DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Evening Glow

Prjónuð peysa úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og stuttum ermum með gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 212-1
DROPS Design: Mynstur sk-076
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
250-300-300-350-350-400 g litur 19, múrsteinn

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7480.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 23.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 23. hverja lykkju
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð ca 22. og 23. hver lykkja slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (laskalína) og A.2 (mynstur á ermum).

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu hvoru megin við 10 lykkjur í A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma (= alls 8 lykkjur fleiri í útauknings umferð).
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni á framstykki og bakstykki og í A.2 á ermum.

ÚRTAKA-1 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið 2 lykkjur brugðið (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (rétta) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 92-96-100-106-110-114 lykkjur á hringprjón 3 með Sky.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm.
Þegar stroffið hefur verið gert til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-8-8-6-2-6 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 96-104-108-112-112-120 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (= mitt að framan). Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt (uppslátturinn frá útaukningu er prjónaður snúinn slétt9.
Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!

BERUSTYKKI:
Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (prjónamerkin eru sett í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar).
Teljið 14-16-17-18-18-20 lykkjur (= ½ bakstykki), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju, teljið 28-32-34-36-36-40 lykkjur (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju, teljið 20 lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki á undan næstu lykkju. Nú eru 14-16-17-18-18-20 lykkjur eftir á bakstykki á eftir síðasta prjónamerki.
Í næstu umferð byrjar mynstur eins og útskýrt er að neðan, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 9-11-12-13-13-15 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.1 (= 10 lykkjur – prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.2 (= 10 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.1 (= 10 lykkjur – prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið 18-22-24-26-26-30 lykkjur sléttprjón (= framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.1 (= 10 lykkjur – prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.2 (= 10 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu,
prjónið A.1 (= 10 lykkjur) – prjónamerki situr mitt í A.1), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 9-11-12-13-13-15 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki).

Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 23-25-29-33-37-40 sinnum á hæðina, meðtalin útaukning sem útskýrð er í fyrstu umferð. ATH: Útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur þar til það eru alls 5-5-7-7-7-7 mynstureiningar á breidd yfir ermi (sjá stjörnu í mynsturteikningu sem merkir 1 einingu), prjónið síðan útauknar lykkjur brugðið til loka (A.2 sýnir ermi með öllum útaukningum í stærð S).
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 280-304-340-376-408-440 lykkjur í umferð.
Prjónið áfram án útaukningar þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmáli.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið 40-44-49-54-60-66 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 60-64-72-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-98-108-120-132 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-64-72-80-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 40-44-49-54-60-66 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 176-192-212-232-256-280 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi = 88-96-106-116-128-140 lykkjur á milli prjónamerkja. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum á fram- og bakstykki.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 3 cm millibili alls 4 sinnum í hvorri hlið = 160-176-196-216-240-264 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 16 cm frá skiptingu. Í næstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 2½ cm millibili alls 6 sinnum í hvorri hlið = 184-200-220-240-264-288 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið 1 umferð slétt og aukið jafnframt út 36-40-44-48-52-58 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 220-240-264-288-316-346 lykkjur.
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 60-64-72-80-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í 8 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Byrjið umferð við prjónamerki og haldið áfram með mynstur hringinn með A.2 yfir miðju 46-46-64-64-64-64 lykkjur á ermi og brugðnar lykkjum yfir þær 22-26-16-24-28-32 lykkjur sem eftir eru mitt undir ermi.
Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu í öllum stærðum, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-2-1½-1-½-½ cm millibili alls 5-6-8-10-12-13 sinnum = 58-60-64-68-68-70 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 17-15-14-12-11-9 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 3 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-6-8-10-8-8 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 52-54-56-58-60-62 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING!
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið (það eiga að myndast göt)
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = prjónið 1 lykkju slétt í lykkjuna undir næstu lykkju
symbols = 1 mynstureining á breiddina
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Evening Glow

Marija Jakopin, Slovenia

Evening Glow

Marta, Poland

Evening Glow

Yarnophilics, New Zealand

Evening Glow

Lisa, Greece

Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Aggi wrote:

Danke für Ihre schnelle Hilfe! Jetzt verstehe ich, wie ich es stricken muss. Eine abschließende Frage habe ich, wo finde ich die Angabe, dass ich im A2 Muster links VERSCHRÄNKT stricken muss? Vielen herzlichen Danke für dieses Muster und Ihre Hilfe!

