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-15-15-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – SJÁ ÚRTAKA = 76-82-88-96-106-116 lykkjur. Haldið svona áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 1-1-2-2-2-3 sinnum = 64-70-74-82-92-100 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið nú af miðju 26-26-28-30-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun á næstu umferð við hálsmál þannig: 1 lykkja 1 sinni = 18-21-22-25-29-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Setjið nú miðju 20-20-22-24-26-28 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun á hverri umferð við hálsmál þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 18-21-22-25-29-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/hringprjón. Stykkið skiptist þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg og síðan prjónaðar fram og til baka.
Fitjið upp 46-48-50-52-52-56 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Þegar stykkið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón. Í fyrstu umferð í sléttprjóni er fækkað um 8-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, svo ekki myndist gat. Aukið svona út með 3½-3½-3-3-2-2 cm millibili alls 11-12-13-13-15-15 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-49-48-45-44 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af undir ermi), prjónið síðan ermi fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, síðan eru þær lykkjur sem eftir eru felldar af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju þar til 8 cm eru eftir = klauf.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 92-106 lykkjur á hringprjón 4,5 í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði og deilanlegt með 2). Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 9 cm. Fellið síðan af. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli innanverðu á stykki. Saumið stroffið þannig að það verði uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði og stífur og sveigist út, þá er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (103)

country flag Vibeke wrote:

Grey pearl Hei, jeg strikker bakstykket str M og har nå 82 m på pinnen før felling til arm. Så står det:Fell på begynnelsen av hver pinne i hver side: Fell 3 masker 1-1-1-1-1-1 gang, 2 masker 1-1-1-1-1-1 gang. og 1 maske 1-1-2-2-2-3 ganger = 64-70-74-82-92-100 masker. Jeg forstår ikke hvordan det skal bli 70m etter denne fellingen? Hva leser jeg feil?

19.09.2022 - 22:47

DROPS Design answered:

Hej Vibeke, jo du feller 3m 1gang, 2m 1gang og 1m 1gang = 6 masker i hver side, så 6x2 = 12 masker. 82 - 12 = 70 masker :)

20.09.2022 - 15:19

country flag Minna wrote:

Hei, Etukappaleen ohjeessa lukee "neulo kuten takana, kunnes...". Mihin asti takakappaleen ohjeesta siis neulotaan samalla tavalla etukappaleessa?

23.08.2022 - 19:27

DROPS Design answered:

Hei, etukappale neulotaan samalla tavalla kuin takana, kunnes kädenteiden silmukat on päätetty. Tämän jälkeen neulotaan sileää neuletta, kunnes työn pituus on 60-62-64-66-68-70 cm. Jatka sitten neulomista etukappaleen ohjeen mukaisesti.

24.08.2022 - 17:17

country flag Diana wrote:

Hei! Holder på med forstykket. Legg opp og strikk som bakstykket til arbeidet måler 60-62-64-66-68-70 cm. Nå settes de midterste 20-20-22-24-26-28 maskene på 1 tråd til hals, og hver skulder strikkes ferdig for seg står det. Når man legger de 22 maskene til hals på, et tråd så blir det ujevnt « feil» på skuldrene siden jeg har 103 masker til en en i størrelse L. Da vil jeg plutselig ha 40 masker på en skulder og 41 på den andre … DETTE MÅ JO BLI FEIL. Hjelp !

16.05.2022 - 18:59

DROPS Design answered:

Hej Diana, du starter med 103 masker, tager 15 masker ind, lukker af til ærmegab i hver side og har 74 masker når du lukker af til hals :)

17.05.2022 - 08:57

country flag Elfrieda Schouwenburg wrote:

Er staat een schrijffout in het patroon bij de mouwen. Er staat meerderen en dan "meerder zo 3 cm in totaal 13 keer" maar dat moet zijn "meerder zo ELKE ... cm in totaal ... keer"

13.02.2022 - 19:28

country flag Tapsi wrote:

Hey, ich konnte der Anleitung soweit gut folgen, bin jetzt aber bei der Halsblende auf ein Problem gestoßen. Irgendwie konnte ich nur ca 74 statt 92 Maschen aufnehmen, trotzdem hat sich die Halsblende nach dem Zusammennähen nach außen gewölbt und stand ab wie ein Stehkragen. Sollte ich vielleicht doch noch weniger Maschen aufnehmen? Ich weiß echt nicht was der Fehler war 😅 Über Ihre Hilfe wäre ich sehr dankbar.

