DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17996.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

True North

Prjónuð síð peysa úr DROPS Sky og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað í perluprjóni, köðlum og með vösum. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-25
DROPS Design: Mynstur sk-052
Garnflokkur C + B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
350-350-400-450-500-550 g litur 03, ljós beige
Og notið:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
225-250-275-300-325-375 g litur 01, natur

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði af hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir kaðla og tvöfalt perluprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 17996.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu!
Peysan er prjónuð í tvöföldu perluprjóni með köðlum mitt að aftan og kaðla kanti í hvorri hlið meðfram miðju að framan. Kaðla kantar mitt að framan eru prjónaðir yfir ystu 12 lykkjurnar. Til að kaðla kanturinn verði umfangsmeiri og “rúllist”, prjónið ekki kantlykkjur yst (þ.e.a.s. ysta lykkjan í A.3 og A.4 eru prjónaðar eins og venjuleg lykkja í sléttprjóni bæði frá réttu og frá röngu).

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út/fækka lykkjum í umferð, teljið fjölda lykkja á prjóni (t.d. 83 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 6 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem á að auka út/fækka (t.d. 5) = 15,4.
í þessu dæmi á auka út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir til skiptis ca. 15. og 16. hverja lykkju. Ekki er aukið út yfir 3 kantlykkjur í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo að ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum eru prjónaðar til skiptis ca 14. og 15. hver lykkja og 15. og 16. hver lykkja slétt saman.

ÚRTAKA (á við um ermar í stærð L, XL, XXL og XXXL):
Fækkið um 1 lykkju eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið um 1 lykkju á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, takið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í stykkjum fram og til baka á hringprjón. Framstykkin og bakstykkið er prjónað neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður. Vasarnir eru prjónaðir hvor fyrir sig og saumaðir á í lokin.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 83-87-95-99-107-115 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til prjónaðar hafa verið alls 5 umferðir með stroffi. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (3 kantlykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar áfram í garðaprjóni) – JAFNFRAMT er aukið út um 5 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 88-92-100-104-112-120 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6.
Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 3 lykkjur í garðaprjón, prjónið A.1 yfir næstu 30-32-36-38-42-46 lykkjur (= 15-16-18-19-21-23 mynstureiningar með 2 lykkjum), prjónið A.2 (= 22 lykkjur), prjónið A.1 yfir næstu 30-32-36-38-42-46 lykkjur og endið með 3 lykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 57-58-59-60-61-62 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónamerkin merkja handveg. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm, fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA, yfir miðju 12 lykkjur = 82-86-94-98-106-114 lykkjur. Í næstu umferð er fækkað um miðju 12 lykkjur í öllum stærðum fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið svona áfram með mynstur og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 34-36-40-42-46-50 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni við háls og 3 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm. Prjónið 1 umferð frá röngu yfir allar lykkjur. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Bakstykki mælist ca 73-75-77-79-81-83 cm frá öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 47-49-53-55-59-63 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu (= frá miðju að framan): * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni og endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni að hlið (það er rétt að fyrsta lykkjan við miðju að framan er prjónuð í sléttprjóni en ekki í garðaprjóni – sjá MYNSTUR). Haldið svona áfram með stroff þar til prjónaðar hafa verið alls 5 umferðir með stroffi.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (3 kantlykkjur í hlið eru prjónaðar jafnóðum í garðaprjóni) – JAFNFRAMT eru auknar út 3 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 50-52-56-58-62-66 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig (= frá miðju að framan): Prjónið A.3 (= 17 lykkjur) – sjá útskýringu í MYNSTUR, prjónið A.1 yfir næstu 30-32-36-38-42-46 lykkjur, endið með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hlið. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 57-58-59-60-61-62 cm, setjið 1 prjónamerki í hlið. Prjónamerkið merkir handveg. Þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir fyrstu 34-36-40-42-46-50 lykkjur frá hlið, haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir 16 lykkjur sem eftir eru. Í næstu umferð (rétta) eru prjónaðar fyrstu 16 lykkjur eins og áður (= kragi), fellið af 34-36-40-42-46-50 lykkjur sem eftir eru með sléttum lykkjum. Klippið frá.

HÆGRI KRAGI:
= 16 lykkjur. Haldið áfram með mynstur A.3 yfir fyrstu 15 lykkjur eins og áður (frá réttu) og prjónið 1 kantlykkju garðaprjón að öxl, jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir. Þ.e.a.s. byrjið frá réttu og prjónið * 2 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur, 2 umferðir fram og til baka yfir ystu 12 lykkjurnar *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist 6-6-6-7-7-7 cm innst þar sem stykkið er minnst. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá röngu.

