DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 3.62 € /50g
DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Spring Fjords

Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Big Delight og DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tveggja lita áferðamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 210-9
DROPS Design: Mynstur ai-250
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-250-300-300-350 g litur 01, natur
Og einnig:
DROPS BIG DELIGHT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-300-300-300 g litur 12, gallabuxnablár

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

Litasamsetning sem sýnd er á mynd er (í sömu litaröð sem gefin er upp í efnismagni að ofan):
A) DROPS Air 02, DROPS Big Delight 01.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 3.62 € /50g
DROPS Big Delight
DROPS Big Delight
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.
Þegar taka á þráðinn seinna í mynstrinu ætti þráðurinn að samsvara 4 lykkjum (þ.e.a.s. 1 lykkja meira en lyft var yfir) – sjá stjörnu við hliðina á mynsturteikningu A.1.
Þegar þráðurinn liggur, ætti þráðurinn að samsvara lengd sem samsvarar lykkjum sem lyft er yfir.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d.20) = 4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 76-80-84-88-92-96 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki!

BERUSTYKKI:
Stykkið er síðan prjónað með sléttum lykkjum. Nú eru lykkjur auknar út jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, í annarri hverri umferð þannig:
Aukið út 16-20-24-20-20-20 lykkjur 1 sinni, síðan 14-20-22-20-18-20 lykkjur alls 2-2-2-3-4-4 sinnum = 120-140-152-168-184-196 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan mynstur þannig:
Prjónið A.1 (= 4 lykkjur), endurtakið A.2 (= 4 lykkjur) – sjá MYNSTUR, hringinn yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 29-34-37-41-45-48 sinnum á breiddina).
Aukið nú út í umferð merktri með ör í mynsturteikningu A.1 þannig:
ÚTAUKNINGS UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24-24-36-36-36-36 lykkjur jafnt yfir = 144-164-188-204-220-232 lykkjur.
A.2 er núna endurtekið 35-40-46-50-54-57 sinnum á breiddina.
ÚTAUKNINGS UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24-24-24-24-24-36 lykkjur jafnt yfir = 168-188-212-228-244-268 lykkjur.
A.2 er nú endurtekið 41-46-52-56-60-66 sinnum á breiddina.
Þegar A.1b og A.2b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1b og A.2b á hæðina 0-0-0-0-1-1 sinni til viðbótar (= alls 1-1-1-1-2-2 sinnum á hæðina). Prjónið síðan mynstur A.1 og A.2.
ÚTAUKNINGS UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24 lykkjur jafnt yfir = 192-212-236-252-268-292 lykkjur.
A.2 er nú endurtekið 47-52-58-62-66-72 sinnum á breiddina.
ÚTAUKNINGS UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 24 lykkjur jafnt yfir = 216-236-260-276-292-316 lykkjur.
A.2 er nú endurtekið 53-58-64-68-72-78 sinnum á breiddina.
ÚTAUKNINGS UMFERÐ 5: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út 0-0-0-12-24-24 lykkjur jafnt yfir = 216-236-260-288-316-340 lykkjur.
A.2 er nú endurtekið 53-58-64-71-78-84 sinnum á breiddina.
Nú er mynstrið prjónað og stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, lestu allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram!
Þegar A.1d og A.2d hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1d og A.2d á hæðina 1-1-2-2-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 2-2-3-3-3-3 sinnum á hæðina).
Prjónið síðan A.1c yfir A.1d og A.2c yfir A.2d.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-20-21-23-25-27 cm frá prjónamerki, stillið af að næsta umferð sé með Air, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið mynstur yfir fyrstu 31-34-37-41-46-51 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-50-56-62-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi, prjónið 62-68-74-82-92-102 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 46-50-56-62-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu 31-34-37-41-46-51 lykkjur (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 140-152-164-180-200-220 lykkjur.
Prjónið mynstur yfir lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. A.1 er prjónað 1 sinni og A.2 er endurtekið alls 34-37-40-44-49-54 sinnum á breiddina.
Þegar A.1c og A.2c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið 2 sléttar umferðir með Air og aukið út 7-7-7-6-7-8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 147-159-171-186-207-228 lykkjur.
Prjónið síðan A.3 (= 3 lykkjur) hringinn (= 49-53-57-62-69-76 sinnum á breiddina).
Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 sléttar umferðir með Air og auknar út 9-5-9-10-5-8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 156-164-180-196-212-236 lykkjur.
Prjónið síðan A.1a yfir 4 lykkjur, endurtakið A.2a yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 38-40-44-48-52-58 sinnum á breiddina).
Þegar A.1a og A.2a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina prjónið 2 sléttar umferðir með Air og aukið út 0-1-0-2-1-1 lykkjur í fyrstu umferð = 156-165-180-198-213-237 lykkjur.
Prjónið síðan A.3 yfir allar lykkjur (= 52-55-60-66-71-79 sinnum á breiddina).
Prjónið 2 sléttar umferðir með Air og fækkið um 0-1-0-2-1-1 lykkjur í fyrstu umferð = 156-164-180-196-212-236 lykkjur.
Prjónið A.1c, endurtakið A.2c yfir þær lykkjur sem eftir eru (= 38-40-44-48-52-58 sinnum á breiddina).
Prjónið nú stykkið með sléttum lykkjum í Air.
Þegar fram- og bakstykkið mælist 27-27-28-28-28-28 cm frá skiptingu, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið).
Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING!

