DROPS Brushed Alpaca Silk uni colour 77% Alpakka, 23% Silki |
2.13 € /25g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Mespelotes.com
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Mespelotes.com
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Brushed Alpaca Silk uni colour 77% Alpakka, 23% Silki 2.13 € /25g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Mespelotes.com
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Mespelotes.com
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Cheers to Life |
|
|
|
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr 2 þráðum DROPS Brushed AlpacaSilk og 1 þræði glitter. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 55 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 7,85. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – prjónað í hring: UMFERÐ 1: * Sláið uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 lykkja slétt *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 3. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman *, endurtakið frá *-*. Endurtakið umferð 2 og 3. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð í umferð þar sem uppsláttur og óprjónaða lykkjan er prjónað slétt saman. AUKIÐ SVONA ÚT LYKKJUR MEÐ FJÓLUBLÁUM PRJÓNAMERKJUM: Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn og færið prjónamerkið þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, færið fjólubláa prjónamerkið að þessari lykkju (þ.e.a.s. lykkju á hægri prjóni), en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Prjónamerkið situr í fyrstu útauknu lykkjunni (= slétt lykkja). Í næsta skipti sem aukið er út er aukið út í lykkju með prjónamerki. AUKIÐ SVONA ÚT LYKKJUR MEÐ GRÆNUM PRJÓNAMERKJUM: Prjónið 3 lykkjur í lykkjuna og uppsláttinn og færið prjónamerkið þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar og færið græna prjónamerkið að þessari lykkju = 3 lykkjur (= 2 lykkjur fleiri). Prjónamerkið situr í síðustu útauknu lykkjunni (= slétt lykkja). Í næsta skipti sem aukið er út er aukið út í lykkju með prjónamerki. Í næstu umferð eru prjónaðar 3 lykkjur inn í klukkuprjóns mynstri þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. Síðan er prjónað áfram í klukkuprjóns mynstri. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju, uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Aukið er út fyrir fram- og bakstykki og ermar mitt að framan/aftan og mitt ofan á ermum. Berustykkið skiptis fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 55-55-58-60-62-65 lykkjur á hringprjón 7 með 2 þráðum Brushed AlpacaSilk og 1 þræði Glitter. Prjónið 2 sléttar umferðir. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 7-7-10-4-6-9 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA = 48-48-48-56-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan), það á að mæla berustykki frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið nú 8 prjónamerki í stykkið þannig: Notið 2 ólíka liti á prjónamerkjum. Prjónið 3-3-3-3-5-5 lykkjur slétt, setjið 1 fjólublátt prjónamerki í næstu lykkju og prjónið hana slétt, * prjónið 5-5-3-5-3-3 lykkjur slétt, setjið 1 grænt prjónamerki í næstu lykkju og prjónið hana slétt, prjónið 5-5-7-7-9-9 lykkjur slétt, setið 1 fjólublátt prjónamerki í næstu lykkju og prjónið hana slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinum, prjónið 5-5-3-5-3-3 lykkjur slétt, setjið 1 grænt prjónamerki í næstu lykkju og prjónið hana slétt og prjónið síðustu 2-2-4-4-4-4 lykkjur slétt. Þær 5-5-7-7-9-9 lykkjurnar á milli grænu og fjólubláu prjónamerkjanna eru lykkjurnar mitt að framan, mitt að aftan og mitt ofan á hvorri ermi. Það á síðar að auka út í lykkjur með prjónamerki. Prjónið nú áfram í KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan. Í 3. umferð í mynstri byrjar útaukning þannig: Aukið út 2 lykkjur í hverja slétta lykkju með prjónamerki (= alls 16 lykkjur fleiri) og prjónamerkin eru nú færð í hvert skipti sem aukið er út – sjá ÚTAUKNING! Þ.e.a.s. útauknar lykkjur eru prjónaðar á undan grænu prjónamerkjunum og á eftir fjólubláu prjónamerkjunum. Þær 5-5-7-7-9-9 lykkjur á milli prjónamerkja verða áfram eins, lykkjur sem auka á út, eru auknar út hvoru megin við þessi prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið svona út í 6. hverri umferð alls 2-3-5-4-5-7 sinnum, síðan í 8. hverri umferð alls 2-2-2-3-3-2 sinnum og í 10. hverri umferð 2-2-1-1-1-1 sinnum = 144-160-176-184-200-216 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 23-23-25-26-28-30 cm frá prjónamerki mitt að aftan. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið yfir fyrstu 23-25-27-28-31-34 lykkjur, setjið næst 27-31-35-37-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 5 lykkjur undir ermi, prjónið yfir næstu 45-49-53-55-61-67 lykkjur, setjið næstu 27-31-35-37-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 5 lykkjur undir ermi og prjónið yfir síðustu 22-24-26-27-30-33 lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-108-116-120-132-144 lykkjur. Haldið áfram í hring í klukkuprjóni. Í fyrstu umferð með klukkuprjóni eru prjónaðar 5 nýjar lykkjur undir hvorri ermi án þess að prjóna lykkjur saman með uppslætti. Þegar stykkið mælist 27-29-29-30-30-30 cm frá skiptingu, prjónið 3 sléttar umferðir yfir allar lykkjur. Fellið af – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 27-31-35-37-39-41 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / stuttan hringprjón 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 5 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 32-36-40-42-44-46 lykkjur. Haldið áfram í hring í klukkuprjóni eins og áður. Í fyrstu umferð í klukkuprjóni eru auknar út 5 nýjar lykkjur undir ermi án þess að prjóna lykkjur saman með uppslætti. Þegar stykkið mælist 36-37-36-35-34-33 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki, prjónið 3 sléttar umferðir yfir allar lykkjurnar. Fellið síðan af. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6921 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (28)
Camilla Steiro wrote:
Det står i oppskriften under HELPATENT helt nederst: "Gjenta 2. og 3. omgang". Er det bare en gang, eller skal resten av genseren strikkes med bare omgangene 2 og 3? Altså skal 1. omgang aldri strikkes igjen?
19.03.2024 - 07:26DROPS Design answered:
Hej Camilla, 1. omgang i patenten strikkes kun en gang :)
19.03.2024 - 15:10Mel wrote:
When you start working the English rib, I gain 24 stitches before I have worked any of the actual increases. Is this correct and if not, how do I prevent this? Thanks.
07.04.2023 - 10:42DROPS Design answered:
Dear Mel, the yarn overs worked in the English rib pattern don't count as new stitches, since they will eventually be worked together with their respective stitches. So, you shouldn't have any real increased stitches before starting to increase on round 3. Happy knitting!
08.04.2023 - 20:50Claire wrote:
Bonjour Par quel fil pourrais je remplacer le fil glitter , je n’aime pas le brillant. Merci d’avance
21.09.2022 - 18:05DROPS Design answered:
Bonjour Claire, vous pouvez simplement le supprimer, Glitter est un fil très fin qui ne change pas la tension du tout. Bon tricot!
22.09.2022 - 09:31Jeanette Sørensen wrote:
Hej. Jeg strikker str s. Der står at jeg efter indtagning i hals har 48 masker. Så skal jeg tage 8 masker ud på hver 6 omg 2 gange, på hver 8 omg 2 gange og på hver 10 omg 2 gange. Det er 48 nye masker 6*8. Så ender jeg på 96. Er de 144 jeg skulle ende med at have så inklusiv omslag?
18.12.2021 - 08:26DROPS Design answered:
Hei Jeanette. Du starter med 48 masker, så øker du med 16 masker hver gang det er en økeomgang. Du øker 6 ganger (6 ganger x 16 masker = 96 økte masker). Da blir det 48 masker + 96 økte masker = 144 masker. (Omslagene til patentmasken telles ikke som en egne maske, de tilhører patentmasken). mvh DROPS Design
21.12.2021 - 10:24JoeJ5 wrote:
Bonjour En ce qui concerne les rangs d'augmentation CÔTES ANGLAISES AVEC JETÉS , il est écrit : "Tricoter 3 fois la maille et son jeté" mais dans l'explication et la vidéo la maille et son jeté sont tricotés deux fois ! que dois-je faire. Merci
19.03.2021 - 17:15DROPS Design answered:
Bonjour JoeJ5, dans la même maille vous allez: tricoter cette maille + faire 1 jeté + tricoter à nouveau cette maille, vous aurez 3 mailles sur l'aiguille droite et aurez maintenant augmenté 2 mailles. Bon tricot!
