DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10274.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Fields of Blue

Hekluð húfa og hálsskjól með pufflykkjum. Allt settið er heklað úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk.

DROPS 204-16
DROPS Design: Mynstur sk-063
Garnflokkur B + A eða C
-------------------------------------------------------

ALLT SETTIÐ:

STÆRÐ:
S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: 54/56 - 56/58 - 58/60 cm

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200-200 g litur 06, sægrænn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
75-100-100 g litur 24, bensín

HÚFA:

STÆRÐ:
S/M - M/L - L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 - 56/58 - 58/60 cm

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100 g litur 06, sægrænn
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 24, bensín

HEKLFESTA:
13 tvíbrugðnir stuðlar/fastalykkjur á breidd með 1 þræði úr hvorri tegund = 10 cm.
Mynstur A.2 = 3 umferðir og mælist ca 3,25 cm á hæðina.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

HÁLSSKJÓL:

STÆRÐ:
S/M - M/L - L/XL
Stykkið mælist ca: Ummál= 60-65-69 cm. Hæð = 24-27-30 cm.

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-150 g litur 06, sægrænn
Og notið
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 g litur 24, bensín

HEKLFESTA:
13 tvíbrugðnir stuðlar/fastalykkjur á breidd með 1 þræði úr hvorri tegund = 10 cm.
Mynstur A.2 = 3 umferðir og mælist ca 3,25 cm á hæðina.

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 5,5.
Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10274.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR (á við um bæði húfu og kraga):
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.

HEKLLEIÐBEININGAR FYRIR LOFTLYKKJU:
Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðli.

1 PUFFLYKKJA:
Heklið í sömu lykkju þannig (það er mikilvægt að hekla í lykkjuna, ekki um lykkjuna): * bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um hekluðnálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, dragið báða uppslættina langa (til að koma í veg fyrir að pufflykkjurnar verði smáar og þéttar er mikilvægt að uppslátturinn sé dreginn eins langt og hægt er, þ.e.a.s. ca 2 cm) *, heklið *-* alls 5 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar lykkjurnar á heklunálinni.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 63 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 28) = 2,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca hverja og aðra hverja fastalykkju saman þannig: Stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar (= 1 lykkja færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Húfan er hekluð fram og til baka frá miðju að aftan, neðan frá og upp og saumuð saman mitt að aftan í lokin.

HÚFA:
Heklið 75-77-82 loftlykkjur með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 0-2-1 næstu loftlykkjum, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 5 næstu loftlykkjum *, heklið *-* út umferðina = 62-64-68 fastalykkjur í umferð.
Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1 yfir fyrstu lykkjuna, heklið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, heklið A.3 yfir 2 lykkjur og endið með A.4 yfir síðustu lykkju.
Haldið áfram með mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 20-21-22 cm, fækkið um 28-30-30 lykkjur jafnt yfir í 3. eða 6. umferð í mynsturteikningu (merkt með ör í mynsturteikningu) – sjá ÚRTAKA = 34-34-38 lykkjur.
Heklið 2 umferðir til viðbótar með pufflykkjum.
Í næstu umferð (umferð með fastalykkjum), fækkið lykkjum með því að hekla allar fastalykkjurnar saman 2 og 2 = 17-17-19 fastalykkjur eftir.
Heklið síðan 2 umferðir fastalykkjur þar sem allar fastalykkjurnar eru heklaðar saman 2 og 2 í báðum umferðum = 5 fastalykkjur eftir í öllum stærðum.
Klippið frá, en skiljið eftir nægilega langan þráð til nota til að sauma stykkið saman með.

Þræðið þráðinn upp og niður í gegnum 5 lykkjurnar á toppnum á húfunni, herðið á þræði og festið vel. Húfan mælist ca 26-27-28 cm ofan frá og niður.


