Sophie wrote:
Str. XL: halskant = 116 masker Når arbejdet fortsætter på bærestykke bruges kun 114 masker. Ved omgang slut er der derfor to masker i overskud. Uden udtagning er det således: Ret 8 m, A1 = 1m, A2 = 40m, A3 = 1m, ret 15m, A1 =1m, A2= 40m, A3 = 1m, ret 7m Samlet 114 masker. Hvad skal der gøres ved de to overskydende masker?
16.03.2020 - 13:27DROPS Design answered:
Hej Sophie, Det ser ud som om at du har glemt "strik første maske i A2 (den kommer lige efter at du har strikket A.2 på to steder). God fornøjelse!
19.03.2020 - 13:44Marion wrote:
Hallo ich komme mit der ersten Reihe nach dem Bund mit der Einteilung nicht klar. Wieviel maschen sind denn für Rücken und Vorderteil bzw für die Ärmel. Habe schon sooft probiert, aber die Anleitung verstehe ich nicht
07.03.2020 - 18:53DROPS Design answered:
Liebe Marion, in XXL haben Sie: Half Rücken: 13 + A.1 (1 M) = 13+1+48 Zunahmen = 62 M. 2. HalfRücken: 1 M (A.3) + 11 M = 1+11+ 48 Zunahmen = 60 (= 122 M für Rücken) - Für Vorderteil: A.3 (1 M), 24, A.1 (1M = 48+1+24+1+48=122 M. Ärmel: A.2 = 41 M + 52 Zunahmen = 93 M. Viel Spaß beim stricken!
09.03.2020 - 10:46Marion wrote:
Hallo ich verstehe leider nicht , wie ich bei 8 Maschen gleichmässig verteilt zunehmen soll: Ich stricke XXL PASSE: Zu Rundnadel Nr. 4,5 wechseln. Nun wie folgt im Muster stricken: die ersten 4-6-6-8-8-10 Maschen rechts stricken und gleichzeitig 4-2-4-2-5-4 Maschen gleichmäßig verteilt zunehmen – ZUNAHMETIPP
02.03.2020 - 07:54DROPS Design answered:
Liebe Marion, in die Größe XXL (= 5. Größe) stricken Sie 8 Maschen und nehmen Sie gleichzeitig 5 Maschen glechmäßig verteilt = es sind jetzt 13 Maschen (über die 8 Maschen). Viel Spaß beim stricken!
02.03.2020 - 11:01Heike wrote:
Ganz herzlichen Dank an das DROPS Team!!! Tolle Strickanleitungen, sehr schönes Garn (incl. schnelle Zusendung) und IMMER SCHNELLE Hilfe, wenn ich stecken bleibe. Eure Web-Site ist äußerst benutzerfreundlich. Das bringt mich wirklich zum sehr häufigen Stricken. DANKE!
27.02.2020 - 16:57Heike wrote:
Gibt's ein Video zur Ärmelzunahme? Ich verstehe nicht, wie es geht und komme bei der Beschreibung auch nur auf 3 Zunahmen. Ich stricke die markierte Mittelmasche ab und dann einen Umschlag, dann nochmal re, dann Umschlag, dann nochmal re = 3 zugenommene Maschen aus der markierten Mittelmasche des Ärmels.
27.02.2020 - 12:55DROPS Design answered:
Liebe Heike, Schauen Sie vielleicht dieses Video, aber bitte beachten, hier wird nicht im Patentmuster gestrickt, nur wird die Zunahmmen genauso gestrickt, dh: die Masche rechts stricken, 1 Umschlag, die Masche noch einmal rechts stricken, 1 Umschlag, die Maschen noch einmal rechts stricken = es wurden jetzt 5 Maschen aus 1 Masche gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
27.02.2020 - 15:10Ursula wrote:
Liebes Team, wenn man bei der Ärmelzuname in der Mitte des Ärmels fünf Machen aus einer rechten Masche heraus strickt entsteht dabei ein kleines Loch. Ist das richtig so? Vielen Dank für die Hilfe!
26.02.2020 - 23:52DROPS Design answered:
Liebe Ursula, ja genau so ist es auch richtig. Wenn Sie diese Löcher lieber kleiner möchten, dann können Sie sie vielleicht bei der nächsten Runde verschränkt stricken. Viel Spaß beim stricken!
27.02.2020 - 09:28Heike wrote:
Kommt der Markierungsfaden bei A1 vor oder nach dem Umschlag rein, also 1m re, Markierungsfaden, Umschlag? Oder vor der re M oder nach dem Umschlag?
24.02.2020 - 20:43DROPS Design answered:
Liebe Heike, die Markierungen werden so eingesetzt: Rückenteil endet mit A.1, Markierung, Ärmel = A.2, Markierung, Vorderteil = A.3, glatt rechts, A.1, Markierung, Ärmel = A.2, Markierung, Rückenteil = A.3, glatt rechts. Viel Spaß beim stricken!
25.02.2020 - 09:30Heike wrote:
Ich schließe mich Francoise (25,11,19) an: In der Antwort (für Größe S) findet sich die genaue Abfolge der Maschen und da heißt es A.2=40m, A.2= 1m . Wo kommt A.2= 1m her? Dann sind es A.2=40m + 1m re?
24.02.2020 - 20:39DROPS Design answered:
Liebe Heike, Sie sollen bei den Ärmeln A.2 über 40 M stricken dann die 1. Maschen in A.2 stricken (= 41 M für jeden Ärmel), deshalb haben Sie diese Beschreibung von den Maschen für Größe S in diesem Antwort. Viel Spaß beim stricken!
