DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
DROPS SS24

Roses at Dawn

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum. Stærð S - XXXL.

DROPS 206-27
DROPS Design: Mynstur ne-312
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
550-600-700-750-800-900 g litur 8912, blush

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning A.4 á ekki við um stærð S.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja mynstureiningu A.5 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 19 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 3,1.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður, frá miðju að aftan. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-94-94-102-102-110 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal.
Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff þannig:
Prjónið A.1 (= 1-2-2-4-4-6 lykkjur), prjónið A.2 (= 20 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.2 (= 20 lykkjur), prjónið A.3 (= 1-4-4-8-8-12 lykkjur), prjónið A.2 (= 20 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.2 (= 20 lykkjur) og prjónið A.4 (= 0-2-2-4-4-6 lykkjur). Haldið svona áfram hringinn þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Í síðustu umferð í A.1, A.2, A.3 og A.4 eru lykkjur auknar út og lykkjum fækkað – eins og útskýrt er í mynsturteikningu = 104-108-112-116-120-124 lykkjur.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 1-2-3-4-5-6 lykkjur slétt, prjónið A.5 (= 24 lykkjur) yfir A.2 (= hálft bakstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 7 lykkjur ermi), prjónið A.5 (= 24 lykkjur) yfir A.2, prjónið A.2, prjónið 1-3-5-7-9-11 lykkjur slétt (= mitt að framan) og prjónið A.5 (= 24 lykkjur) yfir A.2 (= framstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjónn (= 7 lykkjur ermi), prjónið A.5 (= 24 lykkjur) yfir A.2, prjónið 0-1-2-3-4-5 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Prjónið 1 umferð í mynstur, 4 uppslættirnir yfir hvorri ermi eru prjónaðir snúnir slétt svo að ekki myndist gat = 112-116-120-124-128-132 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Nú er haldið áfram með A.5 og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.5 fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 18-20-22-25-27-31 sinnum = 256-276-296-324-344-380 lykkjur. Nú heldur útaukning fyrir laskalínu áfram á ermum 4-4-3-2-1-0 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. aukið út 22-24-25-27-28-31 sinnum í hvorri hlið á ermi), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar í mynstri eins og áður. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar til loka, eru 272-292-308-332-348-380 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 25-27-28-30-31-34 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Prjónið áfram eins og áður, en án útaukninga, þar til stykkið mælist 26-28-29-31-33-35 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan.
Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 43-46-49-53-56-61 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 51-55-57-61-63-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= hlið undir ermi), prjónið næstu 85-91-97-105-111-121 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 51-55-57-61-63-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið 42-45-48-52-55-60 lykkjur (= hálft bakstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 182-194-210-226-242-262 lykkjur fyrir fram- og bakstykki.
Haldið nú áfram hringinn með A.5 eins og áður og prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 26-26-27-27-27-27 cm frá skiptingu – stillið af þannig að endað sé eftir heila einingu A.5 á hæðina, prjónið slétt fram að fyrstu mynstureiningu A.5 í umferð. Setjið eitt prjónamerki hér. Þetta er núna byrjun á umferð. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið A.6 (= 24 lykkjur) yfir A.5, sléttprjón yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur og aukið JAFNFRAMT út 2-2-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.6 (= 24 lykkjur) yfir A.5, sléttprjón yfir næstu 37-43-49-57-63-73 lykkjur og aukið JAFNFRAMT út 11-9-11-15-17-19 lykkjur jafnt yfir *, prjónið frá *-* 1 sinni í umferð. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka eru 192-200-216-240-264-288 lykkjur í umferð.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjonið stroff (= 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið) umferðina hringinn – byrjið með 1 lykkju slétt þannig að stroffið gangi upp með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið yfir lykkjur í A.6.
Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 51-55-57-61-63-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 57-61-65-69-73-79 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 11-12-13-14-16-18 sinnum = 35-37-39-41-41-43 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 35-34-33-31-30-28 cm (eða prjónið áfram að óskuðu máli, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Í næstu umferð eru auknar út 5-7-5-7-7-9 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 39-38-37-35-34-32 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.06.2020
Leiðrétting: Þetta mynstur hefur verið leiðrétt á nokkrum stöðum. Mynsturteikning A.1 (í XXL) hefur verið leiðrétt og 2 númerum í teikningu með máli hefur verið breytt.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.03.2021
Mynsturteikning A.4, stærð XL hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð yfir 2 síðustu lykkjurnar þannig að þessi lykkja liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (= 1 lykkja færri)
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Maria wrote:

Mooi model maar er lijken fouten in te zitten. Ik begrijp niet waarom A4 niet van toepassing is bij M. Moet dat niet maat S zijn? Hoe kun je bij de pas na de eerste naald op 116 steken (M) uitkomen? Je eindigt na de hals met 108 steken . Bij A5 moet je 4x 4 steken minderen, 16 in totaal. Je houdt 92 over. Tegelijkertijd moet de bij de mouwen 2 x 4 steken meerderen: 8 steken. 92 en 8 geeft 100.

