T Weert wrote:
De meerdering in de raglan Wordt deze in elke nld gebreid of niet in de teruggaande nld Ik heb de trui gebreid waarin ik de meerderingen in elke nld deed Maar er komt dan een rare tuut in het voorpand en omdat de raglan niet mooi doorloopt ?
03.01.2021 - 20:04DROPS Design answered:
Dag T Weert,
Je meerdert iedere andere naald, dus de ene naald wel en de andere naald niet.
10.01.2021 - 11:39Rosa Barzeele wrote:
Ik wil maat M breien. Julie stekenverhouding is 20 steken voor 10 cm. De breedte van het lijf is 53 cm. Ik verwacht dus 53 x 20 steken dus 106 x 2 nl 212 steken. Op de beschrijving lees ik echter 180 steken.
29.11.2020 - 09:46DROPS Design answered:
Dag Rosa,
De 20 steken = 10 cm zijn in de hoogte. In de breedte heb je 16 steken = 10 cm en dan kom je op een minder aantal steken.
30.11.2020 - 19:53Rosa Barzeele wrote:
Ik vraag me af of het klopt dat de tricotsteek met naald 5,5 wordt gebreid? Ik ben proeflap aan het breien. Eerst met Naams 5,5 dan met 5. Nu met 4,5 Is het geen tikfout die 5,5
28.11.2020 - 16:43DROPS Design answered:
Dag Rosa,
Ja, de naalddikte zou moeten kloppen. Maak altijd wel even een proeflapje om te controleren of de stekenverhouding klopt en pas evt. de naalden aan. (Zelf moet brei ik ook altijd met een halve of een hele naald dunner voor de juiste stekenverhouding ;))
30.11.2020 - 20:10Pysson K wrote:
Ik ben aan de mouwen bezig ,heb nu 8steken geminderd ,en er staat nu ga verder in tricotsteek tot de mouw 8cm meet vanaf de scheiding . Wat bedoelen jullie met scheiding? Mvg
22.10.2020 - 17:00DROPS Design answered:
Dag Pysson K,
Er wordt bedoeld vanaf waar de mouwen en het lijf van elkaar gescheiden zijn.
25.10.2020 - 19:31Lena Hovgaard wrote:
Jeg syntes ikke diagrammet til ærmerne er i opskriften længer , har tidligere været der vh. Lena
16.07.2020 - 15:09DROPS Design answered:
Hej Lena, diagrammet er nederst i opskriften lige under måleskitsen. God fornøjelse!
28.07.2020 - 13:03Sigurd wrote:
Hvorfor får man ikke utskrift av side 3 og 4, disse kommer bare blank
01.07.2020 - 11:22DROPS Design answered:
Hej Sigurd. Det kommer utskrift av alla sidor när jag printar här. Kan det kanske vara någon instilling på din printer? Mvh DROPS Design
01.07.2020 - 12:29Borgny wrote:
Hvis jeg strikker denne i Air, hvor mange gram i M?
21.06.2020 - 16:17DROPS Design answered:
Hej! Då behöver du 5 nystan Air. Här kan du läsa om hur du gör för att räkna ut garnmängden när du använder ett alternativt garn. Lycka till!
22.06.2020 - 09:42Arnhild Klokkertrøen wrote:
Hei! Står i oppskriften at det skal være 10 cm med vrangforestillinger. Etterpå skal jeg øke til raglan 16 gr og strikke til arbeidet måler 17 cm. Arbeidet måler jo 17 cm lenge før jeg er ferdig med disse økningene ( bare vrangbordene er 10 cm).
17.06.2020 - 13:24DROPS Design answered:
Hej Arnhild. Du ska sätta 1 merke efter halskanten och därifrån måles sedan arbetet, dvs du ska sticka 17 cm efter halskanten (i den minsta storleken). Mvh DROPS Design
17.06.2020 - 13:56Imogen wrote:
Ist bei den Raglanzunahmen wirklich eine Löcherbildung erwünscht? "In der nächsten Runde die Umschläge rechts stricken, sodass Löcher gebildet werden." Würde es auch noch gut aussehen, wenn ich die Umschläge rechts verschränkt abstricke?
