DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16302.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Cardinal Cardigan

Prjónuð síð peysa úr DROPS Nepal og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum, háum kraga og belti. Stærð XS - XXXL.

DROPS 205-24
DROPS Design: Mynstur ne-313
Garnflokkur C + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
650-750-800-900-1000-1100 g litur 3608, djúp rauður
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-150-150-175-200-200 g litur 32, hindber

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: Lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón og kaðla.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 5: Lengd 80 cm fyrir stroff.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16302.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

I-CORD-KANTUR HÆGRA FRAMSTYKKI (á við um kant yst meðfram miðju að framan):
Byrjið frá réttu, * lyftið yfir 3 fyrstu lykkjum í umferð á hægri prjón án þess að prjóna lykkjurnar (lyftið þeim 1 og 1 með þráðinn á bakhlið á stykki), herðið aðeins á þræðinum og prjónið mynstur og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru eins og útskýrt er í mynstri, snúið stykkinu, prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni við miðju að framan, prjónið þessar lykkjur brugðið, snúið stykkinu *, prjónið frá *-* að óskuðu máli.
ATH: Þú verður að prjóna nokkra cm og draga aðeins í kantinn áður en þú sérð bestu útkomuna.

I-CORD-KANTUR VINSTRA FRAMSTYKKI (á við um kant yst meðfram miðju að framan):
Byrjið frá réttu, * prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð við miðju að framan, lyftið yfir 3 síðustu lykkjurnar í umferð á hægri prjón án þess að prjóna lykkjurnar (lyftið þeim 1 og 1 með þráðinn á bakhlið á stykki), herðið aðeins á þræðinum og prjónið 3 fyrstu lykkjurnar brugðið, síðan er prjónað mynstur og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru eins og útskýrt er í mynstri, snúið stykkinu, prjónið frá *-* að óskuðu máli.
ATH: Þú verður að prjóna nokkra cm og draga aðeins í kantinn áður en þú sérð bestu útkomuna.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1 (jafnt yfir):
Öll úrtaka er gerð frá röngu áður en kaðlarnir byrja.
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 16 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 5,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju brugðið saman.

ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 34 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 4,25.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

