Beatrice Norrgård wrote:
Stickat klart oket. Förstår inte det här: ”Börja 5 maskor innan varvets början.”
17.11.2022 - 08:14DROPS Design answered:
Hej Beatrice, jo du flytter bare starten af varvet, så varvet börjar 5 maskor tidigare :)
17.11.2022 - 13:30Beatrice Norrgård wrote:
Jag stickar storlek XXXL och håller nu på med oket och undrar om 400 maskor ska stickas i 29 cm från övre eller nedre halskanten?
17.11.2022 - 08:07DROPS Design answered:
Hej Beatrice, de 400 maskor stickas till arb mäter 29 cm från nedre halskanten :)
17.11.2022 - 13:32Andrea Olsen wrote:
Felling på erme i største str. blir til 68 masker men mønster er 8 masker da ble mønster rapport feil. Skal ikke nummer av masker deles jevnet?
11.11.2022 - 17:40DROPS Design answered:
Hei Andrea, Med felling under ermet, kommer ikke mønsteret alltid til å passe på omgangen, uansett størrelsen du strikker. Du kan enten bare bruke bunnfargen når mønsteret ikke går opp, eller strikke mønsteret så langt det går fram til slutten av omgangen. På begynnelsen av omgangen må du justere hvor du begynner i diagrammet slik at mønsteret fortsetter pent nedover ermet etter felling. God fornøyelse!
14.11.2022 - 07:15Anne-Marie Nyhlin wrote:
Hej, har ni beskrivning för denna där man stickar nerifrån och upp?
31.10.2022 - 20:47DROPS Design answered:
Hej Anne-Marie, her finder du vores tröjor till herr: nerifrån och upp
02.11.2022 - 13:51Irene wrote:
Hei igjen! Jeg stilte spørsmål om raglanmaskene skal inngå i bolen eller ermet, fikk til svar at jeg har fire raglanlinjer. Jeg tenker på når jeg skal sette av masker til ermer, skal disse raglanmaskene da være en del av ermet, eller bolen. I den digitale oppskriften står det at ved inndeling til ermer skal man begynne å telle en maske før omgangsstart, betyr dette at en av to raglanmasker inngår i bol og det andre i ermet?
26.07.2022 - 08:24DROPS Design answered:
Hej Irene, nu skriver du ikke hvilken størrelse du strikker, men prøver at forklare den mindste. Du starter med 36 m på bagstykket, tager 22 masker ud i hver side = 80 masker, det er de 80 masker som fortsætter som bagstykke og samme antal på forstykket, og så legger du op 8 nye masker under ærmerne i hver side. Alle de andre masker på hver side at de 80, bliver til ærmer :)
04.08.2022 - 08:19Irene wrote:
Skal raglanmaskene inngå i bolen eller ermet?
25.07.2022 - 08:25DROPS Design answered:
Hei Irene, Du har 4 raglanlinjer, i hver overgang mellom bolen og ermene. God fornøyelse!
26.07.2022 - 06:50Camille wrote:
Bonjour, jJe viens de lire le dernier commentaire et j'ai un doute : je dois réaliser A2/A3/A4/A5 (etc.) ou est-ce que je dois réaliser le schéma suivant : A2 /5 fois A3 / A4 / A5 / A2 / 2 fois A3 / A4 (etc.) ? Merci d'avance pour votre aide
22.06.2022 - 21:15DROPS Design answered:
Bonjour Camille, vous devez tricoter les diagrammes comme indiqué: 1 m de A.2, 40 m de A.3 (5 x 8 m), 1 m de A.4 (= dos), les 2 m de A.5 (= raglan), etc... et augmentez pour le raglan avant A.2/Après A.4 (de chaque côté de A.5). Bon tricot!
23.06.2022 - 08:44Anais wrote:
Bonjour Je suis au niveau des 208 mailles de l'empiècement et je ne comprends pas la suite : je dois suivre le jacquard : A2 / A3 / A4 --> mais combien de fois dois-je répéter A2 ? A3 ou A4 ? Merci à vous
12.06.2022 - 15:49DROPS Design answered:
Bonjour Anais, vous continuez les diagrammes comme vous les avez commencé, en augmentant dans A.2 et A.4 comme le montrent les diagrammes, avec A.3 entre A.2 et A.4 et A.5 à la transition entre les diagrammes. Quand vous aurez terminé les diagrammes en hauteur, reprenez-les au 1er rang, vous aurez 2 motifs de plus de A.3 entre chaque A.2-A.4 (dû aux augmentations des raglans). Bon tricot!
13.06.2022 - 10:00Guro wrote:
Hei. Hvilken str har modellen på bilde i oppskriften på seg?