ERMI:
Setjið 46-50-56-62-66-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur.
Prjónið A.2 hringinn eins og á fram- og bakstykki, stillið af að mynstrið við þar sem endað var á berustykki. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri eru prjónaðar slétt með Air mitt undir ermi (í umferð með Big Delight er lykkjunum sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, lyft yfir á hægri prjón, þ.e.a.s. þær eru ekki prjónaðar).
Prjónið nú alveg eins mynstur og á fram- og bakstykki þannig:
Þegar A.2c hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru prjónaðar 2 sléttar umferðir með Air.
Prjónið A.3 hringinn.
Prjónið 2 sléttar umferðir með Air.
Prjónið A.2a hringinn (í fyrstu og síðustu mynstureiningu af A.2a er þræðinum ekki lyft sem liggur laus yfir lykkjurnar 4 umferðir upp, hann liggur bara yfir lykkjum).
Prjónið 2 sléttar umferðir með Air.
Prjónið A.3 hringinn.
Prjónið nú stykkið til loka með Air. Prjónið sléttar lykkjur þar til stykkið mælist 27-26-25-24-22-21 cm. Aukið nú út 10-10-8-6-6-4 lykkjur jafnt yfir = 64-68-72-76-80-80 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 31-30-29-28-25 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.02.2020
Leiðrétting á mynsturteikningu A.2 (umferð 4, 18 og 26).

Mynstur

symbols = prjónið sléttar lykkjur með Big Delight
symbols = prjónið brugðnar lykkjur með Big Delight
symbols = lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón með Big Delight framan við lykkjurnar, passið uppá að þráðurinn herði ekki á stykki (þ.e.a.s. þráðurinn liggur frá réttu)
symbols = lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón með Big Delight aftan við lykkjurnar (þ.e.a.s. þráðurinn liggur frá röngu)
symbols = prjónið með Big Delight: Lyftið þræðinum upp frá réttu 4 umferðir niður upp á vinstri prjón og prjónið hann slétt saman með lykkjunni
symbols = prjónið sléttar lykkjur með Air
symbols = útauknings umferð – þessi útaukning er útskýrð í uppskrift, það er bara aukið út í fyrsta skipti sem þessi umferð er prjónuð
symbols = í þessari umferð á að taka þráðinn upp síðar í mynstri og þá verða þræðirnir sem liggja á réttu að samsvara lengd á 4 lykkjum (þ.e.a.s. 1 lykkja fleiri en sem lyft var yfir)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Spring Fjords

Anneli, Finland

Spring Fjords

Knitting Andrea, United States

Spring Fjords

Anita, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Carol McMillan wrote:

In the pictures it looks like there are 4 colours especially on the pink version (light pink, dark pink, lilac and white) but in the instructions only 2 are listed?

