Roses at Dawn Jacket |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með köðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-26 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hverja mynstureiningu A.5 (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo EKKI myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 19 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 3,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8½-8½-9-8-8½-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 97-100-100-112-112-116 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan stroff frá réttu þannig: 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= 1-1-1-5-5-5 lykkjur), prjónið A.2 (= 20 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.2 (= 20 lykkjur), prjónið A.3 (= 1-4-4-8-8-12 lykkjur), prjónið A.2 (= 20 lykkjur), prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið A.2 (= 20 lykkjur), prjónið A.4 (= 1-1-1-5-5-5 lykkjur) og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til 6 umferðir í mynsturteikningu hefur verið prjónuð til loka á hæðina, munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Nú eru 113-117-121-125-129-133 lykkjur í umferð. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 1-2-3-4-5-6 lykkjur slétt, prjónið A.5 (= 24 lykkjur) yfir A.2 (= vinstra framstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 7 lykkjur ermi), prjónið A.5 (= 24 lykkjur) yfir A.2, prjónið 1-3-5-7-9-11 lykkjur slétt (= mitt að aftan) og prjónið A.5 (= 24 lykkjur) yfir A.2 (= bakstykki), * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 7 lykkjur ermi), prjónið A.5 (= 24 lykkjur) yfir A.2, prjónið 1-2-3-4-5-6 lykkjur slétt og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki) . Prjónið 1 umferð til baka í mynstri, uppslættirnir 4 í hvorri hlið yfir hvorri ermi eru prjónaðir snúnir brugðið svo að ekki myndist gat = 121-125-129-133-137-141 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið nú áfram með A.5, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.5 fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 18-20-22-25-27-31 sinnum = 265-285-305-333-353-389 lykkjur. Nú heldur útaukningin á ermum áfram 4-4-3-2-1-0 sinnum til viðbótar (= alls 22-24-25-27-28-31 lykkjur fleiri í hvorri hlið á ermum), þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar inn í mynstur eins og áður. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar eru 281-301-317-341-357-389 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 25-27-28-30-31-34 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Prjónið áfram eins og áður, en án útaukningar, þar til stykkið mælist 26-28-29-31-33-35 cm frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 47-50-53-57-60-65 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 51-55-57-61-63-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-91-97-105-111-121 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 51-55-57-61-63-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 47-50-53-57-60-65 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 191-203-219-235-251-271 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram fram og til baka með A.5 eins og áður, 4 kantlykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 26-26-27-27-27-27 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé eftir heila einingu A.5 á hæðina er mynstrið prjónað þannig (rétta): 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 19-22-25-29-32-37 lykkjur og aukið jafnframt út 6-3-4-4-5-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING, prjónið A.6 (= 24 lykkjur) yfir A.5, sléttprjón yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur og aukið jafnframt út 2-2-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.6 (= 24 lykkjur) yfir A.5, sléttprjón yfir næstu 37-43-49-57-63-73 lykkjur og aukið jafnframt út 11-9-11-15-17-19 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.6 (= 24 lykkjur) yfir A.5, sléttprjón yfir næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur og aukið jafnframt út 2-2-0-0-2-2 lykkjur jafnt yfir, prjónið A.6 (= 24 lykkjur) yfir A.5, sléttprjón yfir næstu 19-22-25-29-32-37 lykkjur og aukið jafnframt út 6-3-4-4-5-4 lykkjur jafnt yfir og endið með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 202-206-222-242-266-286 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú stroff frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur brugðið og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni – ATH: Stroffið á að prjónast í sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur yfir lykkjurnar í A.6. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 51-55-57-61-63-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 57-61-65-69-73-79 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar 6-6-8-8-10-10 lykkjur undir ermi (= 3-3-4-4-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 2½-2-2-1½-1½-1 cm millibili alls 11-12-13-14-16-18 sinnum = 35-37-39-41-41-43 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 35-34-33-31-30-28 cm (eða prjónið áfram að óskuðu máli, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli – ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis). Í næstu umferð eru auknar út 5-7-5-7-7-9 lykkjur jafnt yfir = 40-44-44-48-48-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 39-38-37-35-34-32 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (17)
Elise Pedersen wrote:
Hvor finder jeg opskriften
31.10.2019 - 07:09Bettina wrote:
Tolle Jacke, wann gibt es die Anleitung
26.08.2019 - 10:57Dominique wrote:
Très Joli
17.07.2019 - 09:11Ольга wrote:
Super!
24.06.2019 - 20:43Doris wrote:
Diese Jacke würde ich gern im Herbst stricken.
24.06.2019 - 16:36Johanna wrote:
Lovely pattern and elegant !
15.06.2019 - 23:10Christiane wrote:
Très très joli modèle !
13.06.2019 - 12:54