DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11528.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

French Chic

Prjónuð peysa í perluprjóni með stórum kaðli. Stykkið er prjónað úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S – XXXL.

DROPS 206-31
DROPS Design: Mynstur ai-212
Garnflokkur C + C eða E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-300-300-350-350-400 g litur 24, bleikur
og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK
150-150-175-175-200-225 g litur 12, daufbleikur

PRJÓNFESTA:
10 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með perluprjóni = 10 x 10 cm.
A.3 (30-30-30-34-34-34 lykkjur) mælast ca 20-20-20-24-24-24 cm á breidd.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 9.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 9: lengd 80 cm fyrir perluprjón og kaðla.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11528.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Þegar fellt er af fyrir handveg á fram- og bakstykki, er mikilvægt að fella af í umferð á oddatölu í mynsturteikningu. Þetta er gert til að koma í veg fyrir að þurfa að gera snúning fyrir kaðal frá röngu þegar stykkið er prjónað áfram fram og til baka á hringprjón.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 118 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 5,25.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 12. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð ca 11. og 12. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA (á við um mitt undir ermi):
Fækkið um 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki í, takið 2 lykkjur óprjónaða eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt, steypið 2 óprjónuðu lykkjunum yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið á undan lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið lykkju með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri).
Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í A.1.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handveg. Lykkjur eru felldar af fyrir handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir. Síðan eru teknar upp lykkjur meðfram handveg fyrir ermar. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón þar til ermakúpan hefur verið gerð til loka, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður til loka. Að lokum er botninn á handveg saumaður og prjónaður er kantur í hálsmáli. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 118-126-134-142-158-166 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði Air og 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10 lykkju jafnt yfir í öllum stærðum – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 128-136-144-152-168-176 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 9. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 17-19-21-21-25-27 lykkjur, prjónið A.3 (= 30-30-30-34-34-34 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 34-38-42-42-50-54 lykkjur, prjónið A.3 (= 30-30-30-34-34-34 lykkjur) og prjónið A.2 yfir 17-19-21-21-25-27 lykkjur sem eftir eru.
Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 41-42-43-44-45-46 cm, fellið af fyrir handveg, þ.e.a.s. passið uppá að næsta umferð sé oddatölu umferð í A.3 – sjá LEIÐBEININGAR og prjónið næstu umferð þannig:
Fellið af 3-4-5-6-9-10 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðan eins og áður yfir næstu 58-60-62-64-66-68 lykkjur, fellið af 6-8-10-12-18-20 lykkjur fyrir handveg, prjónið síðan eins og áður yfir næstu 58-60-62-64-66-68 lykkjur og fellið af 3-4-5-6-9-10 lykkjur sem eftir eru fyrir handveg. Klippið frá.
Bakstykkið og framstykkið er nú prjónað fram og til baka á hringprjón, hvort fyrir sig til loka.

BAKSTYKKI:
= 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan.
Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir 30-30-30-34-34-34 lykkjur í A.3 = 48-50-52-54-56-58 lykkjur eftir. Í næstu umferð er fækkað um miðju 12-12-12-14-14-14 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram með mynstur og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 17-18-19-19-20-21 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.
Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður.

FRAMSTYKKI:
= 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Byrjið frá röngu og haldið áfram með mynstur fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, fækkið um 10 lykkjur jafnt yfir 30-30-30-34-34-34 lykkjur í A.3 = 48-50-52-54-56-58 lykkjur eftir. Í næstu umferð eru miðju 6-6-6-8-8-8 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum = 17-18-19-19-20-21 lykkjur eftir á öxl.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm.
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.

ERMI:
Prjónið upp lykkjur meðfram handveg á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. byrjið í horni á handveg í annarri hlið á stykki þar sem lykkjur voru felldar af fyrir handveg og prjónið upp frá réttu 38-40-42-44-46-48 lykkjur innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 9 með 1 þræði af hvorri tegund (þ.e.a.s. það á ekki að prjóna upp lykkjur meðfram botni á handveg).
Prjónið A.1 fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 3-4-5-6-9-10 cm þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónamerkið merkir nú hvar á að sauma ermina síðar í botn á handveg og ermin er nú mæld frá þessu prjónamerki!
Skiptið yfir á sokkaprjón 9. Setjið eitt prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi.
Prjónið A.1 hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-3-3-3 cm frá prjónamerki, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 2-2-2-1-1-1 cm millibili alls 6-6-6-8-8-8 sinnum = 26-28-30-28-30-32 lykkjur.
Þegar ermin mælist 16-16-16-14-14-14 cm frá prjónamerki, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 7-7-6½-4½-4-4 cm millibili alls 4-4-4-6-6-6 sinnum = 34-36-38-40-42-44 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 44-43-42-41-38-37 cm frá prjónamerki (nú eru eftir ca 2 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á sokkaprjón eða stuttan hringprjón 8 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 49 cm í öllum stærðum frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermina við botninn á handveg frá prjónamerki og inn að horni í hvorri hlið.