SNÚRA:
Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, * færið allar lykkjur til yfir á hægri prjón án þess að snúa stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp.
Það eru kaðlar bæði á framstykki og bakstykki. Á framstykkjum er ystu 26-26-26-28-28-28 lykkjurnar við miðju að framan taldar sem kantur að framan sem skarast yfir hvern annan. Stykkið er saumað saman á öxlum.
Prjónaðar eru upp lykkjur meðfram handveg og ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður þar til ermakúpan hefur verið gerð til loka, síðan eru ermarnar prjónaðar í hring til loka. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður einungis til að geta stillt lengdina af að óskuðu máli. Að lokum eru erma- og hliðarsaumar saumaðir og kraginn er saumaður við hálsmál aftan í hnakka.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 79-79-84-90-90-95 lykkjur (meðtaldar 26-26-26-28-28-28 kantlykkjur við miðju að framan og 1 kantlykkja í hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði Nepal + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (= þ.e.a.s. frá miðju að framan): Prjónið I-CORD-KANTUR HÆGRA FRAMSTYKKI yfir fyrstu 3 lykkjur – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.2 (= 28-28-28-30-30-30 lykkjur), prjónið A.3 (= 31-31-31-35-35-35 lykkjur), prjónið * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið *-* yfir næstu 15-15-20-20-20-25 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff, en síðasta umferð í A.3 og A.2 er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 16-16-21-21-21-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-4-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar 16-16-21-21-21-26 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1, prjónið síðustu umferð í A.3 og A.2 og endið með i-cord-kanti yfir 3 síðustu lykkjur við miðju að framan. Stykkið mælist ca 6 cm frá uppfitjunarkanti og það eru 66-68-71-76-79-83 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 6. Nú byrja kaðlarnir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Haldið áfram með i-cord-kant yfir 3 fyrstu lykkjurnar mitt að framan, prjónið A.5 (= 23-23-23-25-25-25 lykkjur), prjónið A.6 (= 26-26-26-30-30-30 lykkjur), prjónið 13-15-18-17-20-24 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af 5-5-7-8-8-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umferð frá hlið = 61-63-64-68-71-74 lykkjur eftir. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg þar til stykkið mælist 68-71-74-77-80-83 cm.
Í næstu umferð frá réttu, prjónið lykkjurnar í ysta kaðli að hlið slétt saman 2 og 2 (= 4 lykkjur færri) = 57-59-60-64-67-70 lykkjur eftir í umferð.
Setjið síðan lykkjur á þráð fyrir öxl eins og útskýrt er að neðan.
Byrjið í hlið í handveg og setjið lykkjur á þráð í hverri umferð frá handveg þannig (til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið 10-11-11-12-13-14 lykkjur á þráð 2 sinnum og 11-11-12-12-13-14 lykkjur á þráð 1 sinni = 26-26-26-28-28-28 lykkjur eftir á prjóni fyrir kraga, prjónið út umferðina eins og áður.
Prjónið síðan fram og til baka yfir þessar 26-26-26-28-28-28 lykkjur þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 23-23-23-24-24-24 lykkjurnar, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið eins og áður út umferðina, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið eins og áður út umferðina, snúið stykkinu og herðið á þræði. Endurtakið umferð 1-4 þar til kraginn mælist ca 9-9-9-10-10-10 cm innst þar sem stykkið er styst.
Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 79-79-84-90-90-95 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 26-26-26-28-28-28 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjón 5 með 1 þræði Nepal + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig (þ.e.a.s. frá hlið): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið *-* yfir næstu 15-15-20-20-20-25 lykkjur, prjónið A.1 (= 31-31-31-35-35-35 lykkjur, prjónið A.2 (= 28-28-28-30-30-30 lykkjur) og endið með I-CORD-KANTUR VINSTRA FRAMSTYKKI yfir síðustu 3 lykkjur.
Haldið svona áfram með stroff, en síðasta umferð í A.2 og A.1 er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið I-cord-kantur yfir 3 fyrstu lykkjur, prjónið síðustu umferð í A.2 og A.1, prjónið 16-16-21-21-21-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-4-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar 16-16-21-21-21-26 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Stykkið mælist ca 6 cm frá uppfitjunarkanti og það eru 66-68-71-76-79-83 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 6. Nú byrja kaðlarnir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 13-15-18-17-20-24 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 (= 26-26-26-30-30-30 lykkjur, prjónið A.5 (= 23-23-23-25-25-25 lykkjur) og endið með i-cord-kantur yfir síðustu 3 lykkjur mitt að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af 5-5-7-8-8-9 lykkjur fyrir handveg í byrjun á umferð frá hlið = 61-63-64-68-71-74 lykkjur. Haldið áfram mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg þar til stykkið mælist 68-71-74-77-80-83 cm.
Í næstu umferð frá réttu, prjónið lykkjurnar í ysta kaðli að hlið slétt saman 2 og 2 (= 4 lykkjur færri) = 57-59-60-64-67-70 lykkjur eftir í umferð.
Setjið síðan lykkjur á þráð fyrir öxl eins og útskýrt er að neðan.
Byrjið í hlið við handveg og setjið lykkjur á þráð í hverri umferð frá handveg þannig (til að sleppa við að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið 10-11-11-12-13-14 lykkjur á þráð 2 sinnum og 11-11-12-12-13-14 lykkjur á þráð 1 sinni = 26-26-26-28-28-28 lykkjur eftir á prjóni fyrir kraga, prjónið út umferðina eins og áður.
Prjónið síðan fram og til baka yfir þessar 26-26-26-28-28-28 lykkjur þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið eins og áður yfir fyrstu 23-23-23-24-24-24 lykkjurnar, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið eins og áður út umferðina, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið eins og áður yfir allar lykkjur, snúið stykkinu og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið eins og áður út umferðina, snúið stykkinu og herðið á þræði. Endurtakið umferð 1-4 þar til kraginn mælist ca 9-9-9-10-10-10 cm innst þar sem stykkið er styst, en endið eftir umferð frá röngu.
Prjónið 2 umferðir garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur. Fellið laust af með sléttum lykkjum frá réttu.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 124-124-134-144-144-154 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði Nepal + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið *-* yfir næstu 15-15-20-20-20-25 lykkjur, prjónið A.1 (= 31-31-31-35-35-35 lykkjur), prjónið A.2 (= 28-28-28-30-30-30 lykkjur), prjónið A.3 (= 31-31-31-35-35-35 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið *-* yfir næstu 15-15-20-20-20-25 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með stroff, en síðasta umferð í A.3, A.2 og A.1 er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 16-16-21-21-21-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt 3-1-3-4-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar 16-16-21-21-21-26 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1, prjónið síðustu umferð í A.3, A.2 og A.1, prjónið 16-16-21-21-21-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt 3-1-3-4-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar 16-16-21-21-21-26 lykkjur og endið með1 kantlykkju í garðaprjóni.
Stykkið mælist nú ca 6 cm frá uppfitjunarkanti og það eru 103-107-113-121-127-135 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 6. Nú byrja kaðlarnir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 13-15-18-17-20-24 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 (= 26-26-26-30-30-30 lykkjur), prjónið A.5 (= 23-23-23-25-25-25 lykkjur), prjónið A.6 (= 26-26-26-30-30-30 lykkjur), prjónið 13-15-18-17-20-24 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, fellið af 5-5-5-7-8-8-9 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 93-97-99-105-111-117 lykkjur eftir.
Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 68-71-74-77-80-83 cm. Í næstu umferð frá réttu, prjónið lykkjur í ysta kaðli í hvorri hlið slétt saman 2 og 2 (= 8 lykkjur færri í umferð) = 85-89-91-97-103-109 lykkjur eftir í umferð.
Setjið nú lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og öxl í hvorri hlið og samtímis er fellt af fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan.
Byrjið við handveg og setjið lykkjur á þráð í hverri umferð frá handveg í hvorri hlið þannig (til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjur áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið 10-11-11-12-13-14 lykkjur á þráð 2 sinnum í hvorri hlið og 11-11-12-12-13-14 lykkjur á þráð 1 sinni í hvorri hlið.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 69-72-75-78-81-84 cm, fækkið um 8 lykkjur yfir 2 kaðlana mitt að aftan (prjónið lykkjurnar í hvorum kaðli slétt saman 2 og 2).
Í næstu umferð, fellið af miðju 13-13-13-15-15-15 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Haldið áfram að setja lykkjur á þráð og fella jafnframt af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsi.
Þegar allar lykkjurnar hafa verið settar á þráð fyrir öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli, mælist bakstykkið ca 72-75-78-81-84-87 cm frá hæsta punkti á öxl og niður.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ÖXL:
Setjið 31-33-34-36-39-42 lykkjur af þræði á annarri öxlinni á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir þessar lykkjur, en til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni á milli þar sem lykkjur voru settar á þráð, takið þráðinni í bilinu á milli 2 lykkja upp og setjið snúinn á vinstri prjón áður en hann er prjónaður saman með næstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu.
Prjónið á sama hátt meðfram hinum þremur axlastykkjunum.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn.
Saumið kraga saman mitt að aftan – passið uppá að saumurinn snúi inn þegar kraginn er brotinn niður. Saumið kragann við hálsmál aftan í hnakka.