FRÁGANGUR:
Saumið húfuna saman mitt að aftan – saumið kant í kant í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði flatur.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að aftan, neðan frá og upp og saumað saman mitt að aftan í lokin.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 94-101-108 loftlykkjur með heklunál 5,5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Fyrsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 fastalykkju í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja og eina af 1-2-3 næstu loftlykkju, * hoppið yfir 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja og eina af 5 næstu loftlykkjum *, heklið frá *-* út umferðina = 78-84-90 fastalykkjur í umferð.
Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið A.1A yfir fyrstu lykkju, heklið A.2 þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, heklið A.3 yfir 2 lykkjur og endið með A.4 yfir síðustu lykkju.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið áfram með mynstur fram og til baka svona þar til stykkið mælist ca 24-27-30 cm (eða að óskaðri lengd), en endið eftir 3. eða 6. umferð í mynsturteikningu. Klippið frá, en skiljið eftir nægilega langan þráð til að nota til að sauma stykkið saman með.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.04.2021
Mynsturteikning A.1: Mynsturteikning í 2. umferð hefur verið uppfærð.
Yfirfarið á vefsvæði: 08.04.2021
Kafli um HEKLLEIÐBEININGAR undir UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR hefur verið fjarlægður.

Mynstur

symbols = það á ekki að hekla þessa umferð, hún hefur nú þegar verið hekluð og sýnir einungis hvernig á að hekla næstu umferð í lykkjurnar
symbols = 1 loftlykkja (jafngildir 1 fastalykkju) – ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju.
symbols = 1 fastalykkja í stuðul/pufflykkju
symbols = 3 loftlykkjur (jafngildir 1 stuðli)
symbols = 1 stuðull í lykkju
symbols = hoppið yfir 1 lykkju, heklið 1 stuðul í næstu lykkju, heklið 1 loftlykkju, heklið 1 PUFFLYKKJA – sjá útskýringu í uppskrift – í lykkjuna sem hoppað var yfir (pufflykkjan á að fara yfir stuðulinn þannig að stuðullinn komi frá röngu á stykki)
symbols = hoppið yfir 1 pufflykkju + 1 loftlykkju, heklið 1 stuðul í næsta stuðul, heklið 1 loftlykkju, heklið 1 pufflykkju í loftlykkju sem hoppað var yfir (pufflykkjan á að fara yfir stuðulinn þannig að stuðullinn komi frá röngu á stykki)
symbols = úrtökuumferð á topp á húfu
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 204-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Roro wrote:

Thanks for your quick response. I'm still not understanding aspects of this diagram. In the second row up after the 1st row of double crochet (working the wrong side), I understand that A4 applies to the 1st stitch and A1 applies to the last stitch. I'm not sure about A3 and A2 though. Does A3 apply to stitches 2 and 3 on the row and then A2 worked for the rest of the row, or is it the opposite way round. Or are A3 and A2 worked alternately throughout the row? Thanks for your patience.

17.07.2020 - 09:05

DROPS Design answered:

Dear Roro, from RS you work: A.1 over 1 st, repeat A.2 and finish with A.3 (1 repeat in width) and A.4 over the last stitch. From WS you will work A.4 over the first st, A.3 (1 repeat in width), repeat A.2 and finish with A.1. read more about diagrams here. Happy crocheting!

17.07.2020 - 12:05

country flag Roro wrote:

Instructions for neck warmer say: 'Work A.1A over the first stitch, A.2 until there are 3 stitches left on the row, A.3 over 2 stitches and finish with A.4 over the last stitch'. This worked well in the initial row, but 4 rows up in diagram there is an oblong box in A.3. This box is worked over 3 stitches (skip 1 puff-stitch + 1 chain stitch, work 1 treble crochet) so I'm not sure how it fits in A3 which is worked over 2 stitches. I'm a beginner so any help is appreciated, thanks.

16.07.2020 - 00:52

DROPS Design answered:

Dear Roro, after you have worked the X from the puff stitch, you have wokred: 1 treble, 1 chain, 1 puff stitch - over these stitches you will work the next-to-last symbol: skip 1 puff stitch and 1 chain, crochet 1 treble in the treble, 1 chain, 1 puff stitch in the chain skipped. Happy crocheting!

16.07.2020 - 10:06

country flag Lyn wrote:

From your diagram on making Fields of Blue hat, can you help by telling me exactly how to do the first and second row after the first double crochet row after the 75 chains, especially the row starting with 3 chains, 2 puff stitches and a treble crochet. If I read the second row left to right, how does the A 1-4 pattern work.

