DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Reykjavik

Prjónuð peysa fyrir herra með norrænu íslensku mynstri með laskalínu úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 208-3
DROPS Design: Mynstur li-114
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-400-450-450-550-550 g litur 0100, natur
150-150-200-200-200-250 g litur 0519, dökk grár

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7744.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.
Mynstur A.1 er prjónað í stroffi.
Mynstur A.2 til A.6 er prjónað í sléttprjóni.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 11.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum eða að fella af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sláið e.t.v. uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, (prjónamerki situr hér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt með natur, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli með uppábroti, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 88-92-96-104-108-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum dökk grár. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 1 umferð slétt.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm, prjónið síðan A.1 í stroffi. Prjónið 1 umferð slétt með natur þar sem aukið er út um 8-4-0-8-20-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 96-96-96-112-128-128 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar.

BERUSTYKKI:
Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 32-32-32-32-40-40 lykkjur (= 4-4-4-4-5-5 mynstureiningar með 8 lykkjum) og A.4 (= 1 lykkja) = bakstykki, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína, prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 8-8-8-16-16-16 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 8 lykkjur) og A.4 (= 1 lykkja) = ermi, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína, prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 32-32-32-32-40-40 lykkjur (= 4-4-4-4-5-5 mynstureiningar með 8 lykkjum) og A.4 (= 1 lykkja) = framstykki, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína, prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 8-8-8-16-16-16 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 8 lykkjum) og A.4 (= 1 lykkja) = ermi, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína.
Nú er fyrstu útaukningu fyrir laskalínu lokið og það eru 104-104-104-120-136-136 lykkjur á prjóni (það eru 36-36-36-36-44-44 lykkjur á bakstykki og á framstykki, 12-12-12-20-20-20 lykkjur á hvorri ermi og 2 lykkur í hverri af 4 laskalínum).
Haldið áfram með þetta mynstur upp úr. Þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 og A.4 (= alls 8 lykkjur fleiri í annarri hverri umferð). Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 176-176-176-192-208-208 lykkjur í umferð.
Haldið áfram með mynstur á saman hátt upp úr, þ.e.a.s. mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.2/A.4. Mynsturteikning A.3 er prjónuð 2 sinnum fleiri á breiddina fyrir hvert skipti sem 16 umferðirnar eru endurteknar á hæðina. Haldið svona áfram með útaukningu þar til aukið hefur verið út alls 22-26-30-32-32-34 sinnum á hæðina hvoru megin við A.2/A.4. Þegar síðasta útaukningin hefur verið gerð eru 272-304-336-368-384-400 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-20-23-25-25-26 cm frá kanti í hálsmáli. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá kanti í hálsi.
Næsta umferð er prjónuð þannig, byrjið 1-1-1-3-3-5 lykkjum á undan byrjun á umferð:
Prjónið 80-88-96-104-112-120 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 56-64-72-80-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-96-104-112-120 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 56-64-72-80-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 176-192-208-224-256-272 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hliðina mitt í 8-8-8-8-16-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið merkir byrjun á umferð. Prjónið A.6 hringinn (= 22-24-26-28-32-34 mynstureiningar með 8 lykkjum) – byrjið á sléttri lykkju og í sléttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið sé endurtekið eins og áður á breiddina og á hæðina.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 36 cm frá skiptingu – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt með natur þar sem aukið er út um 36-36-40-44-48-52 lykkjur jafnt yfir = 212-228-248-268-304-324 lykkjur. Prjónið A.1 í stroffi (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með litnum dökk grár – sjá AFFELLING.

ERMI:
Setjið 56-64-72-80-80-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-8-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-88-96-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-8-16-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið. Prjónið A.6 hringinn (= 8-9-10-11-12-12 mynstureiningar með 8 lykkjum) – byrjið á sléttri lykkju og í sléttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið sé endurtekið eins og áður bæði á breiddina og á hæðina, en fyrsta og síðasta lykkjan í umferð er alltaf prjónuð í litnum natur (þetta er gert til að fá fallega úrtöku undir ermi).
Þegar stykkið mælist 7-5-4-3-2-2,5 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7-5-4-3-2-2,5 cm millibili alls 6-8-10-12-16-14 sinnum = 52-56-60-64-64-68 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-43-42-40-38-38 cm frá skiptingu (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt með litnum natur. Prjónið A.1 í stroffi (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, fellið af með litnum dökk grár – sjá AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Brjótið uppá hálsmálið að röngu. Saumið uppfitjunarkantinn niður með litnum dökk grár – saumið með smáu spori innan á peysunni (passið uppá að saumurinn sjáist ekki á framhlið og að saumurinn verði ekki stífur).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.08.2021
Leiðrétting: Uppskriftin hefur verið uppfærð, það er gefinn upp fjöldi lykkja á ermum og fram- og bakstykki eftir fyrstu útaukningu fyrir laskalínu. Mynsturteikning A.2, A.3 og A.4 hefur verið skipt upp. Í viðbót hefur verið leiðrétt villa við skiptingu á fram- og bakstykki og ermum.

Mynstur

symbols = natur
symbols = dökk grár
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = sýnir 1 mynstureining á hæðina og hvernig mynstrið er staðsett yfir hvert annað
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Reykjavik

Alexandra Pettersson, Åland Islands

Reykjavik

Karin, Sweden

Reykjavik

Alexandra, Sweden

Reykjavik

Tone Margrethe, Norway

Reykjavik

Skogstrikker, Germany

Reykjavik

Anke, Netherlands

Reykjavik

Raunikki, Finland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 208-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (82)

country flag Andrew wrote:

For the yoke section in my size, the last row should have 368 stitches. to me, this works out to the following: 98(back)+2(rl)+82(sleeve)+2(rl)+98(front)+2(rl)+82(sleeve)+2(rl). Is that right?