24.01.2020 - 16:57

DROPS Design answered:

Dag Maria,

Inderdaad, je hebt gelijk: A4 geldt niet voor maat S, wel voor maat M. Verder heb ik het eerste stuk van de pas uitgerekend, en ik kom precies op 116 steken, echter is het zo dat het aantal steken in A.5 per naald wisselt, waardoor je inderdaad tijdelijk minder steken op de naald hebt, dus dat is wat verwarrend.

26.01.2020 - 15:26

country flag Silvia wrote:

Salve per la prima volta sto lavorando con ferri circolari!! sono soddisfatta della riuscita finora ma ci sta qualcosa che non mi è chiaro ora che sono al corpo. Misura S: arrivati a 26cm dalla divisione delle maniche bisogna fare aumenti sul rasato ma di fatto il modello A6 è scritto di farlo su A5 soltanto 3 volte!! mentre gli A5 sono due sul davanti e 2 sul dietro!! quindi sono presenti 4 volte! di conseguenza non mi ritrovo con numero delle maglie rasate . grazie

09.01.2020 - 20:57

country flag Maud T wrote:

Bonjour. Comme cela a été signalé par Paula, il y a une erreur concernant la taille L : le total des mailles du col après le premier rang en côtes est de 94 et non 96 comme indiqué pour le rang de montage. Pour obtenir 112 m à la fin du col il faut monter 94 m et non 96. L’erreur n’a tjs pas été rectifiée. Pourquoi ?

20.12.2019 - 17:48

DROPS Design answered:

Bonjour Maud, merci pour votre retour, nos stylistes vont vérifier cela le plus rapidement possible. Bon tricot!

02.01.2020 - 09:04

country flag Ann Peeters wrote:

Ik heb maat 36 en wens deze trui te laten breien. Hoeveel bollen breiwol moet ik hiervoor bestellen? Pikt deze wol? Hebt u een alternatief van wol die niet pikt (als bovenstaande wel zou pikken)? Hoeveel bollen moet ik voor dit alternatief bestellen? Alvast bedankt. Ann

15.12.2019 - 16:18

DROPS Design answered:

Dag Ann,

Als je maat 36 hebt, zou je maat S kunnen nemen. (Controleer ook even de maten in de tekening onderaan en vergelijk deze evt. met een bestaande trui die je lekker zit.)

Nepal bevat gewone wol en alpacawol. Als je daarvoor gevoelig bent kan het inderdaad wat prikken/kriebelen. Je zou ook Big Merino kunnen nemen als alternatief. Of bedoel je pillen? Persoonlijk vind ik het pillen van Nepal erg meevallen.

16.12.2019 - 12:26

country flag Paula wrote:

I can't understand the numbers, for size L cast on 96 s but 2 (A1)+20 (A2)+3+20 (A2)+4 (A3)+20 (A2)+ 3+20 (A2) + 2 (A4) is 94... where is the mistake?

15.12.2019 - 00:58

DROPS Design answered:

Dear Paula. We have sent your question to the Design department to check for mistakes. Once we have an answer we´ll correct the pattern.

15.12.2019 - 20:32

country flag Kristina Larsson wrote:

Hej! Får inte maskantalet att stämma. På storlek XL ska man lägga upp 100 maskor i halsen. Om man sedan följer beskrivningen från andra varvet så blir det 102 maskor på ett varv. Dessutom ska man enligt beskrivningen på varv 6 öka med 16 maskor (A2*4)och minska med 2 (A3 + A4) och då få 116 maskor, det borde ju bli 114 maskor.. Kan det vara så att man på storlek XL ska börja med att lägga upp 102 maskor, eller är det något jag missförstått?

02.12.2019 - 17:32

country flag Benee Guliver wrote:

I really love this pattern. Cant wait to get them on my needle

01.12.2019 - 21:10

country flag Anne Cartwright wrote:

Is there a full written pattern please, that doesn't use charts. I'm unable to read charts and I would so like to make this jumper.

15.11.2019 - 16:18

DROPS Design answered:

Dear Anne, we are sorry but we do not have the written iut directions for the pattern. However we urge you to put a little effor and learn how to make sense of charts as they not only tell you wha ia the next step in your knitting, but yyou can see your stitches AND rows in relation to each other. We do have a lesson in how to read charts here, and you can always ask for help in person in the store you bought your yarn from. Happy Knitting!

16.11.2019 - 07:59

country flag Elise Pedersen wrote:

Hvor finder Jeg opskriften

31.10.2019 - 07:08

country flag Sandra wrote:

Sehr schönes Modell💞 freu mich auf die Anleitung😊

15.10.2019 - 10:28