KRAGI:
Prjónið upp frá réttu, ca 40 til 46 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 8.
Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í ca 2 til 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.02.2020
Nýtt efnismagn:DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)250-300-300-350-350-400 g litur 24, bleikur
og notið: DROPS BRUSHED ALPACA SILK 150-150-175-175-200-225 g litur 12, daufbleikur

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = stingið hægri prjóni í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og steypið síðan lykkjunni af prjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 5 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 5 lykkjur slétt, prjónið 5 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Marianne Kenny wrote:

Hi when picking up stitches for the sleeve is the bottom of the armhole where you have cast off for the armhole?

01.10.2022 - 03:26

DROPS Design answered:

Dear Marianne, yes, the bottom of the armhole is where you have cast off for the armhole. Happy knitting!

03.10.2022 - 01:14

country flag Marianne Kenny wrote:

Hi I don’t understand how you can start from the wrong side when you divide for the front and back pieces as you have cast off for the armholes on an odd row?\r\nRegards \r\nMarianne Kenny

28.09.2022 - 18:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kenny, when casting off for the armhole, you have to adjust so that the casting off row will be an odd round in A.3, then continue each piece separately starting from wrong side so that the cables will always be worked from right side. Happy knitting!

29.09.2022 - 08:27

country flag Marianne Kenny wrote:

Hi I want to knit this garment in cotton as I’m allergic to wool. Can I use 2 strands of Paris? and how much yarn do I need for the XL size in just one colour?

16.08.2022 - 05:28

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kenny, yes you can use here 2 strands Paris instead, just make sure you get the correct tension. Use the yarn converter or read more how to calculate new yarn amount here. Your DROPS Store will assist you even per mail or telephone if you need any help. Happy knitting!

16.08.2022 - 08:39

country flag Claudine wrote:

Je souhaiterais effectuer ce modèle mais l adapter pour le groupe C Comment faire ? Voir un autre modèle ressemblant du groupe C ? Avez vous une idée où un modèle précis Merci de votre retour

17.02.2022 - 14:12

DROPS Design answered:

Bonjour Claudine, il vous faudra tout recalculer en fonction de votre tension ou bien - plus simplement: consultez nos différents pulls réalisés avec une laine du groupe C - ajustez les filtres si besoin. Bon tricot!

17.02.2022 - 16:11

country flag Hilal wrote:

Hei, skal bestille garn til denne oppskriften. Står i oppskriften at man trenger nesten dobbelt så mer Drops Air garn enn Drops brushed alpakka Silk garn, men samtidig at hele arbeidet skal strikkes med 1 tråd av hver av de to garntypene (2 tråder). \r\nVil man ikke trenge lik mengde av hver garntype?

06.02.2020 - 13:37

DROPS Design answered:

Hei Hilal. Husk å velge "question"om du trenger svar når du legger inne et spørsmål. Velger du "Comments", blir det ikke registret som et spørsmål og du vil ikke få svar. DROPS Air har en løpelengde på 150 meter på 50 gram, men DROPS Brushed Alpaca har en løpelengde på 280 meter på 50 gram, altså du trenger flere nøster Air enn Brushed. Men det kan se ut som det mangler et nøste eller to av Brushed for å få den totale samme løpelengde. Oppskriften er oversendt design avd for en sjekke. mvh DROPS design

07.02.2020 - 14:54

country flag Brigitte wrote:

Liebes DROPS-Team, ich habe French Chic gestrickt und soeben fertig gestellt. Er gefällt mir sehr gut und ist sehr kuschelig. Was ich aber nach wie vor nicht verstehe, ist, warum bei den angegebenen Garnmengen immer zwei Knäuel mehr Air angegeben sind. Air hat 10 m mehr Lauflänge als Brushed Alpaca Silk und soll immer gleichzeitig verwendet werden. Warum dieser Unterschied in der Menge? (Ich habe jetzt zwei Knäuel Air übrig.). Herzliche Grüße.

15.01.2020 - 23:47

country flag Angie wrote:

Merci beaucoup de votre réponse et aide rapide. Bonne et belle journée à vous

17.12.2019 - 10:29

country flag Angie wrote:

Bonjour est il possible de le faire en aiguille droite et si oui il me suffit bien de diviser en deux le début de l'ouvrage, n'est-ce pas ? ? Auriez-vous les explications en aiguille droite svp ? J'attends votre réponse pour le commencer.

17.12.2019 - 07:40

DROPS Design answered:

Bonjour Angie, tu dois voir la lecon DROPS Comment adapter un modèle sur aiguille circulaire pour des aiguilles droites. Bon tricot!

17.12.2019 - 08:37

country flag Lena Archenholtz wrote:

Kan jag, istället för rundsticka, sticka fram-och bakstycke varför sej?

07.12.2019 - 13:27

DROPS Design answered:

Hei Lena! Det er mulig, vi har dessverre ikke mulighet akkurat nå til å skrive om mønsteret slik at genseren strikkes frem og tilbake. Lykke til!

09.12.2019 - 09:33

country flag Terry wrote:

When looking at the patterns on the garnstudio site some of patterns depict a small pink diamond on them. What does this represent?

01.12.2019 - 02:38

DROPS Design answered:

Dear Terry, the patterns with a diamond are the one you can see as thumbmails on the home page. Happy knitting!

02.12.2019 - 10:04