10.06.2020 - 20:43DROPS Design answered:
Liebe Imogen, bei diesem Modell werden die Raglanzunahmen Löcher ausbilden, Sie könenn auch entscheiden, die ohne Löcher zu stricken - Hier sehen Sie unterschiedlichen Modellen mit Raglan und Brushed Alpaca Silk, mit oder ohne Löcher beim Raglan. Viel Spaß beim stricken!
11.06.2020 - 08:22
Cloud's Hug |
||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og blöðruermum. Stærð XS - XXL.
DROPS 212-13 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 74 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 22) = 3,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptist á eftir ca 3. og 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð til skiptis ca önnur hver og 3. hver lykkja og 3. og 4. hver lykkja slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við þau prjónamerki sem eftir eru (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið laust upp 74-76-80-84-88-92 lykkjur á hringprjón 5,5 með Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn þar til stykkið mælist 10 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 22-24-28-28-32-44 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 96-100-108-112-120-136 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan), berustykkið er mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið eitt prjónamerki eftir 16-17-19-19-21-25 lykkjur (= í skiptinguna á milli bakstykkis og hægri ermi), hoppið yfir næstu 16-16-16-18-18-18 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis), hoppið yfir næstu 32-34-38-38-42-50 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli framstykkis og vinstri ermi), hoppið yfir næstu 16-16-16-18-18-18 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér (= í skiptinguna á milli vinstri ermi og bakstykkis), nú eru 16-17-19-19-21-25 lykkjur eftir í umferð á eftir síðast prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT í fyrstu umferð byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 16-18-19-21-23-25 sinnum = 224-244-260-280-304-336 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 17-18-19-21-23-25 cm frá prjónamerki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 32-35-38-40-44-50 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-52-54-60-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-70-76-80-88-100 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-52-54-60-64-68 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 32-35-38-40-44-50 lykkjurnar (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-168-176-196-220 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 22-24-25-25-25-25 cm, aukið út 10-12-12-12-14-16 lykkjur jafnt yfir = 150-164-180-188-210-236 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 49-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 48-52-54-60-64-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-10 nýjum lykkjum undir ermi = 54-58-62-68-74-78 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í nýjar lykkjur undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð XS, S og M: Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 4.-4.-2. hverri umferð alls 5-5-7 sinnum = 44-48-48 lykkjur. Stærð L, XL og XXL: Prjónið sléttprjón hringinn. Í 2. umferð byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverri umferð 4-5-7 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 4-4-2 sinnum = 52-56-60 lykkjur. Allar stærðir: Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 11-11-10-8-7-5 cm frá skiptingu. Nú er prjónað mynstur A.1 hringinn í umferð (= 11-12-12-13-14-15 mynstureiningar með 4 lykkjum). Í 7. umferð eru auknar út 16-16-16-16-12-12 lykkjur jafnt yfir = 60-64-64-68-68-72 lykkjur. Þegar prjónað hefur verið upp að A.2 í mynsturteikningu, endurtakið A.2 á hæðina þar til prjónaðir hafa verið 16 cm með A.2 í öllum stærðum (ermin mælist ca 31-31-30-28-27-25 cm og það eru nú eftir ca 6 cm með mynstri + 6 cm stroffi á ermi). Prjónið síðan þær umferðir sem eftir eru í mynsturteikningu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 11-13-13-13-13-14 lykkjur jafnt yfir = 49-51-51-55-55-58 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 17-17-15-15-13-14 lykkjur jafnt yfir = 32-34-36-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið niður kant í hálsmáli á röngu þannig að kanturinn liggi tvöfaldur og saumið niður með smáu spori – passið uppá að saumurinn verði ekki stífur! |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Jennifer wrote:
Habe den Pulli in rostrot gestrickt. Das Ergebnis ist wirklich toll! Wunderschönes Design! Ich brauchte allerdings auch ein bisschen mehr Wolle als für Größe M angegeben (trotz passender Maschenprobe).
14.07.2020 - 00:36