DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 1.67 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15.03€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dots and Drops Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, hnútamynstri og ¾ löngum ermum. Stærð XS - XXL.

DROPS 213-10
DROPS Design: Mynstur r-766
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-700-750 g litur 82, silfurrefur

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni og hnútamynstri = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón og hnútamynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3. Lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 521: 6-6-7-7-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 1.67 € /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15.03€.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1 og A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út jafnt yfir í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 103 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið 93 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 4,7.
Í þessu dæmi er aukið út frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir til skiptis ca 4. og 5. hverja lykkju – ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð (ranga), prjónið uppsláttinn snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-8-8½-8½-9 cm millibili.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 103-107-111-119-123-127 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með Muskat. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í ca 2 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 20-26-32-34-45-56 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 123-133-143-153-168-183 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðar í garðaprjóni).
Setjið 1 prjónamerki eftir kanta að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 hringinn (= 3 lykkjur), prjónið A.2 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð (= 22-24-26-28-31-34 mynstureiningar með 5 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 233-253-273-293-323-353 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.3 (= 3 lykkjur), prjónið A.4 þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð (= 22-24-26-28-31-34 mynstureiningar með 10 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.4. Eftir síðust útaukningu í A.4 eru 277-301-325-349-385-421 lykkjur í umferð.

Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-20-22-24-26-28 cm frá prjónamerki við háls – ATH: Í minnstu stærðinni er A.3 og A.4 ekki lokið í þessu máli og í hinum stærðunum verður að endurtaka A. og A.y x á hæðina að réttu máli (mynstrið á að halda áfram á fram- og bakstykki og ermum).
Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 43-47-52-55-61-68 lykkjur í garðaprjóni og mynstri eins og áður (= framstykki), setjið næstu 57-61-64-70-77-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 77-85-93-99-109-123 lykkjur í mynstri eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 57-61-64-70-77-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 43-47-52-55-61-68 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 179-195-213-229-251-279 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í 47-51-56-60-65-72 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 85-93-101-109-121-135 lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki).
Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum í hvorri hlið á fram- og bakstykki. Nú er haldið áfram með mynstur JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað í hliðum á fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan:
Prjónið A.x og A.y fram og til baka eins og áður með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan, en passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við þar sem stykkið skiptist upp og passið uppá að hnútarnir séu staðsettir beint yfir hnúta á berustykki.
Þær 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist ca 6 cm frá skiptingu í öllum stærðum, endið A.x og A.y, en endið eftir 1 umferð með hnútum. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 6 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 167-183-201-217-239-267 lykkjur.

Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25 cm frá skiptingu í öllum stærðum (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-16-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 183-201-221-237-263-293 lykkjur (það er aukið aðeins út til að koma í veg fyrir að stroffið sem á að prjóna dragi kantinn saman).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff í 2 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 57-61-64-70-77-81 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykkinu á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 65-69-72-80-87-91 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar lykkjum er fækkað mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan:
Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið A.y hringinn, en passið uppá að halda áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við þar sem stykkið skiptist og passið uppá að hnútarnir séu staðsettir beint yfir hnútum á berustykki. Þær 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar í sléttprjóni.
Þegar ermin mælist 12 cm frá skiptingu í öllum stærðum, endið A.y, en endið eftir 1 umferð með hnútum. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 2-2-2-2-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-1½-1-1 cm millibili alls 7-8-9-12-14-15 sinnum = 51-53-54-56-59-61 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 28-26-25-23-21-20 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis.
Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Ermin mælist ca 30-28-27-25-23-22 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 28.04.2020
Ný mynsturteikning: A.2 - umferð 15.
Yfirfarið á vefsvæði: 15.01.2021
Ný mynsturteikning: A.2 - umferð 15. Ný mynsturútskýring: í þessari umferð eru einungis 2 lykkjur í mynsturteikningu A.1 og prjónað er A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, endið með 1 lykkju í sléttprjóni og 5 kantlykkjum í garðaprjóni

Mynstur

symbols = Slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = Hnútur: Prjónið 3 lykkjur brugðið saman, sleppið ekki lykkjum af prjóni af prjóni, en prjónið sömu 3 lykkjur slétt saman og síðan brugðið saman 1 sinni til viðbótar, sleppið að lokum öllum 3 lykkjum af vinstra prjóni
symbols = aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 1 lykkju slétt í lykkjuna frá fyrri umferð (þ.e.a.s. í lykkjuna aftan við fyrstu lykkju á vinstra prjóni), sleppið ekki lykkjunni af prjóni, prjónið sjálfa lykkjuna á prjóni slétt og sleppið lykkju af prjóni
symbols = í þessari umferð eru einungis 2 lykkjur í mynsturteikningu A.1 og prjónað er A.2 þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 1 lykkju sléttprjón og 5 kantlykkur í garðaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Dots and Drops Jacket