10.03.2022 - 15:41

DROPS Design answered:

Liebe Aggi, unter RAGLANZUNAHMEN, es steht eben "rechts" verschränkt, aber Sie können die Zunahmen bei den Ärmeln auch wie im Diagram (entweder links oder rechts) bei der nächsten Runde stricken; oder zuerst immer rechts, dann entweder rechts oder links, je nach A.2. Viel Spaß beim stricken!

10.03.2022 - 18:24

country flag Aggi wrote:

Hallo, ich habe gleich direkt am Anfang von Runde 2. Probleme, trotz mehrere Versuche fehlen mit in Runde 2. nachdem ich 12 M und A1 gestrickt habe, soll ich nun mit A2 anfangen mit einer linken Masche. Diese Masche fehlt mir aber. Ich habe nur 1 rechte Masche, danach die 3 linken Maschen usw, wie im Muster in der Zeile da drunter. Wo kommen die zusätzlichen linken Maschen am Anfang von Runde 2 bei Muster A2 her? Hoffentlich können Sie mir helfen. Dankeschön

09.03.2022 - 21:01

DROPS Design answered:

Liebe Aggi, es sind nur 10 Maschen in A.1, nach der 1. Runde haben Sie 1 Masche beidseitig von A.1 (= Umschlag) zugenommen; diese Umschläge stricken Sie beim Vorder- und Rückenteil verschränkt rechtes; und bei den Ärmeln stricken Sie den Umschläge wie im A.2 gezeigt : 1 Umschlag nach A.1, am Anfang A.2 wird links verschränkt gestrickt und 1 Umschlag am Ende A.2 = vor dem nächsten A.1 wird links verschränkt gestrickt; Kann das Ihnen helfen?

10.03.2022 - 10:39

country flag Chloë Van Kuijck wrote:

Ik ben op het punt van herhaling in de breedte gekomen. Alleen als ik die herhaling doe, dan verspringt het patroon. Ik heb dus niet genoeg steken als ik het patroon volg. Waar kan dit aan liggen? Moet ik naast de meerderingen die staan bij de uitleg voor de raglan ook nog andere meerderingen doen zodat ik wel genoeg steken heb voor de herhaling in de breedte?

24.02.2022 - 18:29

DROPS Design answered:

Dag Chloë,

Je breit de gemeerderde steken gaandeweg mee in het patroon. In het telpatroon A.2 is te zien hoe je de steken breit. Zorg ervoor dat het patroon in de hoogte doorloopt. Dus steeds het samen breien en de omslagen etc. boven die van de vorige naalden doen. Je hoeft alleen de meerderingen van de raglan te doen, geen andere meerderingen.

26.02.2022 - 14:49

country flag Sarah wrote:

Hej drops. Jeg har problemer med ranglen udtagning efter A.1. Det som om mine omslag bliver løse og hullet, trods jeg strikker masken drejet. Og i mønster A.1 yderste maske hvor jeg skal strikke i masken under, bliver også meget løs. Skal man strikke ret på 2 pind af A.1 (som vist i mønster), eller strikkes vrang som vedlagte video? Mvh Sarah

02.01.2022 - 00:03

DROPS Design answered:

Hej Sarah, der vil altid blive et lille hul, men hvis du sørger for at strikket omslaget drejet og ret fast, så vil det blive mindre. God fornøjelse!