30.01.2022 - 01:06

DROPS Design answered:

Liebe Tapsi, am besten versuchen Sie etwas mehr Maschen aufzufassen, wenn Sie zu wenig Maschen haben, kan die Halsblende etwas enger sein; vielleicht kann Ihnen dieses Video dann damit helfen? Sonnst zeigen Sie mal Ihrem Laden Ihr Strickstück , so kann man Ihnen besser helfen (auch mit Fotos per E-Mail schicken). Viel Spaß beim stricken!

31.01.2022 - 09:33

country flag Fien V wrote:

Hallo, Waarom gebruik je bij het achterpand geen hulpdraad om de steken van de hals op te zetten (zoals je bij het voorpand wel moet doen)? Is het niet handiger om ipv af te kanten, hier ook een hulpdraad te gebruiken?

22.01.2022 - 09:44

DROPS Design answered:

Dag Fien,

Eerlijk gezegd weet ik niet wat hiervan de reden is, maar het kan inderdaad beide, dus je kan de steken aan de achterkant ook op een hulpdraad zetten.

24.01.2022 - 20:33

country flag Ingela Johannesson wrote:

Hej! Undrar varför längden på ärmarna ska vara kortare i cm ju större storlek på tröjan?

03.01.2022 - 20:00

DROPS Design answered:

Hej Ingela. I de större storlekarna kommer den totala vidden (från handled till handled) att vara större än i de mindre storlekarna, även om själva ärmen är kortare. De större storlekarna har längre ärmkupa samt bredare axelvidd. Detta resulterar i en bra passform i alla storlekar. Mvh DROPS Design

04.01.2022 - 11:03

country flag Natalie wrote:

Well this is disappointing. Only on my third row and already I’m stuck! I have a bad feeling about this. It’s the waistband on this sweater a rib or a seed stitch. I thought it would be a rib but I’m following the pattern for the Large (103 stitches) and it’s knitting up as a seed stitch. Is this right? The picture looks like a rib stitch. Thanks

20.11.2021 - 02:58

DROPS Design answered:

Dear Natalie, it's a rib. After the first row, you need to work knit over knit and purl over purl in the next rounds. Happy knitting!

21.11.2021 - 19:54

country flag Amélie Mercier wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas bien la finissions de la manche. Quand l'ouvrage mesure 49 cm (dépend de la grandeur du projet, moi médium), il ne demande de rabattre 3 mailles de chaque côté du fil marqueur et continuer en allers/retours. Mais sur combien de cm dois-je continuer avant de débuter la tête de la manche. En attente de votre réponse. Merci

05.11.2021 - 10:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mercier, en taille M, vous rabattez 6 m au milieu sous la manche (= les 3 dernières + les 3 premières m du tour), puis vous continuer en rangs (= allers et retours) en rabattant 2 mailles au début des 2 rangs suivants puis 3 mailles au début des 2 rangs suivants et rabattez les mailles restantes - la tête de manche mesure environ 3 cm (cf schéma). Bon tricot!

05.11.2021 - 15:52

country flag Emilia wrote:

Hej! Jag stickar ärmen på strumpstickor och inte rundstickor, när man på slutet ska maska av och sticka fram och tillbaka, ska man då föra över alla maskor på samma sticka eller ha kvar på fyra?

29.10.2021 - 14:06

DROPS Design answered:

Hej Emilia, du kan sticka fram och tillbaka på 3 eller 4 strumpstickor :)

01.11.2021 - 10:55