VINSTRA FRAMSTYKKI (þegar flíkin er mátuð):
Fitjið upp 47-49-53-55-59-63 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Sky + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu (= frá hlið): * 3 kantlykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* út umferðina. Haldið svona áfram með stroff þar til prjónaðar hafa verið alls 5 umferðir með stroffi.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (3 kantlykkjur að hlið eru prjónaðar jafnóðum í garðaprjón) – JAFNFRAMT eru auknar út 3 lykkjur jafnt yfir í þessari umferð = 50-52-56-58-62-66 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig (= frá hlið): Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið A.1 yfir næstu 30-32-36-38-42-46 lykkjur, endið með A.4 við miðju að framan (= 17 lykkjur). Þegar stykkið mælist 57-58-59-60-61-62 cm, setjið 1 prjónamerki í hlið. Prjónamerkið merkir handveg. Þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm, prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir 34-36-40-42-46-50 lykkjur sem eftir eru. Í næstu umferð (rétta) eru felldar af fyrstu 34-36-40-42-46-50 lykkjur fyrir öxl = 16 lykkjur eftir á prjóni fyrir kraga. Haldið áfram með mynstur út umferðina eins og áður.

VINSTRI KRAGI:
= 16 lykkjur. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón (= að öxl), prjónið síðustu 15 lykkjurnar í A.4 eins og áður (frá röngu), jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir. Þ.e.a.s. byrjið frá röngu og prjónið * 2 umferðir fram og til baka yfir allar lykkjur, 2 umferðir fram og til baka yfir ystu 12 lykkjur *, prjónið frá *-* þar til kraginn mælist 6-6-6-7-7-7 cm innst þar sem stykkið er minnst. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá röngu.

ERMI:
Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður.
Fitjið upp 46-50-52-54-58-60 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 6 með 1 þræði Sky + 1 þræði Brushed Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Prjónið síðan áfram mismunandi eftir stærðum þannig:

Stærð S, M:
Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist alls 41-40 cm, prjónið áfram eins og útskýrt er að neðan.

Stærð L, XL, XXL og XXXL:
Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 4 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA = 50-52-56-58 lykkjur. Úrtakan í stærð L er nú lokið. Í stærð XL, XXL og XXXL er úrtakan endurtekin með 4 cm millibili 1-2-2 sinnum til viðbótar = 50-50-52-54 lykkjur. Þegar ermin mælist 39-38-36-34 cm, prjónið áfram eins og útskýrt er að neðan.

Allar stærðir:
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið alls 5 umferðir með stroffi, fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 44-43-42-41-39-37 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn (það eiga nú að liggja 2 brugðnar umferðir við hliðina á hverri annarri á öxl).
Saumið kragann saman við miðju að aftan – saumið kant í kant þannig að saumurinn verði flatur. Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka.
Saumið hliðarsauma á framstykki og bakstykki frá prjónamerki og niður – saumið í ystu lykkjubogann á ystu lykkju í garðaprjóni þannig að saumurinn verði flatur. Skiljið kannski eftir ca 15 cm fyrir klauf í hvorri hlið. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á fram- og bakstykki og innan við uppfitjunarkant á ermum. Saumið saum undir ermum.

VASAR:
Prjónið 2 vasa eins og útskýrt er að neðan.
Fitjið upp 29 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 6 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 19 cm, prjónið 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið næstu umferð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 1 lykkju brugðið og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til prjónaðar hafa verið alls 5 umferðir stroff. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Staðsetjið 1 vasa á hvort framstykki ca 6 cm frá uppfitjunarkanti og 3 cm frá hliðarsaumi. Saumið vasana á framstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á vösum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = stingið hægri prjóni í gegnum lykkjuna frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og steypið síðan lykkjunum af prjóni
symbols = setjið 6 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 6 lykkjur slétt, prjónið 6 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (79)

country flag Elilja wrote:

Guten Abend Wo finde ich das Diagram A1 von welchem in der Anleitung beim Rückenteil gesprochen wird? Es zeigt mir nur A4, A3 und A2 an. Freundliche Grüsse

19.04.2021 - 22:40

DROPS Design answered:

Liebe Elilja, A.1 finden Sie bei der Maßskizze, unter der Ärmel. Viel Spaß beim stricken!

20.04.2021 - 07:27

country flag Elke Franck wrote:

Moin moin, ich hab mal ne Frage zum Kragen, verkürzte Reihe, : * 2 Reihen hin und zurück über alle Maschen, 2 Reihen hin und zurück über die äußersten 12 Maschen* ich les das so, das es jedes mal 4 Reihen sind, stimmt das?? LG Elke

21.03.2021 - 17:01

DROPS Design answered:

Liebe Frau Franck, ja genau, insgesamt sind es 4 Reihen, die wierdholt werden, 2 über 12 M und 2 über alle Maschen. Viel Spaß beim stricken!

22.03.2021 - 08:33

country flag Antonella wrote:

Salve, avrei bisogno di un consiglio. Ho realizzato questo modello, che è venuto molto bene, ma purtroppo risultato un pò stretto, perché avrei dovuto fare una taglia in più. Avete qualche suggerimento per poterlo allargare, senza dover disfare tutto? Grazie

10.03.2021 - 16:54

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella, ha provato a lavarlo? Buon lavoro!

10.03.2021 - 21:45

country flag Zsófi wrote:

Diagram legend description is incorrect in Hungarian, it repeats "knit from the right side, purl from the wrong side" for the second line too. Basically it just says this sentence twice.

15.02.2021 - 21:23

DROPS Design answered:

Dear Zsófi, thank you for letting us know about the mistake, which was now fixed. Happy Knitting!

18.02.2021 - 08:46

country flag Antonella wrote:

Buongiorno, vorrei cortesemente sapere come fare la diminuzione in modo uniforme delle 6 maglie previste nel dietro. Nel ferro delle diminuzioni si continua a lavorare a grana riso? perché in tal caso salterebbe l'alternanza di una maglia a dritto e una a rovescio.

03.02.2021 - 13:17

DROPS Design answered:

Buonasera Antonella, deve continuare a lavorare con i motivi e diminuire 6 maglie sulle 12 maglie centrali. Buon lavoro!

03.02.2021 - 22:32

country flag Esther wrote:

Hallo, gibt es alternative Garnempfehlungen für das Modell ohne Seide? Danke!

09.01.2021 - 16:20

DROPS Design answered:

Liebe Esther, hier lesen Sie mehr über Garnalternativen - Sie können sich auch von den Modellen mit 14 M = 10 cm inspirieren - am besten stricken Sie zuerst immer eine Maschenprobe, so können Sie mal schauen, ob die Textur Ihnen gefällt. Ihr DROPS Händler wird Ihnen auch gerne damit helfen (auch telefonisch oder per E-Mail), das beste passende Garn zu finden. Viel Spaß beim stricken!

11.01.2021 - 08:13

country flag LAPeloteFR wrote:

Hello, love the pattern. could you clarify for the back piece how the shoulders are shaped after the middle decrease and cast off.

11.12.2020 - 03:44

DROPS Design answered:

Hi, Once you have bound off the stitches for the neck, you bind off 1 more stitch on the next row from the neck. The shoulder is then worked straight up without further shaping. Happy knitting!

11.12.2020 - 06:56

country flag Annelies Staal wrote:

Hallo, M.b.t. TrueNorth vest; Ik brei met 2 pennen, en weet hoe ik kabels moet breien, nu ik bezig ben met het voorpand snap ik NIET hoe ik de kabels van het voorpand moet breien. Ik begin met de eerste van de 12 steken , zet 6 steken op de kabelnaald maar dan zit de draad nog aan het begin van de steken en kan ik vervolgens de resterende steken niet breien . De gewone kabel van het achterpand is te zien in de video maar de kabel van het voorpand niet. Graag advies. Thanks

30.10.2020 - 17:46

DROPS Design answered:

Dag Annelies,

Je zet 6 steken op een kabelnaald en breit inderdaad gewoon verder met de draad die nog aan het begin zit. Je maakt de kabels dus op precies dezelfde manier als normaal, maar nu zit de kabel aan het begin van het werk. Het kan eerst wat verdraaid lijken, maar het trekt wel bij naarmate het werk vordert

03.11.2020 - 13:58

country flag Sharon wrote:

Size medium. At what inches do I start the ribbing? It looks like the instructions say at 16 and 1/8 however the finished sleeve is 15 and a quarter

09.10.2020 - 04:59

DROPS Design answered:

Dear Sharon, the 16 and 1/8 apply to size S, in size M you work until sleeve measures 15 and 3/4" then knit 1 row from RS, swticht to needle size 5 mm and work rib = finished sleves measures ca 17". Happy knitting!

09.10.2020 - 08:06

country flag Anne Mongeon wrote:

Bon matin, je suis habituée à faire des torsades, mais je ne sais pas comment en faire en début de rang, pouvez-vous me l’expliquer ou avez-vous un vidéo l’expliquant? Merci beaucoup!

09.09.2020 - 14:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Mongeon, cette vidéo montre, pour un autre modèle (et une autre torsade) comment tricoter la torsade sur les premières mailles du rang sur l'endroit (pour le devant gauche, ce sera la même chose mais en sens inverse, sur les dernières mailles du rang). Bon tricot!

09.09.2020 - 15:06