05.01.2022 - 08:46

country flag Louise wrote:

Hallo, ich bin gerade etwas verwirrt... ich stricke Größe L und soll 29x zunehmen, d.h., ich hätte dann 68 Maschen für die Ärmel. In der Aufteilung für den Rumpfteil steht aber, dass ich 72 Ärmel-Maschen stillegen soll - woher kommen die 4 zusätzlichen Maschen? Danke!

13.09.2021 - 14:57

DROPS Design answered:

Liebe Louise, die 2 letzten Maschen von A.1 nach Rückenteil/Vorderteil und die 2 ersten Maschen nach der Ärmel werden zu den Ärmeln gestrickt, dh beim 1/2 Rückenteil haben Sie 41 M + 8 M A.1 = 49 M, Ärmel = 2 M A.1 + 68 M + 2 M A.1; Vorderteil: 8 M A.1 + 82 M + 8 M A.1... Viel Spaß beim stricken!

14.09.2021 - 07:38

country flag Emma Speedtsberg wrote:

Kære Drops Mange tak for de fine opskrifter. Jeg har et generelt spørgsmål; hovedparten af jeres opskrifter har størrelse small som den mindste størrelse..jeg har ikke så megen strikkeerfaring endnu, men ønsker at strikke denne trøje så den passer en lille størrelse x-small. Er der nogle generelle råd til hvordan man gør en opskrift "mindre"? Hilsen Emma.

25.03.2021 - 08:24

DROPS Design answered:

Hej Emma, Du finder målene i måleskitsen nederst i opskriften. Strikkefastheden på denne opskrift er 21 masker på 10 cm. Det vil sige hvis du vil have den 10 cm mindre i omkreds så trækker du 21 masker (eller 10 masker for 5 cm) fra det mindste antal masker i opskriften. Læs mere om strikkefasthed nederst i opskriften under FAQ. God fornøjelse!

25.03.2021 - 08:55

country flag Mette wrote:

Når jeg laver runde 2 af mønstret i bærestykket, skal den raglan udtagning efter den første gang A1 så strikkes som vrang (som der står i A2) eller som drejet vrang eller som drejet ret? Da den jo er en del af ærmestykket.

15.03.2021 - 11:20

DROPS Design answered:

Hej Mette, de nye masker strikkes drejet og de strikkes i glatstrik mod for og bagstykket og i A.2 mod ærmerne. God fornøjelse!

19.03.2021 - 14:02

country flag Mette wrote:

Hej :) Jeg har et spørgsmål til A1 mønstret. De 4 linjer der er, skal alle 4 linjer bruges i hver runde eller er det første/nederste linje i 1 omgang, anden linje i anden omgang, tredje linje i tredje omgang og fjerde linje i fjerde omgang, og så starter man forfra? Det kan jeg ikke helt læse mig til fra opskriften.

14.03.2021 - 14:10

DROPS Design answered:

Hei Mette. Du strikker 1. rad på 1. omgang, 2.rad på 2. omgang, 3. rad på 3. omgang, 4.rad på 4. omgang, så gjentar du A.1 i høyden. 1. rad på 5. omgang, 2. rad på 6. omgang osv. mvh DROPS design

22.03.2021 - 12:05

country flag Mette wrote:

Jeg er allerede er oppe i pind 5, og min strikkeprøve hedder 23*30, i stedet for 21*28. Bliver selve strukturen for løs/gennemsigtig hvis jeg går op i pind 5.5? Eller er der andre måder at hjælpe det på? Jeg bruger Drops Sky som anbefalet i opskriften.

11.03.2021 - 08:37

DROPS Design answered:

Hej Mette, DROPS Sky er superflot med 21 masker på 10 cm og den kan også med fordel strikkes endnu løsere. Det lyder til at du strikker meget stramt :)

11.03.2021 - 11:01

country flag Mette wrote:

Jeg vil lave en strikkeprøve på garnet. Der står ikke hvilken pind strikkeprøven skal laves i?

04.03.2021 - 22:19

DROPS Design answered:

Hej Mette, Vi har brugt pind nr 4 til det glatstrikkede :)

05.03.2021 - 08:11