DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Classic comfort

Prjónuð peysa úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, vösum og klauf í hliðum. Stærð XS - XXL.

DROPS 210-3
DROPS Design: Mynstur ml-053
Garnflokkur D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS MELODY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki D)
350-350-400-450-500-500 g litur 03, perlugrár

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 5-5-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Melody
DROPS Melody
71% Alpakka, 25% Ull, 4% Polyamide
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 95 lykkjur) mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim 87 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 25) = 3,5.
Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og 3. og 4. hverja lykkju slétt saman, ekki er lykkjum fækkað yfir kanta að framan.
Ef auka á út þá er í þessu dæmi aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir til skiptis ca 3. og 4. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma eins og útskýrt er að neðan. Öll útaukning er gerð frá réttu og aukið er út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) eins og útskýrt er í uppskrift.
AUKIÐ ÚT UM 4 LYKKJUR ÞANNIG:
Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir lykkjun með prjónamerki (laskalínu lykkjan), sleppið ekki lykkjum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, en bíðið með að lyfta lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 4 lykkjur fleiri).
Setjið 1 prjónamerki í miðju af þessum 5 lykkjum (í næstu útaukningu).
AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR ÞANNIG:
Prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir lykkjunni með prjónamerki (laskalínu lykkjan), sleppið ekki lykkjunum af prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju, sleppið síðan lykkjunni af vinstri prjóni (= 2 lykkjur fleiri).
Setjið 1 prjónamerki í miðju af þessum 3 lykkjum (að næstu útaukningu – á einungis við um stærð L).

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9½-8-8½-8-8½ cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir framstykki, bakstykki og ermar. Framstykkin og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. Að lokum eru prjónaðir vasar sem eru saumaðir á.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 95-99-103-105-109-111 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með Melody. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm.
Þegar stroffið hefur verið gert til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 25-25-25-27-27-29 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 70-74-78-78-82-82 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!
Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan. Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu.
Teljið 14-15-16-16-17-17 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljð 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 18-20-22-22-24-24 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 10 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju. Nú eru 14-15-16-16-17-17 lykkjur eftir síðasta prjónamerki á framstykki.
Prjónið nú og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan:
Byrjið frá réttu og prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu, aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. aukið út fyrst 4 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki (= alls 16 lykkjur fleiri í umferð).
Haldið svona áfram og aukið út fyrir laskalínu í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annarri hverri umferð frá réttu) alls 5-6-7-7-9-9 sinnum á hæðina = 150-170-190-190-226-226 lykkjur.
Haldið áfram með útaukningu í 4. hverri umferð, nema nú er einungis aukið út um 2 lykkjur í hverja lykkju með prjónamerki í, eins og útskýrt er að ofan (= alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 2 lykkjur við hvert prjónamerki alls 1-1-1-2-0-1 sinnum á hæðina. Eftir síðustu útaukningu eru 158-178-198-206-226-234 lykkjur í umferð.

Prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður, þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 27-30-32-34-38-40 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 30-34-40-40-42-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 44-50-54-58-66-70 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 30-34-40-40-42-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 27-30-32-34-38-40 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig eins og útskýrt er að neðan. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 114-126-134-146-162-174 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki 31-34-36-39-43-46 lykkjur inn frá hvorri hlið (= í hliðum á fram- og bakstykki). Nú eru 52-58-62-68-76-82 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Nú skiptist fram- og bakstykki við prjónamerki þannig að bakstykkið er prjónað sér og framstykkin eru prjónuð hvort fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 52-58-62-68-76-82 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið, þar til bakstykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 27-29-31-35-39-41 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 79-87-93-103-115-123 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 70-73-76-79-82-85 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð):
= 31-34-36-39-43-46 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið og 4 kantlykkjum í garðaprjóni við miðju að framan þar til framstykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm frá skiptingu (stillið af eftir bakstykki).
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-17-19-20-22-23 lykkjur jafnt yfir = 47-51-55-59-65-69 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

VINSTRA FRAMSTYKKI (séð þegar flíkin er mátuð):
= 31-34-36-39-43-46 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni við miðju að framan og 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hlið þar til framstykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm frá skiptingu (stillið af eftir hægra framstykki).
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 16-17-19-20-22-23 lykkjur jafnt yfir = 47-51-55-59-65-69 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

ERMI:
Setjið 30-34-40-40-42-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-12 lykkjum undir ermi = 38-42-48-50-52-54 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-12 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 12-6-4-3-3-3 cm millibili alls 3-5-7-8-8-8 sinnum = 32-32-34-34-36-38 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 37-35-34-32-31-29 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-16-18-18-18 lykkjur jafnt yfir = 48-48-50-52-54-56 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING. Ermin mælist ca 42-40-39-37-36-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

VASI:
Fitjið upp 22-22-24-24-26-26 lykkjur á hringprjón 8 með Melody. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 13-13-14-14-15-15 cm, skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 11-11-13-13-13-13 lykkjur jafnt yfir = 33-33-37-37-39-39 lykkjur.
Prjónið síðan stroff, þ.e.a.s. fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Vasinn mælist ca 18-18-20-20-22-22 cm á breiddina og 17-17-18-18-19-19 cm á hæðina.
Prjónið hinn vasann á sama hátt.
Saumið einn vasa á hvort framstykki, beint yfir stroff í neðri kanti og ca 5-5-6-7-7-8 cm in frá miðju að framan (mátið e.t.v. peysuna og stillið vasana af fyrir staðsetningu að eigin ósk).