ERMI:
Prjónið upp 44-48-50-54-56-58 lykkjur meðfram handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 6 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) – ATH: Ekki prjóna upp lykkjur meðfram botni á handveg.
Prjónið sléttprjón fram og til baka í 3-3-4-5-5-6 cm (= ermakúpa og eins langt og botninn á handveg).
Prjónið síðan ermi í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 6. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi.
Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem prjónamerkið var sett, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 5-6-7-8-8-9 sinnum = 34-36-36-38-40-40 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-42-41-39-38-36 cm frá prjónamerki (nú á að vera búið að prjóna ermalengdina til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd).
Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-6-6-4-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 42-42-42-42-48-48 lykkjur.
Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt, fellið síðan af með brugðnum lykkjum.
Prjónið hina ermina á sama hátt.
Brjótið upp stroffið neðst niðri á báðum ermum og saumið e.t.v. niður með nokkrum smáum sporum.

MEIRI FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið botninn á handveg.

BELTI:
Fitjið upp 5 lykkjur á sokkaprjón 6 með 1 þræði Nepal + 1 þræði Kid-Silk og prjónið SNÚRA – sjá útskýringu að ofan, þar til beltið mælist ca 250-300 cm (eða að óskaðri lengd) Fellið af. Beltið er lagt saman tvöfalt við notkun.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu

symbols = frá röngu: 2 lykkjur slétt saman
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 4 lykkjur slétt, prjónið 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni

diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (101)

country flag Liz wrote:

I love this sweater, looking forward to the pattern ☺

18.10.2019 - 18:22

country flag Chan-chan wrote:

Ce modèle est vraiment grandiose, à quand les explications s'il vous plait ?

18.10.2019 - 14:56

country flag Anna wrote:

Vart hittar jag mönstret?

17.10.2019 - 22:28

country flag Coby Van Der Kooy wrote:

Wat een prachtige kleur en model. Jammer dat ik hem niet kan maken.

17.10.2019 - 19:31

country flag NICOLE ATTAF wrote:

Je pense que ce modele n'as pas été sélectionné, car les explications tardent et il faut du temps pour faire cet ouvrage... Dommage

17.10.2019 - 18:46

country flag Hannelore Blum wrote:

Magnifique modèle. J'adore

17.10.2019 - 17:58

country flag Heike wrote:

I think I will need 2 month to knit it. It will be a spring pattern :-)

15.10.2019 - 20:48

country flag Päivi Hongisto wrote:

I can't wait this pattern. This one I want to do. Is the pattern so difficalt to do or why we have to wait?

14.10.2019 - 12:58

country flag Tiziana wrote:

L'inverno è alle porte, se non mettete le istruzioni non riusciremo mai a farlo grazie

08.10.2019 - 18:10

country flag Ann wrote:

Where is this pattern listed as I'm unable to locate it on the website please ?

07.10.2019 - 18:48