22.03.2021 - 07:13Janni Kristensen wrote:
Har set video og flytter som anvist i opskriften
05.03.2021 - 18:12DROPS Design answered:
Hej Janni, da burde det også se ud som i videoen... husker du at du ikke skal tælle omslagene med som masker?
08.03.2021 - 11:43Janni Kristensen wrote:
Der står i opskriften der skal blive med med at være 5-5-7-7-9-9 masker mellem mærkerne i mit tilfælde 7. Men når jeg starter på helpatent med omslag får jeg 11 masker grundet omslaget. Hvad pokker gør jeg galt?
28.02.2021 - 21:28DROPS Design answered:
Hej Janni, kan det være fordi du glemmer at flytte mærket? Eller har du set videoen nederst i opskriften?
05.03.2021 - 10:05May wrote:
...vervolg: Of moet je op deze manier de naalden in patentsteek breien: Naald 3 meerderen // 2 toeren breien // Naald 6 meerderen // 5 toeren breien // Naald 12 meerderen // 7 toeren breien // Naald 8 meerderen // 7 toeren breien // Naald 16 meerderen // 9 toeren breien // Naald 10 meerderen // 9 toeren breien // Naald 20 meerderen // verder breien tot 23 cm (dus weer "beginnen" bij naald 5 toeren breien // Naald 6 meerderen ?? )
09.02.2021 - 12:35DROPS Design answered:
Dag May,
De meerderingen worden gemaakt in een naald waarbij de omslag en averechte steek recht samen worden gebreid, zoals ook bovenaan aangegeven bij de instructies hoe je de meerderingen voor en na de markeerders maakt. Als er staat 'meerder zo iedere 6e' naald, dan wordt daarmee bedoeld dat je om de 6 naalden meerdert. Dit doe je in maat s 2 keer, dus dan zit je op 12 naalden. Vervolgens meerder je om de 10 naalden, ook weer 2 keer in maat S, dus dan komen er 20 naalden bij. Je bent dan in totaal 32 naalden verder. Als je nog niet op 23 cm bent brei je verder tot die hoogte in patentsteek zonder verdere meerderingen.
23.02.2021 - 14:18May wrote:
Hi, dank voor uw antwoord. Er wordt dus steeds gemeerderd in naald 2 van de patentsteek, AVERECHT. Maar in de video wordt steeds gemeerderd in de naald waar RECHT wordt gebreid (naald 3 en naald 6 in patentsteek)...? Kunt u mij vertellen, voor maat S, op welke naalden van de patentsteek ik steeds moet meerderen? Is dit 3,6,8,10,12, en 16 om tot 23cm (144steken) te komen?
09.02.2021 - 12:25DROPS Design answered:
Dag May,
Excuses, ik heb het verkeerd aangegeven, de meerderingen worden gemaakt op een naald waar de omslag en de averechte steek recht (en niet averecht) samen worden gebreid. Ik zal dit ook nog even corrigeren in het andere antwoord (voor andere lezers). Hopelijk kom je er nu uit waar je moet meerderen. Voor maat S is het op naald 6,12, 20, 28, 38, 48. Je hebt dan 144 steken en je breit evt. verder tot het werk 23 cm meet (dus zonder verdere meerderingen).
27.03.2021 - 16:02Su wrote:
I have a question about yoke increases. It says to increase every 6th, 8th, 10th rounds. By rounds, do you mean the actual # of rounds or the # of knit stitches in English rib? The video made it look like the latter. She did 10 actual rounds (= 5 English rib knits) before another increase. I followed this but it is wrong. I need to split for sleeves before I can finish all the increases. The instruction and the video are not very clear. Thank you.
08.02.2021 - 03:38DROPS Design answered:
Dear Su, you have first to increase on every 6th round, ie work 1 round with increases, 5 rounds without increase (number of rounds worked = 3 english rib in height), ie count the number of rounds you work - Hope this will help. Happy knitting!
08.02.2021 - 10:52