21.07.2022 - 18:30

DROPS Design answered:

Dear Carol, yes, you need only two yarns, because DROPS Big Delight is multicoloured - so all colors you mentioned are part of this one yarn and the colours change on their own during knitting. Happy knitting!

21.07.2022 - 18:38

country flag Geoffriau wrote:

J'ai bien vu ce que vous me dites mais par rapport au motif précédent les maillesne sont pas

21.07.2021 - 10:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Geoffriau, cette vidéo pourrait vous aider peut-être. Bon tricot!

21.07.2021 - 14:23

country flag Geoffriau wrote:

Augmentation 4 comment faire pour augmente r d'une maille et garder le motif ( les mailles bleues sont alors disposées

21.07.2021 - 10:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Geoffriau, toutes les augmentations se font sur des rangs où l'on va tricoter toutes les mailles avec une seule couleur (= en Air, naturel). Bon tricot!

21.07.2021 - 10:39

country flag Mary wrote:

Boy do I feel like an idiot. Thanks for everything and so sorry to waste your time.

15.05.2021 - 21:37

DROPS Design answered:

Dear Mary, don't feel like that. We are happy to help, and asnwer questions that make finishing pieces easier. Happy Knitting!

16.05.2021 - 00:00

country flag Mary Cooper wrote:

Hello, first let me thank you for your wonderful website. Now for my question. I know I’m probably just not understanding this like everyone else but I don’t know when to change the color with the big delight yarn. When do you use the second color? Is row one of A.1a in the first color and row two in the second color? Your patterns are always wonderful and clearly written so I know that this is just my misunderstanding. Thank you for any information you can provide. Kind regards, Mary

14.05.2021 - 10:28

DROPS Design answered:

Dear Mary, the Big Delight is used for the pattern, which is a kind of "mozaik" pattern, that uses slipped stitches to form the pattern. Please read through the description for the diagrams, and try it in a small swatch to familiarize with the technique. Also, check THIS video. Happy Knitting!

14.05.2021 - 22:23

country flag Inger Holzmann wrote:

Jeg strikke cardigan - altså frem og tilbage. Når jeg strikker vrangsiden er jeg i tvivl om A3 er kantmasken eller om jeg skal strikke en kantmaske inden jeg strikker A3?

10.06.2020 - 10:18

DROPS Design answered:

Hej Inger, klik på billedet med cardiganen, eller dette link: DROPS 210-10 så får du diagrammerne frem som passer til opskriften af samme model men som cardigan. God fornøjelse!

10.06.2020 - 13:35

country flag StrickSuzie wrote:

Hallo! Wenn ich das Muster wie angegeben mit A.1 (= 4 Maschen) 1 x und A.2 (= 4 Maschen) in der ganzen Runde über die restlichen Maschen verteile, habe ich den "Stern" für das Strukturmuster nur einmal in der hinteren Mitte, weil A1 nur einmal und ansonsten nur A2 vorkommt. Ist das so gemeint? Liebe Grüße

03.04.2020 - 16:53

DROPS Design answered:

Liebe StrickSuzie, das Stern betrifft auch A.2 - vielleicht kann Ihnen das Video helfen? Viel Spaß beim stricken!

03.04.2020 - 17:13

country flag Vibeke Fauske wrote:

Spring Fjords\r\nEr det slik at en skal strikke mønster A.1a på begynnelsen av hver omgang, der etter mønster A.2a ut omgangen? Eller skal en veksle 2.hver gang?

28.01.2020 - 18:43

country flag Cathy D wrote:

Bonjour ! Merci beaucoup pour cette vidéo, maintenant je comprends où était mon erreur ! Encore merci pour votre rapidité à répondre !

28.01.2020 - 15:05

country flag Cathy D wrote:

Bonjour, J'ai un problème avec le point fantaisie, je n'arrive pas au même résultat que sur la photo. Est ce qu'il y a une vidéo qui explique comment faire ce motif ? Merci d'avance pour votre aide.

26.01.2020 - 14:21

DROPS Design answered:

Bonjour Cathy D, cette toute nouvelle vidéo devrait vous aider à réaliser ce point. N'hésitez pas à vous entraîner sur un échantillon avant de commencer le pull. Bon tricot!

28.01.2020 - 10:14