01.04.2024 - 16:59

DROPS Design answered:

Dear Andrew, that's right. Happy knitting!

02.04.2024 - 15:34

country flag Gro wrote:

Jeg har strikket denne genseren. Den ble veldig fin, bortsett fra vrangborden på bolen. Synes det var rart å skulle øke før vrangbord, men fulgte oppskriften. Det resulterte i en alt for vid vrangbord.

15.02.2024 - 02:20

country flag Beverley wrote:

I’m on the yoke section. Size XXL \r\nI’ve worked row 1 to 20 to give me 208 stitches \r\n\r\nI will now knit 16 rows marked by * to give me 8 increased stitches every other row and = (208 + (8*8) = 272\r\nIf I repeat this again = (272 + (8*8) = 338\r\n\r\nHow do I get 338 to 384?\r\n\r\nPlease be as much detailed in your response as the instructions are not clear.

31.12.2023 - 16:55

DROPS Design answered:

Dear Beverly, there were 128 stitches, you increase 8 stitches for the raglan a total of 32 times: 128 + (8x32) = 384 stitches. Happy knitting!

02.01.2024 - 11:31

country flag Beverley wrote:

I have just started this. I am on the neck, it tells me to cast on with grey, then on round of knit with white, then I knit 4cm of white, then follow chart A1. When I look at the photo, the neck rib looks folded and I cannot see the cast on round in grey. Is the photo correct?

26.12.2023 - 20:35

DROPS Design answered:

Dear Beverley, this garment has a double neck and since it's folded towards the wrong side, the cast on row will be inside the garment, so it's not visible. You can see in the ASSEMBLY section at the end of the pattern that there are instructions for folding a double neck. Happy knitting!

28.12.2023 - 23:51

country flag Seielstad Bente Anita wrote:

Hei, holder på å strikke denne genseren. Får dessverre et nøste for lite av grunnfargen (0519-326472). Har igjen 8 omganger + ribbestrikk på siste ermet. Veldig irriterende 🥺

20.10.2023 - 02:39

DROPS Design answered:

Hej, Strikker du i DROPS Lima? Har du 20 m på 10 cm og holder målene i måleskitsen? Hvis ja, skriv gerne hvilken størrelse så vi kan se på den :)

24.10.2023 - 08:23

country flag Ann Högberg wrote:

Hej det är första gången jag stickar detta mönster och kört fast på oket första varvet sticka A2 sen A3 över nästa 40 masker i parentesen står 5 rapporter 8 maskor min fråga är ska sticka 8 maskor och sen göra A 4 eller börjar man med A2 stickar 40 maskaror sen A 5 önskar svar mvh Ann Högberg

28.09.2023 - 17:34

country flag Rebecca Luciette wrote:

I oppskriften under halskant står det (jeg strikker str XL og har da 108 masker). «strikk 1 omgang rett med natur der det økes 8 masker jevnt fordelt. Jeg skal da sitte med 112 masker. Men 8+8=16. Jeg har nå brukt dager på å finne ut at det står feil i oppskriften. Hvor mange masker skal jeg ha? Skal jeg øke med 4 masker eller 8? Skal jeg ha 112 masker eller 116? Veldig forvirrende i oppskriften.

29.08.2023 - 14:11

DROPS Design answered:

Hei Rebecca, I størrelsen XL skal du legge opp 104 masker til halsen. Da blir det 112 masker etter økningen. God fornøyelse!

30.08.2023 - 06:47

country flag Line Skjeflo wrote:

Hei, jeg lurer på om jeg kan få hjelp til og forstå oppskriften, Strikker str xxl til mann. Det står at jeg skal strikke A3 2ganger mer i bredden for hver 16 pinne gjentaes i høyden. Den skjønner jeg ikke helt, snakket med noen venner også men de skjønner den ikke helt de eller:)

02.08.2023 - 12:33

DROPS Design answered:

Hej Line, jo men du fortsætter bare mønsteret efterhånden som du øker :)

07.08.2023 - 15:23

country flag Beatrice Norrgård wrote:

Vad menas med mellom??? I mitten av de 16 ny maskorna eller? Kan man inte behålla märket från början av arbetet i början av varvet??? ” Sett en merketråd mellom de 16 nye maskene under ett av ermene, denne merketråden markerer starten av omgangen. mvh DROPS Design”

21.11.2022 - 13:56

DROPS Design answered:

Hei Beatrice. Du har nå strikket ferdig Oket og skal begynne på Fram- och Bakstycket og nå skal starten av omgangen flyttes. Starten blir nå midt mellom de 16 nye maskene som ble lagt opp under det ene ermet, altså 16 nye maskene = 8 masker - sett 1 merke (viser hvor omgangen nå skal starte) - 8 masker. Merketråden skal brukes litt senere når det skal felles midt under ermet. mvh DROPS Design

21.11.2022 - 14:21

country flag Lina wrote:

Jag stickar denna tröja för man. Upptäckte att likadan tröja för kvinna är lika stor stämmer detta? Sedan finns det ingen förhöjning för hals på mönstret för man.

20.11.2022 - 20:11

DROPS Design answered:

Hei Lina. Ja, vi har denne oppskriften til både dame og herre (og barn & baby). Om du ser på målskissene til oppskriftene, ser du at de ikke har helt like mål. På dame modellen er det valgt å ha forhøyning bak, men ikke på herre modellen. mvh DROPS Design

21.11.2022 - 13:02