Rebecca Woods, United Kingdom

Dots and Drops Jacket

Rebecca Woods, United Kingdom

Dots and Drops Jacket

Claudia, Italy

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Μαρία Καπίρη wrote:

Καλησπέρα.Πολυ όμορφο Μπορείτε να με καθοδηγήσετε με τους πόντους για νούμερο 5 ,5 βελόνας (paris νήμα) για small?Επίσης δεν κατάλαβα πως κάνω τον κόμπο. Ευχαριστώ πολύ

22.04.2024 - 19:20

country flag Avril wrote:

Hi. I’m doing size L of this jacket. Please can you confirm that in the 10 stitches that are cast on under the sleeve you do not knit any knots, it is just plain stocking stitch. I am a bit confused here. Thank you.

12.02.2024 - 14:17

DROPS Design answered:

Hi Avril, It is possible to work the knot pattern as far as it fits under the sleeves, working the remaining stitches in stocking stitch (or work a stripe of stocking stitch down under the sleeve if you prefer). Happy knitting!

13.02.2024 - 06:56

country flag Avril wrote:

Hi. I am really struggling with row 15. I have looked at all the questions but I still can’t fathom it. What I thought was Knit the 2 sts of A1 then increase in the first st of A2, knit the knot then increase in the next st. But this seems to mean that there are twice as many knots and the knots don’t line up. I would welcome any help you can give. Thank you.

22.01.2024 - 18:36

DROPS Design answered:

Dear Avril, do you mean row 15 in A.2, size L, XL, XXL? On this row, first work A.1 over 2 sts only, *the last st in A.1/next A.2 is the increase shown at the beg of A.2, ie work this stitch 2 times (first of these 2 sts is now the last st in A.1 and 2nd stitch is now the first st A.2), work then a knot over the next 3 sts, increase in the next stitch, knit 1 and repeat A.2 from*. Do not hesitate to add markers between repeats, it can help to check the number of sts. Happy knitting!

23.01.2024 - 07:24

country flag Maria wrote:

I love this jacket!

30.03.2023 - 12:53

country flag Veronica wrote:

Gracias por responder. Podrian incorporar en las etiquetas los modelo con elevacion? Saludos

20.03.2022 - 20:38

country flag Veronica wrote:

Gracias por responder. Sugiero, si es posible, que en las etiquetas puedan incluir la palabra elevacion, asi poder buscar con facilidad. Cordiales saludos

20.03.2022 - 20:35

country flag Veronica wrote:

Hola equipo Drops!!! Me gustaria saber como realizar este proyecto con elevacion. Gracias y saludos cordiales

14.03.2022 - 22:22

DROPS Design answered:

Hola Veronica, no hacemos patrones personalizados. Puedes ver en nuestro amplio catálogo de patrones otros modelos con elevación en la espalda.

20.03.2022 - 18:10

country flag Sukhjinder Kaur wrote:

Please explain how to increase from the loop on previous row in pattern dots and drops Thanks

16.02.2022 - 03:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kaur, work the 3rd symbol (diamond) to increase 1 stitch as shown in this video. Happy knitting!

16.02.2022 - 11:21

country flag Annika wrote:

Hi, I am at the last increase from A.2 for xs/s/m but the knots don't line up with the knots from the previous rows. I am knitting 1inc k3 1inc and 1 knot. What can I do so it fits and end up with the right number of stitches?

30.01.2022 - 22:32

DROPS Design answered:

Dear Annika, to line up the knots in A.2 work as follows the 8 sts: k1 inc 1, knit 3, knit 1 inc 1, knot over 3 sts = there are now 10 sts (2 sts increased before the last knot). Happy knitting!

31.01.2022 - 10:07

country flag Francesca wrote:

Buongiorno, dopo il quindicesimo ferro, ho già più di 240 maglie….troppe! Sto lavorando: lo schema a1 solo una volta all’inizio del ferro, poi a.2 per tutto il resto… forse devo alternare a1 con a2?? O sennò cosa sbaglio? Grazie Francesca

18.09.2021 - 09:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca, quale taglia sta lavorando? A.2 inizia con 5 maglie e alla fine del diagramma ogni ripetizione avrà 10 maglie invece di 5. Ad esempio, per la taglia XS, ci saranno 123 maglie iniziali su cui lavorare 5 maglie per il bordo, A.1 (3 maglie), 22 ripetizioni di A.2 e 5 maglie per il bordo. Alla fine dei diagrammi ci saranno 5 maglie per il bordo, A.1, (3 maglie), A.2 (22x10 maglie), 5 maglie per il bordo = 233 maglie. Buon lavoro!

20.09.2021 - 09:52