10.07.2020 - 23:18

DROPS Design answered:

Dear Lyn, this video below should help you to understand how to crochet these 2 rows puff stitches. Happy crocheting!

13.07.2020 - 08:41

country flag Marie-Louise wrote:

Skøn opskrift og garnvalg, men er det muligt at give andre farvekombinationer af de to garntyper, som vil fungere sammen på samme vis - vil gerne lave sættet i enten rosa eller mere blå nuancer. Men det er vanskeligt at vurdere farverne og deres match på nettet. På forhånd tak.

07.06.2020 - 21:55

DROPS Design answered:

Hei Marie-Louise. Fargevalg er ganske personlig, men jeg syns i rosanyanse vil Sky 18 støvrosa + Kid-Silk 20 beige eller Sky 14 lys syrin + Kid-Silk 4 gammelrosa være pent sammen. I blånyanser syns jeg Sky 12 jeansblå + Kid-Silk 10 grå eller Sky 13 lys jeansblå + Kid-Silk 10 lys himmelblå ville være flott. God Fornøyelse!

09.06.2020 - 11:52

country flag Sammy wrote:

Könnte man das Modell auch mit Brushed Alpaca Silk häkeln und wieviel Garn würde man benötigen?

06.02.2020 - 09:46

DROPS Design answered:

Liebe Sammy, das könnte auch passen, aber beachten Sie, daß es anders aussehen würde - hier lesen Sie mehr über Garnalternativen. Ihr DROPS Laden wird Ihnen gerne weiter empfehlen. Viel Spaß beim häkeln!

06.02.2020 - 10:45

country flag Cécile wrote:

Je ne comprends pas : "1 maille serrée dans la 3ème maille en l'air ??à partir du crochet?? ," Faut il faire 3 mailles en l'air aant de commencer le rang ? ou bien prendre la 3 eme maille en l'air sur le début du rang ? merci Cécile

29.12.2019 - 21:38

DROPS Design answered:

Bonjour Cecile, chaque rang de points soufflés commence par 3 mailles en l'air (remplacent la 1ère bride). Regardez le video ICI. Happy crocheting!

29.12.2019 - 23:10

country flag Cecile wrote:

Bonjour, tres joli modèle ! Mais je ne comprends pas la description du premier rang: "Crocheter le 1er rang ainsi: 1 maille serrée dans la 3ème maille en l'air à partir du crochet, 1 maille serrée dans chacune des 1-2-3 mailles en l'air suivantes" (différent de ce que montre le schéma non ?) pouvez vous m'aider ? -Et me confirmer ce que montre l'étoile, avec le trait au-dessus, faut il sauter une maille à chaque fois tout le long ? merci ... Cécile

29.12.2019 - 21:20

DROPS Design answered:

Bonjour Cecile, premier rang ne fait pas partie du schemat. Les mailles en l'air sont souvent légèrement plus serrées que les autres mailles et, pour éviter que le montage ne soit trop serré, on crochète simplement quelques mailles en l'air en plus au début. L'etoile signifie - ce rang n'est pas à faire, il a déjà été crocheté et montre comment crocheter le rang suivant. Bon crochet!

29.12.2019 - 23:28

country flag Murielle Pham wrote:

Bonsoir, juste une confirmation pour le point soufflé, une fois qu'on a ramené le dernier jeté dans toutes les boucles, on fait une maille en l'air avant de continuer avec la bride ?

02.12.2019 - 19:23

DROPS Design answered:

Mme Pham, aux rangs 1 et 4 (la ou vous avez 2 croix a cote de soi) on ne fait pas de maille en l'air avant de continuer avec la bride. Au rang 5 il y a une maille an l'air avant la bride suivante. Bon crochet!

02.12.2019 - 20:08

country flag Daniela wrote:

Mein Favorit beim heutigen Stöbern. Warte gespannt auf die Anleitung!!

12.11.2019 - 21:59

country flag Carina Brännström wrote:

Skynda med beskrivning.......Såå fin❤️

08.10.2019 - 12:48