25.02.2020 - 09:24Nathalie Perlot wrote:
Merci pour votre réponse rapide. je pense avoir compris pourquoi mon A2 est inversé (m.envers+m.endroit) car j'ai commencé le col en rond dés le premier tour en mousse.comme je n'ai pas eu le courage de recommencer au début,j'ai continué en augmentant la maille centrale à l'envers.( le résultat semble correct).
24.02.2020 - 15:54
Winter Wheat |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Puna eða DROPS Soft Tweed. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með áferðamynstri á ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-48 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja sem auka á út yfir (t.d. 4 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING ERMI: Prjónið fram að miðju lykkju á ermi (= lykkja með prjónamerki í), prjónið * 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið *-* alls 2 sinnum í sömu lykkju, prjónið 1 lykkju slétt í sömu lykkju (= 4 lykkjur fleiri í sömu lykkju). Endurtakið á hinni erminni. Nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.2. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig: Stærð L og XXXL: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðið (prjónamerkið situr í þessari lykkju), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). Stærð XL og XXL: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið næstu 3 lykkjur (prjónamerkið situr í miðju á þessum 3 lykkjum), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. Prjónið sléttprjón á fram- og bakstykki og áferð á ermum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 100-108-108-116-116-124 lykkjur á hringprjón 3 með Puna eða Soft Tweed. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið) hringinn í 3 cm. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið slétt yfir fyrstu 4-6-6-8-8-10 lykkjur og aukið jafnframt út 4-2-4-2-5-4 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir), prjónið A.1 yfir næstu lykkju, setjið eitt prjónamerki hér (= skipting á milli hálfu bakstykki og hægri ermi), prjónið A.2 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.2, setjið eitt prjónamerki hér (= skipting milli hægri ermi og framstykkis), A.3 yfir næstu lykkju, slétt yfir næstu 7-11-11-15-15-19 lykkjur og aukið jafnframt út 7-4-7-3-9-7 lykkjur jafnt yfir, A.1 yfir næstu lykkju, setjið eitt prjónamerki hér (= skipting milli framstykkis og vinstri ermi), prjónið A.2 yfir næstu 40 lykkjur, prjónið fyrstu lykkju í A.2, setjið eitt prjónamerki hér (= skipting milli vinstri ermi og hálfu bakstykki), prjónið A.3 yfir næstu lykkju, slétt yfir næstu 3-5-5-7-7-9 lykkjur og aukið jafnframt út 3-2-3-1-4-3 lykkjur jafnt yfir = 118-120-126-126-138-142 lykkjur í umferð. Nú er 1 prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki í stykki). Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkju á hvorri ermi (= slétt lykkja). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram hringinn með mynstri A.2 á milli prjónamerkis á ermi og A.1/A.3 + sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru á framstykki og bakstykki – JAFNFRAMT í 3. umferð í A.1/A.3 byrjar ÚTAUKNING ERMI – sjá útskýringu að ofan (= 4 lykkjur fleiri á hvorri ermi). Aukið svona út í 8.-8.-6.-6.-4.-4. hverri umferð alls 6-7-10-11-13-14 sinnum. Þegar A.1 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, endurtakið mynstureiningu að laskalínu 7-8-9-10-11-12 sinnum til viðbótar (alls 8-9-10-11-12-13 sinnum), síðan eru prjónaðar fyrstu 3-3-1-1-0-0 umferðir í mynsturteikningu. Þegar allar útaukningar hafa verið gerðar á ermum, framstykki og bakstykki eru 302-328-366-390-430-458 lykkjur í umferð (nú hafa verið auknar út 24-28-40-44-52-56 lykkjur á hvorri ermi og það hafa verið auknar út 35-39-41-45-48-52 lykkjur í hvorri hlið á bakstykki og framstykki). Stykkið mælist nú ca 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki sem sett var í eftir kant í hálsi. Ef stykkið er styttra en þetta er prjónað áfram með áferðamynstri og sléttprjóni eins og áður. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 44-48-52-56-62-67 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 65-69-81-85-93-97 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9-9-9-11-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 86-95-102-110-122-132 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 65-69-81-85-93-97 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 9-9-9-11-11-13 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 42-47-50-54-60-65 lykkjur sem eftir eru (= ca hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 190-208-222-242-266-290 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21 cm. Prjónið kant með mynstri A.2 hringinn í umferð. Þegar kanturinn mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 65-69-81-85-93-97 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 9-9-9-11-11-13 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 74-78-90-96-104-110 lykkjur. Prjónið mynstur A.2 hringinn eins og áður. Mynstrið á að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn í umferð. Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, M: Prjónið áferðamynstur hringinn þar til ermin mælist 41-39 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stærð L, XL, XXL og XXXL: Prjónið áferðamynstur hringinn þar til ermin mælist 4 cm frá skiptingu. Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkjuna undir ermi. Í næstu umferð byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 4-4-4-4 sinnum = 82-88-96-102 lykkjur. Haldið áfram með áferðamynstur þar til ermin mælist 38-37-36-34 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Marion wrote:
Hallo mit dem zunehmen, habe ich verstanden, aber, wenn ich mit der Einteilung beginne und Markierung an bringe, würde ich mit dem halben Arm und nicht wie üblich, halber Rücken. Den ich fange ja mit der ersten Markierung an, die ist Mitte Rücken, insgesamt 5 Markierungen.
04.03.2020 - 20:56