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma á peysu – byrjið efst undir ermi og saumið í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur, en endið sauminn þegar eftir eru ca 12 cm neðst í hvorri hlið (= klauf).
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Lucia Battisti wrote:

Buonasera ho qualche difficoltà nel fare gli aumenti raglan dello sprone, invece che aumentare 16 maglie ogni 4 ferri posso aumentare 8 maglie ogni 2 ferri usando il metodo più semplice? Grazie lucia

14.10.2021 - 22:00

DROPS Design answered:

Può lavorare in questo modo se preferisce, ma la vestibilità del capo potrebbe risultare diversa. Buon lavoro!

14.10.2021 - 23:34

country flag Lucia Battisti wrote:

Buona sera ho una domanda in merito al segnapunti lo devo spostare a ogni ferro o solo quando ho realizzato l'aumento per il raglan? È forse un errore dove nella spiegazione del raglan scrivete 24 al posto di 2 aumenti? Grazie mille

09.10.2021 - 23:03

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, i segnapunti per gli aumenti vanno spostati come indicato, quello sullo sprone rimane fisso. Per gli aumenti, abbiamo corretto il testo, sono 2 maglie. Grazie per la segnalazione. Buon lavoro!

10.10.2021 - 17:23

country flag Unnur wrote:

Hæhæ. Ég átta mig ekki á því hvernig á að sauma saman fram-og bakstykki þannig að saumurinn verði flatur. Á garðaprjónið að sjást þegar búið er að sauma stykkin saman. Með fyrirfram þökk.

30.09.2021 - 22:16

DROPS Design answered:

Blessuð Unnur. Þú saumar flíkina í ystu lykkjubogana í kantlykkjurnar. Þessar kantlykkjur eru til þess að sauma flíkina saman og sjást ekki frá réttu þegar búið er að sauma. Gangi þér vel.

05.10.2021 - 16:34

country flag Anne wrote:

Bonjour, Est il possible de tricoter directement le dos et les 2 devants après la séparation des manches? A quoi sert de les tricoter séparément ? Merci beaucoup !

14.08.2021 - 10:58

DROPS Design answered:

Bonjour Anne, c'est a cause des fentes côtés. Vous pouvez modifier le modele et tricoter le dos et 2 devants ensemble, et les separer ensuite pour faire les fentes, Bon tricot!

15.08.2021 - 20:52

country flag Emeraude wrote:

Thank you very much for your prompt answer. Very useful! Kind regards.

13.08.2021 - 18:08

country flag Emeraude wrote:

Are the instructions for this pattern available for knitting it throughout with traditional straight needles? Thanks!

11.08.2021 - 19:37

DROPS Design answered:

Dear Emeraude, this pattern is not available written specifically for straight needles, however we do have a lesson about how to convert pattern for them HERE. Happy Stitching!

12.08.2021 - 05:03

country flag HOURDEBAIGT wrote:

Bonjour. J’ai utilisé le convertisseur pour une alternative avec 2 fils mais celui ci ne m’a pas trouvé de solution de remplacement. Auriez-vous une idée pour résoudre mon problème? Merci

04.03.2021 - 10:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hourdebaigt, pour voir les alternatives proposées pour remplacer 1 fil DROPS Melody par 2 autres fils, utilisez le convertisseur en indiquant la quantité pour la taille et 1 fil Melody - Retrouvez d'autres infos sur les alternatives ici - Rappelez-vous de toujours bien faire votre échantillon au préalable pour vérifier si la texture vous convient avec les alternatives choisies. Votre magasin saura également vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

04.03.2021 - 11:40

country flag Gisela Antony wrote:

Hallo, ich verstehe die Anleitung. Nur an einer Stelle bei den Ärmeln nicht: "und zusätzlich je 1 Masche aus den 8-8-8-10-10-12 Maschen an der unteren Ärmelmitte auffassen". Was bedeutet das? Und gibt es dazu eine Anleitung? Danke und viele Grüße Gila

10.01.2021 - 19:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Antony, diese Lektion zeigt, wie man einen Pullover von oben nach unten strickt - das Foto 18B zeigt hier, wie man diese 8-8-8-10-10-12 Maschen in die 8-8-8-10-10-12 am End der Passen angeschlagten Maschen auffassen soll. Viel Spaß beim Stricken!

11.01.2021 - 09:55

country flag Mariann Ring Nielsen wrote:

Drops 210-3. Er lige gået i gang med opskriften. Jeg mangler at der står hvor knaphullerne skal være. Er det noget man selv skal finde ud af?

28.10.2020 - 19:19

DROPS Design answered:

Hej Mariann. Du hittar info om det under KNAPPHULL längst upp på oppskriften. Mvh DROPS Design

29.10.2020 - 07:32

country flag Marianne Nilsson wrote:

Hej! Stickar en kofta i melody (053) och har fastnat rejält i momentet att öka 4m. för raglan. Hur jag än räknar och funderar blir ökningen 5m. Alltså en maska för mycket. Jag vill ha hjälp och tips med detta. Vad kan jag göra för fel? Tack på förhand. Hälsningar Marianne.

20.10.2020 - 16:09

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Har du sett denna video? Där kan du se hur man ska göra för att öka 4 maskor i en maska. Mvh DROPS Design

21.10.2020 - 09:54