26.05.2022 - 14:00DROPS Design answered:
Hej Guro. Vanligtvis är det storlek S eller M som är på bilderna. Det bästa för att få riktig storlek är att se på måleskissen och jämföra med ett plagg man har. Mvh DROPS Design
27.05.2022 - 10:00Hilde wrote:
Hei Stemmer det at det er samme maskeantall på dame og herre? Har lest mønsteret mot hverandre og di er jo like. Trudde en herregenser strikkes med mer masker. Ellers er jeg super fornøyd med oppskriften når jeg klarte å knekke koden:) kunne vert skrevet lettere.
12.03.2022 - 18:02DROPS Design answered:
Hei Hilde Mye er likt, men noe forskjellig på lengder. Sjekk målskissen for å finne den størrelsen som vil passe deg best. mvh DROPS Design
14.03.2022 - 14:04
Reykjavik |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með norrænu íslensku mynstri með laskalínu úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 208-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynstur A.1 er prjónað í stroffi. Mynstur A.2 til A.6 er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 11. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum eða að fella af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sláið e.t.v. uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, (prjónamerki situr hér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt með natur, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli með uppábroti, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-104-108-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum dökk grár. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm, prjónið síðan A.1 í stroffi. Prjónið 1 umferð slétt með natur þar sem aukið er út um 8-4-0-8-20-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 96-96-96-112-128-128 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. BERUSTYKKI: Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 32-32-32-32-40-40 lykkjur (= 4-4-4-4-5-5 mynstureiningar með 8 lykkjum) og A.4 (= 1 lykkja) = bakstykki, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína, prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 8-8-8-16-16-16 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 8 lykkjur) og A.4 (= 1 lykkja) = ermi, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína, prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 32-32-32-32-40-40 lykkjur (= 4-4-4-4-5-5 mynstureiningar með 8 lykkjum) og A.4 (= 1 lykkja) = framstykki, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína, prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 8-8-8-16-16-16 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 8 lykkjum) og A.4 (= 1 lykkja) = ermi, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína. Nú er fyrstu útaukningu fyrir laskalínu lokið og það eru 104-104-104-120-136-136 lykkjur á prjóni (það eru 36-36-36-36-44-44 lykkjur á bakstykki og á framstykki, 12-12-12-20-20-20 lykkjur á hvorri ermi og 2 lykkur í hverri af 4 laskalínum). Haldið áfram með þetta mynstur upp úr. Þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 og A.4 (= alls 8 lykkjur fleiri í annarri hverri umferð). Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 176-176-176-192-208-208 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur á saman hátt upp úr, þ.e.a.s. mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.2/A.4. Mynsturteikning A.3 er prjónuð 2 sinnum fleiri á breiddina fyrir hvert skipti sem 16 umferðirnar eru endurteknar á hæðina. Haldið svona áfram með útaukningu þar til aukið hefur verið út alls 22-26-30-32-32-34 sinnum á hæðina hvoru megin við A.2/A.4. Þegar síðasta útaukningin hefur verið gerð eru 272-304-336-368-384-400 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-20-23-25-25-26 cm frá kanti í hálsmáli. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá kanti í hálsi. Næsta umferð er prjónuð þannig, byrjið 1-1-1-3-3-5 lykkjum á undan byrjun á umferð: Prjónið 80-88-96-104-112-120 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 56-64-72-80-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-96-104-112-120 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 56-64-72-80-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-208-224-256-272 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hliðina mitt í 8-8-8-8-16-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið merkir byrjun á umferð. Prjónið A.6 hringinn (= 22-24-26-28-32-34 mynstureiningar með 8 lykkjum) – byrjið á sléttri lykkju og í sléttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið sé endurtekið eins og áður á breiddina og á hæðina. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 36 cm frá skiptingu – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt með natur þar sem aukið er út um 36-36-40-44-48-52 lykkjur jafnt yfir = 212-228-248-268-304-324 lykkjur. Prjónið A.1 í stroffi (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með litnum dökk grár – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 56-64-72-80-80-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-8-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-88-96-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-8-16-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið. Prjónið A.6 hringinn (= 8-9-10-11-12-12 mynstureiningar með 8 lykkjum) – byrjið á sléttri lykkju og í sléttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið sé endurtekið eins og áður bæði á breiddina og á hæðina, en fyrsta og síðasta lykkjan í umferð er alltaf prjónuð í litnum natur (þetta er gert til að fá fallega úrtöku undir ermi). Þegar stykkið mælist 7-5-4-3-2-2,5 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7 -5 -4 -3 -2 -2,5 cm millibili alls 6-8-10-12-16-14 sinnum = 52-56-60-64-64-68 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-43-42-40-38-38 cm frá skiptingu (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt með litnum natur. Prjónið A.1 í stroffi (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, fellið af með litnum dökk grár – sjá AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá hálsmálið að röngu. Saumið uppfitjunarkantinn niður með litnum dökk grár – saumið með smáu spori innan á peysunni (passið uppá að saumurinn sjáist ekki á framhlið og að saumurinn verði ekki stífur). |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |